Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1995, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1995, Blaðsíða 56
FRÉTTASKOTIÐ 562*2525 Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, 4 greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- ast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563 2700 BLAÐAAFGREIÐSLA 0G ÁSKRIFT ER 0PIN; Laugardaga: 6-14 Sunnudaga: lokað Mánudaga: 6-20 Þriðjudaga - föstudaga: 9-20 BEINN SÍMI BLAÐA- AFGREIÐSLU: 563 2777 KL 6 8 LAUGAfiDAGS- OG MANUDAGSMORGNA LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1995. HM1 handbolta: ~ Alazmi Saad féllá lyfjaprofinu Fyrsti leikmaðurinn á HM í hand- knattleik er fallinn á lyíjaprófi eins og DV greindi frá í gær. Alazmi Saad, leikmaður Kúveit, féll á lyfiaprófi sem tekið var eftir leik Kúveit og Egyptalands í D-riðli á Akureyri sl. þriðjudag. Þetta var staðfest af IHF í gær. í þvagsýni Saads fannst lyfið Pseudoephedrine sem er á bannlista. Mikið magn fannst af lyfinu og langt jdir þeim mörkum sem IOC setur. Saad var í gær dæmdur í leikbann út heimsmeistaramótið og má að auki ekki leika með liði innan Kú- veits eða utan næstu þrjá mánuðina. Kúveit tapaði umræddum leik gegn ~Egyptalandi, 21-28, en í dómi aga- nefndar IHF í gær var leikurinn dæmdur tapaöur Kúveit, 0-10. - sjá um HM á bls. 38 og 39 Álviðræður í Reykjavik: Bjartsýni Viðræður Landsvirkjunar og stjórnvalda annars vegar og fulltrúa Alusuisse-Lonza hins vegar um fyr- irhugaða stækkun álversins í Straumsvík hófust í Reykjavík í gær- morgun, Meginefni viðræðnanna var að komast að samkomulagi um orku- verð og skattamál vegna álversins en hér er á ferðinni fjárfesting upp á 15 milljarða króna með því að bæta við einum kerskála. Ef samningar takast og aðaleigandi álversins í Straumsvík, Alusuisse- Lonza, ákveður á stjórnarfundi í næsta mánuði að ráðast í stækkun- ina má reikna með að framkvæmdir geti haflst í ágúst eða september. Hægt yrði að taka nýjan kerskála í notkun siðari hluta ársins 1997. Þegar DV fór í prentun í gærkvöld stóðu viðræðurnar enn yfir og óvíst hvort þeim lyki þá eða hvort þær héldu áfram í dag. Síðdegis í gær var bjartsýni ríkjandi um jákvæða nið- urstöðu, samkvæmt heimildum DV. Sj ómannasamningar: Nýrsáttafundur Nýr sáttafundur hefur veriö boöað- ur í deilu sjómanna og útvegsmanna eftir helgina hjá ríkissáttasemjara. Sjómenn hafa boðað verkfall frá og meö 25. maí og hefur aðeins einn sáttafundur verið haldinn með út- gerðarmönnum. Upp úr slitnaöi vegna kröfu sjómanna um verðlagn- ingu á sjávarfangi sem þeir vilja aö fari um fiskmarkað eða á markaös- ’tengduverði. -rt LOKI Köld eru kvennaráð! Illkvittm kona hringir 1 nafni kynsystur sinnar í símastefnnmótiö Einn plús einn: Hún segir mig í lett að villtu kynlifi um 30 karlmenn hafa ónáðað konuna sem þorir ekki að skilja börn sin eftir ein heima „Það hafa um 30 menn hringt í mig í leit að villtu kynlífi. Einn morguninn kom hingað maður með viðurnefnið „beikon“ og ætl- aði ekki að skilja að einhver væri að gera mér grikk. Ég þori ekki lengur að skiija börnin mín tvö eft- ir ein heima og fyrstu \dkuna eftir að þetta gerðist þoröi ég ekki i vinn- una því mér fannst allir karlmenn sem komu í búðina mina gera það í einurn tilgangi - að horfa á mig,“ segir Sigríður Eiríksdóttir, tveggja barna móðir í Hafharfírði. Einhver óþekkt kona hefur