Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1995, Blaðsíða 20
20
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995 JjV
Fordstúlkan 1995 á leið til Las Vegas:
spennt
kvíðin
- segir Þórunn Þorleifsdóttir
Þórunn Þorleifsdóttir, Fordstúlkan
1995, fer á mánudag til Las Vegas þar
sem hún mun taka þátt í keppninni
Supermodel of the World. Sem fyrr verð-
ur keppnin afar glæsileg en stúlkurnar
munu búa á Hard Rock hótelinu þar sem
keppnin mun einnig fara fram. Úrslita-
kvöldið verður á flmmtudagskvöldið í
fallegum sal á hótelinu sem heitir The
Joint og verður sjónvarpað þaðan.
Þá daga sem stúlkumar dvelja í þess-
ari frægu spilavítaborg munu þær skoða
sig um í fylgd öryggisvarða en mikið er
lagt upp úr öryggi stúlknanna. Þetta er i
fyrsta skipti sem keppnin fer fram í Las
Vegas, í fyrra fór hún fram á Hawaii en
nokkur ár þar á undan í Flórída.
Þórann, sem er 181 sm á hæð og 57
kíló, verður meðal um 40 keppenda frá
hinum ýmsu löndum. „Ég er bæði
spennt og kvíðin,“ sagði Þórunn í sam-
tali við DV. Hún hefur stundað líkams-
rækt af miklum krafti undanfarið til að
búa sig undir þetta mikla kvöld.
Fór til Parísar
Þórunn hefur mikinn áhuga á fyrir-
sætustörfum og segist vel geta hugsað
sér að starfa viö þau í útlöndum. Hún fór
til Parísar sl. sumar í myndatökur fyrir
keppnina og var henni þá boðið að koma
næsta sumar til starfa. „París virkaði á
mig sem heillandi borg og þar gæti ég
vel hugsað mér að starfa," sagði hún.
„Það gekk mjög vel i París og mér fannst
skemmtilegt að fá að kynnast þessum
heimi. Ljósmyndararnir voru þó mis-
jafnir.“
Þórunn hefur aldrei áður komið til
Bandaríkjanna og sagðist hlakka til að
koma þangað. Hún mun millilenda í
Baltimore á leið sinni til Las Vegas og
sagði að þetta yrði örugglega spennandi
ferðalag. hún hefur rætt við Elísabetu
Davíðsdóttur, sem vann keppnina 1994,
og fengið upplýsingar sem koma henni
að gagni. Elísabet hefur starfað í London
að undanfornu en hún hefur gert það
gott i fyrirsætuheiminum frá því hún
vann Fordkeppnina hér heima.
Tók frí frá skóla
Þórunn er aðeins sextán ára gömul og
telur sig kannski fullunga til að fara út í
heim til að vinna. Hún er þó þroskuð og
sjálfstæð, eins og móðir hennar sagði í
viðtali við DV eftir sigur hennar í vor.
Þórunn hefur stundaö nám í Mennta-
skólanum við Hamrahlið en tók sér frí í
haust til að geta farið í keppnina. Það
ætti varla að skaða því hún hefur verið
einu ári á undan sínum jafnöldrum í
náminu. „Ég byrja aftur eftir áramótin,"
sagði hún. „Ein önn skiptir ekki öllu
máli.“
Þórunn hefur starfað með Módel 79 og
hefur bæði verið á sýningum og í auglýs-
ingum. Hún segir þó markaðinn lítinn
hér á landi og meira spennandi að fara
til útlanda.
í átta ár bjó Þórunn með foreldrum
sínum og þremur systkinum í Svíþjóð,
þar sem móðir hennar var í læknanámi,
en þau fluttust heim þegar hún var tólf
ára gömul.
Foreldrar Þórunnar eru Guðný
Bjamadóttir og Þorleifur Hauksson mál-
fræðingur. Þórunn sagði foreldra sína
óvenjurólega yfir þessari ferð hennar.
