Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Síða 51
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
59
Grétar Símonarson
Grétar Símonarson, fyrrv. mjólkur-
bússtjóri Mjólkurbús Flóamanna,
Miðengi 22, Selfossi, er sjötíu og
fimm ára í dag.
Starfsferill
Grétar fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk prófi frá VI1937,
var við verklegt nám í mjólkurfræði
hjá Mjólkurbúi Ölfusinga 1937-38,
hjá MBF1938, í Danmörku 1938-40,
hjá MBF1941—45 og 1946-51, og lauk
próíi frá Dalum Mælkeriskole í Od-
ense 1946.
Grétar var mjólkurbússtjóri á
Akranesi 1951-52, ogmjólkurbús-
stjóri viö Mjólkurbú Flóamanna á
Selfossi 1953-87.
Grétar sat í stjórn Mjólkurfræð-
ingafélags íslands, í stjórn Mjólkur-
tæknifélagsins, í Mjólkurdagsnefnd,
í stjórn Lífeyrissjóðs Mjólkursam-
sölunnar, í stjórn Lífeyrissjóðs
verkalýðsfélaga á Suðurlandi, í
stjórn Osta- og smjörsölunnar
1961-87, í stjóm Samtaka afurða-
stöðva mjólkuriðnaðarins og í stjóm
Prentsmiðju Suðurlands. Hann var
sæmdur fálkaorðunni 1988 fyrir
störf í þágu mjólkuriðnaðar.
Fjölskylda
Grétar kvæntist 6.9.1947 Guð-
björgu Sigurðardóttur, f. 23.5.1929,
húsmóður. Hún er dóttir Sigurðar
Jónssonar, húsasmiðs í Tryggva-
skála á Akranesi, og k.h., Þóru Guð-
jónsdóttur húsmóður sem bæði eru
látin.
Börn Grétars og Guðbjargar eru
Þóra, f. 9.12.1947, þjónustufulltrúi
viö Landsbankann á Selfossi, en
sonur hennar er Sigurður Fannar,
f. 17.6.1971; Símon Ásgeir, f. 15.1.
1950, fangavöröur, búsettur á Eyrar-
bakka og eru synir hans Grétar, f.
29.10.1969, en hann á tvo syni, Pétur
Geir og nýfæddan son, Ásgeir
Hrafn, £2.5.1975, Andri Dagur, f.
19.8.1987 og Sigurður Haukur, f.
30.12.1990; Örn, f. 22.10.1951, fram-
kvæmdastjóri Prentsmiðju Suður-
lands á Selfossi, kvæntur Sesselju
Sigurðardóttur snyrtifræðingi, og
em dætur þeirra Guðbjörg, f. 23.7.
1976 og Elfa, f. 13.12.1979, en auk
þess á Örn synina Birgi Örn, f. 11.3.
1973, og Kristin Jón, f. 15.11.1973;
Sigurbjörg, f. 29.9.1954, sjúkraliði á
Selfossi, en dóttir hennar er Ása
Ninna Pétursdóttir, f. 16.8.1980; Sig-
urður, f. 17.6.1958, rafvirki við MBF
á Selfossi, kvæntur Sólveigu Ragn-
arsdóttur skrifstofumanni og eru
börn þeirra Guðbjörg Þóra, f. 21.10.
1981, og Ragnar, f. 7.8.1988.
Systur Grétars eru Herdís, f. 24.6.
1921, búsett í Reykjavík; Jóhanna,
f. 6.10.1923, húsmóðir í Garðabæ;
Sigríður, f. 29.7.1925, húsmóðir í
Reykjavík; Jóna, f. 10.11.1932, bú-
sett í Flórída í Bandaríkjunum.
Systurdóttir Símonar, Kristín, f. 6.3.
1937, búsett á Selfossi, ólst upp hjá
foreldrum Grétars.
Foreldrar Grétars voru Símon
Jónsson, f. 25.8.1893, d. 22.2.1942,
kaupmaður á Laugavegi 33 í Reykja-
vík, og k.h., Ása Jóhannsdóttir hús-
móðir, f. 26.5.1900, d. 9.5.1949.
