Þjóðviljinn - 17.06.1983, Blaðsíða 31

Þjóðviljinn - 17.06.1983, Blaðsíða 31
Föstudagur 17. júni 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 31 „Gull í mund“ kvaddi með beinni útsendingu í stereo utanhúss s V elkomin a morgun- hljómleika útvarpsins“ „Aureus-kvartettinn“ kom fram á hljómleikum á Laekjartorgi. Hér ræðir Stefán Jón við stjórnandann Jim Sieler. - Ljósm.: Leifur. Finnar aðilar að Tele X Finnska ríkisstjórnin ákvað í gærmorgun, að Finniand yrði aðili að rekstri gervihnattarins Tele X. Fyrir í því samstarfí voru Noregur og Svíþjóð. Petta kom fram á blaðamanna- fundi í lok fundar samstarfsráð- herra Norðurlanda og forsætis- nefndar Norðurlandaráðs, sem fram fór hér á landi. Gervihnötturinn Tele X verður sendur á loft árið 1986 og hefur m.a. tvær sjónvarpsrásir. Ekki er enn vitað hvort Tele X gæti e.t.v. náð til íslands. Upplýst var, að nokkuð hefði verið rætt um hugsanlegt samstarf á sviði sjónvarpsgervihnatta, þ.á m. um Nordsat og um hið fjöl- tjóðlega ECS kerfi, en engar á- kvarðanir hafa verið teknar, utan ákvörðun Finna. Þessi mál verða til umræðu á fundi hér á landi á þriðjudag í næstu viku, en þá munu viðkom- andi fagráðherrar frá Norðurlönd- um hittast tii viðræðna um þessi mál. „Morgunútvarpið Gull í mund góðan daginn. Og velkomin á morgunhljómleika útvarpsins. Við erum stödd hérá þjóðhátíðarpallinum, þjóðnýtum hann j þágu ríkisútvarpsins. Áhorfendur þetta þrírtil fjórir. Og fyrst á dagskrá er hljómsveitin Centár. Gjörið þið svo vel.“ Þetta voru orð Stefáns Jóns Hafsteins umsjónarmanns morgunþáttarins Gull í mund sem í gærmorgun rann sitt skeið á enda. Fluttur var þáttur nr. 178 og var útvarpað í stereo f rá þrem stöðum: Lækjartorgi, Akureyri ogúr útvarpshúsinuvið Skúlagötu. Var það í fyrsta sinn sem útvarpað er í stereo utanhúss. Hljómsveitin Centár hóf hljórn- listarflutning frá Lækjartorgi með léttri ballöðu: „Einn, tveir, einn tveir, I am so lonesome, I am so blue...“ Stuttu síðar tóku þeir lagið, Hún er svo sæt, sem þeir fluttu af hreinni innlifun. Á meðan\ á þessu stóð beið Sigríður Árna- dóttir þess að taka við og þar varð spenningur í lofti. Tæknimenn tóku stikkprufu á músíkina, dag- blöðin framreidd. Eina rettu? Jú þakka þér fyrir. „Það kemur að þér eftir eina mínútu og fimmtíu sek- úndur.... hálf mínúta.Byrja.“ Ekki var annað að heyra en að þetta fólk kynni sitt starf. Tækni- mennirnir Georg Magnússon og Hreinn Valdimarsson voru greini- lega öllum hnútum kunnugir. Á Lækjartorgi sinntu Þórir Steingrímsson og Bjarni R. Bjarn- ason sínu starfi með sama öryggi. Vanir menn. Fólk með hlutverk Víst er um það að umsjónar- menn morgunútvarpsins er fólk með hlutverk. Og það er ekkert smáhlutverk, nefnilega það að koma íslensku þjóðinni á fætur. Undanskildir eru að sjálfsögðu hinir þekktu morgunhanar sem eru roknir í kaffi niðrí Pfaff kl. 5 á mor- gnana eða þeir sem atvinnu sinnar vegna þurfa að vakna snemma, bakarar, leigubílstjórar, flugmenn og þannig mætti lengi telja. Mál manna er að morgunútvarpið hafi