Þjóðviljinn - 24.12.1973, Blaðsíða 27

Þjóðviljinn - 24.12.1973, Blaðsíða 27
Jólablað 1973 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 27 Kristinn E. Andrésson HARALDUR JÓHANNSSON: EYJAN HVÍTA ÁSÉR ENN VOR Minningarorð um störf Kristins E. Andréssonar árin 1938— 1945 i. Kristinn E. Andrésson og sam- herjar hans þóttust sjá, að hverju stefndi, þegar nasistar settust að völdum i Þýskalandi i janúar 1933. Þegar i mai-hefti Sovétvin- arins 1933 birti Kristinn grein um ástandið i Austur-Asiu, „Undir- búning undir nýja styrjöld" eftir Lárus H. Blöndal, og siðar það ár grein eftir Hauk Björnsson, „Rússland og Þýskaland”, sem styrr vakti. Kommúnistaflokkur Islands fór 1935 að reyna að stofna til sam- starfs við Alþýðuflokkinn og jafn- vel Framsóknarflokkinn. Þá stefnu boðaði hann i málgagni sinu, fyrst Verkiýðsblaðinu, vikublaði, og siðan i dagblaði, Þjóðviljanum, sem hann hot aó gefa út 31. október 1936. Meðal helstu hvatamannanna að þvi samstarfi voru Kristinn og rithöf- undar i vinahópi hans, einkum Þórbergur Þórðarson, Halldór Kiljan Laxness og Jóhannes úr Kötlum. A fundi i félagi kommún- ista i Reykjavik i upphafi ársins 1937 fórust Halldóri Kiljan Lax- ness svo orð um hættuna af fasismanum: „Frelsi okkar evrópsku rithöfundanna til að tala og hugsa ákvarðast ekki af okkar fögru gullpennum og held- ur ekki af okkar miklu andagift, heldur á vötuvigjunum á Spáni, þar sem ólæsir og óskrifandi al- þýðumenn eru að verja börn sin, konur og gamla foreldra fyrir morðsveitum fasistanna”. 1) Fyrir alþingiskosningarnar 1937 náði Kommúnistaflokkur ls- lands ekki samvinnu við Alþýðu- flokkinn, en i þeim hlaut hann þrjá þingmenn kjörna, Einar Olgeirsson, Brynjólf Bjarna- son og tsleif Högnason. Og Jóhannes úr Kötlum, sem verið hafði i þriðja sæti á lista flokksins i Reykjavik, varð varamaður Einars Olgeirssonar á Alþingi. Hins vegar urðu verkalýðsflokk- arnir tveir siðar á þvi ári ásáttir um sameiginlegt framboð i bæj- arstjórnarkosningum i Reykjavik i janúar 1938 og i nokkrum bæjum úti á landi. Eftir miklar sviftingar i Alþýðuflokknum 1938, allt fram á haust það ár, gekk vinstri arm- ur hans til samstarfs við Komm- únistaflokk lslands um myndun nýs stjórnmálaflokks, Samein- ingarflokks alþýðu — Sósialista- flokksins. Kristinn sat stofnþing Sósial- istaflokksins i Reykjavik i lok október 1938, og starfaöi i tveimur nefndum þingsins, menntamála- nefnd og blaða- og bókaútgáfu- nefnd, og var i lok þess kjörinn varamaður i flokksstjórn hans. Formaður hins nýja flokks var Héðinn Valdemarsson, ötulasti foringi Alþýðuflokksins þá, en formaður flokksst jórnar Brynjólfur Bjarnason. Kristinn rifjaði siðar upp: „Og fleiri en Steinn (Steinarr) held ég, að hafi orðið til að harma lát (Kommún- istaflokks Islands), þeirra á með- al ýmsir af rauðum pennum, og koma mér þá fyrstir i hug Halldór Stefánsson og Jóhannes úr Kötl- um”. Sameiningarflokks alþýöu, — Sósialistaflokksins, beið þolraun i boðaföllum af upphafi siðari heimsstyrjaldarinnar 1939, eink- um meðan yfir stóð styrjöld á milli Ráðstjórnarrikjanna og Finnlands. I átökum innan flokksins urðu Héðinn Valde- marsson og stuðningsmenn hans i eins atkvæðis minnihluta i flokks- stjórninni og sögðu sig þá úr flokknum. Allmikill hluti þeirra manna, sem úr Alþýðuflokknum höfðu gengið til stofnunar Sósial- istaflokksins héldu þó tryggð við hann, og varð helsti málsvari þeirra Sigfús Sigurhjartarson, annar ritstjóra Þjóðviljans. For- maður Sósialistaflokksins varð þá Einar Olgeirsson. 