Ætt
Símon var sonur Jóns, b. á Læk í
Ölfusi og síðar verslunarmanns í
Reykjavík, Símonarsonar, b. í
Hraunshjáleigu í Ölfusi, Einarsson-
ar. Móðir Símonar í Hraunshjáleigu
varÞorbjörgSímonardóttir. Móðir
Jóns var Hólmfríður, systir Magn-
úsar, langafa Ellerts B. Schram, rit-
stjóra DV, og Magnúsar Magnús-
sonar, fyrrv. ráðherra, fóður Páls,
ritstjóra Morgunpóstsins. Hólmfríð-
ur var dóttir Magnúsar, b. á Hrauni
í Ölfusi, Magnússonar, af Bergsætt,
og Herdísar Þorgeirsdóttur frá
Litlalandi.
Móðir Símonar Jónssonar var Sig-
ríður Guðmundsdóttir, b. á Gríms-
læk, Eyjólfssonar, b. á Grímslæk,
Afmæli
Grétar Símonarson.
Guðmundssonar. Móðir Sigríðar
var Helga Pálsdóhir, b. á Brúnastöð-
um í Flóa, Jónssonar.
Ása, móðir Grétars, var dóttir Jó-
hanns, formanns og verslunar-
manns á Eyrarbakka og síðar fiski-
matsmanns í Reykjavík, Gíslasonar,
b. í Steinskoti á Eyrarbakka, Gísla-
sonar, b. í Bóluhjáleigu í Holtum,
Gíslasonar. Móðir Ásu var Ingibjörg
Rögnvaldsdóttir, b. í Ásum í Eystri-
hreppi, Gíslasonar.
Grétar og Guðbjörg eru nú stödd
á Kanaríeyjum.
Sólveig Vigdís Þórðardóttir
Sólveig Vigdís Þórðardóttir hús-
móðir, Bankavegi 5, Selfossi, er sex-
tugídag.
Starfsferill
Sólveig fæddist í Reykjavík en
flutti þriggja ára með foreldrum sín-
um að Sölvholti í Flóa er þau hófu
búskapþar.
Sólveig stundaði nám við barna-
skóla og framhaldsskóla á Selfossi,
lauk prófi þar 1951 og stundaði nám
við Húsmæðraskóla Reykjavíkur
1954-55. Hún flutti til Selfoss 1959
og hefur búið það síðan.
Fjölskylda
Sólveig giftist 24.10.1959 Sigfúsi
Kristinssyni, f. 27.5.1932, bygginga-
meistara. Hann er sonur Kristins
Hafliða Vigfússonar í Frambæ á
Eyrarbakka, og Aldísar Guðmunds-
dótturhúsmóður.
Börn Sólveigar og Sigfúsar eru
Aldís, f. 18.3.1960, verkfræðingur í
Bandaríkjunum; Guðjón Þórir, f.
2.1.1962, verkfræðingur á Selfossi,
kvæntur Guðrúnu Guðbjartsdóttur
efnafræðingi og er dóttir þeirra Þór-
hildur Helga, f. 15.5.1992; Kristinn
Hafliði, f. 21.9.1963, stúdent og húsa-
smíðameistari; Þórður, f. 2.8.1972,
nemi í verkfræöi; Sigríður, f. 31.3.
1974, nemi í Fjölbrautaskóla Suöur-
lands.
Systkini Sólveigar eru Vilborg
Þórðardóttir, f. 3.2.1937, hjúkrunar-
fræðingur á Ytra-Laugalandi í Eyja-
firði, gift Hjörleifi Tryggvasyni, b.
þar, og eiga þau sex böm; Jón Þórð-
arson, f. 1.10.1940, b. í Sölvhóli.
Uppeldisbróðir Sólveigar er Bergur
Ketilsson, f. 27.10.1951, vélvirki,
kvæntur Gunni Sigdísi Gunnars-
dóttur og eiga þau tvær dætur.
Foreldrar Sólveigar: Þórður Jóns-
son, f. 22.4.1901, frá Vorsabæ í Ölf-
usi, og k.h., Þórhildur Vigfúsdóttir,
f. 19.3.1903, d. 4.4.1989, frá Þorleifs-
kotiíFlóa.
