Þjóðviljinn - 24.12.1973, Síða 13
Jólablað 1973 ÞJÓDVILJINN — StÐA 13
Tveimur dögum seinna gengur
breskur her á land i Pireus. Hann
á i orbi kve&nu aö „frelsa landiö”,
en krefst, ásamt gömlum grisk-
um stjórnmálamönnum, þess, aö
andspyrnuhreyfingin sýni þeim
hlýöni. En þaö vilja skæruliðarnir
ekki.
Sama ár ná nasistar aftur tang-
arhaldi á Þeodorakis og færa
hann inn i klefa sinn einn ágætan.
Vinur hans er drepinn aö honum
áhorfandi. Sjálfur sleppur hann
með naumindum, — er látinn laus
liklega fyrir vangá.
Atján ára er hann þegar hann
sér i fyrsta sinn unga stúlku,
Myrto Altinoglou, sem seinna átti
eftir að veröa kona hans. Þau
hittust á heimili foreldra hennar,
en þangað var hann kominn til að
hlusta á tónlist útvarpaðri frá
B.B.C.
A þessu og hinu næsta ári er
ekki annað að sjá en að EAM sé
að þvi komið að ná landinu öllu á
sitt vald. Þvi þá hefur EAM 3/4 af
þvi á sinu valdi. Undirbúningur er
hafinn að lýðræðisstjórn og
fræöslukerfi. EAM var þá ekki
undir stjórn kommúnista. En
griska útlegðarstjórnin og stjórn
Metaxas vilja það ekki.
Eftir þetta gengur ekki á öðru
en fangelsunum, pyndingum, og
öðru kvalræði fyrir Þeodorakis.
Samt nær hann að semja lög sin,
koma þeim út til fólksins, og 1950
tekur hann burtfararpróf við kon-
servatoriið i Aþenu. A næstu ár-
um helgar hann sig tónlist sinni,
giftist Myrto og fara þá i hönd
nokkur friðsamlegri ár undir
stjórn Karamanlis, sem Páll kon-
ungur hefur útvalið til stjórnar-
herra. En ekki er þetta nema á
yfirborðinu. Fangelsin og fanga-
eyjarnar eru fullar af pólitiskum
föngum. 1957 er Þeodorakis
sæmdur gullpeningi i Moskvu fyr-
ir tónlist sina.
1958 er merkisár i tónlistarferli
Þeodorakis. Þá semur hann lög
við kvæði skáldsins Jannis Ritsos.
Hann er að verða frægur viða um
lönd. Pantanir á tónverkum
streyma að.
A næstu árum, 1959 og 61, fæð-
ast börn þeirra, hans og Myrto,
tvö, Margarita og Giorgos.
1961 er gengiö til kosninga um
stjórn Karamanlis. Hann „vinn-
ur”, en svik voru þá viöhöfð, og i
raun réttri tapaði hann, fékk
minnihluta atkvæða, en hélt auð-
vitað völdum.
Nú liður fram að þeim tima er
júntan tekur völdin. Þaö gerist i
april 1967. Konstantin konungur
hefur haldið nýársræöuna, og
áklagar hann þjóð sina fyrir að
stuðla,að miklum meirihluta, að
þeirri ókyrrð, sem þá var i land-
inu, með þvi að styðja kommún-
istana, en til þeirra telur hann
alla stjórnmálaflokka frá mið-
flokknum til hinna rauðustu af
rauðum. Þessir flokkar hafa
samanlagt 70% af kjörfylginu. Af
ræðu konungs þessa leiðir það, að
bannað er að flytja tónlist eftir
Þeodorakis i griska útvarpinu. Þá
eykst salan á plötum með lögum
eftir hann margfaldlega, en lög-
reglan reynir að komast að þvi
hverjir kaupi þær.
Hafið djúpa
Á þriðjudegi var ég frjáls,
á föstudeginum fangi,
á sunnudagsmorgni í dögun
kallaði dauðinn á mig með nafni.
Brenn vængi hugans.
brenn augnaráð hugsunarinnar,
svo þú sjáir ekki skelfinguna,
svo þú heyrir ekki ópin.
„Djúpa haf, djúpa haf,
færðu mér sál hans aftur.
Djúpa haf, djúpa haf,
færðu mér barn mitt aftur!”
Ég sagði: „Kæri herra Dauði"
Og ég endurtók:,, Kæri herra Dauði,
leyfðuaðég fái aðsjá f jöllin mín aftur,
leyfðu mér að falla fram fyrir sólinni
einu sinni enn!
Leyfðu að ég fái að sjá hafið,
leika mér að skuggum þess,
leyfðu að ég fái að sjá aftur móður mina
sem nú klæðist sorgarbúningi!"
En hann svaraði:
„Sólin er særð,
fjöllin andvarpa þungt,
tíminn hefur numið staðar yfir Pangrati.
Og móðir þín
situr úti við sjóinn.
Hún grátbiður bylgjurnar
að bera andvörp sín til Jaros:
Djúpa haf, djúpa haf,
færðu mér sál hans aftur'
Djúpa haf, djúpa haf,
færðu mér barn mitt aftur'"
Um sól og tíma
Hæ, Akropolis!
Hæ, Tourkolimano, hæ, Voukourestiou!
Pólstjarnan
markar skini sínu
miðpunkt heimsins.
Neðansjávarfiskarnir sjá
upphafsöld Aþenu
gegh um gler sin
á botni aldanna.
Skemmtiskip, kádiljákar, dulin hóruhús.
Öryggisþjónustan:
miðdepill heimsins.
Pólstjarnan
gengur afmarkaða braut.
Reykháfur eldhússins
beinir reyknum
að hinum fasta miðdepli himinhvelfingarinnar.
Sjöstjarnarn, Venus
Tína, Soula, Eva, Rinio.
Fimm milljónir Ijósára
fara beina braut
gegn um fimm billjónir vetrarbrauta.
Pólstjarnan, Akropolis, reykháfurinn,
fimm metra
aðeins fimm metra
frá klefa mínum.
2.
Tíminn leysist upp
i andartaki.