Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1995, Side 2
Fréttir
LAUGARDAGUR 13. MAÍ1995
Niðurstöður úr togararalli Hafrannsóknastofnunar:
Bati þorskstof nsins virð-
ist meiri en áður var talið
- vitum enn ekki ástand stofnsins, segir tölfræðingur Hafró
„Endanlegar niðurstöður úr tog-
araralli sýna sambærilega vísitölu
frá því 1994. Þetta segir þó ekkert til
um endanlegt ástand á stofninunfþví
það er eftir að taka inn í myndina
afla og aflasamsetningu,“ segir
Gunnar Stefánsson, tölfræðingur hjá
Hafrannsóknastofnun, vegna
ástands þorskstofnsins.
Gunnar vill ekki fallast á þá full-
yrðingu Össurar Skarphéðinssonar
að þetta þýði 30 prósenta bata á
þorskstofninum miðað við spár fiski-
fræðinga. Hann viðurkennir þó að
þær vísbendingar sem togararallið
gefur bendi til þess að stofninn standi
nú í stað en fari ekki niður eins og
Hafrannsóknastofnun spáði fyrir um
að hann myndi gera.
Þegar Hafrannsóknastofnun metur
stærð þorskstofnsins eru togararall-
ið og veiöar fiskiskipaflotans lagðar
til grundvallar. Gunnar segir aö enn
eigi eftir aö vinna úr aflaskýrslum
til að hægt sé að meta stofninn. Hann
segir að endanleg niðurstaöa geti allt
eins orðið sú að bati sé þegar orðinn
í stofninum eins og að honum hafi
hnignað.
„Við skoðum afla netabáta, hand-
færabáta, línubáta og togbáta og
tengjum þetta allt sem eina heild inn
í stofnmatið þannig að það gefi heild-
stæöa mynd. Þessari vinnu lýkur í
lok mánaðarins. Það sem er langmik-
iivægasta vísbendingin er aflasam-
setningin fyrir flotann í heild sinni.
Ef við sjáum þar að fiskurinn er far-
inn að lifa lengur þá er það grund-
vallarvísbending um að sóknin sé að
minnka," segir Gunnar.
-rt
„Fiskifræðingarnir segja að þetta sé góður matfiskur. Ég segi að hann sé ekta túristi þvi að hann er veiddur djúpt
suðaustur af íslandi þó að uppeldisstöðvar hans séu í írlandshafi. Mér er sagt að hann sé góður djúpsteiktur og
í pottrétti," segir Guðmundur Karlsson fiskkaupmaður. Guðmundur hefur broddbak á boðstóium í fiskbúð sinni í
Hafnarfirði og má hér sjá Hilmar Sigurðsson viðskiptavin hans virða fyrir sér þennan sjaldgæfa fisk. OV-mynd GVA
Þorskstofninn:
Hef ur stækkað
um30prósent
- segir Össur Skarphéöinsson
„Togararallið, sem þeir sjálfir hafa
lagt mikið upp úr, sýnir að veiði-
stofninn hefur stækkað um 30 pró-
sent. Ef við bætum 30 prósentum við
590 þúsund þá er útkoman 770 þús-
und tonn. Stofninn átti ekki aö verða
svona stór samkvæmt áætlun Hafró
fyrr en um aldamót," segir Össur
Skarphéðinsson, alþingismaður og
líffræðingur, um ástand þorskstofns-
ins sem hann segir betra en Hafrann-
sóknastofnun hafði áætlað að hann
yrði.
Össur segir að niðurstöður úr leið-
angri Hafrannsóknastofnunar sýni
aö batinn sé mikill og fyrr á ferð en
ætlað var. Fiskifræðingar hafi áætl-
að að veiðistofn þorsks færi niður í
510 þúsund tonn í ár í stað þess aö
vera 590 þúsund tonn eins og mæl-
ingar sýna nú. Hann segir að fleira
styðji þessa kenningu sína.
„Krókabátar, sem er eini hluti flot-
ans sem býr við mest frelsi í sókn,
hafa aukið sinn um afla. Það er und-
arlegt ef um tilviljun er að ræða þeg-
ar litið er til þess að þeir bátar hafa
aukið þorskafla sinn um 30 prósent
á þessu fiskveiðiári,“ segir Össur.
Hann segist ekki vera að mæla með
stóraukinni þorskveiöi en menn
verði að gera það upp við sig hvernig
þorskstofninn raunverulega standi.
„Annaðhvort verður sjávarútvegs-
ráðherra að sýna fram á að niður-
stöður leiðangurs Hafrannsókna-
stofnunar síðan í mars séu rangar,
eða hann verður að fallast á að það
er meira svigrúm til veiða en áður
og hvers vegna þá ekki að nýta það
til þeirra sem harðast uröu úti í
þorskniðurskurðinum," segir Össur.
