Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Síða 40
48
fréttir
LAUGARDAGUR 14. OKTOBER 1995
Ofbeldi, pyntingar og kynferðisleg misnotkun beið ungra stúlkna i hryllingshúsi West-hjónanna:
Fæstar sluppu lifandi
Ofbeldi, kynferöisleg misnotkun,
öfuguggaháttur, nauðganir og morö
eru rauði þráöurinn í sakamáli því
sem sem nú er á hversmanns vörum
í Bretlandi og nefnt hefur verið saka-
mál aldarinnar. Slóö hjónanna Freds
og Rosemary West er blóði drifin en
fyrir nokkru var lögð fram ákæra á
hendur þeim vegna 10 moröa á ung-
um stúlkum og konum á tímabilinu
frá 1971 til 1987, þar á meðal á dóttur
Freds frá fyrra hjónabandi og elstu
dóttur hjónanna. Níu illa farin lík
fundust við uppgröft í og við hús
West-hjónanna að Cromwellstræti 25
í Gloucester í febrúar í fyrra.
Fyrsta líkiö sem fannst var lík elstu
dóttur þeirra hjóna, Heather. Við
áframhaldandi gröft kom meiri
hryllingur í ljós en orð fá lýst. Fimm
líkanna fundust grafin undir gólfi í
kjallara hússins, eitt undir baðher-
bergisgólfmu og þrjú undir hellu-
lagðri stétt í bakgarðinum. Af um-
merkjum að dæma hafa stúlkurnar
flestar liðið skelfilegar kvalir stund-
irnar fyrir andlát sitt á meðan West-
hjónin fengu útrás fyrir afbrigðilegar
kenndir sínar og kynóra. Hefur húsið
réttilega verið nefnt hryllingshúsið.
Lík yngri dóttur Freds, Charmine,
fannst reyndar við fyrra heimili
hans, skammt frá Cromwellstræti.
Lík af fyrrverandi eiginkonu hans
og barnfóstru fundust síðan annars
staðar. Rosemary er ekki taiin tengj-
ast morðunum á tveimur síðast-
nefndu konunum.
Vitni lýsa samtölum sínum við
West-hjónin þar sem þau sögðu frá
því hvemig þau fóru út í leit að ung-
um stúlkum og hvernig þau reyndu
að fá þær til að leigja hjá sér. Fred
vildi hafa þær ungar því þá var meiri
möguleiki á að þær væru óspjallaðar.
Fred West virðist hafa óttast réttar-
höldin og þá niðurlægingu sem þeim
fylgdi en hann fannst hengdur í
fangaklefa sínum á nýársdag. Rose-
mary West situr því ein uppi með
ákærur fyrir ólýsanlega grimmd og
öfuguggahátt sem smám saman er
afhjúpaður með framburði vitna í
málinu. Hún neitar öllum sakargift-
um en flest virðist benda til þess að
hún hafi verið með í ráðum.
Vitni bera að Rosemary West hafi
verið meö kynlíf og kynsvall á heil-
anum. Saksóknarinn segir að flest í
máhnu megi skýra meö kynferðis-
legri þráhyggju West-hjónanna sem
virðist hafa tengt þau afar sterkum
böndum. Ein stúlka slapp lifandi frá
misnotkun á heimili West-hjónanna
1972 og kærði þau. Þau hlutu sekt en
niðurlægingin þótti þeim slík að nær
engar stúlkur sluppu eftirleiðis lif-
andi úr klóm þeirra.
Bundin uppi á stól
Fred og Rose-
mary kynntust
1969. Hún var
þá aðeins 15 ára
og hann 27 ára.
Fred bjó í hús-
vagnaþyrpingu
með stjúpdótt-
ur sinni,
Charmine. Árið eftir varð Rosemary
ófrísk að Heather. Þá haföi Fred
reyndar verið dæmdur í 10 mánaða
fangelsi fyrir svindl og pretti. Rose-
mary átti mjög erfitt með að lynda
við Charmine og versnaði samband
þeirra stöðugt. Þannig lýsir fyrrum
nágranni West-hjónanna að Mid-
landvegi 25 því að dóttir hennar hafl
eitt sinn spurt eftir Charmine. Þegar
dymar voru opnaðar sá hún Char-
mine standandi á stól með hendur
bundnar með belti fyrir aftan bak.
Rosemary virtist vera að búa sig
undir að berja bamið með barefli.
