Þjóðviljinn - 17.06.1983, Blaðsíða 15
Föstudagur 17, J6nl l983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
23
nemendur
brautskráðir
frá
Tónlistar-
skólanum
í Reykjavík
Tónlistarskólanum í Reykja-
vík var sagt upp nýverið. Að
þessu sinni voru 23 nemendur
brautskráðir frá skólanum, 8
tónmenntakennarar, 4 píanó-
kennarar, 2 fiðlukennarar, 1
blásarakennari, 4 luku burtfar-
arprófi í hijóðfæraleik og söng
og 4 einleikaraprófi þ.á.m.
fyrsti einleikarinn á saxafón.
Við athöfnina lék Strengja-
sveit Tónlistarskólans undir
stjórn Mark Reedman, Conc-
erto Grosso eftir Hándel.
Skólastjóri Tónlistarskólans í
Reykjavík er Jón Nordal.
m
Nemendur Tóniistarskólans sem brautskráðust í vor
\.i/
íslensku þátttakendurnir. Frá
vinstri: Þórður, Edda og Eiríkur.
Þrír
íslenskir
sýna
í maí s.l. var opnuð sumarsýning
Norrænu listamiðstöðvarinnar í
Sveaborg í Finnlandi, þema sýning-
arinnar er norrænt landslag „Nor-
disk landskap".
Sýningin er á vegum Norrænu
listamiðstöðvarinnar í Sveaborg,
þrír þátttakendur eru frá hverju
norðurlandi alls 15 með 100 verk.
íslensku þátttakendurnir eru:
Edda Jónsdóttir, Eiríkur Smith og
Þórður Hall. Gefin hefur verið út
vönduð sýningarskrá í tengslum
við sýninguna.
Á sama tíma og sýningin opnaði
var haldið alþjóðlegt myndlistar-
þing og alþjóðleg ráðstefna list-
gagnrýnenda í Helsinki. - Sýning-
unni lýkur 14. ágúst n.k.
Bátasýning
um helgina
Um helgina gefst borgarbúum
kostur á að skreppa í skemintisigl-
ingu um sundin blá og út í Viðey á
vegum Snarfara, félags sportbáta-
eigenda.
Snarfari gengst fyrir bátasýningu
á svæði sínu í Elliðavogi laugardag
og sunnudag 18. og 19. júní og
kynnir þar íslenska bátafram-
leiðslu, erlenda vatnabáta, vélar og
búnað. Bátarnir verða sýndir bæði
á sjó og á landi og verður sýning-
argestum boðið upp á reynslusigl-
ingu á sýningarbátunum. Sýningin
verður opin frá kl. 10 árdegis til 22
að kvöldi báða dagana.
Sumarsýning Norrcenu
listamiðstöðvarinnar
íSveaborg
Atlantik býöur upp á þriggja vikna ferð
til sólskinseyjarinnar Mallorka meö
sérkjörum. Verðið er í sérflokki og auk
þess er barnaafslátturinn meiri en
gengur og gerist.
Ath. Hagstætt verð
Ath. Engin útborgun
Ath. 50% barnaafsláttur
Það er ekki tilviljun að Mallorka skuli njóta
þeirra vinsælda, sem raun ber vitni. Eyja-
skeggjar kappkosta við að gera dvöl ferða-
manna, sem eyjuna heimsækja, sem ánægju-
legasta.
Atlantik býður sem fyrr upp á ákjósanlega að-
stöðu fyrir fólk á öllum aldri. Ekki síst fyrir
f jölskyldur með börn.
Takmarkað
sætaframboð.
ímAf■ l' i
KRÍFSTDFA, Iðnaðarhúsinu Hállveigarstíg 1. Símar 28388 og28580