Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Síða 19
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1995
19
Stefán Björnsson verkfræðingur, sem starfað hefur við forritaþróun í Banda-
ríkjunum og Svíþjóð undanfarin 20 ár, var meðal þess fjölda gesta sem
skoðuðu bás Pósts og síma á tæknisýningunni Telecom 95 í Genf. Sýning-
unni iauk sl. miðvikudag. DV-mynd bjb
íslenskur verkfræðingur frá Ericsson á Telecom 95 í Genf:
Yrði gaman að
prófa,að vinna
áíslandi
- segir Stefán Björnsson sem hefur starfað ytra í rúm 20 ár
Þegar blaðamaður DV var stadd-
ur á stærstu tæknisýningu heims á
dögunum, Telecom 95 í Genf í Sviss,
rakst hann fyrir einskæra tilviljun
á Stefán Björnsson, verkfræðing og
forritara hjá sænska símarisanum
Ericsson. Stefán var þá að kynna
sér bás Pósts og síma á sýningunni
og gaf sig á tal við blaðamann þegar
hann sá að hann var í vandræðum
með ljósmyndavél sína. Svo vel vildi
til að Stefán var með sömu vélarteg-
und og gat leyst vanda blaðamanns.
Það minnsta sem blaðamaður gat
gert í þakkarskyni var að taka
mynd af Stefáni og eiga við hann
stutt spjall! Hann tók vel í það.
Fyrirtæki Stefáns var að sjálf-
sögðu með stóran bás á Telecom 95
og var hann í skoðunarferð um bása
nágranna sinna þegár hann rakst á
útsendara DV en Norðurlöndin voru
með sameiginlegt sýningarsvæði.
20 íslendingar
af 45 þúsund
starfsmönnum Ericsson
Stefán hefur verið búsettur í Sví-
þjóð í rúm 20 ár og starfað lengst af
við forritaþróun fyrir tölvur. Hann
hefur siðustu tvö ár verið hjá Eric-
son við forritaþróun á tölvuhugbún-
aði fyrir síma- og fjarskiptatæki Er-
icsson. Auk hans starfa hátt í 20 ís-
lendingar hjá fyrirtækinu, þó eng-
inn annar í þeirri deild sem hann
vinnur í. Þetta er ekki hátt hlutfall
af þeim um 45 þúsund starfsmönn-
um sem eru hjá þessu risafyrirtæki
á evrópskan mælikvarða.
Stefáni fannst það fróðlegt og
skemmtilegt að skoða bás Pósts og
síma á sýningunni. Hann sá strax
að símkerfið á íslandi og sú tækni
sem notuð er við dreifmgu þess
studdist mikið við tæki frá Erics-
son. Það fannst honum ekki skrítið!
Stefán fór utan skömmu eftir
stúdentspróf og kláraði verkfræði-
nám við háskólann í Stokkhólmi.
Eftir það starfaði hann stuttan tíma
í Bandaríkjunum en hefur verið í
Svíþjóð síðan þar sem hann býr með
fjölskyldu sinni.
„Það yrði nú gaman að prófa að
vinna á íslandi nokkur ár. Ég er
kominn á það skeið í lífmu,“ sagði
Stefán þegar hann var spurður
hvort hann ætti eftir að snúa heim.
Tækni á undan
sinni samtíð
Um sýninguna Telecom 95 sagði
Stefán að hún væri gríðarlega stór.
Einkennandi væri að flestir væru
að sýna tækni sem væri mörgum
skrefum á undan þeirri sem notuð
væri almennt í dag.
„Það er spurning hvað líða mörg
ár þar til fariö verður að nota þau
tæki sem sýnd eru hérna í Genf. Það
þarf mikla þjálfun til að koma þessu
í notkun og á markað," sagði Stefán.
-bjb
FROSTVARNIR A VATNSINNTOK
Því að taka óþarfa áhættu. Láttu leggja hitastreng á vatnsinntakið
Hitastrengur - frábær reynsla
Rafhitastrengimir frá Sigurplasti hafa verið notaðir á
íslandi í yfir 20 ár. Árangurinn er mjög góður. Hætta á
frostskemmdum er engin. Einungis þarf að tengja
strenginn við 220 V straum og strengurinn hitnar
sjálfkrafa þegar kólnar í veðri.
Komið í veg fyrir frostskemmdir
með hitastrengnum frá Sigurplasti
Rafhitastrengurinn kemur í tilbúnum settum og er hann
sjálfhitastillandi. Útsölustaðir eru: Glóey, Ármúla 19
og Rafvörur, Ármúla 5, Reykjavík, Rafport, Kópavogi,
Rafbúð Skúla, Hafnarfirði, Árvirkinn, Selfossi, Raflagna-
deild KEA, Akureyri.
O
Dæmi um frágang á leiðslu til að koma í veg fyrir frostskemmdir.
VÖLUTEIGUR 3, MOSFELLSBÆ. SÍMI 566-8300
Panasonic SD200 Myndbandstæki
...og ekki
spillir verðið
stgr.
Flest okkar viljum hafa myndbands-
tækið þannig úr garði gert að það sé
vandræðalaust í allri notkun og ekki
þurfl sérfræðiaðstoð þegar eitthvað
bjátar á.
Panasonic SD200 myndbandstækið er
einmitt þannig úr garði gert, frábær
myndgæði, [Super Drive, At Crystal
viewj allar aðgerðir koma fram á skjá,
innstilling stöðva sjálfvirk ásamt
langtíma upptöku- minni og þess háttar
búnaði sem okkur þykir sjálfsagður nú
til dags.
JAPISð
BRAUTARHOLT
O G KRINGLUNN
M
5 6 2 5 2 0 0
j I beinu sambandi
í allan sólarhringinn
l>
Aöeins 25 kr. mínútan. Sama verö fyrir alla landsmenn.
Svarþjónusta DV leiðir þig áfram
Þú hringir í sima 99-56-70 og velur eftirfarandi:
& ; til þess að svara auglýsingu
2 til þess að hlusta á svar auglýsandans
8® (ath.l á eingóngu viö um atvinnuauglýsingar)
ef þú ert auglýsandi og vilt ná í svör
- eða tala inn á skilaboðahólfið þltt
*i sýnishorn af svarl
.. .. > til þess að fara til baka, áfram
Œ3 eða hætta aðgerð