Þjóðviljinn - 23.12.1947, Side 47

Þjóðviljinn - 23.12.1947, Side 47
Jólin 1947 ÞJÓÐVlL J I N N 45 reikningnum, vegna þess að aðeins örlítill hluti þeirra skeyta, sem hin margbrotnu tæki sendu frá sér, rák- ust á nokkurn kjarna, áður en þau stöðvuðust. Lang- flest þeirra stöðvuðust án þess að framkalla neina kjamabreytingu. Allar þessar kjarnabreytingar voru þess eðlis, að skeytið fleygar smásneið út úr kjarnanum, sem það rekst á, en árið 1938 fundu tveir þýzkir eðlisfræðing- ar, Hahn og Strassmann, að ef úraníum er bombard- erað með nevtrónum þá klofnar kjarni þess í tvo hér- umbil jafna. hluta. Þetta var nokkuð alveg nýtt og vakti strax mikla eftirtekt. Samfara þessari klofn- ingu kom einnig fram meiri orka en við nokkrar aðr- ar kjárnabreytingar. Áhuginn vaknáði þó fyrst fyrir alvöru, þegar það kom í ljós, að samfara kjarna- klofningunni var einnig myndun nýrra nevtróna. Nev- trónurnar eru hleðslulausar og stöðvast ekki fyrr en þær rekast á einhvern atómkjarna. Sú hugsun lá því beint við, tað ef nevtrónur þær, sem fram korna við klofningu úraníumkjarnans, væru látnar rekast á aðra úraniumkjama, þá myndu þessir kjarnar einn- ig klofna og mynda enn þá fleiri nevtrónur og svo koll af kolli. Þetta var í fyrsta skipti, sem menn eygðu möguleika á því að vinna kjarnorkuna í stórurn stíl. Framleiðsla kjarnorkuspreugua Þannig stóðu sakir, þegar stríðið skall á. Hingað til höfðu allar rannsóknir verið birtar, en nú færðist þögn yfir þetta allt saman. Þögn þessi var ekki rofin þangað til kjarnorkusprengjunni hafði verið varpað á Hiroshima, en þá var saga málsins sögð í bók, sem skrifuð var af prófessor Smyth og sem heitir Atomic Energy for Military Purposes. Amerískir eðlisfræð- ingar höfðu strax vakið athygli stjórnarvaldanna á því, hverjir möguleikar byggju í beizlun kjarnork- unnar, og fengu þau til að samþykkja, að allt væri gert til að flýta fyrir rannsókn málsins. Það kom í ljós, að það var ofur einfalt að byggja orkuver, sem framleiðir kjarnorku í stómm stil. Hér þarf ekki að nota neitt hinna flóknu tækja, sem voru svo ómissandi til að afla okkur þekkingar á eðli atómkjamanna. Allt sem til þarf eru nokkur tonn af úraníum og nokkur tonn af kolum. Ef hvoiltveggja er hreinsað vandlega og síðan 'hlaðið saman í einn haug, þá hefst keðjubreyting sú, sem ég minntist á áðan, þar sem kjarnaklofning og nevtrónumyndun skiptist á, en orkan, sem við það myndast, kemur fram sem hiti og geislun. Slík oi'kuver eru mjög auð- veld í rekstri og má breyta orkumagni þeirra eftir vild. Fyrsta kjarnorkustöð af þessari gerð var byggð í Chicago 1942 af Enrico Fermi, sem er ítalskur áð uppruna. Þegar hér var komið, og séð var, að spádómur eðl- isfræðinganna reyndist réttur, þá var stefnt beint að því að notfæra sér þá miklu orku, sem fáanleg er með þessu móti, til hernaðarlegra þarfa. Það sem beinast lá við var að reyna að framleiða sprengju, þar sem öll þessi gífurlega orka kæmi fram á einu Á efri myndinni eru sýnd áhrif kjarnorkusprengju, sem springur ofanjarðar, á þeirri neðri áhrif sprengju, sem springu.r neðansjávar augnabliki, og sem myndi taka langt fram öllum þekktum sprengjum að styrkleika. Þetta var engan veginn auðleyst verkefni, því að úraníum það sem finnst í náttúrunni er ekk.i hægt að nota- í sprengjur. Það verður annað hvort að skilja sundur hina tvo ,,isotopa“ úraníumsins og nota þann sjaldgæfari, úraníum 235, ellegar að nota það úraní- um, sem fyrir kemur í náttúvunni, til að framleiða nýtt fiumefni, Plútoníum, sem einnig er hægt að nota í sprengjur. Báðar leiðir voru farnar og báðar tókust vel, en sú síðari mun þó auðveldari. Plútonium myndast í kjarnorkustöð af þeirri gerð, sem áður var lýst. Til þess að framleiða þetta nýja frumefni, sem hefur atómnúmerið 94, þarf því ekki annað en hlaða

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.