Þjóðviljinn - 23.12.1947, Síða 17
Jólin 1947
ÞJ ÓÐVILJ INN
15
Nú fór að styttast til Belgíu, og þar myndi Mr.
Kenyon ekki eiga að jnæta landsmönnum sínum, er
„SENDID HELVITIS hann VÍWÍ °kkUr 1Íð‘
ISLENDINGANA AETUR VÍð fÓrUm ^UUm AcheU’
TIL ÞÝZKALANDS!" °& UÚ ****** ÓðUm’ Hér
birtust aftur hrunin og sund-
urskotin hús. Hér voru háðir harðir bardagar í loka-
þætti stríðsins.
Vafalaust hafa margir ísienzkir bændur öflugri
girðingar milli jarða sinna en hér voru sjáanlegar á
landamærunum. En til Belgíu vorum við komnir! Sól-
in skein yfir frekar jafnlent land, akra — og nokkra
trjálundi á stangli.
1 Liege — fyrstu viðkomustöðinni í Belgíu — kom
hópur eftirlitsmanna inn í lestina, sem rann svo að
segja samstundis af stað aftur. Heppnin var auðsjá-
ánlega með okkur. Næsti viðkomustaður myndi ekki
verða fyrr en í Briissel. Ekki færu þeir að snúa lest-
inni við vegna tveggja óskilamanna, og þegar þang-
að væri komið myndu þeir sjá, ef Belgar ættu til
nokkuð af heilbrigðri skynsemi, að eins gott væri að
senda okkur leiðina til strandar út úr landinu.
Skipandi rödd heyrðist frá dyrunum, við litum
íipp. Þar stóð einkennisklæddur maður. Hakan var
hvöss og hann beit saman þunnum vörmium. Stein-
gerður svipurinn var eins og á refsinorninni sjálfri.
Fjandinn sjálfur, það verður laglegt að fást við
þenna! Þrír eða fjórir undirmenn birtust fyrir aftan
hann. Við réttum passana fram. — Nú er ég speimt-
ur! sagði Emil. Við fórum fram á ganginn til að vera
tíl staðar, þegar náunginn færi að þusast. Það stóð
heldur ekki vonum lengur á því. Hann rétti dömun-
um þeirra passa, sneri sér að okkur og hespaði eitt-
hvað út úr sér. Við svöruðmn á ensku, settum upp
engilsvip og fórum að útskýra málið. En hann hristi
áðeins hausinn og hvæsti. Ofan á allt annað bættist
að þrjóturinn kunni ekki stakt orð í ensku! Kenyon
var enn sem fyrr kominn að hlið okkar, greip nú
fram í og spurði berserkinn, hvort hann talaði
frönsku. — Jú, jú, klippti bestían út úr sér og tvísté.
Bæði var það að franskan streymdi ekki upp úr
Kenyon með froðufalli hins innfædda, en þó einkum
hitt, að þessi einkennisklæddi þrumari virtist sízt af
öllu kominn hingað til að sannfærast né hlusta á
skýringar, enda bandaði hann aðeins hendinni valds-
mannlega framan í Kenyon, þegar hann var í miðri
setningu, hrækti einhverju út úr sér á flæmsku til
undirmanna sinna, og þótt ég skildi ekki nema tvö
orð af því sem hann sagði skildi ég setninguna á
þessa leið: — Sendið helvitis íslendingana aftur til
Þýzkalands! Svo strunzaði hann burt — með passaua
okkar í lúkunum! Mér varð litið á Emil. Hver dráttur
í andliti hans var stirðnaður af undrun og reiði.
Lágvaxinn óeinkennisklæddur maður — einn úr
fylgdarliði berserksins — hafði hlustað þögull á það,
sem fram fór, sneri sér nú að okkur og spurði á
ensku, hvað væri að. Við létmn ekki standa á að
svara því. Og járnbrautarverkfall á öllu Frakklandi
er sannarlega ekki neitt sem tveir förumenn norðah
af nesjunum við Faxaflóa búa. til að gamni sinu. Sp.
litli brást við svo haii., að þegar hann festi jakká-
vasann á hurðarhúninum slengdist hann með dynk
upp að þilinu. Hann losaði sig með sama hraðanum
og hljóp eftir gangininn á eftir bestiunni, sem nú var
komin úr augsýn, inn í næsta vagn.
— Það lítur ekki vel út, sagði Kenyon og brosti,
en innan stundar kom sá litli aftur og veifaði fram-
an í okkur pössunum — þeir höfðu verið stimplaðir!
Eg læt ósagt hvort ljómaði bjartara: andlitið á
Emil, þar sem hann stóð i lestarganginum, eða júní-
sólin uppi á himinhvolfinu.
Við héldum áfram að ræða um bestíuna, hinn
dygga embættismann. — Maður kemur aldrei nokkru
tauti við svona embættismenn. Þetta er offiseratýpa,
sem ekki vikur hársbreidd frá fyrirmælunum, „a little
man in a tight shell of authority“, ef þið kannist við
Shakespeare, sagði Kenyon.
Meðan glíman við berserkinn hafði staðið yfir hafði
lestin brunað í átt til strandar. Sólin skein yfir akra
og nokkra trjálundi á stangli. Þetta var herjað land.
Frá Belgiu. — Víða hafði aöeins verið komið upp bráðabirgða-
brúm fyrir í stað þeitra sem sprengdar höfðu verið í loft upp.
Fremst á myndinrii sést verið að steypa grunn að stöplum
undir nýja brú.