Þjóðviljinn - 17.06.1983, Page 3

Þjóðviljinn - 17.06.1983, Page 3
' « < f • #*./ f» Helgin 18. - 19. júní 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Fjármálaráðherra um sölu ríkisfyrirtœkja Fylgi þessu eftir eins og ég get „Ég sel ekkert nema kaupendur séu fyrir hendi. Ef það kemur kaupandi þá er málið til athugunar. Ríkið verður að halda áf ram að reka það sem eftir stendur ef kaupandi finnst ekki, hvort sem fyrirtækið skilar arði eða ekki. Hitt er annað mál að það er til athugunar hvort ekki er hægt að leggja eitthvað af þessum fyrirtækjum niður“, sagði Albert Guðmundsson fjármálaráðherra í samtali í gær. Á undanförnum ríkisstjórnar- fundum hefur Albert dreift til sam- ráðherra sinna listum yfir þau ríkis- fyrirtæki sem hann telur koma til greina að selja einstaklingum. Ráðherrar hafa óskað eftir frekari gögnum að sögn Alberts þar á meðal skýrslu nefndar sem vann að athugun möguleika á sölu ríkisfyr- irtækja í síðustu stjórnartíð Fram- sóknar og Sjálfstæðisflokks, sem dreift var til þeirra í gærmorgun. „Þetta hefur tafið málið svo það verður ekki fyrr en á næsta ríkis- stjórnarfundi að ég get rætt þessi mál við samráðherrana.“ Stjórnmála- samband við Alsír og Indónesíu Ákveðið hefur verið að ísland taki upp stjórnmálasamband við tvö ríki, sem ekki hefur verið haft stjórnmálasamband við áður. Þessi ríki eru Indónesía og Alsír. Engin ákvörðun hefur verið tekin um að skiptast á sendiherrum og ekki ákveðið hvenær af slíku verður. Þú hefur nefnt að til greina komi að veita þeim fyrirgreiðslu sem vildu kaupa eignir ríkissjóðs. Með hvaða hætti yrði það? „Ég hef ekki hugsað um það, enda er ekki hægt að setja eina al- gilda línu í þeim efnum. Það er ein- staklingsbundið hvaða fyrir- greiðslur menn þurfa og sumir þurfa enga fyrirgreiðslu. En það er ekkert ákveðið." Hvað með skattaívilnanir? „Það gæti vel komið til greina, ég útiloka það ekki. Sum þessi fyrir- tæki hafa ekki verið þekkt fyrir að borga háa skatta til ríkissjóðs. Því Þetta eru niðurstöður úr vor- leiðangri rannsóknarskipsins Bjarna Sæmundssonar, en slíkur leiðangur er farinn árlega til að at- huga ástand sjávar, gróður og átu á íslenska hafsvæðinu. er ekki óeðlilegt að einstaklingar sem vildu taka yfir þennan rekstur fengju einhvern aðlögunartíma.“ Hefur þú orðið var við áhuga manna á að kaupa þessi fyrirtæki? „Já, já. Flestir vilja kaupa Áfengisútsöluna og ríkisbankana. Vill Þjóðviljinn kannski kaupa eitthvað?“ Forveri þinn og flokksbróðir hugðist gera það sama fyrir nokkr- um árum, en varð ckkert ágengt. „Ég veit ekki hvort það verður eitthvað meira úr því hjá mér. Þetta er ekki bara mín hugsjón heldur þeirra sem vilja efla ein- Leiðangrinum lauk 13. júní og voru athugaðir 115 staðir umhverf- is landið. Fyrir Vesturlandi og Vest- fjörðum var hlýsjórinn í meðallagi Albert Guðmundsson fjármálaráð- herra: Skattaívilnanir koma til greina. staklinginn og frumkvæði hans. Ég mun alla vega fylgja þessu eftir eins og ég get ég ég fylgi því kannski meira eftir en forveri minn ef þú ert að meina Matthías Á. Mathiesen. En hvort mér verður meira ágengt eða ekki, það veit ég ekkert um. Það verður bara að koma í ljós,“ sagði fjármálaráðherra. heitur (5-7°) og þar var mikill gróður í sjónum, nema á grunnslóð. Mikil átavarásvæðinu, en minnkaði er norðar dró. Fyrir Norðurlandi gætti hlýsjáv- ar ekki austan Húnaflóa. Þar var sjór kaldur (1-2 gráður) og seltulít- ill. Á vestanverðum Norðurlands- miðum var sjór einnig átusnauður, en þó var átumagn heldur meira en í fyrravor. Kvennalistinn mótmælir neitun sumarþings Þingmenn Samtaka um kvenna- lista hafa sent frá sér mótmæli gegn þeirri ákvörðun ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar að kalla Alþingi ekki saman fyrr en að liðnu sumri. Segja þær í ályktun sinni, að í flestum hópum þjóðfélagsins sé mikil óánægja með ráðstafanir ríkisstjórnarinnar, einkum þær sem varða kjör launafólks. Þær vekja athygli á því, að krafa þingflokka stjórnarandstöðu um þinghald hið fyrsta var send forsæt- isráðherra 1. júní si., en ríkis- stjórnin hafi dregið svarið við sig í tvær vikur og síðan tekið neikvæða afstöðu, þrátt fyrir stuðning meirihluta þingflokks Sjálfstæðis- flokksins við þessu eðlilegu kröfu. Fyrir Austurlandi var sjór einnig kaldur yfir landgrunninu (1-2 gráður) gróðurlítill og áta undir meðallagi. í greinargerð frá Hafrannsókna- stofnun segir að fyrir Norðurlandi sé mikill sjávarkuldi og lítið um átu og þess ekki að vænta að þar verði snögg breyting á. Ný sérfargjöld til Amsterdam og[ Dusseldorf eino sfeini í íriku! Við mætum verðbólgu og verðhækkunum með umtalsverð- um lækkunum - einu sinni í viku á hvorn áfangastað. Amsterdam Þriðjudagsferðir +30% af lægsta fargjaldi = 8.581 +50°/o barnaafsiáttur = 4.290 DUsseMorf Helgarbrottför +20% af lægsta fargjaldi = 10.096 +50% barnaafsláttur= 5.048 Um sérfargjöldin gildir eftirfarandi: • Þú verður að panta og greiða ferðina með minnst hálfsmánaðar fyrirvara. • Miðanum er ekki hægt að breyta. • Ef þú hættir við ferðina endurgreiðum við helming af andvirði hennar. • Ferðin verður að vera minnst vikulöng - mest mánuður. Kynntu þér nýju sérfargjöldin - og ferðin er hafin Flugfélag með ferskan blæ ARNARFLUG Lágmúla 7, sími 84477 ->g- Rannsóknarleiðangur Bjarna Sœmundssonar: Kaldasti sjór í 20 ár Sjór fyrir Norður- og Austurlandi er nú mjög kaldur, og fyrir norðan er þetta eitt kaldasta vor í sjó sl. 20 ár. Sjávarhiti er tiltölulega góður í hlýja sjónum fyrir Suður- og Vesturlandi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.