Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Blaðsíða 55
3D'V LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995 63 Kardimommubærinn frumsýndur í Þjóðleikhúsinu eftir eina viku: Yf irvald með barnssál og hjarfans einlægni - segir Róbert Amfmnsson sem leikur Bastían bæjarfógeta í flórða sinn „Þegar Kardimommubærinn var fyrst settur á svið heimsóttum við höfund verksins, Thorbjörn Egner, í sumarhúsi hans rétt fyrir utan Ósló. Hann var einstakur maður með bamslega einlægni og utanáliggjandi góðmennska geislaði af honum og náði allt í gegn. Húsið hans stóð und- ir stórri eik sem slútti yfir húsiö og allt hans umhverfi var mjög kardi- mommulegt. Sumir telja að Egner haii verið að lýsa sínu nánasta um- hverfi og sótt Bastían í sjálfan sig og ég gæti vel trúað því. Hann hefði getað gengið beint út úr leikritinu," segir Róbert Arnfinnsson leikari. Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Kardimommubæinn eftir norska rit- höfundinn Thorbjörn Egner næst- komandi laugardag og er það fimmta uppfærslan af þessu sívinsæla bamaleikriti í 45 ára sögu leikhúss- ins. Leikritið var fyrst framsýnt í janúar áriö 1960 og við það tækifæri fór Róbert Amfmnsson ásamt fleir- um til Noregs til að hitta höfundinn. Róbert hefur leikið Bastían bæjar- fógeta í fjórum uppfærslum, að þess- ari meðtalinni, og hefur hann aidrei verið í fleiri uppfærslum á sama verki. „Það fór svo með fyrstu uppfærsl- una að hún varð vinsælasta sýning á barnaleikriti sem hafði veriö færð upp í Þjóðleikhúsinu og nú er það eiginlega orðin hefð að sýna Kard- imommubæinn á tíu ára fresti. Þeir sem voru í barnahlutverki í upphafi og á fyrstu sýningunum em orðnir fullorðnir og eiga börn sjálfir. Mér finnst sjálfsagt að gefa hverri nýrri kynslóð færi á að sjá verkið því að þó það sé hollt börnum þá er það ekkert síður hollt fullorðnum," segir Róbert. Hann bætir við að sjálfur eigi hann fullt af bömum og barnabömum sem hefðu áhuga á að sjá sýninguna. Leikritið um Kardimommubæinn er að sögn Róberts mjög sérstakur heimur þar sem leikaramir fara ósjálfrátt í aðrar stelhngar en venju- lega og barnshugurinn nær undir- tökunum. Bastían bæjarfógeti er til dæmis yfirvald „með bamssál og hjartans einlægni," segir Róbert og þaö sama gildir um ræningjana og aðrar persónur í verkinu. Mörg börn hafa tekið þátt í upp- færslum Þjóðleikhússins á Kard- imommubænum frá upphafi og er uppfærslan að þessu sinni engin undantekning. „Börnin eru mjög þýðingarmikiil þáttur og viss hjartsláttur í verkinu. Ég held að þau hafi alveg jafngaman af þessu og við hin,“ segir hann. -GHS Róbert Arnfinnsson leikari hefur leikið Bastian bæjarfógeta í fjórum upp- færslum af Kardimommubænum í Þjóðleikhúsinu ef sýningarnar, sem hefj- ast fljótlega, eru taldar með. Hér má sjá hann í hlutverki Bastíans ásamt félögum í uppfærslu frá árinu 1964. Fimmta uppfærslan af Kardimommubænum eftir Thorbjörn Egner verður frumsýnd í Þjóöleikhúsinu á laugardag- inn. Róbert Arnfi.insson leikur Bastían bæjarfógeta, yfirvaldið með barnssálina og hjartans einlægnina. Róbert hitti á sinum tíma höfund verksins og telur hann hafa haft sjálfan sig sem fyrirmynd að Bastían. DV-mynd BG Hér er Marin litla ásamt foreldrum sinum, Hafsteini Hinrikssyni og Önnu Óðinsdóttur, og systur sinni, Sunnu Hafsteinsdóttur, 7 ára. Bróðirinn Fannar Hafsteinsson, 11 ára, var i skólanum þegar myndin var tekin. Marín fæddist með sjaldgæfan hjartagalla og hennar eina lifsvon er aðgerð erlendis. DV-mynd Emil Eskifjörður: Fjársöfnun fyrir veikt smábarn Emil Thorarensen, DV, Eskifirði: Sóknarpresturinn á Eskifirði, séra Davíð Baldursson, hefur hrundiö af stað fjársöfnun fyrir 6 mánaða gamla stúlku, Marín Haf- steinsdóttur. Marín htla er með mjög sjaldgæf- an hjartagalla. Hennar eina lífsvon er aðgerð erlendis. Þetta er mjög kostnaðarsöm aðgerð og foreldr- arnir em illa settir fjárhagslega. Til aö gera aðgerðina mögulega hefur verið opnaður reikningur í Landsbankanum á Eskifirði og er hann nr. 7477. Vonast er til að landsmenn sjái sér fært að styðja við bakið á fjöl- skyldunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.