Þjóðviljinn - 02.09.1988, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 02.09.1988, Blaðsíða 23
Sýningar á Marmara hefjast í september. Hvanneyri tekur fyrir leikritið Um hið dularfulla og sorglega hvarf.sem Hugleikur sýndi á Galdraloftinu í vor. Hugleikur heldur sig hinsvegar við frum- samin verk, en um þessar mundir munu höfundar leikfélagsins vera að setja sig í stellingar til leikrita- skrifa. Leikklúbburinn Saga á Akur- eyri er á leiðinni á leiklistarhátíð í Vestur-Þýskalandi með Græn- jaxla Péturs Gunnarssonar. Leikfélag Vestmannaeyja ætlar að sýna Sjö stelpur eftir sænska höfundinn Erik Torstensson, og Leikfélag Sauðárkróks fetar í fót- spor Leikfélags Hafnarfjarðar og sýnir Emil í Kattholti einhvern tíma í vetur. Leikfélag Hornafjarðar ætlar að heiðra minningu Þórbergs Þórðarsonar, en Jón Hjartarson vinnur nú að leikgerð að Sálmin- um um blómið fyrir leikfélagið. Jón mun setja leikritið upp ein- hverntíman eftir áramót, um það leyti sem hundrað ár verða liðin frá fæðingu Þórbergs. Jólapakkarnir Eins og Leikfélögin í Hafnar- firði og á Sauðárkróki er Leikfé- lag Akureyrar hrifið af Emil í Kattholti, en til stendur að leikritið verði bæði jólaleikrit og söngleikur ársins hjá leikfé- laginu. Frumsýning verður á 2. í jólum. Sama dag frumsýnir Þjóðleik- húsið Fjalla Eyvind Jóhanns Sig- urjónssonar á stóra sviðinu, en íslenski dansflokkurinn frum- sýnir ballettinn Faðir vor eftir Ivor Kramer. Dansað verður í kirkju, og mun höfundurinn stjórna sýningunni. Frumsýning verður einhverntíma um jólin. Á milli jóla og nýárs frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur mann- margan og spennandi söngleik eftir Ray Herman. Á frummálinu heitir leikurinn Th'ey shoot hors- es don‘t they? og kemur annað hvort til með að heita Maraþon- dansinn eða Náðarskotið í ís- - lenskri þýðingu. Sjálfsagt hafa margir séð kvikmyndina sem gerð var eftir þessu fræga verki, sem gerist í Bandaríkjunum á þriðja áratugnum og segir frá mikilli maraþondanskeppni þar sem fólk dansar þar til það hnígur út af, því há verðlaun eru í boði. Náðarskotið er eina leiksýning Leikfélagsins sem sýnd verður utan Iðnó í vetur, þótt enn sé ekki alveg komið á daginn hvar sýn- ingin verður. Því hefur heyrst fleygt að hún verði á Hótel ís- landi, líklega, kannski... eða á einhverjum öðrum stað. Þýðandi og leikstjóri verksins er Karl Ág- úst Úlfsson og hljómsveitarstjóri Jóhann G. Jóhannsson. Um áramótin verður frumsýnt nýtt leikrit í þýðingu Þórarins Eldjárns, eftir sænska rithöfund- inn Göran Tunström (Jólaórator- ían). Leikritið heitir Sjang-Eng og var frumsýnt í Svíþjóð á síð- asta leikári þar sem það vakti gríðarlega athygli. Sjang-Eng er um hina upp- runalegu, einu og sönnu Síamst- víbura, sem v iru kallaðir svo því þeir fæddust Síam (árið 1811), þar sem n ;r Tæland. Þeir bræður voru«. s ólíkir og frekast mátti vera, en samvaxnir á bring- unni og með sameiginlega blóð- rás. Bandarískur kaupahéðinn keypti þá unga til að græða á þeim, en þeir reyndust hafa kaupsýsluvitið í lagi, græddist fé og náðu að verða sjálfstæðir og efnaðir einstaklingar. Þeir Sigurður Sigurjónsson og Þröstur Leó Gunnarsson leika Sjang og Eng, en Sigrún Edda Björnsdóttir og Guðrún Gísla- dóttir konur þeirra. Leikstjóri verður Lárus Ymir Óskarsson. Og eftir áramót... Veislan mikla heldur áfram eftir áramót, þá ætla bæði Þjóð- leikhúsið og Leikfélag Reykja- víkur að bæta fyrir vanrækslu sína á yngstu kynslóðinni síðastliðinn vetur. Þjóðleikhúsið sýnir Óvita Guðrúnar Helgadóttur og Leikfélagið nýtt barnaleikrit eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur. Brestir, nýtt leikrit eftir Valg- eir Skagfjörð verður frumsýnt á litla sviði Þjóðleikhússins ein- hverntíma uppúr áramótum, Leikfélag Akureyrar frumsýnir Hver er hræddur við Virginíu Woolf eftir Edward Albee, um miðjan febrúar, en lokaverkefni leikársins á Akureyri verður að öllum líkindum Blúndur og blás- ýra. íslenski dansflokkurinn verður á fjölum Þjóðleikhússins með nýjan ballett eftir Hlíf Svavars- dóttur í byrjun febrúar, en í byrj- un mars kemur á fjalirnar nýtt leikverk eftir Þórunni Sigurðar- dóttur. Heitir það Haustbrúður, og er byggt á sögulegum heimild- um. Lokaverkefni leikársins í Iðnó verða Þrjár systur eftir Anton Tjekhov, en Þjóðleikhúsið lýkur leikárinu með Ofviðrinu eftir Shakespeare. Egg og Pé og Ás... Af Egg-leikhúsinu er það að frétta að þar er ekkert afráðið með sýningu í bili, enda er Viðar Eggertsson upptekinn við vinnu í öðrum leikhúsum. Þó stendur til að setja upp einhverja sýningu, einhvers staðar, einhverntíma í vetur, því Egg-leikhúsið var eitt þriggja leikhúsa sem fengu styrk frá Leiklistarráði. Eins og fram kom hér í byrjun fékk Frú Emilía einnig styrk, en þriðja leikhúsið var Revíuleik- húsið sem notaði hann til að greiða skuldir eftir síðustu sýn- ingu. P-leikhópur Andrésar Sigur- vinssonar er gjörsamlega áætl- analaus enn sem komið er, þótt Andrés neiti því ekki að ýmsar spegúlasjónir séu í gangi. Andrés ætlar kannski að setja upp Nas- hyrningana eftir Yonesco, ein- hvers staðar í vetur en veit ekki ennþá hvar eða með hverjum, ef úr verður. Gránufjelagið er enn ekki komið svo langt að vera farið að skipuleggja nokkurn hlut. Leiksmiðjan ísland mun að öllum líkindum halda áfram starfsemi sinni með námskeiðum fir veturinn og kannski sýningu. Ás-leikhúsið náðist því miður ekki, enda situr fólk víst ekki heima hjá sér og bíður eftir að hringt verði í það af blöðunum. LG HUGVEKJA E.M.J. Um hrakfallabálka í málvísindum tíðkast það gjarnan að setja öll föll í nafnorð- abeygingum önnur en nefnifall undir sama hatt og kalla þau einu nafni „aukaföll“, og ef þau hafa sömu endingu eins og er í eintölu- beygingu veikra nafnorða í voru máli, er það fall þá oft kallað „andlagsfall“ til hægðarauka. Þessi nöfn eru, eins og svo mörg málfræðiheiti íslenskunnar, snið- in eftir latnesku fræðiorði, sem er notað lítt breytt á ýmsum er- lendum nútímamálum, en á tungu hinna fornu Rómverja var hin rétta hljóðan þessa fræðiorðs „casus obliquus". Varla er þó hægt að segja að þýðingin sé nákvæm, því ef menn vildu beita fræðilegum vinnu- brögðum, eins og málfræðingum er að sjálfsögðu skylt, ætti hið svokallaða „andlagsfall" og þá jafnframt „aukafall" hvert og eitt að heita réttu lagi „skakkafall". Ónákvæmni á þessu sviði getur verið bagaleg, því að hinir fornu fræðimenn vissu lengra en nef þeirra náði, og eins og Plató sýndi fram á í riti sínu „Cratýlos“ segja orðin sitt hvað um innsta eðli hlutanna, sem annars er hulið. Á þetta verður drepið síðar. En hvað sem öðru líður liggur það í augum uppi að gagnlegt er að hafa sérheiti yfir þetta fyrir- bæri: í málinu er nefnilega til dá- góður slatti af orðum sem eru aldrei notuð nema í þessu „skakkafalli" og eru því rétt- nefnd „skakkafalls-orð“. Ef menn staldra við til að hugsa um málið, koma „unnvörpum“ í hug- ann þau orð af þessu tagi sem eru á „boðstólum“ í tungu Egils og Snorra og því hægt að hafa á „takteinum", svo þrjú slík orð séu nefnd í sömu setningu. Oft verður naumast hjá því komist að nota þau: ef menn vilja ekki ganga til „náða“ verða þeir samt