Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Side 20
20
LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995 UV
SAS velur íslenska ferðaskrifstofu til markaðssetningar menningarborgar:
Efa ekki að við eigum
eftir að standa okkur
- segir Jónas Þorsteinsson, framkvæmdastjóri In travel Scandinavia
Reiknað er með gífurlegum ferða-
mannastraumi til Kaupmannahafn-
ar á næsta ári í tilefni þess að borg-
in mun bera titilinn menningarborg
Evrópu enda hefur mikið verið lagt
undir til að gera þennan viðburð
sem veglegastan. Reiknað er með
gífurlegum ferðamannastraumi til
borgarinnar af þessu tilefni. Fyrir
stuttu ákvað stærsti styrktaraðili
þessa atburðar, SAS-flugfélagið, að
fá ferðaskrifstofuna In Travel
Scandinavia, sem er í eigu íslend-
inga, til að sjá um að selja þennan
atburð um heim allan.
Leitað að söluaðila
„Þeir hjá SAS voru að leita aðila
sem gætu tekið að sér að selja þenn-
an atburð úti í hinum stóra heimi,”
segir Jónas Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri In Travel Scandina-
via.
„Allt frá því In Travel Scandinav-
ia var stofnuð árið 1992 höfum við
sérhæft okkur i að selja menningu
og gengið 'bara nokkuð vel. Þetta
vissu þeir hjá framkvæmdanefnd
menningarborgarinnar og SAS og
ákváðu því að fá okkur til að sjá um
markaðssetningu á mörgum af þeim
menningarviðburðum sem haldnir
verða á næsta ári. Við eigum ein-
faldlega ' að selja Kaupmannahöfn
sem menningarborg Evrópu og sjá
til þess að fólk komi.”
„Það verður gaman að takast á
við þetta verkefni og ég ,efa ekki að
við eigum eftir að standa okkur.
Danir hafa lagt mikla vinnu í að
gera Kaupmannahöfn og nágrenni
aðlaðandi fyrir ferðamenn og bjóða
upp á mikilfenglega menningar-
veislu á næsta ári. Því ætti að vera
auðvelt að fá fólk til að koma.”
Útbúa matarveislu úr
Gestaboði Babettu
Við spurðum Jónas hvers vegna
hann hefði stofnað ferðaskrifstofu
sem sérhæfði sig í að selja menn-
ingu og listir.
„Það voru ekki margir í byrjun
sem trúðu á að hægt væri að selja
ferðamönnum menningu og hafa líf-
sviðurværi sitt af því en ég vissi frá
upphafi að þetta væri sniðug og
framkvæmanleg hugmynd,” segir
Jónas.
„Mikil vinna liggur að baki þess-
um árangri sem náðst hefur en
einnig óbilandi trú á að maður sé að
gera rétta hluti. Ég stæði ekki í
þessum hlutum ef ég hefði ekki trú
á þeim.”
Jónas heldur áfram. „Við erum að
selja eitthvað sem flestir héldu að
væri ekki hægt að seljá til ferða-
manna í Danmörku. Við bætum í
raun menningu inn í feröapakkann
hjá fólki. Pakkinn verður því inni-
haldsmeiri og áhugaverðari. Þetta
þýðir að við verðum stöðugt að
fylgjast með hvað er að gerast í
menningu og listum hér í Kaup-
mannahöfn.
Fara á leiksýningar og tónleika,
svo að dæmi séu tekin, og finna út
hvað það er sem fólk vill sjá. Búa
t.d. tO Karen Blixen ferð og sjá til
þess að það sé sýnd mynd um Karen
Blixen á hótelinu. Einnig að það sé
fyrirlesari á Karen Blixen safninu.
Útbúa jafnvel matarveislu eins og
gert var í bókinni „Gestaboð
Babettu”. Við reynum að gera okk-
ur ijóst hvað höfðaði til fólks og ger-
um svo okkar besta til að búa til
skemmtilegan og áhugaverðan
pakka, sniðinn að þörfum þeirra,”
segir Jónas.
Nýhöfn mun fá einhverja andlitslyftingu en þar verður einnig að finna fjölda menningarviðburða
„Það voru fáir sem trúðu á að hægt væri að selja menningu og
listir en annað hefur komið í Ijós,” segir Jónas.
iss konar hönnun. Dönsk ævintýri
eru heimsfræg. H. C. Andersen er
t.a.m. mjög þekktur í heiminum.
Karen Blixen og Kirkegaard þekkja
allir. Legoland er einnig hluti af
menningu sem við getum selt. Svo
erum við með gönguferðir á íslend-
ingaslóðir í Kaupmannahöfn en nú
hafa um þrjú þúsund manns gengið
þær slóðir á okkar vegum.”
In Travel Scandinavia er ekki
stórt fyrirtæki á danskan mæli-
kvarða en að sögn Jónasar hefur
það öðlast virðingu innan ferða-
mannageirans. „Eins og ég sagði
áðan voru fáir sem trúðu á aö hægt
væri að selja menningu og listir en
annað hefur komið í ljós. Síðan sú
staðreynd að þeir aðilar sem sjá um
menningarborgina og SAS-flugfélag-
ið, sem er einn stærsti styrktaraðil-
inn, velja okkur, af öllum þeim ara-
grúa ferðaskrifstofa sem td eru, til
að sjá um að markaðsetja þennan
stóra viðburð. Það segir okkur að
við erum að gera góða hluti og erum
vel undirbúin undir þetta verkefni,”
segir Jónas að lokum.
Guðbjartur Finnbjörnsson
Þúsund manns
að sjá Rolling
Stones
Hann segir fáa hafa
einbeitt sér að því að
selja ferðamönnum
menningu en markað-
urinn er til staðar og
það virðist sem menn-
ing sé að komast í
tísku. „Þetta hefur
gengið vonum framar
hjá okkur frá því fyrir-
tækið hóf rekstur árið
1992. Sem dæmi komu
nokkur hundruð
manns í sumar á veg-
um In Travel Scandin-
avia gagngert til að
fylgjast með jasshátíð-
inni sem haldin er í
Danmörku á hverju
ári. Svo fengum við um
þúsund manns á Roll-
ing Stones hljómleik-
ana í sumar. Danir eru
DV-mynd GVA einnig frægir fyrir ým-