Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1995, Page 10
10
LAUGARDAGUR 13. MAÍ1995
Fréttir
Skoðanakönnun DV á vinsælduni stjómmálamanna:
Stjórnarherrarnir á
toppi vinsældalistans
- tiltrú kjósenda á Jóhönnu Sigurðardóttur á hraðri niðurleið
Stjórnarhei rarnir Davíð Oddsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, og
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, eru vinsæl-
ustu stjórnmálamenn landsins þessa
dagana. Tiltrú kjósenda á Jóhönnu
Sigurðardóttur hefur hins vegar
minnkað verulega á undanfórnum
vikum. Þetta er niðurstaöa skoðana-
könnunar sem DV gerði í vikunni á
vinsældum og óvinsældum stjóm-
málamanna.
Úrtakið í skoöanakönnun DV var
600 manns. Jafnt var skipt á milli
kynja og eins á milli landsbyggðar
og höfuðborgarsvæðisins. Spurt var:
„Á hvaða stjórnmálamanni hefur þú
mest álit um þessar mundir?" og „Á
hvaða stjórnmálamanni hefur þú
minnst álit um þessar mundir?"
í könnuninni tóku 71,2 prósent að-
spurðra afstöðu til spurningarinnar
um vinsælasta stjórnmálamanninn.
Tilnefndir voru 27 stjórnmálamenn,
þar af 19 með 4 tilnefningar eða færri.
í hópi vinsælustu stjórnmála-
mannanna eru 3 kratar, 4 framsókn-
armenn, 7 sjálfstæðismenn, 8 alþýðu-
bandalagsmenn, 2 þjóðvakar og 3
kvennalistakonur.
Afstöðu til spurningarinnar' um
óvinsælasta stjórnmálamanninn
tóku 60,7 prósent aðspurðra. Til-
nefndir voru 25 stjórnmálamenn, þar
af fengu 15 minna en 4 tilnefningar.
í hópi óvinsælustu stjórnmála-
mannanna eru 4 kratar, 6 framsókn-
armenn, 7 sjálfstæðismenn, 4 alþýðu-
bandalagsmenn, 2 þjóðvakar og 2
kvennalistakonur. -kaa
Skipulagsnefnd og bæjarstjóri Hafn-
arfjarðar hafa mótmælt harðlega
malarnámi Borgarverks i Kapellu-
hrauni. Hér má sjá malarnámið i
fullum gangi en viðræður hafa nú
hafist um lausn málsins.
DV-mynd Sveinn
Náttúruvemdarráð:
Hættviðað
kæra malarnám í
Kapelluhrauni
„Þaö er unnið að lausn málsins því
að það er vilji Náttúruverndarráðs
og þeirra sem keyptu efnistökurétt-
inn að þetta mál leysist sem fyrst.
Ég get ekki tjáð mig um það hvernig
þetta verður leyst í smáatriðum en
ég vona að þetta leysist fljótlega,"
segir Aðalheiður Jóhannsdóttir.
framkvæmdastjóri Náttúruvemdar-
ráös.
Náttúruverndarráð hefur dregið til
baka kæm sína til sýslumannsins i
Hafnarfirði vegna efnistöku Borgar-
verks .í Kapelluhrauni og hafa við-
ræður átt sér stað milli fulltrúa Borg-
arverks, Skógræktar ríkisins, Nátt-
úruverndarráðs og umhverfisráðu-
neytisins, samkvæmt heimildum
DV.
Skipulagsnefnd og bæjarstjóri
Hafnaríjarðar hafa mótmælt harð-
lega malarnáminu í Kapelluhrauni.
-GHS
Vinsælustu og óvinsælustu stjórnmálamennirnir
40%
30
25
20
15
10
5
0
-5’
-10
-15
-20
-25
-30
-40
Halldór
Ásgrímsson
Jón Baldvin
Hannibalsson
Ingibjörg
Pálmadóttir
Olafur Ragnar
Grímsson
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Davíð
Oddsson
Jóhanna
Siguröardóttir
Finnur
Ingólfsson
1,2
Margrét
Frímannsdóttir
Bornar eru saman
vinsældir og óvinsældir
tíu umdeildustu
stjórnmálamannanna
samkv. skoðanak. DV.
