Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Blaðsíða 37
T>V LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995
45
„Leikhúsið hér verður að reka á svipuðum forsendum og leikhúsin í Reykja-
vík. Á Akureyri voru á síðasta leikári frumsýnd fimm verk og eitt frá fyrra
ári var tekið upp að nýju. Á sama tíma frumsýndi Leikfélag Reykjavíkur
sex leikverk og var með þrefalda fjárveitingu á við LA og það var of lítið
fyrir Leikfélag Reykjavíkur."
hefur ekki alltaf verið að mínu
skapi.“
Eiginkona og hjákona
Viðar hefur víða komið við í leik-
húsheiminum og neitar því ekki að
hann búi yfir mikilli reynslu og yfir-
gripsmikilli þekkingu innan leik-
hússins:
„Ég byrjaði hjá Leikfélagi Akur-
eyrar 1969 þegar það var enn áhuga-
félag og lék þar í 7 verkum. Síðan lá
leiðin í leiklistarskóla ög eftir nám í
SÁL og Leiklistarskóla íslands 1976
hef ég leikið í um 60 sýningum og
sett á svið tæplega 20 leikrit. í 10 ár
starfrækti ég EGG-leikhúsið sem var
boðið víða um heim með sýningar
og það má því segja að ég hef víða
komið við. Eg á t.d. að baki á annað
hundrað útvarpsþætti sem flestir
fjölluðu um listir og menningarmál.
Einnig hef ég gegnt ýmsum trúnað-
arstörfum, s.s. formennsku í Leik-
stjórafélaginu. Þetta er allnokkuð,
enda hafa vinir mínir sagt að ég sé
giftur leikhúsinu. Leikhúsið er bæði
eiginkona mín og hjákona."
Í hlutverki Drakúla
- Mega leikhúsgestir í Borgarleik-
húsinu eiga von á því í framtíðinni
að sjá þig þar á fjölunum eins og þú
gerir nú í hiutverki Drakúla hjá
Leikfélagi Akureyrar?
„Þegar ég var í viðræðum við leik-
húsráð Leikfélags Reykjavíkur lagði
ég áherslu á það að ég vildi fyrst og
fremst vera hstrænn stjómandi. í því
felst m.a. að vinna með listamönnum
hússins að verkefnavali, leikaravah
og að velja leikstjóra og aðra starfs-
menn. Ég mun koma mjög sterkt inn
í þá vinnu en ég vil einnig starfa þar
sem hstamaður þótt það sé ekki
æskhegt að ég verði áberandi sem
slíkur.
Það að ég leik nú hlutverk Drakúla
á Akureyri kom hins vegar til af því
að Michael Scott vhdi hafa mig í leik-
arahópnum og þegar að því kom að
skipa í hiutverkin fór hann þess á
leit við mig að ég léki titilhlutverkið
sem er þó ekki aðalhlutverkið. Ég
lagði það mál í hendur leikhúsráðs
og sú varð niðurstaðan að ég léki
Drakúla."
Störfin vel metin
Viðar segir árin á Akureyri hafa
verið mjög ánægjuleg: „Fólkið hér
tók mér afskaplega vel og ég hef
fundið fyrir mikhli velvhd. Ég finn
það líka að störf mín hafa verið vel
metin. Núna, þegar styttist í að ég-
fari héðan, hafa margir komið th mín
og lýst yfir ánægju sinni með að ég
hafi fengið starfið hjá Leikfélagi
Reykjavíkur, en þeir hafa um leið
lýst yfir óánægju sinni ýfir að ég
skuh vera að fara. Það gleður mig
óneitanlega."
Viðar segir það hafa verið ákvörðun leikstjóra og leikhúsráðs að hann
færi með hlutverk Drakúla sem verið er að frumsýna hjá Leikfélagi Akur-
eyrar um þessar mundir.
Vöggudauði er ráðgáta aldarinnar á Vesturlöndum:
Best að börnin
sofi uppi í rúmi
hjá mömmu
- hindrar vöggudauða, telja breskir sérfræðingar
Breskir sérfræðingar hafa kom-
ist að því að hægt er að hindra
vöggudauöa með því að láta ung-
börn sofa uppi í rúmi hjá mæðrum
sínum. Sérfræðingarnir benda á að
vöggudauði sé mjög fátíöur í öðrum
heimshlutum, svo sem Asíu, þar
sem börn sofa hjá mæðrum sínum
í 95 prósentum tilfella. Þeir segja
að mæðurnar veki börnin reglu-
lega ómeðvitað með hreyfingum
sínum yfir nóttina og geti gefiö
þeim brjóst eftir vhd. Börnin öðhst
öryggiskennd vegna nærveru móð-
urinnar og verði rólegri en ella. Það
séu því margir samverkandi þættir
sem dragi úr vöggudauða.
Vöggudauði, það er þegar börn
hætta skyndhega að anda í svefni,
hefur verið ráðgáta á Vesturlönd-
um um langt árabil. Margar rann-
sóknir hafa verið gerðar og hafa
ýmsar kenningar verið á lofti.
Sums staðar hefur heyrst að ung-
börnin deyi vegna eiturlofts sem
stígi upp úr rúmdýnum þeirra,
annars staðar að bömin megi ekki
liggja á bakinu því að þá geti lok-
ast fyrir öndunina af einhverjum
ástæðum. Ekkert af þessu hefur
sannast og er vöggudauði því enn
óútskýranlegur af hálfu læknavís-
indanna.
Algengast
hjá hvítum
í grein í dagblaðinu The Sunday
Times, sem kemur út í Bretlandi,
er sagt frá því j nýlegri grein að
vöggudauði sé tvisvar sinnum
hærri hjá hvítum en fólki með ann-
an hörundsht þrátt fyrir það að
fjölskyldur með gulan, rauðan eða
brúnan húðht séu að meðaltaU
mun fátækari, séu stærri og búi í
verra húsnæði en hvítár fjölskyld-
ur. Þá er vöggudauði nánast
óþékktur í ýmsum heimshiutum,
th dæmis Indlandi, og indverskar
mæður, sem eru aldar upp við að
börnin sofi uppi í rúmi hjá móður-
inni, hafa haldið þessum sið eftir
að til Vesturlanda er komið.
í greininni í Sunday Times kemur
fram að mennimir séu einu spen-
dýrin í heiminum sem láti börnin
sín sofa fjarri sér á nóttunni og það
þó að mannanna börn séu mun
vanþróaðri og hjálparlausari fyrst
eftir fæðingu en ungviði annarra
dýrategunda.
Rannsókn á
Norðurlöndum
Á næstunni fer í gang rannsókn
á vöggudauða meðal 20 þjóða, með-
al annars Kínverja, þjóða Suður-
Ameríku, Ítalíu og Norðurlanda
þar sem meðal annars verður
kannað hvaða áhrif það hafi þegar
börn sofa uppi í rúmi hjá móöur
sinni.
Erlendir sérfræðingar mæla nú
til dags með því að mæður láti
börnin sofa uppi í rúmi hjá sér og
styðjast þar við rannsóknir á svefn-
venjum mæðra og barna þeirra í
vanþróuöum ríkjum. í Sunday Ti-
mes segist sérfræðingur frekar ótt-
ast að börnin deyi vöggudauða eftir
að hafa ofhitnað undir þungri dún-
sæng en af öðrum ástæðum.
Sérfræðingar telja að það hindri vöggudauða ef ungbörn sofa uppi í rúmi hjá móður sinni þvi að þá geti
þau fengið brjóst að vild auk þess sem móðirin veki þau ósjálfrátt með hreyfingum sínum i svefni.
Karólína prinsessa með nýjan vin:
Er sá rétti kominn
eða bíður hún enn?
Endanlega virðist vera shtnað upp úr ástarsambandi Karólínu prins-
essu af Mónakó og franska leikarans Vincent Lindon. Samband Karólínu
og Vincents hefur verið shtrótt á stundum og reyndar aldrei náð því stigi
að þau kæmu fram saman opinberlega þó að Vincent hafi stutt hana gegn-
um sorgina eftir að eiginmaður hennar, Stefano Casiraghi, fórst í slysi í
heimsmeistarakeppninni í kappakstri fyrir fimm árum og verið börnum
hennar foðurímynd.
Erlend slúðurblöð spá og spekúlera mikið í ástarmál Karólínu og Vinc-
ents og telja að Karóhna bíði enn eftir stóru ástinni því að í sumar hafi
hún siglt um Miðjarðarhafið með vinum sínum og skihð Vincent eftir
heima hjá fjölskyldu sinni. í stað Vincents var nýr maður með Karólínu,
Marc Boitel. Þessi tíðindi þykja öruggt merki þess að aldrei verði hjóna-
band úr sambandi Karóhnu og Vincents en komi stóra ástin fram á sjónar-
sviðið verði ábyggilega blásið á ný tíl brúðkaups í Mónakó.
Karólína prinsessa af Mónakó
varð fyrir gífurlegu áfalli fyrir fimm
árum þegar eiginmaður hennar
lést í slysi í heimsmeistarakeppn-
inni í kappakstri og hefur ekki enn
fundið ástina aftur.