Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1995, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1995, Blaðsíða 11
DV LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995 11 Til staðar er þekking til að greina þegar hættuástand skapast en það sem hefur verið vandamálið er að yfirvöld hafa ekki áttað sig á stærð hættunn- ar. Frá Flateyri þar sem snjóflóð lagði stóran hluta byggðar, utan hættusvæða, í rúst. Hörmulegir atburöir á Vest- fjörðum, þar sem snjóílóö hafa í þrígang grandaö fjölda manns í þéttbýli, þafa vakið áleitnar spumingar um þaö hvort ekki megi draga úr stórslysum á borð við þau sem átt hafa sér staö. Stærsta slysið, og jafnframt það sem er næst fólki í minningunni, varð á Flateyri þann 26. október síðastliðinn þegar tuttugu manns féllu í valinn. Það sem er átakan- legast við bæði Súðavíkurslysið og Flateyrarslysið níu mánuðum síðar er að í báðum tilvikum var hættan þekkt og við henni brugð- ist. í Súðavík var Traðargilssvæð- ið rýmt en mannskæðasta flóðið féll á Túngötu, Nesveg og Aðal- stræti þar sem fólk var granda- laust fyrir yfirvofandi hættu. Á Flateyri var Ólafstún og hluti af Goðatúni rýmt en snjóflóðið féll með mestum þunga á Hjallaveg, Tjarnargötu og Unnarstíg sem voru götur sem taldar voru taldar utan hættumarka. Glórulausar bygginga- framkvæmdir Norski snjóflóðafræðingurinn Erik Hestnes kom á Vestfirði, eins og DV skýrði frá. Hann fór m.a. til Flateyrar þar sem hann hitti heimamenn að máli og skoðaði varnir fyrir ofan staðinn. Niður- staða hans varð, eftir að hafa skoðað sig um, að ekki væri glóra í þeim byggingaframkvæmdum sem átt höfðu sér stað. Hann skynjaði jafnframt að á Flateyri væri mikil snjóðflóðahætta. I skýrslu, sem hann gaf út eftir for sína og sendi m.a. til íslands, sagði hann að íslendingar ættu al- mennt eftir að þurfa að taka af- leiðingum af því háttalagi sínu að byggja hugsunariaust upp um hlíðar. Skýrsla Hestnes er gefin út undir merkjum stofnunar Norges geotekniske institutt sem er virt visindastofnun. Gallinn var bara sá að skýrslan var hvergi kynnt nema í þröngum hópi sem ekki bar hana á torg. Fólk sem bjó á snjóflóðahættusvæðum frétti því ekki af þessu mati Norðmannsins fyrr en DV sagði frá því og vitnaði í hana. Það er engin spurning að skýrslan átti erindi árið 1985 til þess fólks sem taldi sig búa við umtalsvert öryggi en ekki í bein- um háska. Pólitískt hættumat Það var djarfmannlegt af Magn- úsi Jónssyni veðurstofustjóra þeg- ar hann lýsti því yfir í samtali við DV að hann teldi hættumat vegna snjóflóða vera á villigötum hér- lendis og að það byggðist að miklu leyti á pólitískum málamiölunum. Þessi yfirlýsing hans er því miður rétt, það hefur skoðun DV á sögu snjóflóða, svo sem á Flateyri, sýnt. Reynir Traustason Erik Hestnes birtir í skýrslu sinni myndir frá Flateyri og ofan í mynd af byggðarlaginu var hann búinn að draga rautt strik sem hann taldi sýna útbreiðslu snjó- flóða frá 1974. Þetta strik nær langt út fyrir þá hættulínu sem farið var eftir á staðnum og stór hluti þeirra húsa, sem urðu snjó- flóðinu mikla í október að bráð, voru innan þess svæðis sem Hest- nes sagði vera útbreiðslusvæði þekktra snjóflóða. Rétt mat Norðmannsins Það er ekki spurning í dag að mat Hestnes var rétt ef miðað er við þau flóð sem þekkt eru. Guð- mundur Valgeir Jóhannesson, aldraður íbúi á Flateyri, sem þar hefur búið allt sitt líf, lýsti því í samtali við DV hvernig snjóflóð féll yfír kirkjugarðinn og hreif leg- stein bróður hans með sér alla leið á mitt það svæði þar sem mesti skaðinn varð að þessu sinni. Snjóflóðið sem hann lýsti féll árið 1953 en heimildir um það voru ekki til grundvallar hættulínunni sem lá um kirkjugaröinn. Fleiri íbúar hafá staðfest að snjóflóð hafi fallið langt niður fyrir hættu- mörkin. Það hlýtur því að vera full ástæða til að spyrja hvað hafi brugðist