gert Sigriði þann ljóta grikk frá síðustu mánaðamótum að hringja ítrekað í símalínuna Einn plús einn og þóst vera hún. Þátttaka í símalínunni gengur þannig fyrir sig að kona „Þetta er ekkert annað en mann- orðsmissir fyrir mig,“ segir Sigrið- ur Eiríksdóttir. DV-mynd GVA sem hringir inn fær samband við karlmann, sem hringir iim á sama tíma. í þessu tilviki hefur konan, sem segist vera Sigríður, haft nokk- uð ítarlegar upplýsingar um henn- ar hagi - hvar hún vinnur, börnin hennar, símanúmer, heimihsfang og fleira - og notað þessar upplýs- ingar í samtölum við karlmenn og villt þannig á sér heimildir. . „Þetta er þriðja málið af þessum toga sem kemur upp. Það er hægt að taka grini en þetta hefur.gengið of langt. Þessi kona hefur boðið upp á villt ástarlíf með mér og heima hjá mér. Einn morguninn hringdu ijórir karlmenn inn á símsvarann minn út af þessu símastefnumóti. Það hafa hringt i mig kvæntir sem ókvæntir karlmenn og leitaö eftir kjmlífi með mér. Þetta er ekkert annað en mannorðsmissir fyrir mig á meðan ekki kemur fram að það er einhver annar en ég sem hringi þarna inn.“ Sigríður hefur kært málið til rannsóknarlögreglunnar í Hafnar- firbi og er það nú til rannsóknar. „Ég skil ekki að það sé hægt að hringja svona inn og leika sér með mannorð annarra. Það virðist ekk- ert vera gert til að koma i veg fyrir svona lagað. Ég hringdi i forsvars- menn fyrirtækisins sem reka síma- stefnumótið og þeir báðu um tillög- ur frá mér. Ég læt ekki bjóða mér þetta og ætia að koma í veg fyrir að þetta komi fyrir aðra,“ segir Sig- ríður. -pp Allir krakkar spila körfubolta og fótbolta og handboltinn er i sérstöku uppáhaldi þessa dagana hjá ungum jafnt sem öidnum og það ekki af litlu tilefni. En þótt heimsmeistarakeppnin í handbolta veki mikla athygli eru gömlu leikirnir enn í fullu gildi meðal ungviðisins. í gær var von á leikmönnum Marokkó í heimsókn í Setbergsskóla í Hafnarfirði í þakklætisskyni tyrir stuðning þriggja tólf ára bekkja sem hafa sótt leiki liðsins og stutt það af fullum krafti en þrátt fyrir yfirvofandi heimsókn mátti sjá nokkrar skólastelpur sýna leikni sina í snu-snú. DV-mynd GVA Símaþjónustan likafórnarlamb - segir Páll Þorsteinsson „Við verðum fyrir því að einhver segir þarna ósatt til nafns og misnot- ar þjónustu okkar. Við erum varnar- lausir gagnvart þeim sem vilja klekkja á öðrum og nota þjónustu okkar sem verkfæri," segir Páll Þor- steinsson, framkvæmdastjóri Miðl- unar, símaþjónustu sem rekur síma- línuna Einn plús einn. Hann segir erfitt að koma i veg fyr- ir að símakerfið sé misnotað. „Þetta er eins og með símakerfið almennt. Þetta er bara ný tegund af síma- ónæði sem hefur tíðkast i gegnum árin.“ -pp Léstaf brunasárum Slökkviliðið var kallað að húsi í Grafarvogi í fyrradag eftir að eldur kom upp í húsgögnum í íbúð þar. Karlmaður á sjötugsaldri, sem sat í stól í íbúðinni, brenndist illa og var fluttur á Landspítalann. Maöurinn, sem reyndist vera með þriðju gráðu brunasár á 90 prósentum líkamans, lést um kvöldiö. Ekki er ljóst hvernig eldurinn kom uppogermáliðírannsókn. -pp Veðrið á sunnudag ogmánudag: Gola eða kaldi Á sunnudag og mánudag verð- ur norðaustangola eða kaldi, skýjað um norðanvert landið en skýjað með köflum syðra og á stöku stað smáskúrir. Hiti 1-10 stig. Veðrið í dag er á bls. 61
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.