Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Blaðsíða 2
2 *
fréttir
r* *
LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995
Verkalýðsfélagið Baldur á ísafirði boðar til fundar:
Stjórnin leggur til að
segja upp kjarasamningum
- neyðarréttur, segir Karítas Pálsdóttir, formaður fiskvinnsludeildar VMSÍ
„Stjórn Verkalýösfélagsins Bald-
urs mun leggja fram tillögu á fundin-
um á morgun (í dag) að segja kjara-
samningi félagsins viö atvinnurek-
endur upp. Verkamannasamband ís-
lands hefur skorað á aöildarfélög sín
aö segja kjarasamningum upp og
þegar menn hafa sagt A þá segja þeir
líka B. Það er ekki nóg að skora bara
á félögin að segja upp samningunum.
Það verður að standa við stóru orðin
og það ætlum við að leggja til að gert
verði á fundinum í dag,“ sagði Karít-
as Pálsdóttir, starfsmaður Verka-
lýðsfélagsins Baldurs á ísafirði og
formaöur fiskvinnsludeildar Verka-
mannasambandsins.
Hún sagði að ef tillagan yrði sam-
þykkt á fundinum í dag yrði samn-
ingunum sagt upp þegar í stað. Hún
sagöi að verkafólk á Isafirði krefðist
þess, eins og aðrir, að kjaradómur
legði fram þau gögn sem hann studd-
ist við þegar laun æðstu embættis-
manna, ráðherra og þingmanna voru
hækkuð á dögunum. Hún sagði að
verkalýðshreyfingin yrði að fá þessi
gögn til að styðjast við í þeim samn-
ingum og aðgerðum sem fylgja muni
í kjölfar uppsagna kjarasamninga.
„Við verðum líka að hafa þessi
gögn til að styðjast við þegar við beit-
um okkar neyðarrétti, því það erum
við að gera varðandi uppsögn samn-
inga,“ sagði Karítals Pálsdóttir.
Stuttarfréttir
Uppsögn kjarasamninga:
KunrmedalforeMra
Kurr er meðal foreldra leik-
skólabarna í Kópavogi þar sem
ætlunin er að hækka leikskóla-
gjöld. Bylgjan skýrði frá þessu.
Nýgönguleíðkynnt
Borgaryfirvöld í Reykjavík
kynntu í gær gönguleið frá Þing-
völlum að Reykjanesvita. Verk-
efnið er samstarfsverkefni 14
sveitarfélaga á höfuöborgar- og
Suðumesjasvæði.
Bætur til slasaðra eða sjúkra
sem eru á endurhæfingarlífeyri
lækka um 15 til 20 þúsund á mán-
uðí frá 1. október, Eftir standa_37
þúsund krónur á mánuði. RÚV
greindi frá.
Samið um tölvubúnað
Ríkiskaup gengu í gær frá
rammasamningi við tölvufyrir-
tækin Tæknival, Einar J. Skúla-
son, Nýherja og Heimilistæki um
kaup á ýmsum tölvubúnaði. Þess-
ir samningar voru gerðir að und-
angengnu útboöi Ríkiskaupa.
Hverfafundv í borginni
Næstu 5 mánudaga mun Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri halda hverfafundi meö íbú-
um Reykjavíkur. Fyrsti fundur-
inn af þessu tagi var haldínn á
mánudaginn var með íbúum Ár-
bæjar-, Artúns- og Seláshverfis.
Rakalausmismunun
Framkvæmdastjórn VSÍ hefur
krafist þess að stjómvöld tryggi
sjálfstætt starfandi einstakling-
um sama rétt til frádráttar á iö-
gjöldum til lífeyríssjóða og gildir
í öðrum atvinnurekstri. VSÍ segir
gildandi reglur fela í sér raka-
lausa og grófa mismunun.
Þörfánýjumskóla
Norræna húsið efitir til opins
málfundar um skólamál á morg-
un, klukkan 16. Óskað er eftír
þátttöku einstaklinga, félagasam-
taka og hópa sem telja þörf á
„nýjum skóla“ í skólakerfið.
-kaa
NIÐURSTAÐA
Llt bara á það sem viljayf irlýsingu
- segir Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ
„Það er í sjálfu sér ekkert um þaö
að segja fari einhver verkalýðsfélög
að segja upp kjarasamningum vegna
þess að máhð or ekki á forræöi ein-
stakra verkalýðsfélaga. Það er mikill
misskilningur ef einhveijir halda að
verkalýðsfélögin hvert fyrir sig geti
sagt upp kjarasamningum. Máhð er
á forræði launanefndar og hennar
einnar. Þaö er hún sem metur hvort
samningsforsendur séu brostnar.
