Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1995, Side 8
8
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1995
Vísnaþáttur______
Ó, þíð kvöld
á ungu vori
Nú er vor í lofti þó ekki sé hita-
stigiö alltaf í samræmi við árstíð-
ina. Þó er ekki svo að farfuglarnir
syngi ekki vorinu óð sinn. í þessum
þætti ætla ég að einhverju leyti að
feta í fótspor fuglanna og syngja
vorinu lof með því að taka til
nokkrar vísur vori tengdar.
Við hefjum ferðina hjá hinum
gjörfa sónar hlyni Þorsteini Erl-
ingssyni og tiltek ég hér eina al-
kunna vísu. úr kvæðaflokknum
Lágnætti:
Ekki er margt, sem foldar frið
fegur skarta lætur,
eða hjartað unir við
eins og bjartar nætur.
Bragi Björnsson á Surtsstööum í
Jökulsárhlíð kveður svo um vor-
hug sinn:
Skuggar styttast, skýrist ljós,
skapið þróttlaust mýkir,
vinir hittast, vaknar rós,
vorið nóttlaust ríkir.
í ljóðabók Guðmundar Böðvars-
sonar, Kristallinn í hylnum, eru
vísnaflokkar tveir sem bera yfir-
skriftina Tveir mansöngvar og er
þar þessi vísa:
Lambafjöldi léttu spori
leikur um hlíðarbrjóstin væn.
Ó, þíð kvöld á ungu vori,
ó, þú víðibrekkan græn.
Júlíus Jónsson á Mosfelli í
Svínadal kvað á sumardaginn
fyrsta eftir harðan vetur vísu
þessa:
Suðrið vígir sumartak,
sólblik skýin vefur,
vorsins hlýja vængjatak
vonir nýjar gefur.
Það var um vorið 1944 að þeir
skáldin Kristján frá Djúpalæk og
Þorsteinn Magnússon frá Gilhaga
í Skagafirði hjálpuðu Konráði Vil-
hjálmssyni rithöfundi að stinga
upp kartöflugarð sinn. Þorsteinn
kvað þá þessa vísu:
Eftir linu afköstin
óska ég Konráð góður
vel að blessist þessi þinn
þriggja skálda gróður.
Þá kvaö Konráð vísu þessa:
Þótt á vori viðri kalt
og visni gróður hinna.
Þá mun blessast þúsundfalt
þriggja skálda vinna.
Þannig hljóðaði vísa Kristjáns:
Skrafdrjúgt verður enn um óð
öldnum ljóða svani
þá er erjuð þessi lóð
þriggja skálda bani.
Vísnaþáttur
Valdimar Tómasson
Skáldkonan Ólína Andrésdóttir
kveöur svo í Kópavogi árið 1927:
Úti í móum á ég svið;
unaðs bjó mér fóngin,
þarí ró að þreyja við
þrasta og lóu sönginn.
í mansöng einum kvað Svein-
björn Beinteinsson svo:
Á mig skorar háland hreint:
hefjist þor og kraftur.
Því skai sporum þangað beint
þegar vorar aftur.
Sigurjón Friðjónsson, skáldbóndi
á Litlu-Laugum, kvað svo:
Ómar skor við elfar spil,
egnir þor í draumsins hyl.
Hjá þér vor við hljóm og yl
hinstu spor ég ganga vil.
VÉLSKÓLI fSLANDS
Innritun á haustönn 1995
Umsóknir ásamt gögnum um fyrra nám verða að
hafa borist skrifstofu skólans fyrir 9. júní. Nemendur
sem eru að Ijúka grunnskóla í vor hafa þó frest til
að skila niðurstöðum prófa til 30. júní.
Kennsla fer fram eftir áfangakerfi. Nemendur, sem
hafa stundað nám við aðra skóla, fá nám sitt metið
að svo miklu leyti sem það fellur að námi í Vélskóla
islands.
Inntökuskilyrði: Umsækjandi hafi lokið grunnskóla-
prófi eða sé orðinn 18 ára.
Námið er byggt upp sem þrepanám með stighækk-
andi réttindum.
1. stig vélavörður - tekur 1 námsönn.
2. stig vélstjóri - tekur 4 námsannir.
3. stig vélstjóri - tekur 7 námsannir.