1) Á útifundi i Reykjavik 1. mai 1937 var Halldór Kiljan Laxness á meðal ræðumanna, og sagðist blaðamanni Þjóðviljans svo frá fundinum: „Fyrst talaði Halldór Kiljan Laxness. Var ræða hans flutt af eldmóöi og djörfung; hann stóð þarna á ræðupallinum, ber- höfðaður, með blaktandi rauða fána i kringum sig, storminn og rigninguna beint i andlitið, og flutti ennþá einu sinni islenskri alþýðu þann boðskap, að hún yrði aö standa sameinuð gegn fjend- um sinum, ihaldi og fasisma”. „Vonsvikin eftir Spánarstyrj- öldina og heimsviðburðir, er fylgdu”, rifjaði Kristinn siðar upp, „urðu á engan hátt til að splundra samstöðu okkar. Félag byltingarsinnaðra rithöfunda hélt starfi sinu áfram a.m.k. til 1943, samfylkingin við borgaraleg skáld og menntamenn efldist óð- fluga með starfsemi M á 1 s og menningar. Heimskringla hélt lika framvegis uppi allmiklu út- gáfustarfi". Samkvæmt fundar- gerðarbók Félags byltingarsinn- aðra rithöfunda 1942—1943 voru félagsmenn þess þá fimmtán að tölu: Björn Franzson, Gunnar Benediktsson, Gunnar M. Magnúss, Halldór K. Laxness, Halldór Stefánsson, Jóhannes Steinsson, Jóhannes úr Kötlum, Jón Oskar, Jón úr Vör, Kristinn E. Andrésson, Olafur Jóh. Sig- urðsson, Sigurður Helgason, Stefán Jónsson, Steinn Steinarr, Þórbergur Þórðarson. II. Breskur her og floti hernam ts- land 10. mai 1940, liðlega mánuði siðar en Færeyjar. Hernám landsins kom i kjölfar innrásar Þjóðverja i Danmörku og Noreg 9. april 1940. Og það olli minni reiði á meðal landsmanna en vænta hefði mátt, og aðeins form- legum mótmælum rikisstjórnar- innar og Alþingis. Hernámið olli þó fljótlega sliku umróti i þjóðlif- inu, að þess er ekki hliðstæða i sögu landsins. Og alla tið siðan 1940 hefur erlent setulið verið hérlendis. Að vonum vakti hernámið þó nokkurn ugg. Hugleiðingar sinar um það, „Hvað biður Islands” birti Kristinn i Timariti Máls og menniiigar 1940, og fórust honum m.a. svo orö: „Islenska þjóð, við lifum nú eina af þeim örlaga- stundum, er marka svo djúp spor, að allt hið liðna birtist skyndilega I nýju ljósi; hið ókomna er ekki lengur eðlilegt framhald þess, er var, heldur nýtt og óþekkt.... Vanmáttur okkar og smæð hefur aldrei speglasl jafn átakanlega skýrt. Við höfum litið á okkur sem þjóð stórra sæva og stórra sanda....Út úr þúsund atvikum getum við lesið fyrirlitningu á sma'ð okkar, kæruleysi um hin litlu mannvirki okkar og réttindi landsmanna. t augum herveld- anna erum við ekki hið tigna land okkar eigin skynjana, með bláum tindum, jöklum, fossum og hver- um, ekki sagnaeyjan, bók- menntaþjóðin, ekki nein helgi- saga, heldur fiskimið, herskipa- lægi, hentugt vigi. Virðingar heimsins njótum við aðeins úr fjarska, að imyndun nokkurra fræðimanna eða rómantiskra sjúklinga. Virðingunni fyrir þjóð okkar, landi og sögu, verðum við að halda uppi sjálfir, önnur riki láta það ógert”. Eðli heimsstyrjaldarinnar sið- ari breyttist, þegar Þjóðverjar réðust inn i Ráðstjórnarrikin 22. júni 1941, eða öllu heldur ári áður, vorið og sumarið 1940, þegar Þjóðverjar, með stuðningi Itala, lögðu undir sig nær öll lönd i Vestur-, Norður- og Mið- Evrópu. Kristinn rifjaði siðar upp: ,,En hafi einhverja okkar gripið efasemdir, og þar tek ég mig ekki undan, við griðasamn- ing Sovétrikjanna við Þýskaland nasismans, þá læknuöust þær að fullu, eftir að þau voru komin i styrjöld, og samúðin með Sovét- rikjunum varð mikil og almenn á striðsárunum og aðdáunin á sigr- um Rauða hersins. Trúin á kommúriisma og sigur i frelsis- baráttu þjóðanna blossaði upp að nýju”. Arið 1942 fóru fram þrennar kosningar, bæjar- og sveita- stjórnakosningar i mars og al- þingiskosningar i júli og október. I þessum kosningum vann Sósial- listaflokkurinn hvern sigurinn af öðrum. Og sköpuðust þá þau styrkleikahlutföll á milli flokka, sem haldist hafa siðan. Sú var hin pólitiska arfleifö Héðins Valdemarssonar. Kristinn var i framboði fyrir Sósialistaflokkinn I Suður-Þingeyjarsýslu i báðum alþingiskosningunum. 