„Þau treysta mér. Móðir mín hefur sagt
mér til um hvernig ég eigi að haga mér
þar sem ég millilendi í Baltimore svo ég
held að þetta eigi allt eftir að gangá vel.“
Sú stúlka sem kemst í keppnina
Supermodel of the World er ákaflega
heppin því færri komast í hana en vilja.
Fordkeppni er haldin í flestum löndum
heims og yfirleitt fer valið fram á sama
hátt og hér á landi, þ.e.a.s. að stúlkur
senda myndir af sér í keppnina. Starfs-
fólk Ford Models í New York sér um að
velja sigurvegara hvers lands og er sá
sigur um leið ávísun á þátttöku í
Supermodel of the World.
Glæsileg verðlaun
Vinningshafi þeirrar keppni þarf ekki
að örvænta því fyrstu verðlaun er samn-
ingur viö Ford Models upp á fimmtán
milljónir króna. Einnig hefur sigurveg-
arinn fengið glæsilega skartgripi. Stúlk-
umar, sem lenda í sex efstu sætunum,
hafa venjulega allar verið öruggar um að
komast á samning hjá Ford Models ef
þær kæra sig um - hvort sem er í París,
London, Þýskalandi, Japan eða New
York.
Á hverjum degi kemur fjöldinn allur
af stúlkum á Ford Models skrifstofuna í
New York og óskar eftir vinnu. Mörg
hundruð bréf og myndir berast þangað
einnig í viku hverri. Aðeins fáar útvald-
ar stúlkur komast í hið langþráða fyrir-
sætustarf.
Supermodel-keppnin hefur verið hald-
in á hverju ári frá árinu 1980. Eileen
Ford, eigandi Ford Models, er brautryðj-
andi á sviði fyrirsæta í heiminum og
einnig með fyrirsætukeppni. Hún átti
hugmyndina að því að setja upp keppni
með ungum stúlkum víðs vegar um
heiminn og gefa þeim tækifæri til að
spreyta sig í fyrirsætustörfum. Fyrsta
keppnin var haldin í Mónakó en það er
jafnframt eina keppnin sem haldin hefur
Fallegar Fordstelpur
Þorunn Þorieifsdottir fer til Las Veg-
as á mánudag þar sem hún verður
þátttakandi íslands í keppninni Su-
permodel of the World. Þórunn er
181 sm há.
DV-mynd GVA
verið í Evrópu. Sjálf ferðast
Eileen Ford um allan heim í
leit að fyrirsætum eða hinu
eina sanna X-útliti eins og hún
orðar það sjálf.
Eileen Ford kom hingað til
lands fyrir fjórum árum og
valdi þá Birnu Bragadóttur
sem Fordstúlku. Birna tók síð-
an þátt í Fegurðarsamkeppni
Islands árið 1994 og hafnaði í
öðru sæti. Hún var kjörin ung-
frú Norðurlönd árið 1994. Marg-
ar af þeim stúlkum sem tekið
hafa þátt í Fordkeppninni hafa
tekið þátt í Feguröarsamkeppni
íslands og gengið vel. Svava Har-
aldsdóttir tók t.d. þátt í Ford-
keppninni árið 1990 og var kjör-
in ungfrú ísland árið þar á eft-
ir. Þórunn Lárusdóttir var í
Fordkeppninni árið 1991, tók
þátt í Fegurðarsamkeppni ís-
lands 1992 og hafnaði í öðru
sæti. Hún var kjörin ungfrú
Norðurlönd sama ár. Hrafn-
hildur Hafsteinsdóttir tók
þátt í Fordkeppninni árið
1993 og var kjörin ungfrú
ísland 1995. Berglind
Ólafsdóttir tók einnig
þátt í Fordkeppninni
árið 1993 og í Fegurðar-
samkeppni íslands árið
1995. Hún hlaut titil-
inn ungfrú Reykjavík
á þessu ári. Fleiri
Fordstúlkur hafa
tekið þátt í Feg-
urðarsamkeppni
þannig að segja
má að Ford-
keppnin gefi
stúlkum
margvísleg
tækifæri til
að koma
sér
fram-
færi.
ELA
Er bæd