Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1995, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1995, Side 6
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995 Opinberir starfsmenn mótmæla aöhaldsáformum: Frakkland lamað vegna verkfalls stuttar fréttir Fleiri krabbatilfelli Skráðum tilfellum brjósta- krabba í Englandi og Wales hef- ur fjölgað mjög eftir að byrjað var að skoða konur reglulega en dauösföllum hefur fækkað. Mágkonan í dópi Mágkona Salinas, fyrrum Mexíkóforseta, hefur verið handtekin í Sviss vegna rann- sóknar á dópsmygli og peninga- þvætti. Nygren ekki fram Jan Nygren, samhæfing- arráðherra Svíþjóðar, | stendur fast I við þá ákvörðun sína að bjóða sig ekki fram til formanns | í Jafnaðarmannaílokknum og því heldur leitin að arftaka Ingvars Carlssonar áfram. Brúðkaupið vinsælt Sjónvarpsútsending frá brúð- kaupi Jóakims Danaprins og j Alexöndru Manley naut mikilla | vinsælda víða um Evrópu. Framseld frá Noregi Norsk stjórnvöld staðfestu í í gær fyrri ákvörðun um að fram- selja palestínsku konuna Aouhaila Andrawes tU Þýska- lands vegna flugráns árið 1977. Nýir stólar í ráðhús Nýir stólar verða settir í ráð- hús Óslóar fyrir úthlutun frið- arverðlauna Nóbels 10. desem- ber. Rupluðu og rændu Tvö hundruð bosnískir her- menn fóru ruplandi og rænandi um bækistöð SÞ í norðvestur- hluta Bosníu í gærmorgun. Kohl brýnir klærnar Helmut Kohl Þýska- landskansl- ari tók ofan silkihansk- ana í gær þegar hann sagði 1 fyrsta. sinn álit sitt á formannsskipt- unum í þýska Jafnaðarmannaflokkn- um. Kohl sagðist aldrei hafa orðið vitni að jafn miklum öm- urlegheitum í þýskum stjórn- málum. Berlusconi skoðaður Silvio Berlusconi, fyrrum for- Isætisráðherra Ítalíu, sagði í gær að hann væri undir smásjá dómara vegna ólöglegrar fjár- mögnunar stjórnmálaflokks. Louis Malle látinn Franski kvikmyndaleikstjór- inn Louis Malle lést á heimUi sínu í Kaliforníu í gær. Hann þjáðist af krabbameini. Reuter, TT, Ritzau, NTB iwrWlfMWWirMWWaWMMMBWMMWWM Bensín lækkar um 4 dollara Nokkrar 'breytingar hafa orðið á bensínverði á erlendum mörkuðum undanfarna viku. 92ja oktana og 98 oktana bensín hefur lækkað um Uóra dollara eða jafngildi tæplega 260 króna. Litlar sem engar breyt- ingar hafa orðið á verði hráolíu. Viðskipti í kauphöllum erlendis hafa staðið í blóma að undanfornu. Hlutabréfavísitalan í New York hef- ur hækkað lítillega í vikunni og sama gildir í kauphöllinni í Hong Kong. Vísitalan í Lundúnum, Frankfurt og Tókýó hafa hingað lækkað ef eitthvað er. Engar upplýsingar hafa borist um verð á sykri og kaffi. Reuter Flug- og járnbrautarsamgöngur lömuðust að mestu í Frakklandi í gær og mikil röskun varð á annarri opinberri þjónustu þegar opinberir starfsmenn efndu til sólarhrings- verkfalls til að mótmæla fyrirhug- uðum aðhaldsaðgerðum stjórnvalda. Tugþúsundir mótmælenda gengu um götur Parísar og annarra borga landsins. Tvö stærstu verkalýðsfélög Frakklands boðuðu allsherjarverk- fall næstkomandi þriðjudag en Ala- •in Juppé forsætisráðherra gaf til kynna að hann mundi hvergi hvika Hætt er við að Jóakim Danaprins og Alexöndru prinsessu fallist hend- ur þegar þau koma heim úr brúð- kaupsferðinni og sjá allar gjafirnar sem bíða þeirra. Þúsund gjafir, eða þar um bil. Enda hafa starfsmenn hirðarinnar haft í nógu að snúast undanfarna daga. Þeir hafa tekið á móti rúmlega átta hundruð gjöfum og 160 var komið beint til Schacken- borgarkastala á Jótlandi þar sem ungu hjónin munu búa. Hulunni hefur nú verið svipt af gjöfunum. Foreldrar brúðgumans, frá áformum um yfirhalningu á vel- ferðarkerfinu og um að láta opin- bera starfsmenn greiða lengur í líf- eyrissjóði til að öðlast réttindi til eftirlauna. Milljónir manna lentu í miklum erfiðleikum við að komast til vinnu í gærmorgun þar sem lestir og strætisvagnar gengu mjög skrykkj- ótt. Miklir umferðarhnútar mynd- uðust á helstu þjóðbrautum inn til Parísar, sumir allt að tuttugu kíló- metra langir. Skólum, sjúkrahúsum, pósthús- um og öörum þjónustufyrirtækjum Margrét Þórhildur drottning og Hin- rik prins, gáfu unga parinu tvo for- láta rókókóstóla frá 18. öldinni og Ingríður drottningarmóðir gaf þeim mahónískrifborð sem verður komið