Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Síða 34
42
LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995 ^3 "V
Ágrip af sögu Noregs:
Konungsfjölskyldan
var í útlegð í stríðinu
Á víkingatímanum voru mörg
sjálfstæö smáriki i Noregi. Harald-
ur hárfagri gerði tilraun til að
mynda sameinað ríki um 890 en sú
tilraun féll í grýttan jarðveg og varð
mikill ófriður milli norskra kon-
unga og aðalsmanna. Kristni festi
rætur í Noregi eftir 1030 og lögðust
víkingaferðir þá niður.
Sambandsslit við Svía 1905
Sjálfstætt ríki myndaðist í Noregi
eftir að Danakonungur viðurkenndi
sjálfstæði Norðmanna 1038. Á árun-
um 1130-T260 áttu sér stað deilur
milli manna sem töldu sig réttborna
erfingja norsku krúnunnar og
leiddu þær til styrjalda. Hápunktur
norska ríkisins var á 13. öld þegar
íslendingar voru undir norskri
stjórn. Norska ríkið var í konungs-
sambandi við Svíþjóð 1319-1343 og
danska ríkið frá 1380.
Áhrif Norðmanna í eigin landi
jukust á 15. öld þegar danskir kon-
ungar neyddust til að velja Norð-
menn til að stjórna landinu. Þegar
danskir konungar urðu einvaldir í
Danmörku 1660 fengu þeir einnig
einveldi í Noregi. Noregur fékk
þingræði 1884.
Um síðustu aldamót kröfðust
Norðmenn sjálfstæðrar utanríkis-
þjónustu. Deilur um þetta leiddu til
sambandsslita við Svía 1905 og varð
Noregur sjálfstætt ríki með þing-
ræði og konungsstjórn. Danskur
konungssonur, Karl, tók við norsku
krúnunni sem Hákon 7.
í útlegð í Lundúnum
Norðmenn lýstu yfir hlutleysi í
upphafi síðari heimsstyrjaldarinn-
ar. Þrátt fyrir það hersátu Þjóðverj-
ar Noreg 1940-1945. Konungur Nor-
egs, Ólafur 5., fjölskylda hans og
ríkisstjórn voru í útlegð í Lundún-
um og fylgdu bandamönnum að
málum. Að stríðinu loknu sneri
konungur heim og tók aftur við ríki
sínu.
Ólafur 5. lést 17. janúar 1991.
Yngsta barn hans, Haraldur prins,
tók við krúnunni. Fyrir þrjátíu
árum gátu konur ekki tekið við
krúnunni samkvæmt norskri
stjórnarskrá og því afsöluðu eldri
systurnar tvær, prinsessurnar
Ástríður og Ragnhildur, sér krún-
unni við giftingu. Afkomendur
þeirra eiga ekkert tilkall til krún-
unnar.
Gott samband hefur verið milli
norska og íslenska ríkisins, til
dæmis gegnum norrænt samstarf,
og að sjálfsögðu milli þjóðhöfðingja
beggja landanna. Norskir konungar
hafa komið hingað til lands í heim-
sókn gegnum tíðina, síðast Harald-
ur Noregskonungur á lýðveldishá-
tíð íslendinga á Þingvöllum í fyrra.
-GHS
Frændgarður Noregskonungs
Haraldur Noregskonungur tók við norsku krúnunni að föður sínum, Ólafi 5.
Noregskonungi, látnum veturinn 1991.
Haraldur Noregskonungur ásamt föður sínum, Ólafi 5., sem nú er látinn,
eiginkonu sinni og tveimur börnum. Haraldur var i útlegð með fjölskyldu
sinni, foreldrum og systrum í Lundúnum í síðari heimsstyrjöldinni.