um landið Ragnar Jónsson stjórnar samkór Kópavogs frá þjóðhátíðarpallinum sem „þjóðnýttur“ var í þágu ríkisútvarpsins „og þeirra 150 þúsund einstaklinga sem hiustuðu á þáttinn“, eins og Stefán Jón orðaði það. Safn Jóns Sigurðssonar opið Safn Jóns forseta Sigurðssonar á Hrafnseyri verður opnað almenn- ingi 17. júní og mun verða opið fram undir haustið. Sóknarpresturinn, sr. Torfi Stef- ánsson, á Þingeyri, flytur há- tíðarmessu á Hrafnseyri 17. júní. Að messugjörðinni lokinni mun doktor Guðrún Helgadóttir flytja erindi um Hrafn Sveinbjarnarson óg lækningar hans, en á þessu ári eru 770 ár frá því að Hrafn var af lífi tekinn, en svo sem alkunnugt er, ber staðurinn nafn hans. Safnvörsluna í sumar annast Sig- ríður Valdimarsdóttir eins og í fyrrasumar. Norsk harmoniku- hljómsveit ferðast Þan'i 21. júní kemur hingað til lands harmonikuhljómsveit frá eyjunni Senja við Norður-Noreg. Hljómsveitin kennir sig við nafn heimabyggðarinnar, sem er önnur stærsta eyja Noregs, og kalla sig Senja trekkspillklubb. Sigríður Arnadóttir í þularherberginu árla morguns. verið með hressara móti í vetur, ekki síst fyrir þá sök að hlustendur hafa sjálfir fengið að tjá sig um hin aðskiljanlegustu málefni. Stefán sagði í spjalli við Þjv. að fram hefðu komið á bilinu 1000-1100 manns í þáttunum í vetur. „Ég hef hlýtt á rödd hinnar íslensku þjóðar,“ sagði hann og glotti. „Annars vil ég þakka öllum þeint sem tekið hafa þátt í þessu með okkur. Þetta hefur verið stór- skemmtilegt. Hættur hjá útvarp- inu? Nei, nei, nei. Ég vinn í dag- skrárdeiidinni í sumar og svo verð ég með beina línu á mánudags- kvöldum í sumar. í haust fer ég svo út til Bandaríkjanna í fram- haldsnám." Sigríður til Frakklands Sigríður Árnadóttir sem verið hefur með Gull í mund í vetur og sumar hættir einnig. Hún kvaðst hafa unnið á útvarpinu frá því hún var 15 ára gömul. „Ég hef verið að þokast upp á við innan stofnunar- innar,“ sagði hún og tók í sama streng og Stefán með, að það hefði verið verulega ánægjulegt að vinna við Guli í mund í vetur. Sigríður lætur nú af störfum hjá útvarpinu hvað sem síðar verður. Hún heldur til Frakklands þar sem hún ætlar að stunda frönskunám. - hól. Á fyrsta degi heimsóknarinnar verður haldið til Þingvalla. 23. júní fara Norðmennirnir tii Húsavíkur, en nyrðra dvelja þeir til 29. júní. Á Húsavík halda þeir tónleika í fé- lagsheimilinu að kvöidi 25. júní, á eftir verður dansleikur, þar sem gestirnir spila ásamt heima- mönnunt. Frá Húsavík halda svo Senja-menn 27. júní tii Akureyrar í boði harmonikuunnenda þar. Verður Akureyri skoðuð og síðan haldinn konsert. 28. júní snúa gestirnir svo aftur suður á bóginn með stefnu á Borg- arfjörð. Þeim verður sýnd fegurð héraðsins, en um kvöldið 29. verða tónleikar í Varmalandi og dansað verður við harmonikuundirleik gesta og gestgjafa. Til Reykjavíkur koma svo Norðmennirnir 30. júní og halda 2. júlí konsert í Ártúni. Á eftir verður að vanda efnt til dansleiks fram eftir nóttu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.