Þess vegna Ut ég bara á það sem
vfijayfirlýsingu verkalýðsfélaganna
fari þau að segja kjarasamningum
upp,“ sagði Þórarinn V. Þóasrinsson,
framkvæmdastjóri VSÍ, í samtaU við
DV.
Það var í ljósi þess að Verkalýðsfé-
lagið Baldur á Isafirði ætlar að leggja
tiUögu fyrir félagsfund í dag um að
segja upp samningum að Þórarinn
var spurður aö þessu.
Hann sagði að verðlagsþróun, sem
eru mælikvarði þess hvort forsendur
kjarasamningsins hafa' brostið eða
ekki, væri með þeim hætti að for-
sendur kjarasamninga væru ekki
brostnar og því ekki hægt að segja
þeim upp.
„Verkalýðsfélögin geta ályktað en
það hefur enga efnislega þýðingu.
Ég Ut á þennan óróa-innan verka-
lýðshreyfingarinnar sem póUtísk
mótmæli gegn ýnjsu því sem ríkis-
stjómin hefur verið að gera,“ sagöi
Þórarinn V. Þórarinsson.
Verslunarskólanemendurnir sem heimsóttu Kristinu Olsen til að lýsa stuðningi við hana í baráttunni um að halda tíkinni Queeny. Frá vinstri: Sanja
Björk, Kristin, Eva Björk, Bryndís, James, Kristín Olsen, Helena og Hildur Björg. DV-mynd Sveinn
Öryrkja í Efstaleiti gert að losa sig við hund:
Fólk er reitt og
bókstaf lega of-
býður þetta mál
- segir James Devine verslunarskólanemi
„Við höfum mikla samúð með Krist-
ínu í hennar máU. Okkur finnst mjög
904-1600
óréttlátt ef hún missir tíkina og við
viljum veita henni 6tuðning okkar,“
segir James J. Devine verslunar-
skólanemi sem ásamt félögum sínum
hefur ákveðið að efna til undir-
skriftasöfnunar til stuðnings Krist-
ínu Olsen sem nú á yfir höfði sér að
verða svipt hundi sínum Queeny.
Eins og DV skýrði frá þá hefur
formaður húsfélagsins að Efstaleiti 1
ritaö Kristínu, sem er 100 prósent
öryrki, bréf þar sem hann krefst þess
að hundurinn verði látinn víkja. í
bréfinu fékk hún frest til föstudags
til að svara húsfélaginu.
James segir að flestir sem hann
hitti séu reiðir vegna málsins.
„Fólk er mjög reitt og undrandi
vegna þessa máls. Fólki bókstaflega
ofbýður þetta mál,“ segir James.
„Það er draumur margra að geta
selt daga og ég hef veikan grun um
að þegar séu. einhverjir farnir að
huga aö sölu sóknardaga," sagði
Snorri Snorrason, útgerðarmaður
á Dalvík, eftir fund hagsmunaaðila
um Flæmska hattinn.
Snorri sagðist, þrátt fyrir skiptar
skoðanir, vera bjartsýnn á að sam-
staða næöist um að þrýsta á stjórn-
völd að mótmæla samþykkt NAFO
um sóknarstýringu.
Pálmi Stefánsson, útgerðarstjóri
á ísafirði, segir að úr því sem kom-
ið er vilji hann að sóknarstýringu
verði haldið til streitu.
„Efriö mótmælum samþykktinni
núna þá verður sest að samninga-
borði á nýjan leik. Þá koma aftur
til umræðu kröfur LÍÖ um að tekið
verði upp aflamark á svæöinu. Ef
aftur á móti verður mótmælt og
sókn veröur óheft þá mun þaö leiða
til mjög aukinnar sóknar annarra
þjóða, bæði innan og utan NAFO.
Kvóti í hlut íslendinga að nokkrum
árum liðnum mun veröa minni en
efni standa til nú,“ segir Pálmi.
„Það er jafhámælisvert eftir sem
áður hvernig staðiö var að gerð
þessarar samþykktar af hendi okk-
ar rijómvalda," segir Pálmi'. ; :
Niðurstaða fundar hagsmunaðil-
anna var sú að 8 vildu mótmæla
en 7 vildu láta samþykktina standa
en 4 sátu hjá. Stjóm LÍÚ kemur
saman á morgun og þá er búist við
að hún taki málið fyrir. -rt