Ætt
Þórður er sonur Jóns, oddvita 1
Vorsabæ, bróður Ögmundar, föður
Sigrúnar, fyrstu þulu Ríkisútvarps-
ins. Jón var sonur Ögmundar, b. á
Öxnalæk, Ögmundssonar, b. á
Bíldsfelli, Jónssonar, hreppstjóra og
silfursmiðs á Bíldsfelli, Sigurðsson-
ar.
Móðir Þórðar var Sólveig Nikulás-
dóttir, b. á Krossi og Vorsalæk,
Gíslasonar, b. á Kröggólfsstöðum,
Eyjólfssonar. Móðir Sólveigar var
Ragnheiður Diðriksdóttir, b. á
Skeggjastöðum, bróður Sveins, föö-
ur Benedikts, yfirdómara og alþing-
isforseta, föður Einars skálds. Dið-
rik var sonur Benedikts, prests í
Hraungerði, Sveinssonar, prófasts
þar, Halldórssonar. Móðir Bene-
dikts var Anna Eiríksdóttir, systir
Jóns konferensráðs.
Þórhildur var dóttir Vigfúsar, b. á
Iðu, Jónssonar, b. þar, Vigfússonar,
b. þar, Jónssonar, b. þar, Þorsteins-
sonar.
Móðir Þórhildar var Sólveig, syst-
ir Jórunnar, langömmu Hannesar
Hólmsteins lektors. Sólveig var
Sólveig Vigdís bórðardóttir.
dóttir Snorra, b. á Þórustöðum,
Gíslasonar, b. á Kröggólfsstöðum,
Eyjólfssonar, ættföður Kröggólfs-
staðaættarinnar, Gíslasonar. Móðir
Snorra var Sólveig, systir Ólafar,
langömmu Guðrúnar, móður
Bjarna Benediktssonar forsætisráð-
herra. Sólveig var dóttir Snorra ríka
í Engey Sigurðssonar. Móðir Sól-
veigar yngri var Kristín, systir
Björns, langafa Önnu, móður Geirs
Haarde þingílokksformanns. Móðir
Kristínar var Jórunn, systir Magn-
úsar á Hrauni, langafa Símonar,
föður Grétars, fyrrv. mjólkurbús-
stjóra, sem er sjötíu og fimm ára í
dag. Jórunn var dóttir Magnúsar,
b. í Þorlákshöfn af Bergsætt, Bein-
teinssonar og Hólmfríðar Árnadótt-
ur, systur Valgerðar, ættmóður
Briemættarinnar.
Merming
Tvíleikur
Síðari tónleikarnir á Myrkum músíkdögum sl. mið-
vikudagskvöld voru tvíleikstónleikar þeirra Guðrúnar
Birgisdóttur og Martials Nardeaus. Þrjú verk voru á
efnisskránni, eftir tónskáldin Arne Mellnas, Karólínu
Eiríksdóttur og Atla Heimi Sveinsson.
Arne Mellnás er eitt af þekktustu núlifandi tónskáld-
um Svía. Hann hefur samið nokkur verk fyrir blásturs-
hljóðfæri og segulband og er verkið Fragments for
Family Flute frá árinu 1973, sem þau Guörún og Mart-
ial fluttu á tónleikunum, eitt þeirra. í efnisskrá segir
að tónskáldið bjóði upp á ýmsa möguleika við flutning
verksins en þessu sinni var það allavega flutt þannig
að einkar sannfærandi var. Gilti það jafnt um hljóm
og framvindu tónsmíðarinnar sjálfrar og tæknilegan
samleik, bæði flautanna tveggja svo og flautanna og
segulbandsins.
Spil fyrir tvo flautuleikara eftir Karólinu Eiríksdótt-
ur hljómaði næst. Karólína samdi verkið fyrir þau
Guðrúnu og Martial á síðasta ári og hefur þaö verið
áður flutt, m.a. í Gerðarsafni fyrir stuttu. Verkið er
sérlega skýrt mótað frá hendi Karólínu og skiptist í
þrjá kafla sem hverjir fyrir sig hafa sterk einkenni.
Þessi, á yfirborðinu, einfalda tónsmíð leynir á sér því
Tónlist
Áskell Másson
hér er um margvíslegar finlegar hugleiðingar að ræða.
