Þjóðviljinn - 23.12.1947, Side 18

Þjóðviljinn - 23.12.1947, Side 18
16 ÞJÓÐVILJINN Jólin 1947 Jafnvel hús er stóðu ein sér uralukt görðmn og ökr- um höfðu verið skotin sundur eða brennd. Kann- ske stóð ekkert uppi nema einmana veggbrot, sem benti til himins eins og ákærandi fingur til að vekja eftir- tekt á heimsku marmanna og grimmd þeirra sem vilja gera þann máttarminni að þræli sín- um. HINN G6»I SAGNABANDI KMILS • Nú fannst okkur Emil raunverulega allt leika í lyndi, og með velgengninni vaknaði matarlystin. Svo andstyggiiega fúil sem berserkurinn hafði verið væri synd að segja að belgisku þjónarnir hefðu ekki verið stimamjúkir. Nú skyldum við sannarlega fá okkur hressingu. í öllu umstanginu daginn áður en við fór- um frá Praha hafði hinn góði sagnarandi Emils hvíslað því að honum að gott myndi að skipta ein- hverju í belgiska peninga. Nú kom á daginn að þetta hafði verið heillaráð, því Belgarnir gerðust dreissug- ir og neituðu kalt og ákveðið að taka við greiðslu í sterlingspundum. Bretarnir sem veifuðu pundunum sínum stóðu orðlausir af undrun, þeir gátu ekkert fengið fyrir þau! Slíku mundi enginn eftir fyrr í allri sögu Bretaveldis. — Alveg ný skipun frá yfir- völdunum, sögðu Belgarnir, og skýrðu það ekki frek- ar. Við Emil vorum nú allt i einu orðnir þeir hlut- gengu menn. (Um leið og við borguðum farseðilinn sagði lestarþjónninn: — Þið farið beint um borð í Ostende, er það ekki? Jú við fullvissuðum hann um að sem stæði ættum við enga ósk heitari en að kom- ast sem fyrst út úr hinu ágæta föðurlandi hans! Það var sannarlega ekki ásetningssynd, heldur breyzk- leika, að við höfðum farið yfir tvö lönd í trássi við Ævintýrið hafði gerzt. Við liöfðum sloppið í gegn, þrátt fyrir áritunarlausa passa. Maríanna Sjarlotta á lcið út 4 Ermarsund. Höfnin í Ostende í baksýn. lög og rétt. Hinsvegar eru breyzkleikasyndir ekki ætíð þeim mun óskaðvænni sem þær eru venjulega heimskulegri en aðrar syndir). Þegar til Ostende kom fengum við skýringuna. Þar úði allt og grúði af strönduðum Bretum. Þúsundum saman höfðu þeir að venju flykkzt til Frakklands í sumarfríum sínum. Þegar verkfallið skall á voru þeir víðsvegar um landið — strandaðir. Sumir lögðu af stað fótgangandi til strandar! Aðrir keyptu með sig bíla á svartamarkaðsverði og komust heim með örfáa aura í vasanum. Þeir, sem voru nálægt landa- mærum Belgíu eða í Sviss, fóru til Belgíu og þaðan heim. Á þrem dögum var þar allt orðið fullt af strönd- uðum Bretum á leið heim. Og þá var allt-í einu gefin út tilkynning um að ekkert mætti láta af höndum fyrir ensk pund. Einn þeirra sagði okkur þá ótrúlegu sögu að þetta væri annar dagurinn, sem hann hefði ekkert getað fengið að eta. Þótt hann hefði gengið milli manna veifandi aleigunni af lausafé, sem hann kvað vera milli 10 og 20 pund, hefði enginn mátt selja sér svo mikið sem bolla af vatni að drekka. Hins vegar hélt hann því ekki fram að Belgar hefðu ekki gefið sér að drekka. Svo voru aðrir, sem gáfu ótvírætt í skyn að þetta valdboð rlkisstjórnarínnar hefði ekki alstaðar verið tekið of hátíðlega. Það hafði tekizt þetta ferðalag, er sótt hafði verið af meira kappi en fyrirhyggju. Maríanna Sjarlotta iivab voru stefndi á fuliri ferð út á sundið. kvinnurnar9 Þetta var annars viðkunnanlegasta fleyta, þótt hún héti þessu nafni, og svo full af fólki, að helzt minnti á sumar ferðir Lax- Piccadilly í London.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.