Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Page 22
22 LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995 íþróttir Gheorghe Murasan, sá stærsti í deild stóru mannanna: Verður Georg litli óstöðvandi í vetur? Hann er risi í orðsins fyllstu merkingu. í deild stóru mannanna, bandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik, er hann sá stærsti og er þá mikið, mjög mikið sagt. Hann er 2,32 metrar á hæð, sextán sentímetrum hærri en sjálfur Shaquille O’Neal og einum sentí- metra hærri en sláninn frá Súdan, Manute Bol. Skórnir hans eru núm- er 19. Þegar hann rekur körfubolta á undan sér nemur boltinn við höfuð- hæð á venjulegum manni. Bílstjórar sem mæta honum á Bensinum sín- um reka upp stór augu því við fyrstu sýn virðist enginn sitja við stýrið. ökumaðurinn situr svo aft- arlega í bílnum! Þetta er Ghita sem á móðurmálinu, rúmensku, þýðir „Georg litli.“ Fullt nafn er Gheorghe Muresan og hann hefur leikið í tvö ár með Washington Bullets. Þrátt fyrir stærðina var ekki bið- röð á eftir þessum rúmenska strák þegar hann bættist í hóp nýliðanna sem liðin völdu sumarið 1993. Það voru 29 farnir þegar forráðamenn Washington ákváðu að láta slag standa og taka þann stóra. Þeir höfðu ekki verið sérlega áhugasam- ir en þegar Chicago sýndi áhuga á að skipta á manni til að ná í Mures- an, hirtu þeir hann sjálfir. Átti eina skó Launin fyrsta veturinn voru ekki há, miðað við það sem gengur og gerist í NBA. Tíu og hálf milljón króna. Það var hins vegar fundið fé fyrir fátækan strák sem átti eina skó þegar hann kom frá heimaland- inu til að reyna fyrir sér sem körfu- boltamaður í Frakklandi einu ári áður. Þótt Muresan spilaði ekki mikið þennan fyrsta vetur voru framfar- irnar miklar, svo miklar að í lok fyrsta tímabilsins samdi Was- hington við hann til fjögurra ára og sá samningur tryggði honum 378 milljónir króna i grunnlaun. Muresan hóf ferilinn í Vestur- Evrópu með frönsku meisturunum Pau Orthez og þar er piltur nánast í dýrðlingatölu í dag. í sumar, þegar allt lá niðri í NBA-deildinni vegna verkbanns eigenda á leikmann, kom Ghita aftur „heim“ og æfði með franska liðinu í einn mánuð. „Við vorum búnir aö geyma risa- stóra rúmið hans í tvö ár. Við báð- um og vonuðum að hann myndi eiri- hvern tíma koma aftur,“ segir Gér- ard Bouscarel, stjórnarmaður hjá franska liðinu, í samtali við banda- ríska iþróttatímaritið Sports Illustr- ated. Gekk eins og gamali maður „Þetta er orðin stórkostleg saga. Strákurinn er orðinn forríkur. Þið hefðuð átt að sjá hann þegar hann kom til okkar. Hann átti ekkert. Þá var hann í raun bara krakki og.var ekki sáttur við stærðina. Það fyrsta sem ég gerði var að kenna honum að ganga. Hann gekk eins og gamall maður, kengboginn. Ég kenndi hon- um að standa beinn og vera stoltur af stærðinni. Hann varð að geta gengiö áður en hann færi að hlaupa,” segir Michel Gomez, þjálf- ari Pau Orthez. „Ég man þegar við gengum einu sinni saman á götu í Stokkhólmi. Hann var nýkominn og átti ekkert, bókstaflega ekkert. Við gengum framhjá mörgum búðum með glæsi- legum fatnaði og öðrum varningi og ég spurði hann