Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1995, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 13. MAÍ1995
Dagur í lífi Sigríðar Beinteinsdóttur söngkonu:
-í fy r • fi r
I frn fra
sóngnurn
Ég vaknaöi frekar seint Þegar við komum heim aftur auk þess sem maöur lærii heil-
þennan morgun, um tíuleytiö,
þar sem ég var aö glápa á mynd-
band kvöldinu áöur meö Harri-
son Ford. Ég er mikil vídeókona
auk þess sem ég er í fríi þessa
viku pg því upplagt aö njóta
þess. Ég fékk mér abt-mjólk og
brauð með grænmeti í morgun-
verö. Ég hafði rétt lokiö viö að
borða þegar vinkona mín
hringdi í mig og bað mig að
sækja sig út í Hafnaríjörð, þar
sem hún var aö fara með bílinn
sinn í viðgerð, sem ég gerði.
Um hádegi hafði ég ákveðið
að hitta tvær vinkonur mínar á
Sólon íslandus. Við fengunj
okkur súpu og salat sem var
mjög gott. Ætli við höfum ekki
setiö þar í rúman klukkutíma
og blaðrað um daginn og veg-
inn. Handboltinn var nokkuö í
umræðunni hjá okkur.
Með hundinum
í Heiómörk
Það var ekki ýkja margt sem
gerðist hjá mér þennan dag. Ég
fór út með hundinn minn, Tínu
Maríu. Ég reyni að fara með
hana daglega í göngutúr og í
þetta skiptið löbbuöum við
drjúga stund í Heiðmörk. Tína
María er mjög ljúf og skemmti-
leg en ég er búin að eiga hana
í flmm ár. Hún er blanda af
golden retriever og irish shett-
er.
reyndi ég að taka aðeins til en
hafði svo sem ekki mikið að
gera nema dunda við heimilis-
störfm. Þess vegna tók ég fram
útigrillið, sem hafði staðið úti í
allan vetur, var rykugt og takk-
arnir orðnir fastir. Það veitti
því ekki af að taka það í gegn
og gera takkana hðuga aftur.
Ég grillaði síðan kótelettur og
það heppnaðist vel. Það var
mjög gaman enda veðrið óvenj-
ugott.
Horft á
handbolta
Eftir vel heppnaða máltíð
horfði ég á leikinn ísland-
Túnis og hafði gaman af. Ég er
ekki mikil handboltakona eða
íþróttafrík en er alltaf mjög
spennt þegar landsliðið okkar
er að keppa. Ég var ánægð með
okkar menn - þeir stóðu fyrir
sínu.
Annars horfi ég alltaf talsvert
á sjónvarp og hlakka til að fylgj-
ast með Eurovison keppninni á
laugardag. Ég hef einmitt verið
að hugsa til þeirra úti og velta
fyrir mér hvað þau séu að gera.
Ekki get ég sagt að ég öfundi
Björgvin Halldórsson því ég er
búin að fá minn skammt af
þessari keppni en það er engu
að síður mjög gaman hjá þátt-
takendum þessa daga fyrir
keppnina, margt að sjá og skoöa
mikið.
Sami útsetjari
Ég er viss um að Björgvin á
eftir að gera sitt besta og það
verður gaman að sjá hann. Það
er sami útsetjari á laginu Núna
sem Björgvin flytur og laginu
Nætur sem ég flutti í fyrra. Mér
finnst hægt að heyra það á upp-
byggingu lagsins. Annars höf-
um við rætt það, hiuti hópsins
sem var úti í fyrra, að hittast á
laugardaginn og horfa saman á
keppnina. Aö vísu eru þrír í
Dublin núna sem voru líka í
fyrra.
Eftir að handboltinn var bú-
inn í sjónvarpinu horfði ég á
bíómyndina The Client á vídeói
en hún er mjög góö. Ég poppaði
og lét mér líða vel fyrir framan
sjónvarpið. Undanfarið hef ég
sungið með Björgvin Halldórs-
syni á Hótel Islandi um helgar
en um næstu helgi verður frí.
Stjórnin er líka í fríi en við er-
um að undirbúa safnplötu sem
kemur út núna í vor og ferðalag
um landið.
Þetta var því óvenjulega ró-
legur dagur hjá mér en jafn-
framt kærkomið frí sem verður
fram yfir helgina. Maður notar
því tímann og slappar af. Ég fór
síðan að söfa um miðnættið og
þar með lauk þessum degi.
Sigriður Beinteinsdóttir söngkona. DV-mynd
Finnur þú fimm breytingar? 309
Myndirnar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð
kemur í ljós að á myndinni til
hægri hefur fimm atriðum verið
breytt. Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með krossi
á myndinni til hægri og senda
okkur hana ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurveg-
aranna.
1. verðlaun:
Zodiac Sigma 300 sími, aö verðmæti kr.
4.950, frá Hljómbæ, Hverfisgötu 103,
Reykjavík.
2. verðlaun:
Úrvalsbækur. Bækumar, sem eru í verð-
laun, heita: Líki ofaukið og Bláhjálmur
úr bókaflokknum Bróðir Cadfael að verð-
Eigum við að semja, frú Ólafía, þér ákveðið hvað er að og ég
ákveð meðferðina?
Nafn:
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruðustu 0g sjöundu
getraun reyndust vera:
1. Þorbjörg Friðriksdóttir 2. Þorfinnur Finnsson
Hólagötu 4 Hvassaleiti 16
245 Sandgerði 103 Reykjavík
mæti kr. 1.790. Bækurnar em gefnar út
af Fijálsri fjölmiðlun.
Vinningarnir verða sendir heim,
Merkiö umslagið með lausninni:
Finnur þú firam breytiugar? 309
C./o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík