Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Qupperneq 59
LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995
_ iréttir,,
Jón Erlendur Jónasson, aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra:
Sláturhúsunum fækki
um allt að helming
„Fækka þarf sláturhúsum um allt
aö helming. Eina leiðin til að tryggja
afkomu sauðfjárbænda er að neyt-
endur haldi áifram að borða kinda-
kjöt. Það gera þeir ekki nema það
verði sett kröftug vinna í gang á inn-
anlandsmarkaðinum í vöruþróun og
hagræðingu, einkum í slátrun og
vinnslu," segir Jón Erlingur Jónas-
son, aðstoðarmaður landbúnaðar-
eina leiðin til að tryggja afkomu sauðflárbænda
ráðherra.
Jón Erlingur segir það dýrt að
vinna að vöruþróun í vinnslu sauð-
fjárafurða, enda kalli það bæði á
þekkingu og tæki. Nú séu starfrækt
24 sláturfyriræki á 29 stöðum á land-
inu, flest hver vanburðug til að mæta
auknum kröfum markaðarins. Þau
séu sakir smæðar of veik gagnvart
stóru söluaðilunum á höfuðborgar-
svæðinu. Því þurfi að fækka slátur-
húsum og sameina þau til að gera
þau sterkari og samkeppnishæfari.
Aðspurður kveðst Jón Erlingur
ekki treysta sér til að benda á þau
sláturhús sem nú er ofaukiö. Taka
beri tillit til margra þátta í því sam-
bandi, meðal annars staðsetningar,
stærðar, tækja og húsnæðis. Fyrir-
myndin gæti verið þau útflutnings-
sláturhús sem nú eru starfrækt; slát-
urhús Sláturfélags Suðurlands,
Kaupfélags Vestur-Húnvetninga,
Kaupfélags Þingeyinga og Kaupfé-
lags Austur-Skaftfelhnga.
Jón Erlingur bendir á að í búvöru-
samningnum er gert ráð fyrir að veitt
verði 218 milljónir króna til aldamóta
til vöruþróunar og hagræðingar.
Þessa fjármuni þurfi að nýta vel ef
takast eigi að renna styrkari stoðum
undir sauðfjárframleiðsluna.
„Þetta er miklu mikilvægara fyrir
kjör þessarar stéttar en menn grun-
ar. Samningurinn er í rauninni til
einskins nýtur nema mönnum takist
að viðhalda innanlandsmarkaðin-
um,“ segir Jón Erlingur.
-kaa
Skipverjar á Hábergi GK hafa aflað vel af síld undanfarið. Það hefur yfirleitt tekið þá eina til tvær nætur að fylla sig
á miðunum við Berufjarðarál. Myndin er tekin þegar þeir voru að landa fullfermi í Grindavik i vikunni.
DV-mynd Þorsteinn Kristjánsson
Hækkun stíflunnar við Laxárvirkjun:
Málið fer hugs-
anlega fyrir Al-
þingi í vetur
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þetta mál ér í biðstöðu nú í augna-
blikinu en það er ekki annað á döf-
inni en að vinna þetta mál í samráði
við heimamenn og bæði iönaðar- og
umhverfisráðuneyti og það er von á
útspih í þessu máli í vetur,“ segir
Þorsteinn Hilmarsson, upplýsinga-
fuhtrúi Landsvirkjunar, um hugsan-
lega hækkun stíflugarðsins við Lax-
árvirkjun í Þingeyjarsýslu.
Vegna mikils sandburðar í Laxá
hafa bæði Landsvirkjun og landeig-
endur í Aðaldal lagt á það áherslu
að stíflugarður Laxárvirkjunar verði
hækkaður svo að hægt sé aö safna
sandinum í uppistööulón sem þá
myndast og dæla honum þar upp.
Aðilar munu sammála um það nú
að hækkun stíflugarðsins miðist við
8 metra.
Þegar formlegar tillögur liggja fyrir
verða þær sendar Náttúruverndar-
ráði til umsagnar en komi til þessar-
ar framkvæmdar mun þurfa laga-
breytingu á Alþingi til að hægt verði
að ráðast í hana. Guðmundur
Bjamason umhverfisráðherra hefur
lýst því yfir aö hér sé alvarlegt um-
hverfismál á ferðinni þvi að sand-
burðurinn ógnar hfríki Laxár í Að-
aldal og hefur valdið miklum
skemmdum á vélum Laxárvirkjun-
ar.