í ágúst 1971, stuttu eftir að Fred
losnaði úr fangelsi, hvarf Charmine
sem þá var á níunda aldursári. Rose-
mary sagði að hún hefði flust til
móður sinnar. í maí í fyrra fann lög-
regla líkamsleifar Charmine undir
baðgólfinu á Midlandvegi.
Fór að heiman
Blóðbaðiö var
hafið. Lynda
Carole Gough
vann í verslun
í Gloucester og
hafði kynnst
West-hjónun-
um. Hún kom
oftsinnisíhúsið
og fyrri leigjendur segja að leigjend-
ur í húsinu hafi átt í kynferðislegu
sambandi við Lyndu. í apríl 1973
fengu foreldrar Lyndu bréf frá henni
þar sem hún sagðist vera flutt og
hvarf hún um það leyti.
Móðir hennar reyndi að leita henn-
ar og lá leið hennar meðal annars
heim til West-hjónanna. Þau sögðust
ekki vita annað en að Lynda hefði
farið og tekið allar eigur sínar með.
Þá tók móöirin eftir því að Rosemary
var í inniskóm Lyndu og fot af henni
héngu á þvottasnúrunni. Þrátt fyrir
ítrekaðar spurningar varö fátt um
svör.
Endanlegt svar um örlög Lyndu
kom 21 ári seinna þegar líkamsleifar
hennar fundust grafnar undir bað-
herbergisgólfi West-hjónanna. Um-
merki bentu til að höfuð hennar hefði
allt verið vafið með breiðu límbandi
og hún bundin nakin.
Rosemary var ófrísk af syni hjón-
anna þegar Lynda hvarf og hðu einir
sex mánuðir þar til annað morð var
framið. En þá varð ekkert lát á
óhugnaðinum á annað ár.
Áleiðtilömmu sinnar
Carol Ann
Cooper var
uppreisnar-
gjam ungling-
ur sem hafði
verið á fóstur-
heimih. Hún
var á leið til
ömmu sinnar
þegar hún hvarf, í nóvember 1973,
þá 15 ára gömul. Líkamsleifar henn-
ar fundust undir kjaharagólfinu í
Cromwehstræti 25, en hún var fyrst
fimm fómarlamba sem þar voru
grafin. Höfuð hennar var skorið af.
Ummerki bentu til að höfuð hennar
hefði verið vafið hmbandi og hún
bundin. Hún mun hafa legið hjálpar-
laus en á lífi ótiltekinn tíma - fórnar-
lamb hugaróra West-hjónanna.
Nemi í miðaldaensku
Lucy Parting-
ton var nemi í
miðaidaensku
við háskólann í
Exeter, alvöra-
gefin en við-
kunnanleg
stúlka. Hún
hvarf á þriðja
degi jóla 1973. Líkamsleifar hennar
fundust einnig undir kjallaragólfinu
og virðist hún hafa fengið svipaða
meðferð og Carol Ann. Hún hafði
verið bundin og kefluð klæðlaus.
Mörg bein í hkama hennar voru
brotin og mjaðmagrindin var úr hð.
Tahð er að West-hjónin hafi boðið
henni far. Virðist nærvera Rosemary
í bílnum hafa veitt stúlkunni örygg-
iskennd en á móti gat Rosemary talað
hana tii og lokkað í hryhingshúsið.
Svissneskur
puttalingur
Theresa Sieg-
enthaler var
svissnesk og
nam félags-
fræði í London.
Hún talaði með
þýskuskotnum
hreim en full-
komna ensku
að öðra leyti. Hún var á leið til vin-
konu sinnar á írlandi á puttanum
Fred og Rosemary West. Olýsanlegar kvalir og dauði beið ungra stúlkna
á heimili þeirra í Gloucester.
þegar hún hvarf í janúar 1974. Lík
hennar fannst í örlítilli holu undir
kjallaragólfinu, höfuðið höggvið af
og líkiö hmiest. Hún hafði einnig
verið bundin og kefluð. Allt bendir
tíl að misnotkunin og morðið hafi átt
sér stað að Cromwellstræti 25.
Andaði um slöngubút
Shirley Hub-
bard var 15 ára
þegar hún
hvarf. Hún
hafði verið í
fóstri frá
tveggja ára
aldri vegna
vandamála
heima fyrir. Hún hafði tvisvar strok-
ið frá fósturforeldrum sínum. Hún
hvarf í desember 1974. Líkamsleifar
hennar fundust undir kjallaragólfi
West-hjónanna. Höfuð hennar haföi
verið höggvið af og úthmimir voru
illa leiknir. Gríma úr límbandi hafði
verið sett á höfuð hennar og htið gat
fyrir slöngu sem sneri að nasaholun-
um.
