Þjóðviljinn - 15.12.1989, Síða 3
Hlutabréf í
Olíufélaginu hf.
- Fjárfesting -
Olíufélagið hf. er eitt sterkasta fyrirtæki landsins. í
árslok var eigið fé þess 2.169 millj. kr. og hlutfall
eiginfjár af heildarfjármagni um 58%. Hagnaður
1988 var 200 millj. kr. fyrir skatta, en 100 millj. kr.
að frádregnum sköttum. Undanfarin ár hefur
Olíufélagið greitt út 10% arð til hluthafa auk þess
sem jöfnunarhlutabréf hafa verið gefin út í samræmi
við verðbólgu.
- Skattalækkun -
Fjárfesting í hlutabréfum Olíufélagsins hf. leiðir til
skattalækkunar. Heimilt er að draga kaupverð
hlutabréfanna frá skattskyldum tekjum að ákveðnu
hámarki. í frumvarpi til breytinga á lögum um tekju-
og eignaskatt er lagt tíl að vegna ársins 1989 verði
frádráttur þessi kr. 100 þús. kr. fyrir einstaklinga en
kr. 200 þús. kr. fyrir hjón.
Leitið nánari upplýsinga í afgreiðslu okkar að
Suðurlandsbraut 18.
_ fjármál eru okkarfag!
^ MiiRÉFmasKipri
SRMVIMBANKANS
V_________________________J
FJOLBRAimSXÚLDOI
BREIÐHOIJI
Skólaslit verða í Fella- og Hólakirkju,
Hólabergi 88, þriðjudaginn 19. desember
n.k. kl. 16.00.
Allir nemendur dagskóla og kvöldskóla, er lokið
hafa prófum á þriggja og fjögurra ára brautum,
eiga að koma þá og taka á móti prófskírteinum.
Um er að ræða nemendur er lokið hafa: Stúd-
entsprófi, sveinsprófi, sérhæfðu verslunarprófi
svo og áföngum matartækna, sjúkraliða og
snyrtifræðinga.
Nemendur, er lokið hafa eins og tveggja ára
brautum, fá skírteini sín afhent í skrifstofu skól-
ans 19. og 20. desember.
Foreldrar, aðrir ættingjar svo og velunnarar
skólans eru velkomnir á skólaslitin.
Skólameistari
:2ÉÍ!P
M
TVM STORMERKAR
MI\M\(i\BlklR
SANDGREIFARNIR eftir Björn Th. Björnsson. Heillandi og
skemmtileg bók um uppvaxtarár höfundar í Vestmannaeyjum. Lesendur þekkja
bragðmikinn stíl Björns Th. Björnssonar af verkum hans um listfræðileg efni og
sögulegar skáldsögur. í þessari bók nýtur orðsnilld Björns sín frá nýrri og óvæntri
hlið, aðdáendum hans til ósvikinnar ánægju.
LANDHELGISMÁLIÐ - það sem geröist bak við tjöldin.
Lúðvík Jósepsson var manna lengst í eldlínu landhelgisbaráttunnar. í þessari bók
rekur hann sögu landhelgismálsins í 40 ár og segir frá þeim átökum sem þar urðu
á bak við tjöldin heimafyrir og erlendis. Stórfróðleg bók um lífshagsmunamál
þjóðarinnar skrifuð af einum baráttuglaðasta stjórnmálamanni hennar.
Mál IMI og menning
* " I ÞJÓÐBRAUT HEIMSBÓKMENNTA
Síðumúla 7-9. Sími 688577. Laugavegi 18. Simi 15199-24240.
5INGAPXÓNUSTAN/SÍA