Þjóðviljinn - 23.12.1947, Blaðsíða 29

Þjóðviljinn - 23.12.1947, Blaðsíða 29
Jólin 1947 27 .Þ J ÖÐ VILJINN þeir vilji láta eitthvað í ljós. Þeir eru mjög kumpán- legir. Eg kann vel við þá. — Gott eiga þeir, sem eiga peningana, segir einn. — Ég myndi ferðast, ef ég ætti peninga, segir ann- ar. ... — Eg á nú sosum ekki neina peninga, segi ég. Mig langar bara svo mikið heim. Eg er að fara. núna klukkan f jögur. Eg á eftir að ná í tösku heima áður en ég fer á stöðina. Eg tek lestina fimm mínútur yfir fjögur. Þögn litla stund. — En ekki ferðu með lest alla leið til Islands? spyr sá fertugi. * — Oneinei, svara ég. —* Nei. Mig minnir, að Islandið liggi það langt frá. Það er víst engin brú þar á milli, segir hann. Hann er furðu alvarlegur, horfir í gaupnir sér, tal- ar þannig við sjálfan sig. — Lófóten! Lófóten var það víst þessi síldarstöð þama norður frá, segir hann svo. Hinir glotta. Einn klappar á öxl honujn. — Farðu heim og lestu landafræði, góði, segir hann. Þú hefur aldrei séð landakort á ævi þinni. Það er auðheyrt! Þeir hlæja allir. Ég brosi. — Svo þú ert þaðan, karlinn. Það er þó verulega gaman að sjá Islending. Ég svara því enganveginn. Ég brosi. — Sígarettu ? Nú er það ég sem býð að fyrrabragði. — Ef þú átt eld. Ég á eld. Nú erum við allir reykjandi. Tómt veskið rennur niður í buxnavasann. — Þakka. Unglingarnir tveir segja eitt'hvað, sem ég ekki skil. Það er ekki sagt við mig. Ég skipti mér ekkert af því, sem þeir segja. Ég heyri það ekki. Ég stari píreygur á torgið, það er verið að selja blóm. Ég sé rauðar rós- irnar í stórum breiðum á malbikinu, nýslitnar upp úr jarðveginum; þær eru hafðar í kössum, sumar í leirbrúsum; (Ég veit, að þær standa ekki í vatni, því það er vatnsskortur 1 borginni; sölukerlingarnar fá ekki leyfi til að láta rósir standa í vatni), bráðum verða allar þessar rósir dauðar úr þurrki; þær skrælna óðum í hitanum, vatnslausar, rótlausár á sjóðandi torginu. Ég held áfram að stara fram fyrir mig, það er ekki nema einstöku sinnum að ég skotra augunum til hlið- ©<><>e<><><><<><><>e<><><><>e<><><<><><><><><<^^ CAKL SANDBUKG: Manndráparar Nú ætla ég að kveða við Jiig, þýtt cins og sungið sé yfir önduðu barni hrjúft eins og harðf jötraður bandingi kveði sér til fróunar. Undir sól vorri gaiiga fram sextán milljónir manna valdir úr végna sinna heilbrigðu tanna, skörpu sjónar, sterku vöðva, vegiia hins bjarta rauða blóðs, sem rennur Jieim í æðum Og rauður vökvi litar hið græna gras, og rauður vökvi rennur í svarta mold, og sextán milljónir eru látnar drepa — og drepa og drepa. Ég minnist Jieirra jafnt á degi og nóttu. Endurminningin um Jiá ásækir mig. Þeir berja mér á br jóst svo ég geti ekki gleymt Jicini, og ég græt og lirópa yfir um til Jieirra, til heimkynna Jieirra, kvenna þeirra. draums Jæirra og ieikja. FBtöA EINAKS þýddi ar á sessunauta mína. Þeir tala saman, ekki hátt, heldur mjög lágt, eins og þeir vilji ekki trufla mig, eða eins og þeir ræði' leyndarmál; kannske þeir ræði leyndarmál; ég veit það ekki. Þeir láta mig afskiptalausan og biðja mig ekki um sígarettu, sáu áreiðanlega, að ég tæmdi veskið. ★ Ef ég skotra augunum til hliðar, kemst ég ekki hjá því að sjá kinnfiskasogin andlit mannanna, tálgaðar hendur, rifniurnar utan á skrokkunum svo gersam- lega sneyddar öllum lit, að mér finnst ég hafa móðu i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.