Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Side 18
18
LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995 JjV
„Dóttir mín vakti mig, tveggja
vikna gömul. Mér sýnist ekki
þurfa vekjaraklukku á heimilinu í
bráð,“ segir Ágúst Guðmundsson,
leikstjóri og höfundur Tvískinn-
ungsóperunnar sem frumsýnd var
í Borgarleikhúsinu um seinustu
helgi.
„Ég ók suður í Kópavog að
synda í uppáhaldssundlauginni
minni. Fólk var svolítið að horfa á
mig. Ástæðan er sú að ég birtist í
sófanum í Dagsljósi í gærkvöldi.
Fyrst eftir slíkar uppákomu tekur
fólk eftir manni. Svo gleymist mað-
ur fljótt aftur. Sem er líklega eins
gott.
Klukkan hálfellefu var ég kom-
inn á útvarpsstöðina Klassík FM,
þar sem Randver Þorláksson átti
hálftíma viðtal við mig á öldum
ljósvakans. Mér datt ekki í hug að
nokkur væri að hlusta svo að úr
þessu varð talsvert notalegt spjall.
Við ræddum m.a. um hversu náið
samstarfið verður i kringum
hverja leiksýningu eða bíómynd -
og svo er allt í einu allt búið og til-
finningatengslin rofna eins og þau
hafi aldrei verið til..
Úr útvarpsstöðinni lagði ég leið
mína í verslun að ganga frá kaup-
um á sparifótum. Mig vantaði eitt-
hvað til að hneigja mig í. Mér leið
eins og ég væri að stíga í búning
frá liðnu tímaskeiði. Fötin að öllu
leyti nákvæmlega eins og föt sem
ég átti fyrir þrjátíu árum. Annað
• I i
■
, /
I i *f ..
„Dagurinn endaði yfir dóttur minni sem hafði elst um ca. 5 prósent frá því um morguninn," segir Ágúst Guðmundsson um frumsýningardaginn í lífi
sínu. DV-mynd GS
Frumsýningardagur í lífi Ágústs Guðmundssonar leikstjóra:
Hneigði mig í nýju sparifötunum
hvort hef ég svona gamaldags
smekk eða þá að tískan er komin í
hring og lent aftur á sama reit og
þá.
Eftir hádegið fór ég með frum-
sýningarmiða til fjölskyldunnar.
Allir spurðu hvort ég væri kominn
með frumsýningarskjálftann. Svo
var ekki. Það var í rauninni ein-
kennilegt hversu sallarólegur ég
var yfir kvöldinu.
Þar til það rann upp. Einhvern
veginn var ég samt handviss um
að allt færi vel. Lokaæfmgin hafði
verið passlega brokkgeng til að
hleypa öllum hæfilegt kapp í kinn.
Ég var kominn í leikhúsið klukkan
sjö og gladdist við að sjá leikarana
í góðu formi.
Ég treysti mér ekki til að vera í
salnum. Mér fannst líka að það
hlyti að vera truflandi fyrir áhorf-
endur að hafa höfundinn sín á
meðal, að minnsta kosti fyrir þá
sem. sætu næst honum. Eg kom
mér fyrir í glerbúri aftan við sal-
inn, við hliðina á ljósastúkunni.
Augu mín voru talsvert á áhorf-
endum, ekki síður en á sviðinu.
Viðtökurnar virtust mjög góðar.
Stundum voru hláturrokurnar
meiri en ég átti von á, til dæmis
þegar Magnús söng ástarsönginn
að Felix viðstöddum. Allir voru
leikararnir nákvæmlega á því róli
sem ég vOdi hafa þá, persónumar
voru fullskapaðar.
Og svo kom klappið. Eftir venju-
legt framkall þurfti að hífa teppið
upp aftur og hneigja sig meira. Ég
var feginn að ég var í nýjum fötum
fyrir framan allt þetta fólk. Svona
er maður fáfengilegur. Vitaskuld
heföi enginn tekið til þess þótt ég
hefði verið í gömlu fötunum.
Á eftir var haldið gríðarfjörugt
samkvæmi. Við og við vitnuðu
menn í verkið og sungu: „Þetta er
æðislegt partí!“, einkum þó leik-
hússtjórinn sem var í algjöru
spariskapi. Almennt fannst pkkur
þetta vel lukkað hjá okkur. Ég fór
að velta því fyrir mér hvort slík
stemning ríkti yfirleitt í frumsýn-
ingarpartíum, líka eftir sýningar
sem fá slaka dóma síðar meir.
Dagurinn endaði yfir dóttur
minni sem hafði elst um ca. 5 pró-
sent frá því um morguninn. Mér
fannst eins og hún hiyti að vera
með því albesta sem ég hefði búið
til um dagana; hún hlyti þó að fá
góða dóma, hvernig sem á væri lit-
ið.“
Finnur þú fimm breytingar? 330
Vinningshafar fyrir þijú hundruð tuttugustu og
áttundu getraun reyndust vera:
Nafn:
Heimili:
1. Kolbrún Gunnarsdóttir 2. Kaj Eirik Nielsen
Holtsgötu 33 Melgerði 11
260 Njarðvik ' 200 Kópavogi
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum liðnum
birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
TENSAI ferðaútvarp með kassettu, að
verðmæti kr. 4.990, frá Sjónvarpsmið-
stöðinni, Síðumúla 2, Reykjavík.
2. verðlaun:
Úrvalsbækur. Bækurnar sem eru í
verðlaun heita Líkþrái maðurinn og
Athvarf öreigans, úr bókaflokknum
Bróðir Cadfael, að verðmæti kr. 1.790.
Bækumar eru gefnar út af Frjálsri
fjölmiölun.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkið umslagið rneð lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 329
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík