Þjóðviljinn - 17.06.1983, Blaðsíða 32
DJOÐVIUINN
Föstudagur 17. júní 1983
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins I þessum simum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndír 81257. Laugardagá kl. 9 - 12 er hæat að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Eggert Haukdal.
Nató byggi
brýr og
flugvelli!
t
segir Eggert
Haukdal í leiðam
Suðurlands!
„Væri nú ekki ráð að taka
hagstæð erlend ián til varan-
legra vcga, I stað nýrrar skatt-
heimtu, og í því sambandi að
hefja umræður við forsyars-
menn Nato um styrkingu á
vörnum landsins, sem vissu-
Tfcga felast í góðum vegum,
brúm, höfnum og flugvöll-
um“, skrifar Eggert Haukdal
alþingismaður Sjálfstæðis- '
flokksins í leiðara blaðsins
Suðurland sem út kom 11.
júní.
- Segir Eggert Haukdal al-
þingismaður Sjálfstæðis-
flokksins í ieiðaranum, að
eðlilegt hefði verið að kalla
saman alþingi í sumar um leið
og hann lýsir yfir stuðningi við
bráðahirgðalög ríkisstjórnar-
innar og við hana. I niðurlagi
leiðarans tengir svo þessi
þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins saman framkvæmdir á ís-
landi og aðildina að hernaðar-
bandalaginu eins og að ofan
- greinir. Það þarf „að hefja
umræöur við forsvarsmenn
Nató um styrkingu á vörnum
landsins, sem vissulega felast í
góðum vegum, brúm. höfnum
og flugvöllum".
-óg
Fundur Alþjóðahvalveiðiráðsins í júlí:
Fulltrúi frá Náttúru
verndarráði ekki með!
Nýir sendi-
herrar
Nýskipaður sendiherra Bangla-
desh, Mustafa Kamal og nýskip-
aður sendiherra Chile, Leonidas
Irrarázaval Barros, afhentu í dag
forseta íslands trúnaðarbréf sín að
viðstöddum Geir Hallgrímssyni,
utanríkisráðherra.
Síðdegis þáðu sendiherrarnir
boð forseta íslands að Bessa-
stöðum.
Sendiherra Bangladesh hefur
aðsetur í Stokkhólmi, en sendi-
herra Chile í Osló.
✓
Oviðunandi ákvörðun, segir Eyþór
Einarsson, formaður ráðsins
ráðsins um hvalveiðibann frá í
fyrra.
Þjóðviljinn reyndi árangurslaust
í gær að ná sambandi við Halldór
Ásgrímsson, sj ávarútvegsráðherra
og Ragnhildi Helgadóttur,
menntamáiaráðherra, sem fer með
náttúruverndarmál, vegna þessa
máls. Guðrún Helgadóttir og
Steingrímur Sigfússon þingmenn
Alþýðubandalagsins sem fylgjast
með þróun hvalveiðimálsins fyrir
þingflokkinn, sögðu í gær að þessi
ákvörðun væri hneyksli. í flestum
eða öllum sendinefndum annarra
ríkja væru fulltrúar náttúruvernd-
arsamtaka, hér væri ísland að
skera sig úr og fara 5 ár aftur í
tímann.
-ÁI
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
tilkynnt Náttúruverndarráði að
fulltrúi ráðsins verði ekki
sendur á ársfund
Alþjóðahvalveiðiráðsins sem
haldinn verður í Brighton á
Englandi í lok júlí. Eyþór
Einarsson, formaður
Náttúruverndarráðs sagði í
samtali við Þjóðviljann í gær að
þessi ákvörðun væri ekki viðun-
andi.
Fulltrúi Náttúruverndarráðs tók
fyrst sæti í íslensku sendinefndinni
hjá Alþjóðahvaðveiðiráðinu á árs-
fundinum 1979 og sótti Eyþór Ein-
arsson tvo fundi og síðan Árni Ein-
arsson, líffræðingur aðra tvo. Þau
ár hafa 4 verið í nefndinni: skrif-
stofustj óri sj ávarútvegsráðuneytis,
forstjóri Hafrannsóknastofnunar
og forstjóri Hvals hf. auk fulltrúa
Náttúruverndarráðs.
Eyþór sagði að þessi tengsl
hefðu verið afskaplega gagnleg og
sér þætti miður ef nú ætti að rjúfa
þau. Hann sagðist undanfarna
daga hafa reynt að ná sambandi við
sjávarútvegsráðherra vegna þessa,
þar sem hann vildi vita hvernig á-
kvörðunin væri til komin og hvort
ráðherra stæði að baki henni. Það
hefði ekki tekist ennþá, en Kjartan
Júlíusson fulltrúi í sjávarútvegs-
ráðuneytinu hefði tjáð sér að ekki
hafði verið ákveðið hverjir yrðu
fulltrúar íslands á fundinum í júlí.
Ég hef ekki séð dagskrá fundarins,
sagði Eyþór, en hann hlýtur að
vera býsna mikilvægur þar sem ým-
is ríki hafa mótmælt ákvörðun
Eyþór Einarsson: Ekki vitað
hvernig ákvörðun er til komin.
Allt að 32%
hækkun á vör-
um og þjónustu
Verðlagsráð hefur samþykkt allt að
32% hækkun á nokkrum vöruflokk-
um og þjónustu. Ástæður þessara
hækkana eru að sögn Guðmundar
Sigurðssonar hjá Verðlagsstotnun
runnar undan rótum gengrsfellingar,
olíuverðshækkana og breytinga á
verðlagsgrundvelli landbúnaðarvara.
Unnar kjötvörur hækka um 15-
22%. Sem dæmi má nefna að kíló af
vínarpylsum hækkar úr 104.80 kr. í
122.90 kr. Kíló af kjötfarsi hækkar úr
67.70 kr í 83 kr.
Miðar á kvikmyndasýningar
hækka um 25, eða úr 60 kr. í 75 kr.
Veldur þar mestu gengisbrevting-
in, en við hana hæklýar leiga og
kaup á kvikmyndafilmum.
Taxti leigubifreiða hækkar um
22%. Startgjaldið hækkar við það
úr58kr. í 71 kr. Olíuverðshækkun,
gengisfelling og 8% launahækkun
um sl. mánaöamót veldur. Þá
hækkaði taxti vöruflutningabifr-
eiða innanlands um 19% og innan-
landsflugfarmiðar um l'h°/o. Tax-
tar vinnuvéla hækkuðu hins vegar
um 32%, en þeir hækkuðu síðast 1.
mars um 17%.
Steypa hækkaði um 6% og það
veldur því að rúmmetrinn af alg-
engasta flokki steypu, S-200,
hækkar úr 2.030 kr. í 2.149 kr.
- v.
í skípín
í ferðalögin
J I sumarhúsin
Á afskekkta staði
ALDREIAFIUR MTÓLKUR5KQRTUR.
G-MTÓLKIN GEyMISr VELOGLENGI
en það er einmitt helsti kostur hennar þegar kaupa þarf mjólkurbirgðir
tíl langs tíma - um borð í skípin, á afskekkta staði sem einangrast oft
hluta úr árinu vegna samgönguerfiðleika, eða í sumarhúsin.
Með þetta í huga henta einmitt eins iítra umbúðirnar einkar vel.
nmr