Þjóðviljinn - 08.05.1982, Qupperneq 30
/ O; ' - - V'-M * 'i í«1 1 ím riiji'fill
'3'0'SítíA — WbÍjVÍLjlNN- H'elgin S.—o: malV982
Ef þú hyggst fjárfesta í Ijósrit-
unarvél, þá er svariö:
Canon
Canon
NP-200
Duftvél
Tekur 20 Ijós-
rit á mínútu
A — 3
NP-120
Duftvél
Tekur 12 Ijós-
rit á mínútu
B — 4
Athugið:
Enginn annar býöur samsvarandi vélar á
lægra veröi.
og Canon gæöi þekkja allir.
Leitið upplýsinga.
Shriíuöin hf
Suðurlandsbraut 12.
Sími 85277.
Frá Grunnskólanum Akranesi
Eftirtaldar kennarastöður eru lausar til
umsóknar:
VIÐ BREKKUBÆJARSKÓLA (6-14) ára
nemendur
(6-14 ára nemendur) Skólastjóri Grimur
Bjarndal, simi 93-1388.
Almennar kennarastöður.
Dönskukennsla 7. og 8. bekkir, hand-
menntakennari, sérkennari.
VIÐ GRUNDASKÓLA
(6-10 ára nemendur) Skólastjóri Guð-
bjartur Ilannesson, simi 93-2660.
Almennar kennarastöður, mynd- og hand-
menntakennari, sérkennari.
Við 9. bekk er laus staða kennara.
Kennslugreinar: Danska og stærðfræði.
Skólameistari Ólafur Ásgeirsson, simi 93-
2544.
Upplýsingar fást hjá skólastjórum. Um-
sóknir sendist formanni skólanefndar,
Herði Helgasyni, Hjarðarholti 14, 300
Akranesi. Umsóknarfrestur er til 15. mai.
Utboð
Stjórn verkamannabústaða á Patreksfirði
óskar eftir tilboðum i byggingu átta ibúða
i tveggja hæða raðhúsi. Áætlað er að hefja
framkvæmdir 15. júni 1982 og að þeim sé
lokið 15. júli 1984.
Útboðsgögn verða afhent gegn skilatrygg-
ingu á Teiknistofunni Röðli, Ármúla 36 3.
h. frá og með miðvikudeginum 12. mai.
Útboðsgögn verða einnig afhent á skrif-
stofu Patrekshrepps, Aðalstræti 63, Pat-
reksfirði, á sama tima.
Tilboð verða opnuð samtimis á sömu stöð-
um miðvikudaginn 26. mai ’82 kl. 17.00.
Miklar umræður um skipulagsmál í borgarstjóm:
„Strandskipulag
Sjálfstæðisflokks”
— kallaði Davíð Oddsson
hugmyndir sínar í skipulagsmálum
„Strandskipulag” var orð sem
Davið Oddsson tók sér oft i munn
á borgarstjórnarfundi á fimmtu-
dag en þá urðu tveggja tima um-
ræður um skipulagsmál i Reykja-
vik. Átti það viö hugmyndir hans
um að byggja með ströndum
fram en frá þvi hvarf Sjálfstæðis-
flokkurinn sjálíur á sinum tima
þegar mörkuð var sú stefna að
byggja „upp til heiða og fram til
fjalla” i Breiðholti, á Selási og
upp við Úlfarsfell.
Það var Elin Pálmadóttir sem
hóf þessar umræður og fór mörg-
um ófögrum orðum um sprung-
urnar á Rauðavatnssvæðinu og
þá miklu ósvinnu að ætla að
byggja á þeim. Fulltrúar meiri-
hlutans itrekuðu þá skoðun sina
að ekkert hefði enn komið fram
sem benti til að ekki væri hægt að
byggja við Rauðavatn ef þess
væri gætt að byggja ekki á sjálf-
um sprungunum eins og gert
hefur t.d. verið i Breiðholti.
Adda Bára Sigíúsdóttir vék
nokkuðaðstrandskipulagi Daviðs
og sagði að land Keldna lægi ekki
á lausu. Tvær nefndir undir for-
ystu Birgis ísleifs Gunnarssonar
hefðu á sinum tima átt viðræður
við fulltrúa rikisstjórnarinnar,
Háskólans og tilraunastöðvar-
innar um að fá þetta land undir
borgina en án árangurs. Þó voru
fulltrúar rikisstjórnarinnar þá
tveir fyrrverandi borgarstjórar
þeir Geir Hallgrimsson forsætis-
ráðherra og Gunnar Thoroddsen
félagsmálaráðherra. Skipulag af
þessu svæði var tilbúið 1977 en
var þó ekki staðfest þá 14 mánuði
sem eftir voru af þvi kjörtimabili
en það var nauðsynlegt ef átti að
taka landið eignarnámi.