Raufarhöfn:
„Hvaltannamálið“
enn til skoðunar
J
I
i
j
Seinheppnir riðubændur í Borgarfirði eystra:
Nýju lömbin beint í
sláturhúsið vegna
gruns um riðu
„Það er nú ekki svo slæmt að það
hafi fundist riða en það vöknuðu
grumsemdir um riðu þarna og það
þýddi að stöðva varð fjárflutningana
norður," segir Sigurður Sigurðarson,
dýralæknir á Keldum, vegna sein-
heppinna bænda á Austurlandi sem
voru að byggja upp fjárbú sitt að
nýju eftir niðurskurð sem gerður var
á fé þeirra fyrir tveimur árum.
Um er að ræða fjárbúiö að Desjar-
mýri í Borgarfirði eystra en bænd-
umir höfðu fengið fé úr Skaftár-
hreppi, svæði sem talið var öruggt.
Ekki viidi betur til en sVo að þegar
fyrri fjárbílhnn af tveimur með um
80 lömbum var kominn norður þá
vöknuðu grunsemdir um riðu á hinu
„örugga" svæði. Því var ekki um
annað aö ræða en aö skera niður
hinn nýja stofn. „Við reynum að sjá
th að menn fái ömggt fé og þar sé
enginn vafi. Þess vegna voru frekari
flutningar úr hreppnum stöövaðir og
lömbunum sem búið var að flylja
slátrað. Sem betur var enn hægt að
fá líflömb í staðinn úr Öræfum og
af Ströndum annað fé,“ segir Sigurð-
ur.
Grunur um riðu er tilkominn
vegna sýna sem tekin voru úr heila
við slátran. Sigurður segir að um-
ræddur fjárstofn hafi ekki sýnt nein
ytri einkenni um riðu. Hann segir
að nú verði reynt að komast til botns
í því hvort grunur um riöu sé raun-
hæfur.
-rt
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þetta mál er ekki komiö upp á
hillu en ég hef að undanfórnu veriö
að leita skýringa á því frá Ríkisút-
varpinu hvaða reglur gilda þar um
fréttaflutning, hvort menn geti átölu-
laust komið þar fram með persónu-
legt níð og ásakanir um ólöglegt at-
hæfi án þess að grafist sé fyrir um
sannleiksgildið," segir Gunnlaugur
M. Júlíusson, sveitarstjóri á Raufar-
höfn, um „hvaltannamálið" svokall-
aöa sem þar kom upp í sumar.
Gunnlaugur var þá sakaður um að
hafa ásamt öðrum manni stolið tönn-
um úr búrhval sem rak á land
skammt frá Raufarhöfn. Landeig-
andinn þar sem hvahnn rak lýsti því
yfir að mennirnir hefði stohö tönn-
unum en eftir að í ljós kom á mynd-
bandi að hann var viðstaddur þegar
tennurnar voru teknar úr hvalnum
féll hann frá ákæm um þjófnaðinn.
Varðandi það hvort Gunnlaugur
hygðist höfða meiðyrðamál af þessu
thefni sagði hann að þaö væri th
skoðunar og hann sæi í augnablikinu
enga ástæðu til að láta málið niður
faha.
Raufarhöfn:
Iþróttahúsið senn í notkun
Gylfi Kristjánsson, DV, Akiireyn:
„Það verður auðvitað gjörbylting
hér hvað varöar íþróttakennslu og
æfmgar með thkomu hússins," segir
Gunnlaugur M. Júhusson, sveitar-
stjóri á Raufarhöfn, en á næstu dög-
um taka Raufarhafnarbúar í notkun
nýtt íþróttahús.
íþróttakennsla hefur th þessa farið
fram í félagsheimihnu Hnitbjörgum
við erfiðar aðstæður en nýi salurinn,
sem er 22x30 metrar að stærð, mun
gjörbreyta allri aðgtöðu til íþrótta-
iðkunar. íþróttahúsið er tengt sund-
laugarbyggingunni og búningsklefar
verða samnýttir.
Gunnlaugur segir aö þessa dagana
sé verið að leggja lokahönd á fram-
kvæmdir við húsið, mála og vinna
við tréverk og gólfefni verður lagt í
næstu viku. Það er því mjög stutt í
að húsið verði tekið í notkun en
formleg vígsla þess verður síðar.