4. stig vélfræðingur - tekur 10 námsannir.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á
skrifstofu skólans kl. 8.00-16.00 alla virka daga. Sími
5519755. Fax 5523760.
Póstfang: Vélskóli íslands, Sjómannaskól-
anum v/Háteigsveg, 105 Reykjavík.
Skólameistari
Matgæðingnr vikimnar dv
Grillveisla
Vigfúsi Aðalsteinssyni viöskipta-
fræðingi, sem er matgæðingur vik-
unnar að þessu sinni, þykir gaman
að grilla. „í okkar fjölskyldu og
kunningjahópi er mjög vinsælt að
grilla á því sem ég kalla borðgrill
en heitir á ensku grill raclette. Um
er að ræða rafmagnsborðgrill með
6 til 8 skálum fyrir ostasósu."
Vigfús grillar auðvitað einnig á
útigrilli sem hann notar ekki bara
á sumrin heldur líka á veturna. „Þá
hef ég það í bílskúrnum og opna
dyrnar þegar ég grilla.“
Svínarifm, sem Vigfús gefur upp-
skrift að, grillar hann á útigrilli.
Grilluð svínarif
Kjötmikil svínarif (2 til 3 á mann)
Spare rib sauce
Barbecue sauce
Pepper mix
tómatar
kartöflur
Svínarifm eru fituhreinsuð og
sett í skál. Spare rib sósunni, Vig-
fús kaupir gjaman merkið Blue
Dragon, er hellt yfir og rifjunum
velt upp úr sósunni þannig að þau
verði öll þakin. Rifin eru mariner-
uð í um 2 klst. áður en þau eru
grilluð. Grillgrindin er hreinsuö og
olíuborin. Rifm tekin beint úr skál-
inni og sett á vel heitt grillið en því
sem afgangs er af spare rib sósunni
er fleygt.
Rifm krydduð á grillinu meö
pepper mix og engu öðru. Þegar
rifin eru orðin fallega brún eru þau
tekin af grillinu og sett í álbakka
eða eitthvað annað þunnt form og
barbecue sósunni hellt yfir og nf-
unum velt vel upp úr henni. Ál-
bakkanum er síðan pakkað vel inn
í álpappír og hann látinn vera á
grilhnu við lágan hita í 30 mínútur.
Á meðan beðið er eftir að rifln veröi
tilbúin eru tómatarnir grillaðir og
Vigfús Aðalsteinsson.
rauðvínsflaskan opnuð.
Þegar rifin eru tilbúin eru þau
borin fram með soðnum kartöflum,
rauðkáli og grilluðum tómötum.
Ef nýir tómatar eru ekki til eru
niðursoðnir tómatar, sem hitaðir
hafa verið upp, mjög góðir með
þessum rétti.
Borðgrillmatur
Lundir af nauti, svíni eða lambi,
100 til 150 g á mann
nýir sveppir
kokkteiltómatar
paprika
Kjötið er skorið í litla teninga og
sett í skál. Sveppirnir, tómatarnir
og paprikan skorin í bita og sett í
skálar.
Ostasósa
500 g fondueostur
2 msk. smjör
11/2 peli rjómi
1 til 11/2 msk. pepper mix
1 tsk. hvítlaukssalt
1 tsk. season all
Smjörið sett í pott og brætt. Ost-
urinn skorinn niður í bita og settur
í pottinn ásamt rjómanum og
kryddinu og osturinn látinn
bráðna við ekki of mikinn hita.
Ath. að hræra í öðru hverju svo
osturinn brenni ekki við.
Rauðrófusalat
400 g niðursoðnar rauðrófur
5 harðsoðin egg
4 til 5 msk. majónes
Rauðrófumar og eggin skorin
niður í litla bita, majónesið Sett út
í og allt hrært saman. Salatið er
búið til að minnsta kosti 3 klukku-
stundum áður en á að neyta þess
og það látið bíða í ísskáp.
Þetta er allt hægt að útbúa tíman-
lega áður en gestirnir koma. Rétt
áður en byrjað er á máltíðinni er
grilliö sett í samband, platan á grill-
inu smurð með olíu, ostasósan sett
í pönnurnar og þær settar undir
grillið.
