Þjóðviljinn - 24.12.1973, Page 40
40 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Jólablað 1973
Já, það er gott súkkulaðið frá
— Við fylgjumst með
braðskyni fólks og reynum
að gera þvi til hæfis.
Móna.
Súkkulaðikexið frá Móna
er bæði gott og nærandi. —
Tilvalinn millimatur. — 1 vinnu, eða á ferðalagi.
Uppbygging
í Zo a'r
Fyrir 20 árum, 25. júní 1953, hóf Iðnaðarbankinn
starfsemi sína. Bankinn opnaði þá í leiguhúsnæði
að Lækjargötu 2.
Stofnendur voru úr öllum greinum iðnaðar og eru
hluthafar nú yfir tólf hundruð.
Á þessum 20 árum hefur orðið mikill vöxtur
í iðnaði. Fjölbreytni framleiðslunnar og
vörugæði hafa aukizt mjög og framleiðni farið
ört vaxandi. Iðnaður er nú fjölmennasta
IÐNAÐARBANKINN
LÆKJARGÖTU 12 — SlMI 20580
GRENSÁSÚTIBÚ HÁALEITISBRAUT 60 — SlMI 38755
LAUGARNESÚTIBÚ DALBRAUT 1 — SlMI 85250
atvinnugrein landsmanna, og útflutningur
iðnaðarvara eykst ár frá ári.
Iðnaðarbankinn hefur tekið virkan þátt í
uppbyggingu iðnaðarins þessi 20 ár.
Þróun iðnaðar er skilyrði fyrir batnandi
lífskjörum næstu ár og áratugi.
Iðnaðarbankinn stefnir að því, að gegna mikilvæg
hlutverki í þessari þróun, hér eftir sem hingað til-
EFLING IÐNAÐARBANKANS
ER EFLING IÐNAÐAR
GEISLAGÖTU 14 AKUREYRI
STRANDGÖTU 1 HAFNARFIRÐI
LÖGBERG
þvi hversu mörgu er að sinna af
málefnum og hversu þau leiðast
út i úrskurðum.
Til þessa reisa goðarnir búðir
fyrir sig og þingmenn sina, en
goðar sýna veldi sitt meö mikilli
þingreið sinna þingmanna, sem
voru skyldir til að fylgja og veita
iið sinum höfðingja. Af þessu
verður fjöldi bygginga á Þing-
völlum, sem kallast búðir. Yfir
þingvöllinn verður að sjá sem
borg með miklum mannfjölda,
þennan rúmlega vikutima á ári.
Fólkið, sem sækir Þingvöll að
venju, skiptir þúsundum og þegar
mikið stendur til, eins og þegar
Þorgils Oddason og Hafliði Más-
son komu með samtals 2000
manna, sem herlið, mun mann-
fjöldi alls á Þingvöllum hafa ver-
ið 5-6 þúsund manns, þvi allir goð-
ar vissu hvað til stóð á þvi þingi,
— að þvi er virtist ósættanleg
málaferli þessara nefndu höfð-
ingja.
Búðanna er margra getið með
nafni með mannfjölda i sumum
þeirra, eins og Vopnfirðingabúð,
sem bráðum segir. Hafa búðirnar
staðið utanvert við þingvöllinn og
margar fyrir neðan mörk hans,
en hann afmarkast að neðan við
öxará, sem þarna kemur ofan úr
Almannagjá og rennur þvert um
völlinn, yfir undir gamalt hraun
og siðan út með þvi i Þingvalla-
vatn. Ekki sér nú örmöl til búð-
anna og verður síðar um rætt.
Þessi Lögbergs-og Lögréttuskip-
an hefur fylgt þjóðveldislögunum,
en þau eru nú ekki kunn.
Fyrst kemur nafnið fyrir i ts-
lendingabók Ara fróða, það er I
sambandi við draum Þorsteins
Surts. Ósvifur réð hann þannig að
hann mundi flytja nýmæli að Lög-
bergi, er allir menn mundu vakna
við. Og svo gerðist það, að Þor-
steinn Surtur steig á Lögberg og
flutti mál sitt um sumarauka, er
allir hafa haldið siðan i timatali
hér á landi.
Og svo minnist Ari á Lögberg i
sambandi við kristnitökuna, og
getur þess meðal annars að Hjalti
úr Þjórsárdal kvað kviðlinginn
,,Vilk eigi goð geyja, grey þykkir
mér Freyja” á Lögbergi. t Land-
námu getur Lögbergs aldrei, sem
reyndar er von, en rækilegar i
Kristnisögu um ár 1000. Er reynd-
ar seint að geta þess hversu oft er
minnst á Lögberg i tslendinga
sögum. En úr Kristnisögu má til-
færa þetta:
„Þormóður hét prestur sá, er
Ólafur konungur hafði fengið
þeim Hjalta og Gissuri. Hann
söng messu um daginn eftir á gjá-
bakka upp frá Vestfirðingabúð.
Þaðan gengu þeir til Lögbergs.
Þar voru 7 menn skrýddir. Þeir
höfðu krossa tvo, þá er nú eru á
Skarði hinu eystra. Merkir annar
hæð Ólafs konungs, annar hæð
Hjalta Skeggjasonar. Að Lög-
bergi var allur þingheimur. Þeir
Hjalti höfðu reykelsi á glóð, og
kenndi svo i gegn vindi sem for-
vindis ilminn.”
Hér má nema staðar. Allur
þingheimur er að Lögbergi, en
þetta er geysi fjölmennt þing og i
oröalagi liggur að ilminn hafi
kennt hvar sem n/enn stóðu og
gegnt vindi, þá þýðir þetta að
menn standa allt umhverfis Lög-
berg, minnsta kosti jafnt að baki
sem fyrir. Segir siðan: ,,Þá báru
Hjalti og Gissur upp erindi sin
(þeir eru að Lögbergi) en þat
undruðust menn hversu snjallir
þéir voru og hversu vel þeim
mæltist, en svo mikil ógn fylgdi
orðum þeirra at engir óvinir
þeirra þorðu að tala i móti þeim.”
Hér virðist hver maður heyra
það sem þeir töluðu. Fólkið er allt
i kring um Lögberg. Þetta gef-
uwwtmni þá hugmynd að Lögberg
sé hóll. Standa megi allt i kring-
um hann og uppi á honum, svo
hvert orð heyrist með sinni ógn.
Ekkert af fornum heimildum
skýrgreinir Lögberg eins vel og
þessi heimild. Lögberg er allmik-
ið um sig, er allur þingheimur
getur verið að Lögbergi. Þær
heimildir, sem ekkert skýrgreina
fremur um Lögberg en þessi
heimild, tel ég óþarft að tilfæra,
er stutt mál á að flytja. Og útilok-
ar þessi heimild alla draumana
um Lögberg á barmi Almanna-
gjár neðan öxarár. Þar gat ekki
fjölmennur þingheimur verið að
Lögbergi og kennt ilm alla vega
frá sér. Þá má geta þess að Þor-
lákurhelgi gekk við kennilýðsinn
á Lögberg 1183, til að banna sam-