Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1995, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995
Allir Opel bílar eru fáanlegir meb fullkominni 4 gíra sjálfskiptingu,
sem búin er spólvörn, sparnaöarstillingu og sportstillingu.
Kalkúnaveisla í Perlunni:
Breytingar
ákaffi-
teríunni
S„Okkur fannst vera kominn
tími til þess breyta örlítið kafli-
R teríunni á fjórðu hæðinni og
erum famir að bjóða upp á litl-
ar pitsusneiðar, smásteikur og
djúpsteikta osta. Þetta erum við
að bjóða á góöu verði,“ segir
Stefán Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Perlunnar. Stef-
án segir að alla helgina verði
kalkúnaveisla vegna þakkar-
gjörðarhátíðarinnar og þar
verði 20 fermetra borð hlaðið
krásum. Hann segir íslendinga
mjög áhugasama um þessa
kalkúnaveislu en einnig hafi
verið farið af stað með það á
sinum tíma fyrir Ameríska
vinafélagið.
„Við erum nú á fullu að und-
irbúa jólahlaðborðið hjá okkur
sem byrjar 30. nóvember en það
hefur gert gífurlega lukku. Við
erum með heimsklassamenn í
matar- og brauðgerð og af því
erum við mjög stoltir. Á jóla-
hlaðborðinu hefur hver og einn
borðið sitt allt kvöldið og verð-
ið fyrir manninn er 2.970 krón-
ur,“ segir Stefán. -sv
Mýrdalssandur ófær:
Margir
biðu í
Víkurskála
Vegurinn um Mýrdalssand
var ófær í allan gærdag vegna
sandfoks og undir kvöld biðu
um 20 manns í Víkurskála í Vík
eftir aö veður lægði og hægt
væri að aka austur úr.
f rokinu síöustu daga hafa
orðið skemmdir á lakki bila
vegna sandfoksins og var fólki
eindregið ráöið frá að fara veg-
inn um sandinn þótt ekki væri
honum formlega lokað. -GK
Jóhannes Jónsson í Bónusi færði í gær Barnaspítala Hringsins tæki að gjöf til skoðunar á eyrum og augum barna.
Tækin voru keypt fyrir peninga sem safnast hafa í pokasjóð fyrirtækisins og er heildarverðmæti gjafarinnar metið á
500 til 600 þúsund krónur. Með Jóhannesi á myndinni eru læknarnir Sigurður Þorgrímsson, Ásgeir Haratdsson, Þrá-
inn Rósmundsson og Leifur Bárðarson. DV-mynd Sveinn
| Ford Transit - kominn aftur til
Iíslands. DV-mynd Brynjar Gauti
Evrópusambandið:
Styrkja þarf
hin pólitísku
tengsl
- segir Halldór Ásgrímsson
„ísland fer með formennsku í
EFTA og EES á næsta ári og
verður þá tækifærið notaö til að
styrkja hin pólitísku tengsl við
Evrópusambandið og ríki þess
og reyna eftir megni að auka
áhrif okkar,“ sagði Halldór Ás-
grimsson, formaður Framsókn-
arflokksins á miðstjómarfundi
flokksins sem hófst í gærkvöld.
Halldór sagði það stefnu rík-
| isstjórnarinnar að treysta sam-
skiptin við Evrópusambandið
l (ESB) á grundvelli EES. Engu
Iður væri brýnt að fylgjast
með framþróuninni í ESB
ár mikilvægdt að eyða van-
ingu um sérhagsmuni ís-
> meðal aðildarríkjanna.
ræðu sinni kom Halldór
við og sagði meðal annars
'axandi kostnaður stjórn-
flokka við kosningaundir-
ng væri mikið umhugsun-
ii. Þá sagði Halldór að
ingaloforðið um 12 þúsutid
törf fyrir aldamót væri í
ýn. Rekstrarform ríkis-
a sagði Halldór ekki í sam-
i við nútimaviðskiptahætti
ijónustugjöld sagði hann
ívæmileg ef menn vildu
hækka skatta. -kaa
Kalkúnaveisla verður í Perlunni
alla helgina vegna þakkargjörð-
arhátíðarinnar.
Tilhæfulausar sögur um sjálfsvíg:
Verst að fólki
bregður mikið
- segir Hafsteinn Númason
Transit hjá
Brimborg
í dag
Eftir langa flarveru af ís-
lenskum bílamarkaði er þýski
sendibfllinn Ford Transit kom-
inn aftur. Fordumboðið Brim-
borg mun halda sýningu á þess-
um vinnuþjörkum í dag, laug-
ardag, auk þess sem bílarnir
| verða til sýnis á almennum af-
greiðslutíma eftir helgi.