Kiötið og grænmetið sett á pönn-
una ásamt snittubrauðinu og síðan
steikir hver fyrir sig. Ágætt er að
nota fondue gaffla. Pönnurnar eru
teknar undan grillinu og settar á
matardiskana. Þegar kjötið og
grænmetið er orðið steikt er það
tekið af pönnunni og bitunum dýft
í ostasósuna. Ef óskað er eftir
meira kryddi er sett smávegis af
því á diskinn og kjötinu dýft í
kryddið en annars er ostasósan það
mikið krydduð að ekki ætti að vera
þörf á meira kryddi. Eitt borðgrill
dugar fyrir allt að 6 manns og ef
fleiri eru eru fengin að láni auka-
grill. Auk rauðrófusalatsins er gott
að bera fram snittubrauð og perlu-
lauk með.
Vigfús skorar á Kristínu Ander-
sen, sem rekur gistiheimilið Ár-
velli á Kjalarnesi, að vera næsti
matgæðingur. „Hún býr til mjög
góðan mat.“
Eftir helgina má fá uppskriftina
í Símatorgi DV.
Símanúmerið er 99 17 00.
Hinhliðin_______________________________________________________________________
Langar að hitta markaðs-
stjóra NBA-deildarinnar
- segir Sigurjón Friöjónsson, markaðsstjóri HM '95
Sigurjón Friðjónsson, markaös-
stjóri HM, hefur veriö önnum kaf-
inn síðastliðið ár. „Þetta hefur ver-
iö vinna og aftur vinna. Hún hefur
meðal annars verið fólgin í samn-
ingagerð við styrktarfyrirtæki hér
heima, miðasölu og samskiptum
við erlenda auglýsendur."
Áður en Siguijón gerðist mark-
aðsstjóri HM var hann markaðs-
fulltrúi hjá Vífilfelli.
Fullt nafn: Siguijón Arthur Frið-
jónsson.
Fæðingardagur og ár: 11. febrúar
1961
Maki: Björg Ingadóttir.
Börn: Margrét Rós, 10 ára, Friðjón
Ingi, 3 ára, Dagur, 2 ára, og Sigur-
jón Kári, 1 árs.
Bifreið: Nissan Terrano ’94.
Starf: Markaðsstjóri HM ’95.
Laun: Þokkaleg.
Áhugamál: Handbolti.
Hefur þú unnið í happdrætti eða
lottó? Eg vann einu sinni 5 þúsund
krónur í lottó.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að eiga góðar stundir með
fjölskylduntii og að horfa á góöan
handbolta.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að hafa of lítið að gera.
Uppáhaldsmatur: Mexíkóskur
matur.
Uppáhaldsdrykkur: Diet-Coke.
Hvaða íþróttamaður stendur
Sigurjón Friðjónsson.
fremstur í dag? Á eftir Geir Sveins-
syni er það Michael Jordan.
Uppáhaldstímarit: Ég hef ekki haft
tíma til að lesa tímarit í heilt ár.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Dóttirin.
Ertu hlynntur eða andvigur ríkis-
stjórninni? Það er engin reynsla
komin á hana enn þá.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Markaðsstjóra NBA-
deildarinnar í Bandaríkjunum.
Uppáhaldsleikari: Jón Bjarni Guð-
mundsson.
Uppáhaldsleikkona: Holly Hunter.
Uppáhaldssöngvari: Freddie Merc-
ury.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Geir
H. Haarde.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Hómer Simpson.
Uppáhaldssjónvarpsefni: í þau fáu
skipti sem ég hef tíma til að horfa
á sjónvarp fylgist ég helst með
fréttum.
Uppáhaldsveitingahús: Café Ópera.
Hvaða bók langar þig mest að lesa?
Bók sem Eðvarð T. Jónsson skrif-
aöi um Færeyjar.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Þær hafa allar sína sérstöðu.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Guðjón
Guðmundsson (Gaupi).
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2: Ég horfi jafnlítið á báö-
ar.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Her-
mann Gunnarsson.
Uppáhaldsskemmtistaður: Mér
finnst gaman að kíkja inn á nokkra
staði en ég geri ekki upp á milli
þeirra.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Víking-
ur.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtiðinni? Að eyða meiri tíma
með fjölskyldunni.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
ætla að dvelja á Hótel Búðum.