fyrir í bókaherbergi Schackenborg- ar. Friðrik krónprins gaf bróður sínum og mágkonu forláta mynd, Pixi Botanicus, með blómum og kóngulóarvef sem á að tákna ástar- innar sterku bönd.. Fjölskylda Al- exöndru gaf þeim te- og kaffisett, með sykurkari og rjómakönnu, á stóru silfurfati. Norsku konungs- var ýmist lokað eða þá að starfsemi þeirra var í lágmarki vegna verk- fallsins. „Af hverju ætla þeir að láta fólk vinna lengur þegar milljónir manna eru á atvinnuleysisskrá?" spurði líffræðikennari sem tók þátt í mótmælagöngunni í París, þar sem rokkhljómsveitir sungu lög gegn forsætisráðherranum. „Og ungling- arnir vilja heldur ekki láta gaml- ingja kenna sér.“ Juppé seinkaði ferð sinni til Bor- deaux, þar sem hann er borgar- stjóri, til að ræða við Chirac forseta um ástandið. Reuter hjónin gáfu fallegt silfurfat með fangamarki Haralds og Sonju, svo og kertastjaka, en gænlenska land- stjórnin gaf hjónakornunum loð- feldi. ' Af öðrum gjöfum má nefna tvo bíla, loftræstikerfi fyrir kastalann, nýjar baðinnréttingar og heildar- safn geisladiska rokksveitarinnar Shu- Bi-Dua, frá tónlistarmönnun- um sjálfum. Að ógleymdu öllu vín- inu, o.s.frv., o.s.frv. Ritzau Díana með helj- artök á bresk- um fjölmiðlum Engin kona hefur verið jafn ráðandi í fyrirsögnum breskra dagblaðá frá því Margar- et Thatcher sagði af sér forsætisráð- herra- emb- ættinu fyrir fimm árum | og Díana prinsessa er nú. Og engin hefur valdið jafn mikilli undrun með- al ráðandi stétta. Það byrjaði með viðtalinu á mánudagskvöld þar sem hún viðurkenndi framhjáhald og sakaði þá sem ráða ríkjum í Buckinghamhöll um að skjóta skjólshúsi yfir óvini sína. Tutt- ugu milljón Bretar horfðu á við- talið í fortmdran. Díana var á hvers manns vör- um og jafnvel þótt hún sé nú í opinberri heimsókn í Argent- inu halda deilurnar um hana áfram á síðum fjölmiðlanna heima í Bretlandi. Og enn er ; beðiö opinberrar yfirlýsingar Karls ríkisarfa um viðtal ára- tugarins, eins og viðtalið við Díönu hefur verið kallað. Jólasveinninn á Grænlandi send- ur\ rannsókn Umboösmaður neytenda í Danmörku hefur ákveðið að taka jólasveininn á Grænlandi og barnaklúbb hans tU rann- sóknar eftir kvartanir frá for- eldrum nokkurra sex ára barna. Að sögn útvarpsins á Græn- landi fengu bömin sent bréf frá sveinka sem í var giróseðill. Kvartanir foreldranna snúast um það að þeim finnst bréfið kunna að þvinga börnin til að kaupa gjafakassa sem sagt er frá í því. í kassanum er að finna viðurkenningarskjal, bók og púsluspU. Foreldramir vísa til þess að samkvæmt lögum sé bannað að nýta sér trúgirni barna í gróðaskyni. Gróðurhúsaáhrif geta stöðvað Golfstrauminn Hækkandi hitastig á jörðinni af völdum gróðurhúsaáhrifanna svoköUuðu getur orðið tU þess að Golfstraumurinn stöðvist. Ef það gerist mun meðalhitinn á noröurhveli jarðar lækka um fjórar til fimm gráður með tU- heyrandi afleiðingum fyrir landbúnað. Það er danskur vísindamað- ur, Torben Fronval, sem dregur upp svona dökka mynd í dokt- orsritgerö sem hann mun verja við háskólann í Bergen i næstu viku. Hann studdist við rann- sóknir á hitastigsbreytingum á fyrri miðísöld. B Leeson með hvítflibbakrimm- um í klefa Breski verðbréfa- salinn Nick Leeson, sem er ákærður fyrir að hafa sett hinn virðu- lega Bar- ings- fjárfestingabanka á haus- inn með braski sínu, var fluttur í öryggisfangelsi í Singapore í gær. Þar deUir hann klefa með tveimur mönnum sem gerst hafa sekir um hviflibbaglæpi. Leeson var formlega ákærður á fimmtudagskvöld og sagði lög- fræðingur hans líklegt að réttað yrði í máli verðbréfasalans'fyr- ir desemberlok. Reuter, Ritzau, NTB Kauphallir og vöruverð erlendis Tugþúsundir opinberra starfsmanna efndu til mikillar göngu á götum Parísarborgar í gær til að mótmæla fyrirhug- uðum niðurskurði á velferðarkerfi landsins. Einn mótmælendanna klæddi sig upp sem gömul kona og fór fyrir göngumönnum. Á mótmælaborðanum stendur eitthvað á þá leið að opinber þjónusta sé komin á eftirlaun en á spjaldi þeirrar gömlu stendur: Snertið ekki spariféð mitt. Símamynd Reuter í nógu aö snúast hjá dönsku hirðinni: Þúsund gjafir handa þeim Jóakim prins og Alexöndru

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.