að hypja sig í „háttinn“. Eins og þetta síðasta dæmi sýnir mega menn ekki láta bókstaf orðanna blekkja sig. Ef menn eiga eitthvað í „vændum“ er það vit- anlega ekki þágufall fleirtölu af því góða og gilda orði „vændi“, sem beygist í öllum föllum, held- ur er hér um „skakkafalls-orð“ að ræða, og þegar kona er komin á „steypirinn“ er það mikið „skakkafall", þótt orðmyndin sé í þessu tilviki óbeygjanleg. Því má skjóta inn, að eins og oft ber við er þetta fyrirbæri breytiiegt eftir stöðum: þegar íslendingar tala t.d. saman í Svíþjóð er „taska“ gjarnan mikið „skakkafalls-orð“: í staðinn fyrir nefnifall þess nota menn einmitt orðið „nefnifall“. Á þessum fyrirbærum kunna málvísindamenn margvísleg skil, og má vera að skýringar þeirra geti orðið mönnum að leiðarljósi á fleiri sviðum. Þannig vill nefni- lega til að mennirnir eru að ýmsu leyti keimlíkir orðum: þeir skipt- ast í marga flokka, beygjast mis- jafnlega og sumir alls ekki. Er ekki erfitt að sjá hvaða menn eru hliðstæðir þessum „skakkafalls- orðum“: það eru sem sé þeir sem alþýða manna kallar venjulega „hrakfallabálka“, og er í raun og veru ekkert annað orð til, og eng- in önnur skilgreining en sú sem alþýðan viðhefur, þar sem vísind- in hafa af einhverjum undar- legum ástæðum alveg látið hjá líðast að fjalla um þetta merki- lega og útbreidda fyrirbæri. Ef menn vilja lýsa því er ekki um annað að ræða en leita á náðir alþýðuspekinnar, og hún er jafn ótvíræð og hún er forn. Það að vera hrakfallabálkur er nánast því dulrænn hæfileiki: ef slíkur maður er um borð í skipi, fiskar það ekki, þótt rokveiði sé á öllum skipum í grenndinni, einhver dul- arfull bilun, sem alls ekki átti að geta orðið, kemur upp í vélinni, eða þá í seglabúnaðinum eða ein- hverju öðru, fárviðri skekja skipið af leið, og þar fram eftir götunum. Þegar þetta gerðist vissu fornaldarmenn það mæta- vel, að ekki var nema eitt ráð til bjargar: um leið og búið væri að skutla hrakfallabálkinum útbyrð- is og hann væri trygglega kominn niður í gapandi ginið á kjaftvíð- asta hvalfiskinum myndi sem sé allt falla aftur í ljúfa löð. Nútímaþjóðfélag er flóknara en skip fornaldarinnar voru, og því hefur hrakfallabálkurinn nú meira svigrúm, ef svo má segja. Ef hann ræður sig í vinnu hjá fyr- irtæki í einhverri þeirri grein at- vinnulífsins sem stendur í hvað mestum blóma, er það einmitt þetta fyrirtæki sem fer á hausinn. Ef hann kemur nálægt tölvu, er eins líklegt að mikilvægur gagna- banki þurrkist út á dularfullan hátt, og ef hann stígur inn í lyftu er mikil hætta á að hún bili milli hæða. Mikilvæg bréf sem honum eru send týnast í pósti og jafn- framt þau bréf sem hann sendir sjálfur. í opinber plögg sem hon- um eru ætluð slæðast undarlegar villur, sem mikið stapp kostar að leiðrétta, - jafnvel launaseðla hans þarf að skrifa tvisvar. Alls staðar eru einhver óhöpp á sveimi, en þeim má þó alls ekki rugla saman við þau óhöpp sem gjarnan henda drykkjumenn: þau eru einfaldlega bundin við veldi Bacchí konungs og ef við- komandi segir sig úr hans þjón- ustu er þeim lokið. Hrakfalla- bálkurinn er hins vegar hrakfalla- bálkur af guðs náð, og enginn mannlegur máttur virðist geta bundið enda á þau dularfullu óhöpp sem hann verður fyrir. Verstur er þó hrakfallabálkur- inn sem haslar sér völl í ríki andans. Þegar eitthvert ódauð- legt ljóð er að verða til í huga hans, þarf hann ekki annað en fletta upp í nýútkomnu ljóða- kveri einhvers kunningjans: þar stendur sama ljóðið skýrum stöf- um. Ef hann er farinn að leggja drög að skáldsögu, þarf einhver annar endilega að hafa