Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1995, Page 29
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1995
37
Jan Johansen keppir fyrir Sviþjóð í Hljómsveitin Love City Groove flytur lagiö Love City Groove fyrir Bretland
kvöld og er spáð góðu gengi. Lagið og í breskum veðbönkum er því spáð þriðja sætinu.
hans, Horfðu á mig, er komið á vin-
sældalista í Svíþjóð.
Norsku flytjendurnir i Eurovision.
Slóvení u og Svi -
þjóö spáð sigri
- íslenska lagið kemst ekki á blað
Slóvenia og Svíþjóö þykja sigur-
stranglegustu löndin í Eurovision-
keppninni þetta árið. Meira að segja
nöfn laganna þykja sláandi lík. Sló-
venía syngur lagið Hlustaðu á mig
en Svíþjóð syngur Horfðu á mig. Sá
norski Jan Johanson syngur fyrir
Svíþjóð og hefur lagið hans náð mikl-
um vinsældum þar og er nú komið
hátt á vinsældalistana. Jan Johanson
var óþekktur í Svíþjóð fyrir undan-
keppni Eurovision-keppninnar en er
nú á allra vörum. Um svipað leyti
og hann söng í keppninni gaf hann
út sína fyrstu sólóplötu.
í veðbönkum í vikunni var Slóven-
íu spáð fyrsta sæti, Svíþjóð öðru,
Bretlandi þriðja og Danmörku þvi
ijórða. Bo Halldórsson var hvergi
nefndur á nafn. Þess má geta að Sló-
venía er í fyrrum Júgóslavíu.
Þetta er í fertugasta skipti sem
Eurovision-söngvakeppnin er hald-
in. Hún fór fyrst fram í Sviss árið
1956. Sjö lönd tóku þátt í þeirri
keppni og hafði hvert land með sér
tvö lög. ísland tók fyrst þátt í keppn-
inni árið 1986 og er þetta því í tíunda
skiptið sem við erum með. Fyrsta
lagið sem við sendum var Gleðibank-
inn eftir Magnús Eiríksson sem Icy-
tríóið flutti.
Besti árangur íslendinga í keppn-
inni var fjórða sætið sem þau Sigga
Beinteins og Grétar Örvarsson hlutu
árið 1990. Fyrstu þrjú árin sem ís-
lendingar tóku þátt í Eurovision
lentu þeir í sextánda sætinu. Það
þótti slakur árangur og því var áfall-
ið öllu verra þegar lagið Það sem
enginn sér fór utan og fékk ekkert
stig frá öðrum þjóðum og lenti því á
botninum. Árið 1991 fóru Eyjólfur
Kristjánsson og Stefán Hilmarsson
með Nínu til Rómar og höfnuðu í
fimmtánda sæti. Sigga Beinteins og
Sigrún Eva sungu Nei eða já í Sví-
þjóð 1992 og náðu sjöunda sætinu
sem er næstbesti árangur Islendinga
í keppninni. Ingibjörg Stefánsdóttir
söng Þá veistu svarið á írlandi 1993
og lenti það lag í þrettánda sæti.
Sigga Beinteins keppti síðan fyrir
íslands hönd í fyrra með lagið Nætur
sem hafnaði í tólfta sæti þegar stigin
höfðu verið talin. Síðan er bara að
bíða og sjá hvar Björgvin hafnar í
kvöld.
Þetta er þriðja árið í röð sem írar
halda Eurovision-keppnina en slíkt
hefur ekki áður gerst í sögu keppn-
innar. írar héldu einnig keppnina
árið 1988 en þeir hafa unnið keppnina
alls sex sinnum. Frægasta sigurlag
þeirra er AU Kinds of Everything
sem Dana söng árið 1970. Sigurinn
gerði Dönu að heimsfrægri söng-
konu.
Abba-flokkurinn sænski er án efa
sá sigurvegari sem mesta frægð hef-
ur hlotið eftir þátttöku í Eurovision
en hann söng lagið Waterloo árið
1974.
Þar sem þetta er fertugasta Euro-
vision-keppnin er ekkert til sparað
að gera hana sem glæsilegasta og
írar ættu að hafa reynsluna til þess.
Euravisian-keppnin 13. maí 1995 í Dublin, írlandi
LAND LAG FLYTJANDI 1. Pólland ■o c (B X ÍN 1 n <Q '1- ró 4. Bosnía/Herseg. 5. Noregur 6. Rússland 7. ísland 8. Austurríki 9. Spánn 10. Tyrkland 11. Króatía 12. Frakkland 13. Ungverjaland 14. Belgía 15. Bretland 16. Portúgal k. 1 !§ t CO ■e ■O E c «J o o\ 20. Slóvenía 21. ísrael 22. Malta 23. Crikkland Samtals
1. Pólland Sama Justyna Steakowska
2. írland Dreamin' Eddie Friel
3. Þýskaland Verliebt in Dich Stone & Stone
4. Bosnía/Hersegóvína 21stCentury Davorin Popovic
5. Noregur Nocturne Secret Carden
6. Rússland Lullaby for Volcano Philjppe Kirkorow
7. ísland Núna Bo Halldórsson
8. Austurríki Die Welt dreht sich verkehrt Stella Jones
9. Spánn Vuelve conmigo Anabel Conde
10. Tyrkland Sev Fiisun Coskun, Sertan Belciler, Ece Sandalli, Arzu Bce
11. Króatía Nostalgija Magazin St Lidija
12. Frakkland II me donne rendez-vous Nathalie Santamari
13. Ungverjaland Új név egy régi ház falán Csaba Szigetj
14. Belgía La voix est libre Frederic Etherlinc
15. Bretland Love City Groove Love City Croove
16. Portúgal Baunilha e chocolate Tó Cruz
17. Kýpur Sti Fotia ■ Alex Panayi
18. Svíþjóö Se pii mej |an johansen
19. Danmörk Fra Mols til Skagen Aud Wilken
20. Slóvenía Prisluhni mi Darja Svajger
21. ísrael Amen Liora
22. Malta Keep Me in Mind Mike Spiteri
23. Crikkland What Prayer Elina Konstantopou