Adda Bára sagði að ýmislegt
annað væri i veginum og nefndi
öskuhaugana en á slikum stöðum
væru gasmyndanir mörgum árun
eftir að öskuhaugum hefur verið
lokað og mætti búast við gas-
sprengingum. Þ,á - væri Gufunes-
radió á þessu svæði en það þarf
óbyggt svæði i grennd við sig og
einnig Áburðarverksmiðjan sem
töluverð sprengihætta stafaði af.
Það kom einnig fram i þessum
umræðum að fáir kostir væru um
framtiðarbyggð á Reykjavikur-
svæðinu og þvi hefði Rauðavatns-
svæðið verið vali<\ enda tengist
það vel þeirri byggð sem fyrir er.
— GFr
Borgarstjórn:
10 biðskýli samþykkt
Útboð á smiði 10 gangstéttar-
biðskýla skv. teikningum Birnu
Björnsdóttur innanhússarkitekts
og Gunnars Torfasonar verkfræð-
ings var samþykkt á borgar-
stjórnarfundi á íimmtudags-
kvöld. Eins og kunnugt er hefur
eitt slikt skýli verið sett upp neð-
an Landspitalans og vakið mikla
athygli. Fékk það m.a. menning-
arverðlaun Dagblaðsins i arki-
tektúr i ár.
Þess skal getið aö á fundi
stjórnar SVR 21. april s.l. náðist
ekki meirihluti fyrir útboði hinna
nýju skýla. Fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins voru einnig á móti og
Birgir Þorvaldsson fulltrúi Al-
þýðuflokksins. Sá siðastnefndi
hefur umboð fyrir dönskum skýl-
um eins og þvi sem nýlega var
sett upp við Lækjargötu, neðan
Torfunnar. —GFr
Glæsileg þjónustumiðstöð
tekin í notkun í Bláf jöllum
Sjö sveitarfélög á höfuðborgar-
svæðinu tóku i gær formlega i
notkun nýja og stórglæsilega
þjónustumiðstöð fyrir iðkendur
skíðaiþrótta. Hér er um að ræða
húsnæði upp á rúma eitt þúsund
fermetra og rúmar það veitinga-
sal fyrir 150 manns, aðstöðu fyrir
Hjáiparsveit skáta, aðstöðu til
lækninga ef með þarf, skiða-
geymslu, skíðaleigu, eldhús og
fjöldann allan af herbergjum fyr-
ir starfsfólk þjónustumiðstöðvar-
innar. Hún getur auðveidlega tek-
ið við mjög stórum hópi fólks ef
vonskuveður kemur og ófært
verður til byggða. Er það ekki
minnsti pósturinn i sambandi við
þjónustumiðstöðina.
Framkvæmdir við þjónustu-
miðstööina sem kostuð er af ibú-
um Reykjavikur, Seltjarnarness
Kópavogs, Hafnarfjarðar, Kefla-
vikur, Garðabæjar og Selvogs-
hrepps hófust i ársbyrjun 1980 og
tókst að ljúka fyrri hluta verksins
á skömmum tima. Seinni hlutan-
um lauk nú fyrir skömmu. Hönn-
un verksins annaöist Manfreð
Vilhjálmsson arkitekt en fram-
kvæmdir Höröur og Jóhann s.f.
Kostnaöur framreiknaður til nú-
gildandi visitölu byggingarkostn-
Sýning fyrir almenning á
uppdráttum af húsnæði fyrir
aldrað fólk verður opnuð i dag i
Byggingarþjónustunni að Hall-
veigarstig 1. Sýning verður opin
til 15. mai. Aö sýningunni standa
aðar er tæpar 13 miljónir króna.
Lætur nærri að hvert mannsbarn
i sveitarfélögunum sjö greiði 100
krónur til framkvæmda.
Meö hinni nýju þjónustumið-
stöö stórbætist öll aðstaða þeirra
þúsunda manna sem leggja leiö
sina i Bláfjöll á ári hverju.
Húsnæðisstofnun rikisins, Samb.
isl. sveitarfélaga og öldrunarráð
Islands. Á sýningunni eru upp-
drættir og ljösmyndir af dvalar-
heimilum, ibúðum og þjónustu-
stofnunum.
— hól.
Sýning í Byggingarþjónustunni:
i fyrir aldraða