fengið sömu hugmyndina, að öðrum kosti fer gjarnan svo að handritið týnist fullunnið í leigubíl. Ef hann ætlar að þýða eitthvert ódauðlegt meistaraverk heimsbókmennt- anna, er einhver annar alveg ný- búinn að þýða sama verk og senda handritið til útgefanda. Stundum er þá um að ræða sígild verk, sem engum hefur dottið í hug að snara yfir á tungu Mör- landans í margar aldir: er þá eins og það nægi að hrakfallabálkur- inn fái hugmynd til að einhver röskari og fljótvirkari fái hana líka fyrir einhvem dularfullan hugsanaflutning. Slík fyrirbæri gæti hrakfallabálkurinn svo sem farið að rannsaka, ef hann er vís- indalega sinnaður, því að rannsóknarefnið skortir hann ekki. En honum dettur það ekki í hug. Handrit doktorsritgerða hans týnast gjarnan líka í leigubíl- um, í ferðatöskum á langferða- lögum eða í pósti, ef þau brenna ekki þegar óeirðaseggir kveikja í háskólanum. Ef þau komast í hendur útgefanda, fer hann gjarnan snarlega á hausinn, og því eru útgefendur mjög á varð- bergi gagnvart hrakfallabálkum. Nú leiðir reynslan í ljós að hrakfallabálkar geta komist ótrú- lega Iangt þrátt fyrir alit: þeir geta jafnvel orðið forsetar Bandaríkj- anna. En þó er líf þeirra oft á tíðum næsta erfitt, og er ekki nema von að menn spyrji hvað hægt sé fyrir þá að gera á þessum tímum, þegar reynt er að sjá fyrir þörfum allra minnihlutahópa. Hér benda málvísindin á stað- góða og heimspekilega huggun þeim til handa. Skyldleiki manna og orða nær nefnilega yfir marg- vísleg svið: eins og orðin raðast mannfólkið saman í flóknar og hlykkjóttar setningar, alls kyns máltæki, spakmæli, mótsetning- ar, hálfkæring og tvíræðar orð- ræður. Til þess að þetta megi allt ganga upp, er nauðsynlegt að hafa menn eins og orð af öllum flokkum beyginga og þá einnig þá hrakfallabálka sem í mannheimi samsvara „skakkafalls-orðum“ málsins: sýna þau dæmi sem nefnd voru hér að ofan að þeirra er brýn þörf á ýmsum mikilvæg- um sviðum, því sérhvert nefnifall þarf á sínu skakkafalli að halda. En ef mönnum finnst þessi huggun ekki nægileg, þá er ekki nema um eitt að ræða. Hrakfalla- bálkamir þurfa sem fyrst að bindast einhverjum sérsam- tökum - það gætu verið samtök hinna „nefnifallsheftu“ - og krefjast þess að hið opinbera leysi brýnustu sérþarfir þeirra. Stórt verkefni er framundan fyrir sérfræðinga til að rannsaka hverj- ar þær eru og hvernig unnt sé að leysa þær. En er það nokkur fjar- stæða að ímynda sér að í framtíð- inni verði fjölbýlishús byggð með sérhönnuðum hrakfallabálkalyft- um, og sérstökum vinnustofum verði komið á fót þar sem hæfi- leikar þeirra fái að njóta sín? Það gefur auga leið að þeir myndu vera sérlega hentugir til að reyna alls kyns öryggisútbúnað og ann- an tækjaútbúnað: ef hann bilar ekki í nærveru þeirra, telst hann sem sé fyllilega öruggur. í efna- hagslífinu gætu hrakfallabálkar ekki síður verið gagnlegir sem sérfræðingar og ráðunautar: ef einhver þeirra ráðlegði t.d. bændum að leysa vandamál land- búnaðarins með því að taka upp froskarækt og framleiða hrað- fryst froskalæri, gætu menn vitað að þetta væri sú leið sem ekki ætti að fara, því innan skamms mætti nefnilega búast við verðhruni á froskalæramarkaðinum. Af slík- um sérfræðingum eigum vér ís- lendingar reyndar nóg, en hingað til höfum vér bara ekki kunnað að færa okkur hæfileika þeirra í nyt á réttan hátt. Svo þyrfti að athuga hvernig veita mætti hrak- fallabálkunum réttlátar bætur fyrir öll hugverkin snilldarlegu, sem aðrir voru óvart fyrri til að vinna. e.m.j. NÝTT HELGARBLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.