Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1995, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1995, Side 28
28 unglingaspjall LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995 Iþróttir í framhaldsskólum Hvað veit almenningur um íþróttalíf í framhaldsskólum? Ör- ugglega ekki mikið. Mín reynsla sem formaður íþróttaráðs í mínum skóla (Fjölbraut í Ármúla) er sú að fólk veit lltið um þessa hlið skólans. Ekkert er fjallað um íþróttir fram- haldsskóla í fjölmiðlum og ekki eru þau samtök innan ÍSÍ sem sjá um skipulagningu framhaldsskólamót- anna í íþróttum og auglýsa mótin. Fyrst ég minntist á þátt samtaka innan ÍSÍ í skipulagningu mótanna er eins gott að minnast á það hvern- ig þau standa sig í þeim málum. Nýlega var haldið framhalds- skólamót í knattspyrnu en skipu- lagning og þátttökugjald á hvert lið var 6.000 krónur þannig að flestir skólar voru að borga 12.000 krónur í keppnisgjöld. Það sem skólarnir fengu fyrir þann pening var niður- röðun skólanna í riðla. Síðan þurftu skólarnir sjálfir að skipuleggja hvenær þeir kepptu við þá skóla sem þeir voru með í riðli og borga allan aukakostnað eins og leigu á velli og kaup á dómara. Þau lið sem komust í undanúrslit fengu síðan veUina sér að kostnað- arlausu og dómarann en það voru aðeins 3 lið í karlaflokki og 3 í kvennaflokki. Að sjálfsögðu var úr- slitaleikurinn í boði KSÍ. Svo ég nýti mér nú aðeins að- stöðu mína þá vann kvennalið FÁ titilinn yfir framhaldsskólamót í körfubolta sem KKÍ stendur fyrir og kallast Liðsveislumótið. KKÍ stend- ur mjög vel að skipulagningu móts- ins, þó svo að það hefði mátt fara fyrr af stað. I mótinu raðar KKÍ í riðla og úthlutar tíma til að spila leikina, reyndar í samráði við íþróttaráð skólanna og útvegar dóm ara til að dæma. Þarna ætti KSÍ að taka KKÍ sér til fyrirmyndar. Einnig vil ég minnast á þátt rík- isins í íþróttamál- um skólanna. Að mínu áliti ætti ríkið að borga tvo frjálsa íþrótta- tíma fyrir karla í 1 viku og tvo fyrir konur. Þetta finnst mér alveg sjálfsagt því íþróttalíf í fram- haldsskólum er veru- lega stór þáttur í fé- lagslífi skólanna og stór hluti nemenda tekur þátt í íþróttum. Eins og þetta er í dag þá borga nemendafélögin, að minnsta kosti í mínum skóla, fyrir frjálsu tímana í íþróttum fyrir iþrótta- fólkið í skólunum. Þetta er verulega stór biti fyrir félögin að þurfa kannski að borga hátt í 60.000 krónur fyrir einn klukkutíma í viku í íþróttahúsi á hálfu ári. Einar Guðberg Jóns- son, nemandi í Fjölbraut í Ármúla Einar Guðberg Jónsson. DV-mynd S hin hliðin Vann í bingói sem ég stjómaði sjálfur - segir Helgi Már Bjarnason Helgi Már Bjamason sýnir á sér hina hliðina að þessu sinni. Helgi Már hefur séð um útvarpsþáttinn Party zone i 5 ár og er nú dag- skrárgerðarmaður á X-inu. Nýver- ið stóð hann að útgáfu geisladisks- ins Party zone ’95 þar sem finna má danstónlist. Helgi Már er fjórða árs nemi í viðskiptafræði við Há- skóla íslands en hefur þó unnið talsvert með námi í skemmtana- bransanum. Var meðal annars skemmtanastjóri í Tunglinu tii nýlega og þá sá hann um skífuþeytingar í Ingó: FuHt nafn: Helgi Már Bjarna son. Fæðingardagur og ár: 5. júní 1972. Kærasta: Karollna Stefánsdóttir. Böm: Engin. Bifreið: Engin. Starf: Skífuþeytir, dagskrárgerðarmað- ur, skemmtanahaldari og víðskiptafræði- nemi. Laun: Ásættanlegt. Áhugamál: Tónlist, skemmtanir, félags- skapur vina minna og íþróttir. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Utanlandsferð í útskriftar- happdrætti MS sem ég hafði reynd- ar einnig umsjón með. Þá vann ég í bingói á skemmtiferðaskipi á Miðjarðarhafi. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Að vera áhyggjulaus í góðra vina hópi og sinna áhuga- málum mínum. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Vakna á morgnana, rukka laun og umgangast óheiðarlegt fólk. Uppáhaldsmatur: Púrrusteik með öllu, matreidd af móður minni. Uppáhalds- drykkur: Coca Cola, Corona og vatn. Hvaða íþrótta- stendur í dag þínu mati? Gísla- son. Uppáhalds- tímarit: Newsweek, DJ og Music. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan eiginkon- una? Hafdís Þórólfsdóttir, móðir mín. Ertu hlynntur eða andvígur rik- isstjórninni? Ég kýs Sjálfstæðis- flokkinn en er andvígur ríkis- stjóminni sem stendur. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Prince „Roger“ Nelson. Uppáhaldsleikari: Get ekki gert upp á milli Gary Oldman og Ant- hony Hopkins. Uppáhaldsleikkona: Get ekki gert upp á milli Holly Hunter, Meg Ryan og Hörpu. Uppáhaldssöngvari: India og Prince. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Davíö Oddsson. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Hermann. Uppáhaldssjónvarpsefhi: Fréttir og vandaöir breskir sjónvarps- þættir. Uppáhaldsmatsölustaður: Argentína steikhús. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Hringadrottinssaga, III. bindi, eftir JR. Tolkien. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? X-ið. Uppáhaldsútvarpsmaður: Krist- ján, Helgi Party zone og Þossi þeg- ar hann þegir. Hvort horfir þú meira á Sjón- varpið eða Stöð 2? Stöð 2. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Sig- uröur L. HaÚ. Uppáhaldsskemmtistaður: Dans- vænn Rósenberg-kjallari. Uppá- haldsfélag í íþróttum: Fylkir. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Að vera hamingju- samlega kvongaður og sáttur við sjálfan mig. Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Naut lífsins, djammaði á Búðum og Uxa og las undir próf. -pp Grunur leikur á að hjónaband Lisu Marie Presley, dóttur Elvis Presley, og tónlistarmannsins Michaels Jacksons sé ógilt þar sem friðardómarinn, sem gaf parið saman, hafi farið út fyrir lögsögu sína við vígsluna. Það ætti því ekki að vera mikið mál fyrir Lisu Marie að losna við Jackson ef hann fer að leita á unga drengi á nýjan leik. Hjónaband Lisu Marie og Michaels Jacksons: Friðardómarinn stóð ekki rétt að vígslunni Það verður trúlega engum erfið- leikum bundið fyrir Lisu Marie Presley, dóttur Elvis Presleys, að losna úr hjónabandinu með tónlist- armanninum Michael Jackson ef Jackson heldur áfram að taka fé- lagsskap drengja fram yfir hana. Jackson komst heldur betur í um- ræðu í fjölmiðlum fyrir nokkru þeg- ar hann lenti í málaferlum fyrir að vera grunaður um misnotkun á litl- um dreng. Erlend slúðurblöð segja reyndar að það verði ekkert mál fyrir Lisu Marie að fá skilnað því að grun- semdir séu uppi um að hún hafi aldrei verið löglega gift Michael Jackson. Það hafi nefnilega komið í ljós að friðardómari í Dóminíska lýðveldinu, sem vígði parið á sínum tíma, hafi farið út fyrir sína lögsögu við vígsluna og þar með á hjóna- vígslan að hafa misst gildi sitt. Danska vikuritið Billed Bladet segir að þessi tíðindi séu hugsan- lega mikill léttir fyrir Lisu Marie því að hún hafi margoft leitað til fyrrverandi eiginmanns síns, Danny Keogh, þó að hún eigi enn að heita formlega gift Jackson. Endursagt úr Billed Bladet Madonna er Evita Það eru tíu ár síðan fyrsta hug- myndin kom upp um að gera kvik- mynd um ævi Evitu Peron en þá hafði vinsæll söngleikur verið í gangi víða um heim um þessa merku konu. Það er Madonna sem fer með hlutverk Evitu Peron í myndinni en karlmennimir, sem leika á móti henni, heita Jonathan Pryce og Antonio Banderas - báðir vel þekktir leikarar. íslendingar eiga líka þátt í þess- ari kvikmynd því Mezzoforte- drengirnir, Friðrik Karlsson og Gunnlaugur Briem, leika undir hjá Madonnu og félögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.