Grænu súlurnar sýna
niðurstöður síðustu
skoðanak. DV sem var
framkvæmd í janúar
síðastliðnum.
Óvinsælustu stjórnmálamennirnir
Innan sviga eru niðurstöðurskoðanakönnunar DV í jan. 1995
Atkvæði Af úrtakinu Af þeimsem af- stöðu tóku
1.(1.) Jón Baldvin Hannibalsson 130 (233) 21,7% (38,8%) 35,7% (55,1%)
2. (3.) Ólafur Ragnar Grímsson 48 (32) 8,0% (5,3%) 13,2% (7,6%)
3. (5.) Jóhanna Sigurðardónir 45(24) 7,5% (4,0%) 12,4% (5,7%)
4. (-) Finnur Ingólfsson 27 (-) 4,5% (-) 7,4% (-)
5.-6 (4.) Davíð Oddsson 25(31) 4,2% (5,2%) 6,9% (7,3%)
5.-6. (6.) Ólafur G. Einarsson 25 (23) 4,2% (3,8%) 6,9% (5,4%)
7. (10.) Sighvatur Björgvinsson 9(2) 1,5% (0,3%) 2,5% (0,5%)
8.-9. (-) Ingibjörg Pálmadóttir 8 (-) 1,3% (-) 2,2% (-)
8.-9. (11.) Páll Pétursson 8(2) 1,3% (0,3%) 2,2% (0,5%)
10. (20.)Árni Johnsen 7(-) 1,2% (0,2%) 1,9% (0,2%)
Vinsælustu stjórnmálamennirnir
Innan sviga eru niðurstöðurskoðanakönnunar DVí jan. 1 995
Atkvæði Af úrtakinu Af þeimsem af- stöðu tóku
1.(1.) Davíð Oddsson 165(124) 27,5% (20,7%) 38,5% (28,6%)
2. (3.) HalldórÁsgrímsson 138(74) 23,0% (12,3%) 32,2% (17,1%)
3. (5.) Jón Baldvin Hannibalsson 33 (20) 5,5% (3,3%) 7,7% (4,6%)
4. (2.) Jóhanna Siguröardóttir 14(97) 2,3% (16,2%) 3,3% (22,4%)
5. (6.-7.) Ólafur Ragnar Grímsson 11 (12) 1,8% (2,0%) 2,6% (2,8%)
6. (4.) Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 10(28) 1,6% (4,7%) 2,3% (6,5%)
7.-8. (-) Ingibjörg Pálmadóttir 7 (-) 1,2% (-) 1,6% (-)
7.-8. (-) Margrét Frímannsdóttir 7 (-) 1,2% (-) 1,6% (-)
Suzuki Baleno, fjölskyIdubíll í fullri
stærð, fæst sem tveggja hurða hlað-
bakur og sem fjögurra hurða stall-
bakur.
Fyrsti milli-
stærðarbíllinn
frá Suzuki
Suzuki bílar hf. frumsýna nú um
helgina nýjan Suzuki fólksbíl, Suzuki
Baleno. Þetta er fyrsti fólk.sbíllinn frá
Suzuki í svokölluðum millistærðar-
flokki, íjölskyldubíll í fullri stærð.
Suzuki Baleno er til sem tveggja
hurða hlaðbakur og fjögurra hurða
stallbakur. Bíllinn er fáanlegur með
85 ha. 1300 cc vél eða 99 ha. 1600 vél,
handskiptingu eða sjálfskiptingu.
Miðað við helstu keppinauta er verð-
ið ágætlega hagstætt, frá 1.088 fyrir
tveggja hurða bílinn en 1.229.000 fyr-
ir fjögurra hurða bílinn.
Sýningin er opin í dag, laugardag,
milli kl. 10 og 17 en á morgun, sunnu-
dag, milli 12 og 17.