Verkið var og leikið þannig að erfitt er yfirleitt að
ímynda sér betri flutning þess, svo meistaralega skií-
uöu þau Martial og Guðrún því.
Verkið Handanheimar eftir Atla Heimi Sveinsson
var síðasta verk tónleikanna. Þetta er langt verk fyrir
tvær flautur og segulband í fjórum þáttum. Af þeim
er fyrsti þátturinn sérlega „effektífur", en hann er
skrifaður fyrir tvær flautur eingöngu og kemur segul-
bandið til sögunnar síðar í verkinu. Var flutningur
þess óaðfinnanlegur í höndum listamannanna tveggja.
Davia J.J. Guðmundsson,
Flúðabakka I, Blönduósi.
Gyða Þórðardóttir,
Hringbraut 50, Reykjavík.
Ólafía Katrín Hjartadóttir hús-
freyja,
Hrafnabjörg-
um, Höröudal.
Dalabyggð.
Maður hennar
erMagnúsS.
Jósefsson.
Þaueruað
heiman.
Þórey Ólafsdóttir,
Rauöagerði 58, Reykjavík.
Sigurfinnur Karlsson,
HIíðargötu23, Neskaupstað.
Þingborg, Hraungeröishreppi.
Sigurjón Ingólfsson,
Skálholtsvík 2 A, Bæjarhreppi.
Magnús Sigurðsson,
Fannafold 89, Reykjavík.
60ára____________________
Þuríður Ólafsdóttir,
Hæðarbyggð 28, Garðabæ.
Jón H. Guðmundsson,
Suðurbraut 2, Hofshreppi.
Kjartan Gíslason,
Vatnsendabletti 111, Reykjavík.
Karl Kristján Júlíusson,
Kirkjustræti 2, Reykjavík.
Ragnar Einarsson,
Sogavegi 104, Reykjavík.
Sigriður Kristjánsdóttir,
Háaleitisbraut 20, Reykjavík.
Þorsteinn Jóakimsson,
Uröarvegi 4, ísafirði.
GarðarP. Jónsson,
Lyngntóum 6, Garðabæ.
70ára
Þjóðbjörg Þórðardóttir,
Stapaseli 5, Reykjavík.
Magnea Ástmundsdóttir,
Andrésfiósi, Skeiðahreppi.
Sigríður G. Alfonsdóttir,
Kambahrauni34, Ilveragerði.
SvanurBragason,
Háaleítisbraut 113, Reykjavík.
Ingibjörg Stefénsdóttir,
Hörgsholti 5, Hafharfirði.
Jókannes Jónsson,
Hvannalundi 1, Garðabæ.
Guðrún Linda Örlaugsdóttir,
Jörundarholti 158, Akranesi.
Laufey Jóhannsdóttir,
Mávahlíö 31, Reykjavik.
Skúli Garðarsson,
Brekkubyggð 18,Blönduósi.
María Lovísa Eðvarðsdóttir,
Fréttir
Hjúkrunarheimili í Mjódd
Borgarstjóri hefur undirritað
samning við Reykjavíkurdeild
Rauða kross íslands, RRKÍ, um
byggingu 80 rúma hjúkrunarheim-
ihs í Suður-Mjódd fyrir 480 milljón-
ir króna. Stefnt er að því að hefja
framkvæmdir í haust og taka heim-
ilið 1 notkun síðla árs 1996 eða í
byrjun árs 1997. Byggingin er háð
því að séreignarfélag hjúkrunar-
heimilisins Eirar gefi eftir bygging-
arréttinn á lóðinni.
Kostnaður skiptist þannig að 144
milljónir króna koma úr borgar-
sjóði, 90 milljónir frá RRKÍ, 192
milljónir úr Framkvæmdasjóði
aldraðra og 54 milljónir króna frá
öðrum. Aðeins er gert ráð fyrir 20
milljónum úr borgarsjóði á þessu
ári þannig að borgin kemrn- ekki á
fullu inn í framkvæmdirnar fyrr
en á næsta ári og greiðir RRKÍ
kostnaðinn í byrjun. Þá hefur verið
rætt við ýmis stéttarfélög um að
koma inn í framkvæmdimar.