hvað hann myndi vilja ef allt þetta stæði honum tU boða. „Hanska," svaraði hann að bragði. Hanska? Auðvitað, honum var svo kalt á höndunum. Við fórum í margar búðir tU að reyna að finna nógu stóra hanska og náðum loks í eina sem ætlaðir voru til að setja utan yfir aðra hanska. Þeir voru reyndar ekki nógu stórir á hann en hann var hamingjusamasti maður í heimi. Hann var búinn að fá hanska," segir Kenny Grant, um- boðsmaður hans í Evrópu. Muresan átti erfiða æsku í einu af fátækustu löndum Evrópu. Hann fæddist og ólst upp í bænum Trit- enii, skammt frá háskólaborginni Cluj í Transylvaníufjöllum. Nicolae Ceaucescu var við völd, fátækt og leynd réðu ríkjum. Hálft brauð og kíló af kjöti „Það var ekkert heitt vatn, ekkert rafmagn. Hver maður fékk hálft brauð á dag til að draga fram lífið og eitt kUó af kjöti á viku. Við fengum grænmeti á sumrin, ekki á veturna. Engir bananar. Engar appelsínur. Fiskur á föstudögum," segir Ghita. Hann bjó meö foreldrum sínum og fimm eldri systkinum og var eini meðlimur fjölskyldunnar sem var yfir 1,80 á hæð. Hann segist hafa far- ið að stækka svona þegar hann var sex ára og tíu ára var hann stærst- ur á heimilinu. Hann gekk alltaf í of litlum fötum og fékk nær aldrei skó sem pössuðu. Fjórtán ára gamall var hann 2,05 metrar á hæð. „Ég spilaði ekki körfubolta fyrr en ég var 14 ára. Þá fór mamma með mig tU tannlæknis í Cluj. Hann var tannlæknir landsliðsins í körfu- bolta. Hann leit á mig og spurði hve hár ég væri. Hann trúði því ekki að ég væri 14 ára. Hann náði í þjálfara körfuboltaliðsins og þeir báðu mig um að verða um kyrrt í Cluj og spila körfubolta. Ég gisti þar um nóttina og fór ekki aftur heim.“ Líkti eftir Jabbar Muresan sá myndband af Kareem Abdul-Jabbar úr NBA-deildinni og ákvað að ná valdi á sveilluskotum eins og hann og æfði þau stíft í tvö ár. Síðan bætti hann stökkskotum í safnið og tvítugur var hann tilbúinn Við hliðina á Georg litla virðist tröll- ið Shaquille O’Neal vera ósköp venjulegur maður. fyrir körfuboltaheiminn og tók þátt í heimsmeistarakeppni unglinga í Kanada með landsliði Rúmena. „Hann tók flest fráköst í keppninni og skoraði næstflest stig. Hann var óstöðvandi. Margir háskólar í Bandaríkjunum vildu fá hann en Gheorghe vildi verða ríkur. Það var skiljanlegt," segir Kenny Grant. Niðurstaðan varð sú að Muresan fór til Pau í Frakklandi. Hann var of þungur og stirður en Gomez þjálfari tók hann upp á sína arma. „Ég lét hann hamast á fjaðradýnu og hún fór alveg niður í gólf þegar hann hoppaði. Ég lét hann ganga í gegn- um erfiðar æfingar, ég vildi að hann gæti stjórnað þessum mikla skrokki. Við stilltum aldrei upp vöm þar sem hann stæði kyrr und- ir körfunni þótt þaö heföi verið auð- veldasta leiðin með svona stóran mann. Hann var mjög seinn og ég vildi láta hann hreyfa sig. Muresan er farinn að tala ein- falda ensku en fyrstu tvö árin í NBA var hann með túlk hvert sem hann fór. „Þegar ég er 14 ára vil ég læra körfubolta. Ég geri það. Þegar ég er 16 langar mig að spila með landslið- inu. Ég geri það. Þegar ég er 19 ára langar mig að spila í Evrópu. Ég geri það 20 ára. Ég kem