1 hinum siðari varð hann 7. landskjörinn þingmaður og einn tiu þingmanna Sósialistaflokksins. Að kosningunum loknum tókst ekki að mynda þingræöisstjórn. Sósialistaflokkurinn æskti þá enn samstarfs vinstri flokkanna um stjórnarmyndun. Meðan þvi fór fram 1943, birti Kristinn i Tima- riti Máls og menningar grein um „Bandalag vinnandi stétta”. t greininni sagði hann: „Engum er ljósara en verkalýðnum, hvernig sú velmegun er til orðin, sem nú rikir. Hann veit, að hún er ekki að þakka viturlegri stjórn á atvinnu- málum né viðskiptamálum þjóð- félagsins. Það var hin mikla eftir- spurn eftir vinnuafli, sem kom með styrjöldinni og hernáminu, er gerði verkalýðnum fært að losna undan atvinnukúgun fyrri ára.... Af reynslu undangenginna ára er verkalýðshreyfingunni ljó^t, að hún hefur ekki unnið þjóðinni það gagn, sem hún ósk- ar, og ekki tryggt hagsmuni sina, réttlátt kaupgjald, átta stunda vinnudag né önnur réttindi, nema henni takist i samstarfi og banda- lagi við aðrar vinnandi stéttir aö koma heilbrigðri skipan á sjálft atvinnulif þjóðarinnar”. 1 ljós kom þó, að ekki var grundvöllur undir vinstra samstarf um það leyti. Stofnun islenska lýðveldisins 16. og 17. júni 1944 var Kristniheil- ög stund. Fögnuði sinum lýsti hann i ritgerð, „Lýðveldi endur- reist á tslandi”, i Tlmariti Máls og menningar með þessum orð- um: ,, Lýðveldi er að nýju stofnað á tslandi. Drottnun erlendra þjóðhöfðingja yfir Islandi er að fullu úr sögunni. Gamli sáttmáli, Kópavogseiður og aðrir svardag- ar gefnir erlendum kúgurum eru loks brenndir til ösku. Vér erum afturheima eftirlanga útivist". t annarri ritgerð Kristins um lýð- veldisstofnunina, sem hann samdi um svipað leyti og birti einnig i Timaritinu, „Nýjum á- fanga”, kvað við annan tön: „Auðvaldsstefnan er frá rótum byggð á samkeppni, samkeppni einstaklinga, samkeppni auö- hringa, samkeppni rikja. Eðli hennar er strið, allra við alla, er hefst á striði milli einstaklinga, endar i heimsstyrjöld, hverri ofan á aðra, meðan til eru nægilega voldugar auðvaldsþjóðir, sem þeirri styrjöld frá hrundið af stað. Og meðan svo er, eiga ekki síst smáþjóðir eins og Islendingar alltaf á hættu, að frelsi þeirra verði rænt eða skert á margvis- legan hátt ... Sameignarstefnan er komin i sókn i heiminum, og hefur tryggt aðstöðu sina örugg- lega. Hún er hin sigrandi stefna, er flæðir yfir og flytur með sér mátt og frjógvandi lif og frelsi.... Oftbera menn hana saman viö kristindóminn, og hin römmu á- tök nú saman við þau átök, er það kostaði að ryðja kristindóminum til rúms. Viða i löndum kostaði það ægilegar blóðsúthellingar, ekki alls staðar. Oss er minnis- stæð sú saga hér á landi, hvernig kristindómurinn komst friðsam- lega á með samþykki lands- manna á Þingvöllum. Skyldum vér enn geta borið gæfu til að koma á framtiðarskipan sam- eignarstefnunar á svipaðan hátt?” 1 ljós kom, að ekki var grund- völlur undir vinstra samstarf um þetta leyti. Og loks nokkrum mánuðum eftir stofnun lýðveldis- ins, 21. október 1944, var nýsköp- unarstjórnin mynduð. Kristinn studdi hana dyggilega i ræðu og riti, og vakti jafnvel máls á upp- töku áætlunarbúskapar. Nafn hans er þó siður tengt við störf nýsköpunarstjórnarinnar, en þá atburði, sem urðu henni að falli, kröfur Bandarikjanna um her- stöðvar hérlendis til 99 ára og Keflavikursamninginn. III. Það var upphaf þeirra atburða, að 1. október 1945 sendu Banda- rikin islensku rikisstjórninni formlega ósk um herstöðvar hér- lendis til langs tima. Þótt þau til- mæli þeirra spyrðust i Reykjavik, þögðu dagblöðin um málið. En 15. október 1945 hóf göngu sina nýtt blað, Útsýn, en Finnbogi Rútur Valdemarsson var ritstjóri þess. t fyrsta tölublaðinu var sagt svo frá, að „rikisstjórn Bandarikj- anna telur-sér nauðsyn að halda bækistöðvum hér á landi, bæði fyrir flugher og flota. Fer hún þvi fram á, að tslendingar leigi sér bækistöðvar i þessu skyni til Bandarikin þannig taka að sér hervernd landsins”. Haft var fyrir satt þessa október-daga, að Bandarikin æsktu Keflavikur- flugvallar, Reykjavikurflugvall- ar og Hvalfjarðar. Næstu vikur voru þessi tilmæli Bandarikjanna rædd að tjaldabaki i öllum stjórn- málaflokkunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.