Þjóðviljinn - 02.09.1988, Side 10
FOSTUDAGSFRÉTTIR
Rœkja
Verksmiöjur á kúpunni
Fyrirsjáanlegt225-250 miljón króna tap á rekstri rœkjuverksmiðja íár.
Yfirborganir á hráefni hluti af skýringunni
Frá því í vor hefur verð á rækju
á Evrópumarkaði lækkað um
9-10% og hefur birgðasöfnun
rækjuverksmiðja aukist samfara
því. Fyrirsjáanlegt er verulegt tap
hjá verksmiðjunum og ekki ólík-
legt að það verði svipað í ár og
það var í fyrra eða 225-250 milj-
ónir króna. Samanlagt samsvarar
tapið á þessum tveimur árum
þeirri innistæðu sem verksmiðj-
urnar gera tilkall til í Verðjöfnu-
narsjóði sjávarútvegsins.
Þegar er farið að hrikta í undir-
stöðum margra rækjuverksmiðja
og er ein elsta verksmiðjan á
landinu, O.N.Olsen á ísafirði
þegar hætt að taka á móti hráefni
þar sem búið er að loka fyrir raf-
magnið til verksmiðjunnar vegna
skulda og hefur þegar verið ósk-
að eftir að fyrirtækið verði tekið
til gjaldþrotaskipa vegna van-
skila.
Að sögn Lárusar Jónssonar
framkvæmdastjóra Félags rækju-
og hörpudiskframleiðenda eru
ástæður taprekstursins í ár vegna
verðfalls á erlendum mörkuðum
og óhagstæðrar gengisþróunar að
undanförnu. Aðspurður hvort
ekki mætti rekja hluta af tapinu
til offjárfestingar í atvinnu-
greininni sagði Lárus að svo væri
Búseti
Reisu-
gilli
ídag
Vœntanlegur húsnœðis-
kostnaður á mánuði allt
að helmingi minni en á
leigumarkaði. Sótt um
lán til um 200 íbúða.
Þrjúhundruð nýirfélagar
að hluta og þá einkum vegna yfir-
borgana á hráefni.
Þá hefur afli verið með minna
Igær kynnti Námsgagnastofnun
nýtt Ijóðasafn til kennslu í 4.-6.
bekk grunnskóla og leysir bókin
af hólmi „gömlu skólaljóðin“,
sem kennd hafa verið í um 24 ár. í
Ljóðsporum eru 320 Ijóð eftir 138
móti á úthafsrækjunni en menn
bjuggust við og sagði Lárus að
ljóst væri að margir bátar næðu
Ijóðskáld og er hlutur ungra
skálda veigamikill.
Skáldskapur kvenna fær einnig
meira rými en áður og er Birgitta
Jónsdóttir yngst þeirra skálda,
sem eiga ljóð í Ljóðsporum. Hún
er fædd árið 1967.
ekki að klára kvótana sína að
þessu sinni vegna samdráttar í
afla. -grh
Þórdís S. Mósesdóttir, ritstýrði
útgáfunni ásamt þeim Kolbrúnu
Sigurðardóttur og Sverri Guð-
jónssyni. Myndskreytingar eru
verk 11 grafíklistamanna og eru
þau valin m.t.t. efnisþátta kafl-
anna. ny
Foxtrot
Metaðsókn
Alger metaðsókn hefur verið
að nýju íslensku kvikmyndinni
Foxtrot. í gær höfðu rúmlega 11
þúsund manns séð myndina og
telst það mjög gott þar sem ein-
ungs eru rúmir fímm dagar síðan
myndin var fyrst sýnd.
Jón Tryggvason leikstjóri
myndarinnar sagði Þjóðviljanum
að hann væri mjög ánægður með
viðtökurnar. Venjulega væri að-
sóknin á íslenskar myndir dræm
framan af en svo virtist sem fólki
líkaði Foxtrot vel. Jón sagði að-
sókina stöðugt vera að aukast.
Um helgina hæfust sýningar á
henni í Keflavík og á Akureyri
um leið og hún yrði tekin af sýn-
ingum Bíóhallarinnar. Hún verð-
ur sýnd áfram í Bíóborginni.
Jón sagðist ánægður bæði með
viðtökur gagnrýnenda og áhorf-
enda, „fólk virðist fíla þetta,“
eins og hann orðaði það. Hann
sagðist ekki vera farinn að huga
að annarri mynd, en það væri
aldrei að vita hvað menn gerðu
eftir svona viðtökur.
-hmp
Sjávarútvegur
Loðnuskip
ásíld
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
ákveðið að á komandi sfldarver-
tíð verði nokkrum loðnuskipum
veitt heimild til veiða á sfld. Leyf-
isveitingin er þó háð því skilyrði
að viðkomandi skip frysti alla
nýtanlega sfld um borð.
í frétt var ráðuneytinu segir að
þetta sé gert til að auka fjöl-
breytni í vinnslu og sölu síldar, en
sem kunnugt er hefur Hafrann-
sóknastofnunin gefið grænt ljós á
veiðar á um 90 þúsund tonnum á
sfldarvertíðinni í haust sem er um
20 þúsund tonnum meira en leyft
var að veiða á síðustu vertíð. Þá
var saltað í rúmlega 286 þúsund
tunnur og er ekki talið líklegt að
hægt verði að selja fleiri tunnur af
saltsfld til manneldis nú. Af þeim
sökum er búist við að sfldarfry-
sting muni aukast all verulega á
komandi vertíð.
-grh
Byggingaiðnaður
Sverrir, Þórdís og Kolbrún hafa þrætt almenningsbókasöfnin og einkasöfn í leit að Ijóðum í Ljóðspor og er ekki annað að
sjá en þau séu ánægð með útkomuna. Tvö Ijóðasöfn til viðbótar eru væntanleg, fyrir elstu og yngstu grunnskólanemana.