til Frakk- lands og ég segi að ég geti ekki spil- að í NBA, það sé of erfitt. En skömmu síðar tel ég að ég geti það og þá vil ég spila í NBA,“ segir Muresan þegar hann lýsir ferlinum í fáum orðum. Of þungur fyrir þrektækið Áður en að nýliðavalinu í NBA kom sýndi Portland Trail Blazers rúmenska stráknum talsverðan áhuga og sendi einkaþotu eftir hon- um til Búkarest. Tilgangurinn var sá að láta hann gangast undir þrek- próf. Við komuna til Portland kom í ljós að ekki var hægt að framkvæma prófið. Þrektækið þoldi ekki meira en 150 kíló, Muresan var 165 kíló. Strax eftir nýliðavalið hitti Muresan manninn sem fram að því haföi verið stærstur í NBA-deild- inni, Manute Bol, sem líka var hjá Washington. „Þið heföuð átt að sjá Manute. Honum var brugðið. Ég er viss um að hann hafði aldrei áður séð mann sem var stærri en hann sjálfur. Þeir léku maður gegn manni og það sást strax að Gheorghe gat spilað körfubolta. Hann sendi tvö sveifluskot yfir Manute og skoraði úr tveimur stökkskotum. Ég sagði við sjálfan mig; ef Manute getur ekki stöðvað hann, þá getur það eng- inn,“ sagði John Nash, fram- kvæmdastjóri Washington. Fyrsta tímabilið í NBA var hann varamaður en sýndi nógu mikið til að vera boðinn góður samningur. Hann léttist um 15 kíló og stundaði lyftingar af krafti til að styrkja sig og þegar hann mætti til leiks haust- ið eftir gerðu forráðamenn Was- hington sér grein fyrir því að þeir höfðu gert góð kaup. Fákk 42 milljónir í bónus Síðasta vetur vann hann sér sæti í liðinu og náði, hverju takmarkinu af öðru. í samningnum voru ýmiss konar ákvæði um launahækkun eí hann næði ákveðnum takmörkum og hann náði þeim öllum um vetur- inn. Hann spilaði meira, tók fleiri fráköst, hitti betur utan af velli, varði fleiri skot og að lokum tókst honum að bæta vítanýtinguna nægi- lega. Með þessu vann hann sér inn 42 milljónir króna aukalega. „Mér líkar vel við körfuboltann, mjög vel. Ég vil spila í 26 til 28 ár i viðbót! Ha, ha, ha! Ég spila þar til ég get ekki spilað lengur. Ég hætti þegar ég verð þreyttur,” segir risinn sem bú- inn er að koma sér vel fyrir í Was- hington og er giftur æskuástinni, Liliönu, sem er er mjög hávaxin af konu að vera, 1,85 metrar á hæð, en rétt nær eiginmanninum í öxl. Keypti hús handa pabba og bakarí handa bræðrunum „Ég fór heim til Rúmeníu í einn mánuð í sumar. Rúmenía er falleg, fjöllin, sjórinn, allt. Ég keypti mér hús i Cluj. Ég keypti annað hús handa pabba. Ég keypti bakarí handa bræðrum mínum. Það eru enn mörg vandamál í Rúmeníu en ástandið fer batnandi með hverjum deginum.” Hann gekk um göturnar í Cluj i sumar, teinréttur í baki og stoltur, vel klæddur - lifsreyndur maður. Hann spilaði körfubolta með gömlu félögunum og það er hægt að sjá hann fyrir sér í þeirra hópi, ógn- vekjandi undir körfunni, troðandi boltanum af miklum móð svo gamli leikfimisalurinn nötrar og skelfur. Risinn er kominn heim. „Nei, nei, svona var það ekki. Þetta eru vinir mínir og ég treð ekki yfir þá. Við vorum að leika okkur. Á móti þeim tek' ég bara þriggja stiga skot. Ha, ha, ha!“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.