Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995 Islensk stúlka, Margrát Guðmundsdóttir b\ Astrid Ferner prinsessa, eins og hún er opinberlega kölluö, og er hún önnur tveggja systra Haralds. íslendingar hafa löng- um haft gaman af að rekja kyn sitt til konunga og er þá gjarn- an farið langt aftur í ættir. Nú geta þeir glaðst yfir vænt- anlegum landa a f norsku k o n u n g a k y n i litlum prinsi eða lítilli prinsessu. Margrét og Alexander byrjuðu saman fyrir tæpu ári þegar þau kynntust á mjög rómantískan hátt á skíðaferðalagi. Þau byrjuðu fljótlega að búa saman, eiga nú von á erf- ingja og hafa keypt einbýl- ishús á flnum og barn- vænum stað í ná- grenni höfuðborgar- innar, í sveitarfé- laginu Bærum. Væntanlegir for- eldrar nú til dags óska í sumum tilfell- um eftir því að fá að vita um kyn barnsins þegar móðirin fer í sónar en það gerðist ekki að þessu sinni. Margrét og Alex- ander vildu frek- ar bíða spennt þangað til barnið fæðist, samkvæmt heimildum DV. Bærum, þar sem unga fólkið ætlar að setjast að, er sveitar- félag á borð við Mos- fellsbæ eða Garðabæ nema bara mun stærra, með um 200 þúsund íbúa. Unga parið flytur í nýja húsið fyr- ir jól. Enginn friður fyrir pressunni Þegar DV hafði samband við Mar- gréti í vikunni neitaði hún að tala við blaðið og hafnaði algjörlega viðtali og myndatöku eftir að hafa ráðfært sig við sambýlismann sinn. Hún hafnaði viðtali á þeirri forsendu að þá fengju þau engan frið fyrir norsku press- unni. DV brá þvi á það ráð að fara aðrar leiðir, lýsa aðstæðum unga parsins, hringja í konungasérfræð- inga Norðmanna og blaða í gömlum blaðagreinum. Meiningin er að reyna að gefa sem besta mynd af Fernerfjöl- skyldunni og unga parinu. Margrét er fædd í Reykjavík og uppalin í Breiðholtinu þó að hún hafi talsvert dvalist hjá móður sinni með- an hún bjó á Akureyri. Hún á einn bróður. Faðir hennar hefur búið i Svíþjóð í mörg ár og rekur þar bak- arí. Komu bæði til Islands í vor Margrét var i Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og fór á því tímabili sem au pair til Kalifomiu eins og svo margar aðrar íslenskar stúlkur. Hún vann í nokkur ár í tískuverslun i Kringlunni, enda hávaxin og glæsileg stúlka, og var þar síðast sem verslun- arstjóri. Eftir að hún hætti í búðinni vann hún skrifstofuvinnu um nokk- urt skeið og flutti svo til pabba síns í Svíþjóð. Hún starfaði í bakaríinu hjá honum í fjögur ár, fékk þá atvinnu- tilboð frá Noregi og fluttist þangað. j Hún vann fyrst á hóteli í Ósló og hóf síðan störf í tískuverslun í miðborg Óslóar. Margrét hefur haldið góðu sam- bandi við foðurland sitt og komið hingað árlega frá því hún flutti til útlanda. Síðast kom hún í stutta heimsókn í vor í tilefni af fimm- tugsafmæli móður sinnar. Sambýl- ismaður hennar var þá með í fór og kynnti hún hann fyrir ættingj- um sínum og nánustu vinum. Stutt í vinnuna Alexander Femer, 30 ára, er sonur frú Astrid Femer, prinsessu í Nor- egi, og eiginmanns hennar, Johans Martins Ferner kaupsýslumanns. Alexander, kallaður Alex, hefur lokið prófi í verslunarháskóla í Ósló. Hann hefur starfað við ýmis sölustörf og meðal annars selt far- síma. Frá því í febrúar á þessu ári hefur hann starfað sem söluráðgjafi á bílasölunni Bergheim Autosalg. Bila- salan er í Bærum þar sem parið hef- ur keypt sér einbýlishús. Það ætti þvi að vera sæmilega stutt fyrir Alexand- er að keyra í vinnuna þegar þau Mar- grét verða flutt í nýja húsið, eins og ráðgert er fyrir jólin. Til gamans má geta þess að í skrif- um norskra blaða kemur fram að Al- exander Femer hafi haft tæplega 270 þúsund norskar krónur í nettótekjur á síðasta ári. Það þýðir að hann hafi haft 2,7 milljónir króna handbærar í einkaneyslu að frádregnum skatti i fyrra. Amma prinsessa hlakkar til Móðir Alexanders, Astrid prins- essa, er önnur tveggja systra Haralds Noregskonungs. Elst er frú Ragnhild Alexandra prinsessa sem giftist norskum skipajöfri og býr í Rio de Janeiro, konungurinn er yngstur og Astrid prinsessa er í miðið. Hún gift- ist Johan Martin, sem er af þekktum norskum kaupsýsluættum, og eiga þau fimm börn, tvær stelpur og þrjá stráka, og er Alexander í miðið. Barnabörnin era tvö, fimm og þriggja ára, og svo er náttúrlega eitt hálfis- lenskt á leiðinni hjá Margréti og Al- exander. Astrid prinsessa hefur lýst því yfir við norsk vikublöð að hún hlakki mikið til Konungablóð en engar skyldur Þegar Astrid prinsessa og Johan Martin Ferner gengu í hjónaband fyr- ir tæpum 30 árum var- ákvæði um það í stjórnarskrá Noregs að einung- is drengir gætu tekið við krúnunni. Prinsessurnar tvær, Ragnhild og Astrid, urðu því að afsala sér og sín- um afkomendum réttinum til krún- unnar við giftingu. Þriðja barnabarn Astrid prinsessu verður þvi með biátt konungablóð í æðum að einum fjórða en elst upp sem ósköp venjulegt barn sem aldrei mun bera formlegan prins- eða prinsessutitil og kemur ekki til með að gegna neinum opin- berum skyldum fyrir hönd krúnunn- ar. í samtali DV við Vibekke Lie, sér- fræðing í málefnum norsku konungs- fjölskyldunnar, nú í vikunni kom fram að búið er að breyta stjórnar- Alexander Ferner, 30 ára systursonur H ini og er sjálfur miðjubarnið. Þau systl forðast kastljós fjölmiðla. Alexander er iðunni og hefur norsk pressa fylgst no! Tilvonandi tengdaforeldrar Margrétar C anders Ferners, eru frú Astrid Ferner pr sýslumaður. Johan Martin er stjórnai skyldunnar í miðborg Óslóar en eigink krúnunnar í ríkum mæli. Hún hefur ali< verið heimavinnandi húsmóðir alla tíð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.