Ford Transit er tfl í fjölmörg-
mn útfærslum, sem sendibfll
Imeð og án glugga og sem pall-
bíll, og verða nokkrar gerðir
hans sýndar.
Sýningin í dag er í sýningar-
sölum Brimborgar í Skeifunni
15 og er opin frá 12-16.
„Menn hafa sent símbréf um borð
í skip til að láta vita af þessu, fólk
hefur hringt miður sín í ættingja
mína og kunningja og það hefur ver-
ið hringt heim tfl mín, spurt eftir
mér og tólið lagt á þegar ég hef kom-
ið í símann. Þetta veldur ónæði en
það skiptir minnstu. Það er verst
hvað fólki bregður mikið við að
Hafsteinn Númason
heyra þessa tilhæfulausu sögu,“ seg-
ir Hafsteinn Númason sem komst í
fréttir í janúar eftir að snjóflóð féll á
Súðavík.
Undanfarinn hálfan mánuð hafa
gengið sögusagnir um að Hafsteinn
Númason hafi framið sjálfsvíg. Haf-
steinn segist ekki vita nákvæmlega
hversu margar útgáfur séu í gangi.
Hann segist bara hafa heyrt að ein
útgáfan gangi út á það að Hafsteinn
Númason hafi framið sjálfsmorð
með því að hengja sig.
„Það má segja að ég hafi orðið
landsfrægur í framhaldi af mjög
sorglegum atburði. í framhaldi af
því höfum við fengið óskaplega
mikla hluttekningu og margir hafa
hugsað vel til okkar. Þegar fólk fær
þessar fréttir verður það rosalega
slegið og það er leiðinlegt. Ég get
sjálfur vel lifað með þessa sögu á
bakinu en það er leiðinlegra fyrir
aðra,“ segir Hafsteinn.
Trausti Jónsson veðurfræðingur
varð fyrir svipaðri reynslu fyrir
tæpum tólf árum þegar sú saga gekk
Trausti Jónsson
um allt land að hann hefði dáið úr
illkynja sjúkdómi. Söguburðurinn
gekk svo langt að fólk var farið að
hringja í ættingja hans til að votta
samúð sína og ákvað Trausti því að
binda enda á söguburðinn.
„Dagblaðið birti mynd af mér í
minni vinnu og þar með var þetta
fallið um sjálft sig. Ég hlaut að vera
á lífi úr því að ég sagðist vera það
en ég neita því náttúrlega ekki að ég
hef stundum spekúlerað í því hvort
ég hafi raunverulega dáið, hvort
þetta sé bara misskilningur í mér,“
segir Trausti. -GHS
Verkamajinafélagið Hlíf í Hafnarfirði:
Bréf til Isals fara líka
til aðalstöðvanna í Sviss
- virðist bera góðan árangur, sagði Sigurður T. Sigurðsson
„Okkur hefur fundist að skilaboð
frá okkur, sem farið hafa til yfir-
manns ísals hér á landi, hafi aldrei
náð eyrum manna í aðalstöðvum
Alusuisse Lonza í Sviss, sama hvert
málið er. Það er eins og það hafi ver-
ið spiluð önnur plata hér heima en
þar úti. Þetta er grunur sem við höf-
um haft. Til að fyrirbyggja allan
misskilning höfum við ákveðið að í
framtíðinni sendum við stjóm og
öðrum forsvarsmönnum ísals bréfin
og sömuleiðis stjórnarformanni
Alusuisse Lonza og öllum stjórnar-
mönnum bréfin, þýdd yfir á ensku
af löggiltum þýðendum. Það á því
ekki lengur að fara neitt á milli
mála hvað það er sem Christian
Roth forsfjóri fær í hendumar. Við
höfúm gert þetta einu sinni vegna
ákveðinnar innanhússdeflu. Við
teljum að það hafi borið ótrúlega
góðan árangur," sagði Sigurður T.
Sigurðsson, formaður Verkamanna-
félagsins Hlífar í Hafnarfirði.
ÐV hefur undir höndum bréf,
bæði á íslensku og ensku, þar sem
formaður Hlifar kvartar til forstjóra
ísals yfir framkomu yfirmanns í
steypuskála. Sá vinnur verka-
mannastörf og teppir þannig eitt
starf verkamanns í steypuskálan-
um. Kvartar trúnaðarmaður Hlifar
til félagsins yfir því að viðkomandi
yfirmaður sýni sér óvild og lítils-
virðingu þegar hann hefur fundið
aö þessu. Kvörtun trúnaðarmanns-
ins er tflgreind í bréfinu.
Það er þetta umrædda bréf sem
Hlíf sendir nú bæði á íslensku og
ensku til réttra aðila hér heima og
til aðalstöðva Alusuisse Lonza í
Sviss. -S.dór