og hvers vegna hættumat var svo víðs fjarri því að endur- spegla raunverulega hættu. Hvað var það sem Norðmaðurinn sá en ekki þeir íslendingar sem mátu hættuna á staðnum. Hættulínur með hlykkjum í reglugerð um hættumat segir að byggt skuli á þekktum snjóflóð- um þegar matið fer fram. Þetta hefur ekki orðið raunin og svo virðist sem þeim sem stóðu að upplýsingaöflun hafi ekki verið kunnugt um þau flóð sem fallið hafa. Nú er það auðvitað svo að ekki er hægt að snúa hjóli tímans til baka og leiðrétta þau mistök sem bersýnilega hafa verið gerð. Þaö er þó jafn ljóst að rangt hættu- mat er ekki aðeins á Flateyri held- ur er varla spuming um að það er mun víðar þar sem snjóflóðahætta er á annað borð. Á Siglufirði eru sagnir um snjóflóð sem fallið hafa fyrr á árum niður í fjöru. Sam- kvæmt frásögn aldraðs Siglfirð- ings, sem þar bjó um áratuga- skeið, féll flóðið um svæði þar sem ekki var byggð á fjórða áratugn- um. Nú er búið að byggja upp þetta svæði og ekki áform um að skilgreina það sem hættusvæði. Það má velta fyrir sér ástæðum þess að undarlegir og rakalausir hlykkir verða til á hættumati ein- stakra byggðarlaga. Trúlega er ástæðan eingöngu sú að fólk kall- ar ekki yfir sig hættumat og verð- fellingu eigna sinna ef það kemst hjá því. Stundarhagsmunir hafa því ýtt vísindum og sögu til hlið- ar. Málið er í raun mjög einfalt frá sjónarhorni fjölskyldu sem á von á því að heimilið verði dæmt á hættusvæði. Hinn harði dómur hættumatsins Hinn harði dómur hættumats- ins gerir húseignir verðlausar á svipstundu og setur fjárhaginn í uppnám. Þetta er fyrirsjánlegt á meðan snjóflóð er ekki sjáanleg ógn og í mörgum tilvikum fráleit að mati þeirra sem á meintum hættusvæðum búa. Þetta leiðir svo af sér að fólk verst hættumati ef það hefur aðstöðu til þess. Það er í raun ósköp einfalt að hugsa málið sem svo að vísindin séu svo skammt á veg komin að þau geti ekki metið af neinu viti hvort um raunverulega ógn sé að ræða. Á þeim forsendum sé full ástæða til að berjast gegn „rauðu hættunni" sem stafar af hættumatinu. Þetta leiðir síðan af sér þrýsting á sveit- arstjórnir og fulltrúum er upp- álagt aö stuðla að „heppilegu hættumati". Það er í raun aðeins ein leið til að tryggja öryggi fólks á hættu- svæðum. Hún er sú að íbúarnir sjálflr hafi aðeins rétt til umsagn- ar á fyrstu stigum matsins en eft- ir það hafi vísindamenn alfarið með matið að gera. Það er mjög at- hyglisvert að í Noregi eru sveitar- félög að lögum ábyrg fyrir þeim byggingum sem reistar eru á hættusvæðum. Um þetta atriði hafa dómar fallið og slík lagasetn- ing er góð trygging til þess að byggingar rísi ekki þar sem hætta er á náttúruhamförum. Um leið og búið er að gera sveitarfélögin ábyrg minnkar sú spenna sem er í samskiptum sveitarstjórna og þeirra aðila sem hafa með hættu- mat að gera. Um leið verður slíkt hvati til að sannreyna hvort um þekkt flóð sé að ræða í stað þess að láta kyrrt liggja. Uppkaup varla raunhæf Það vandamál sem eftir stendur vegna glórulausra framkvæmda síðustu áratuga stendur þó auðvit- að enn eftir. Þar er í raun ekkert hægt að gera annað en kortleggja hættuna og þá af alvöru og kenna fólki að lifa með henni. Uppkaup á húsum fyrir allt að 10 milljarða króna eru vart raunhæf; að minnsta kosti ekki ef til skemmri tíma er litið. Til staðar er þekking til að greina þegar hættuástand skapast en það sem hefur verið vandamálið er að yfirvöld hafa ekki áttað sig á stærð hættunnar. Það sýndi sig bæði á Flateyri og í Súðavík. Það má ekki gerast að fleiri stórslys dynji á þjóðinni vegna hættumats sem veitir falska öryggiskennd. Hættumat sem byggist á raunverulegri hættu verður að gera þar sem snjóflóða- hætta ógnar íbúum. Þá verður aö hætta byggingum á þekktum snjó- flóðasvæðum og grípa til vama þar sem slíkt er raunhæft.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.