Þjóðviljinn - 15.12.1989, Page 14
Auglýsið í
Nýju Helgarblaði
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Hin árlega bókmenntakynning félagsins verður haldin sunnu-
daginn 17. desember klukkan 15 í húsakynnum karlakórsins að
Vesturbraut. Eftirtaldir höfundar munu kynna og lesa upp úr verk-
um sínum: Svava Jakobsdóttir, Hrafn Jökulsson, Vigdís
Grfmsdóttir og Lúðvík Jósepsson.
Þá mun Steinar Guðmundsson leika á píanó og að venju verður
boðið uppá jólaglögg og piparkökur. Allir velkomnir.
Stjórnin
Látum börnin ekki gjalda þess
hvar þau fæðast í þennan heim.
Þau eiga öjl sama rétt til lífsins.
Neyðin er víða mikil en ábyrgðin
okkar allra. Þitt framlag vegur
þungt í markvissu hjálparstarfi.
Svona kemst þitt framlag til skila:
Við höfum sent söfnunarbauk og gíróseðil inn á
flest heimili landsins. Auk þess fylgir bæklingur með
þar sem við kynnum fólki nýjan möguleika á því að
I gerast styrktarmeðlimir Hjálparstofnunarinnar.
| Þá peninga sem fjölskyldan hefur í sameiningu
> safnað í baukinn má senda með gíróseðlinum í
næsta banka, sparisjóð eða póstafgreiðslu.
Einnig má skila söfnunarbaukum og fjárframlögum
til sóknarpresta og á skrifstofu Hjálparstofnunar
kirkjunnar,
Suðurgötu 22
í Reykjavík.
I “UHCtHUOUM .
■ « ""<«5 W»o,
BRAUö
HfiHDfi
sa»»“»
HJALPARSTOFNUN KIRKJUNNAR
Hand*
bók
fyrir
veiði-
þjófa
Þórður Halldórsson á Dag-
verðará talar. Hann á alls staðar
heima, hvort sem er á Snæfells-
nesi, undir Jökli, á Akureyri, þar
sem hann hefur vetursetu, eða í
tjaldi fyrir utan Glæsibæi, þar
sem hann gefur fólki hákarlsbita
og í nefið og kynnir nýjustu bók-
ina: Setið á Svalþúfu, handbók
fyrir veiðiþjófa, sem Haraldur Ingi
Haraldsson hefur fært í letur og
ísafold dreifir.
- Ég er mesti heilsufræðingur
norðan Alpafjalla, svo það má
Rudda
ívar Pálsson og Gísli
áHofimarka nýja
stefnu í útgáfu lax-
veiðibóka
- Hvers vegna heitir útgáfufé-
lag ykkar Ruddi?
- Ruddi er stórmerkur, stakur
og svartur steinn, sumir segja
loftsteinn, við bæinn Sauðanes í
A-Hún, en þaðan er höfundur
meginefnis bókarinnar, Páll S.
Pálsson lögmaður, sem vann að
handritinu þegar hann lést, segir
Gísli Pálsson, bóndi á Hofi í
Vatnsdal, A-Hún. Hins vegar er
það þókaútgáfan Hildur sem
dreifir bókinni.
- Hvernig tnunduð þið lýsa
verkinu í fáum dráttum?
- Þetta er ítarlegasta rit sem
hefur komið út um nokkra lax-
veiðiá hérlendis og hefur líka
mikið gildi fyrir þá sem aldrei
renna fyrir fisk, vegna breiddar-
innar í viðfangsefnum, segir ívar
Pálsson, viðskiptafræðingur, sem
hefur annast útgáfu bókarinnar
ásamt Gísla. Þetta er héraðslýs-
ing, saga, vísindi, tölfræði, svo
nokkuð sé nefnt. Þarna eru líka
45 litmyndir, þar af tvær opnu-
myndir úr lofti, auk korta og eldri
svart-hvítra mynda.
- Hvað er helst að nefna afefn-
inu?
- Fjölbreytnin. Þarna skrifar
t.d. Jón Torfason sagnfræðingur
um umhverfi og sögu, allt frá
dögum Mána hins kristna, en Jón
er þarna úr héraðinu, frá Torfa-
læk. Tumi Tómasson fiskifræð-
ingur, deildarstjóri Veiðimála-
stofnunar á Norðurlandi vestra,
sem rannsakað hefur sérstaklega
lífríki Laxár og Laxárvatns, skrif-
ar um fisistofna Laxár á Ásum og
vistkerfið.
Kaflarnir um veiðistaðina og
veiðiaðferðir eru eftir Pál S. Páls-
son, en hann veiddi í ánni frá ung-
lingsárum og til dauðadags, svo
fáir menn hafa verið Laxá á
Ásum kunnugri en hann. Svo eru
8 ágætir veiðimenn með frásagnir
af velgengni sinni, en Laxá á
Ásum hefur nú oft verið nefnd
„besta laxveiðiá í heimi“, vegna
þess að óvíða hafa fengist fleiri
laxar á hverja stöng en þar. Hún
14 SIÐA - NÝTT HELGARBLAÐ