Mynd Ari.
Námsgagnastofnun
Ljódspor til nútímans
Nýtt Ijóðasafn til kennslu í 4. -6. bekk. Ljóð eftir 138 Ijóðskáld.
Mörg ung skáld inni
Húsnæðiskostnaður væntan-
legra íbúa í fyrstu íbúðum Búseta
verður allt að helmingi lægri en
almennt gerist, en stefnt er að því
að félagið fái fyrstu íbúðir sínar í
blokkinni í Grafarvogi afhentar
1. desember og verður reisugilli
haldið þar um sexleytið í dag.
Samkvæmt byggingarvísitölu í
ágúst er áætlaður húsnæðiskostn-
aður á mánuði fyrir væntanlega
íbúa rúmlega 11 þúsund krónur
en á almennum markaði eru 2
herbergja íbúðir leigðar á 20-30
þúsund krónur á mánuði. Hið
sama gildir um 3. og 4. herbergja
íbúðir hjá Búseta. Leigan fyrir 3.
herbergja íbúð er áætluð 14 þús-
und krónur á mánuði og 16 þús-
und fyrir 4.h. íbúð. Á almennum
markaði er 3.h. íbúð leigð á 30-40
þúsund og 4.h. íbúð á 40-50 þús-
und.
Búseti hefur nú sótt um lán til
nærri 200 íbúða á Stór-
Reykjavíkursvæðinu samkvæmt
lögum um kaupleiguíbúðir og
veitir ekki af því síðustu vikur
hafa um 300 nýir félagsmenn
gengið í félagið og þyngist
straumurinn sífellt með hverjum
degi. Þá hafa ýmis sveitarfélög og
félagasamtök hafa sýnt áhuga á
því að taka upp samstarf við fé-
lagið um byggingu og rekstur
íbúðahúsnæðis.
-grh
Ekkert lát virðist á þenslu
Meistara og Verktakasambandið: Nœg verkefniframundan hjástœrri
fyrirtœkjum. Merkjanlegur samdráttur hjá þeim alminnstu. Astœðan
er ótti almennings við efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar
Ekkert lát virðist vera á þensl-
unni á byggingamarkaðnum
um þessar mundir og næg verk-
efni framundan allt fram á mitt
næsta ár. Þó merkja menn ein-
hvern samdrátt hjá alminnstu
fyrirtækjunum og biðin eftir að
reikningar séu borgaðir eiliítið
farin að lengjast, en þó án teljandi
erfiðleika enn sem komið er.
Að sögn Friðgeirs Indriða-
sonar framkvæmdastjóra hjá
Meistara og Verktakasambandi
byggingarmanna eru það aðal-
lega hin smærri verkefni sem
eitthvað hefur dregið úr og er það
vegna þeirrar óvissu sem ríkir um
fyrirhugaðar efnahagsaðgerðir
ríkisstjórnarinnar. Af þeim
sökum er tilhneiging hjá hinum
almenna borgara að fresta fram-
kvæmdum sem hann hafði að
öðru leyti verið búinn að ákveða.
Þá gætir vissrar tilhneigingar í þá
átt að fresta greiðslu reikninga
fremur en að greiða þá upp. Þó
hefur það ekki haft neina teljandi
erfiðleika í för með sér enn.
Aftur á móti sagði Friðgeir að
'næg verkefni væru framundan
hjá stærri fyrirtækjunum í bygg-
ingariðnaðinum og engin merki
um að stærstu verkkaupendurnir
ss. Ríkið og Reykjavíkurborg
væru neitt að draga saman seglin.
f því sambandi má nefna að vel
miðar með byggingu Ráðhússins
og nýbúið að bjóða út flottræfils-
byggingu sem rísa á uppá hita-
veitugeymunum í Öskjuhlíð.
Aðspurður um haustið sagði
Friðgeir að sá árstími væri alltaf
dálítið erfiður vegna manneklu
þegar skólafólkið hverfur á braut
í skólana. Þá hægist á öllum fram-
kvæmdum í 2-3 vikur en síðan
jafnaði þetta sig og kæmist aftur á
fullt skrið.
Rúnar Björnsson skrifstofu-
stjóri hjá Byggðaverk hf. sagði að
þeir hefðu næg verkefni fram á
mitt næsta ár og allt útlit fyrir
mikla vinnu hjá fyrirtækinu en á
launaskrá þess eru um 200
manns. Stærsta verkefni þeirra
um þessar mundir er viðbygging
við Háskólabíó og verslunar-og
skrifstofuhúsnæði við Faxafen en
nýlega afhenti Byggðaverk hf.
viðbyggingu við Engidalsskóla í
Hafnarfirði.
-grh
Sjónvarpið
Blóð og guðlast
Fjögurra mínútna tónlistar-
myndband með hljómsveitinni
Ham sem Ríkissjónvarpið fram-
leiddi og átti að sýna nk. föstudag
í tónlistarþættinum Poppkorni
hefur verið sett á svartan lista
sökum guðlasts og of mikilla
blóðútshellinga. Myndbandið
var gert við lagið Trúboðssleikj-
arinn sem kom út fyrr í sumar.
Að sögn Ásgríms Sverrissonar
hjá Ríkissjónvarpinu sem stjórn-
aði upptöku á myndbandinu er
það einfaldlega ekki nógu gott til
sýninga og af þeim sökum var
tekin sú ákvörðun að sýna það
ekki. Aðspurður hvort ástæðan
fyrir sýningarbanninu að í því
væri guðlast og mikið um blóð,
sagðist Ásgrímur ekki vilja svara.
-grh
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