-rt
Eggjatakan í Þormóðsskeri:
Engar merkingar voru í eynni
- segir Jón Leifsson, lögreglumaður á Akranesi
„Það voru engar merkingar í þess-
ari eyju um að hún væri í einkaeigu,
að auki hef ég ekki séð neinar opin-
berar auglýsingar þess efnis. Ég hef
heyrt síðan þetta gerðist að eyjan
væri í eigu Álftaneskirkju og ég spyr
hvort þeir sem telja sig eiga rétt til
nytja úr henni hafi biskupsbréf í
höndunum sem sanna það,“ segir
Jón Leifsson, lögreglumaöur á Akra-
nesi, sem sakaður hefur verið um,
eins og fram kom í samtali í gær við
Svan Steinarsson, son hlunninda-
bónda í Þormóðsskeri, að taka í óleyfi
tvö svartbaksegg úr Þormóðsskeri
síðastliðinn þriðjudag.
Jón segir að aukinheldur hafi það
tíðkast í áraraöir aö steypa undan
veiðibjöllu því hún sé talin spilla
æðarvarpi en talsvert æðarvarp er í
eyjum úti af Mýrum. Svanur sagði í
samtali við DV í gær að hann hefði
reynt að sigla Jón uppi þegar hann
kom að honum í eyjunni en það hefði
ekki tekist þar sem Jón, sem var á
slöngubáti Rauða kross deildar á
Akranesi en hann er ætlaður til nota
í neyðartilfellum, hefði siglt í burtu.
Jón segist hins vegar hafa séð bát í
nánd við sig en ekki séð hann gefa
sér nein merki um aö stöðva. Hann
hefði verið þarna til æfinga á slöngu-
bátnum.
Yfirlögregluþjónn á Akranesi sagð-
ist ekki eiga von á því að eftirmál
yrðu vegna atviksins. Formleg kæra
„Þetta eru kannski tuttugu manns
sem áður höföu keypt miða og því
miður var þarna gert tilboð sem ekki
er hægt er að gera afturvirkt," segir
Atli Hilmarsson hjá Handknattleiks-
sambandi íslands.
HSÍ ákvað í fyrradag að stórlækka
miðaverð í stæöum merktum L í
Laugardalshöllinni. Miðaverö sem
áður var 1900 krónur er eftir þessa
ákvörðun 1000 krónur. Þetta gildir
hefði ekki verið lögð fram á hendur
Jóni og málið yrði því aö öllum lík-
indum ekki sent sýslumanni til með-
ferðar. Jón sagði að ef í ljós kæmi
að hann hefði gerst brotlegur við
eggjatökuna myndi hann svara fyrir
það ef kæra yrði lögð fram á hendur
honum.
„Það gilda sömu reglur um mig og
aðra í þessu þjóðfélagi þótt ég starfi
sem lögreglumaður,“ sagöi Jón.
m.a. um leik islands og Sviss sem er
í dag. Það sem vekur athygli er þó
það að þeir sem keyptu miða á þenn-
an leik á stæði L fyrr í vikunni verða
að bíta í það súra epli að hafa greitt
tæpar tvö þúsund krónur fyrir mið-
ann. Þeir munu væntanlega standa
við hlið þeirra sem fengu miðann á
hálfvirði í dag.
-rt
Stuttar fréttir
Fuilar sildarþrær
Löng löndunarbið fer fljótlega
að há síldveiðum. Biðin um þess-
ar mundir orðin það löng að hver
veiðitúr tekur allt aö eina viku,
RÚV greindi frá þessu.
Aukinveita
Veltan í þjóðfélagínu fyrstu tvo
mánuði ársins jókst um 11,5 pró-
sent miðað við sama tíma í fyrra.
Vísbending greindi frá þessu.
Sáttafundur boðaður
Ríkissáttasemjari hefur boðað
sáttafund í deilu sjómanna og
útgerðarmanna á mánudaginn
kemur. Náist ekki samningar
mun hluti flotans lamast 25. maí.
RÚV greindi frá.
ísbrúnin 45 milurúti
Landhelgisgæslan fór í ískönn-
unarflug sl. þriðjudag og reyndist
þá ísbrúnin vera 45 sjómflur
norðvestur af Barða þar sem hún
var næst íslandi. Þéttleiki
hafísjaðarins var víðast 7 til 9/10.
Bónusvilllögbann
Bónus hefur óskað eftir þvi við
sýslumanninn í Reykjavík að lög-
bann verði sett á notkun Tækni-
-pp
HSÍ stórlækkar miöaverð:
Engar endurgreiðslur