Síðasta kjallaralíkið
Juanita Mott
varl8áraþegar
hún hvarf.
Henni var lýst
semvhjasterkri
en uppreisnar-
gjarnri og glys-
gjamri stúlku
semólstuppvið
erfiöar aðstæður. Hún hafði leigt hjá
West-hjónunum um tíma en flutti
síðar út og bjó með vini sínum. Hún
ætlaði að passa bara fyrir vin sinn í
apríl 1974 en kom aldrei. Sundurhm-
aður líkami hennar var sá síðasti
sem fannst í kjallaranum. Hún hafði
fengiö sömu meðferö og hin fóm-
arlömbin og auki veriö barin í höfuð-
ið meö hamri.
Kjallarinn fullur
Nú var lítið WKKM
pláss eftir í
kjaharanum
fyrir fleirilíkog
svo virðist sem
West-hjónin
hafi ákveðið að
hætta hryll-
ingsverkunum
í bih og dró ekki th alvarlegra tiðinda
fyrr en í apríl 1977. Þá flutti Shirley
Ánn Robinson inn í herbergi hjá
West-hjónunum. Stuttu síðar varð
hún ófrísk eftir Fred. Annar leigjandi
tók eftir þvi að andrúmsloftið varð
þrungið afbrýðisemi og West-hjónin
rifust stundum heiftarlega. Shirley
hvarf í maí 1978, þá komin yfir átta
máunði á leið. Líkamsleifar hennar
og fóstursins fundust grafnar við
dyrnar út í bakgarðinn á húsi West-
hjónanna.
Elsta dóttirin líka
í ágúst 1979
hvarf Allison
Chambers, þá
tæplega 17 ára,
frá unglinga-
heimhi í Glouc-
ester en hún
hafði verið í
fóstri frá barn-
æsku vegna skilnaðar. Hún hafði
sést við hús West-hjónanna nokkrum
sinnum um sumarið en hvarf rétt
fyrir afmælisdaginn sinn í ágúst.
Líkamsleifar henanr fundust í garð-
inum.
Síðasta fórn-
arlambið sem
grafiö var í
garðinum, en
jafnframt það
fyrsta sem
fannst í febrúar
1994, var dóttir
West-hjónanna,
Heather. Hún hvarf skömmu fyrir
17. afmæhsdaginn sinn 1987. Hafði
samband hennar við foreldrana
snarversnað og eru getgátur um að
hún hafi vitað of mikið eða hótað að
segja frá. Rosemary fullyrti viö vini
og kunningja að Heather hefði hlaup-
ist á brott með lesbískri vinkonu
sinni.
Það var hvarf Heather sem leiddi
endanlega til uppgraftarins. Fram til
1994 reyndi lögreglan að komast á
snoðir um örlög Heather og síbreyti-
legur framburður Rosemary hélt
mönnum við efnið. Loks var fyrsta
skóflustungan tekin í bakgarði
West-hjónanna og framhaldið þarf
ekki að tíunda.
MAL ROSEMARY WEST
Cromwell stræti25,
Gloucester
í Englandi eru hafin málaferli yfir Rosemary West
sem ákærð er fyrir að hafa myrt tíu ungar konur
og barnungar stúlkur. Líkin fundust grafin
heima hjá West-hjónunum í Gloucester í
vesturhluta Englands.
Staðsetning líkanna að Cromweii stræti nr. 25
KJALLARI
(Undir upphallegri byggingu)
Niðurgrafinn að hluta.
Fimm lík fundust
undir steingólti
VIÐBYGGING
Byggð ólöglega
á siðastliðnum
20árum
BAÐHERBERGI
Gömlum bllskúr breytt
í baðherbergi. Eitt lík
fannst undir steingólfi
ÍTÉTT
Þrjú lik fundust undir
gangstéttarhellum
Source :PMJoaes, Chartered Surveyor
Three more
loundnearWest's
previous homes
1. Shirley Hubbard
2. Juanita Mott
3. Carol Ann Cooper
4. Therese Siegenthaler
5. Lucy Partington
6. LyndaGough
7. Alison Chambers
8. Shirley Robinson
9. HeatherWest