Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1995, Side 34
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995
Rosemary West, átta bama móöir,
var dæmd í lífstíðarfangelsi fyrir tíu
morö á fimmtudag í einu frægasta
sakamáli Bretlands fyrr og síðar.
Kviðdómur var einróma í niður-
stöðu sinni. Rosemary var fundin
sek um öll ákæruatriði, þar á meðal
morð á barnungri stjúpdóttur sinni,
elstu dóttur sinni, sem þá var 17 ára,
og ástkonu eiginmannsins, sem bar
bam hans undir belti. Níu líkanna
voru grafin upp ásamt reipum og
öðmm þvingunartólum í kjallara
eða garði hússins að Cromwell-
stræti 25 í Gloucester í febrúar í
fyrra. Lík stjúpdótturinnar ungu
fannst hins vegar við fyrrum heim-
ili Rosemary og eiginmanns hennar,
Freds.
Fred framdi sjálfsmorð í fanga-
klefa sínum á nýársdag og þurfti því
aldrei að svara fyrir hroðaverk sín í
réttarsalnum. í yfírheyrslum gekkst
hann við morðunum og játaði enn
fremur að hafa myrt fyrrum eigin-
konu sína og barnfóstru. Fundust
lík þeirra grafin skammt frá
Gloucester.
En Fred fullyrti einnig að hafa
allt að 20 morð á samviskunni. Þær
fullyrðingar hafa hvatt lögregluna
til að fara ofan í saumana á örlögum
níu ungra kvenna sem hurfu spor-
laust á áttunda áratugnum og vitað
er að höfðu viðkomu eða bjuggu um
tíma á heimili West-hjónanna. Hafa
lýsingar á konunum, flestar heldur
rýrar, verið sendar út og beðið er
viðbragða af háifu almennings. Séu
fullyrðingar Freds West réttar er
hann versti fjöldamorðingi í sögu
Bretlands. Rosemary er þó einungis
hálfdrættingur á við Mary Cotton
sem byrlaði 20 manns eitur á seinni
hluta síðustu aldar.
Ástæða Mary Cotton var hrein
græðgi. En drifkraftur voðaverka
West-hjónanna voru sadískir kynór-
ar sem leiddu til þess að fórnar-
lömbin voru bundin og kefluð, pynt-
uð kynferðislega, jafnvel í marga
daga, og síðan drepin, höggvin í
sundur og grafin.
Þau þykja makalaust par sem
sameinaðist í sjúklegum áhuga á
kynlífi. Hann var smákrimmi, þótti
heimskur með afbrigðum en
tungulipur og tókst þannig að
sjarma fólk upp úr skónum. Bæði
eru sögð hafa þjáðst af heila-
skemmdum eða geðklofa. Rosemary
segist hafa verið verkfæri í höndum
sadistans Freds en því trúir enginn.
Óáreitt þrátt fyrir
tilefni til aðgerða
Breskur almenningur og fúlltrúar
opinberra stofnana spyrja sig nú
þeirrar spumingar hvemig standi á
því að ekki komust fyrr upp voða-
verk West-hjónanna. Á 20 ára tíma-
bili, frá 1973, virtust tilefni til að-
gerða af hálfu félagsmálayfirvalda
og lögreglu næg. Skýrslur lágu fyrir
en ekkert var aðhafst. Að auki virt-
ist farið um brot þeirra silkihönsk-
um. Þannig furða sérfræðingar sig á
aö kynferðisleg árás þeirra hjóna á
unga konu 1973 leiddi ekki til ann-
ars en 50 punda sektar. Þá þegar
áttu þau hjón tvær dætur, tveggja og
átta ára, og virtist enginn hafa
hafði náð trúnaði Freds í fangelsinu
höfðu fengið loforð um verulegar
fjárhæðir frá dagblöðum þegar þau
komu í vitnastúkuna og fóm síðan i
ítarleg viðtöl áður en réttarhöldun-
um lauk. Verjendur Rosemary full-
yrða að vonir vitnanna um vænar
fjárfúlgur frá dagblöðunum hafi
fengið þau til að krydda vitnisburð
sinn og gera hann þannig seljan-
legri. Um leið hafi málið fengið
slagsíðu, ákæruvaldinu í hag. Munu
verjendumir ítreka þetta þegar þeir
áfrýja málinu til hæstaréttar.
Gróðavon vitna og svokallaður
„checkbook-journalism" eða blaða-
mennska sem byggist á greiðslum
fyrir viðtöl hefur verið mjög til um-
ræðu í Bretlandi síðustu daga. Hafa
komið fram tillögur um að setja þess
konar blaðamennsku einhverjar
skorður með reglum en fáir hafa trú
á að slíkt gangi upp.
En það em fleiri sem græða á
málinu. Börn West-hjónanna græða
fúlgur á viðtölum um foreldra sína,
þar á meðal dóttirin sem nauðgað
var frá átta ára aldri. Töldu West-
hjónin henni trú mn að kynferðisof-
beldið væri liður í undirbúningi
hennar fyrir hjónabandið. Þau
neyddu hana einnig út í barna-
vændi en Rosemary dró enga dul á
að hún stundaði vændi.
Þijú elstu börnin hafa þegar selt
breskum blöðum sögur sínar fyrir
10 milljónir króna hvert og tvö
þeirra eru að skrifa bók um reynslu
sína. Þá er slegist um réttinn að dag-
bók Freds og upptökur frá yfir-
heyrslum. Á þeim má heyra Fred
lýsa því hvemig hann drap elstu
dóttur þeirra hjóna og hlutaði líkið
í sundur með íssög.
Hvað verður um
Hryllingshúsið?
Fred West er allur og Rosemary
dúsir nú í Durham-öryggisfangels-
inu í norðurhluta Englands. Ekki
veitir henni af örygginu þar sem
fangar fara illa með barnaníöinga.
Eftir sitja hryggir aðstandendur
fórnarlambanna sem hafa þurft að
ganga í gegnum hryllinginn á ný
siðastliðnar átta vikur.
Og eftir stendur húsið að Cromw-
ellstræti 25 í Gloucester eða Hryll-
ingshúsið. Yfirvöld í Gloucester
vilja hafa síðasta orðið um örlög
þess en það er nú til sölu fyrir 1,5
milljónir króna, óíbúðarhæft eftir
aðgerðir lögreglunnar. Hallast
margir að því að eyða eigi öllum
ummerkjum um West-hjónin, jafna
húsið við jörðu og gera bílastæöi á
lóðinni. Aðrir vilja gera þar garð til
minningar um fórnarlömbin. Enn
aðrir vilja kaupa húsið og setja þar
upp hryllingssafn.
Yfirvöld í Gloucester hafa lagt í
mikla áróðursherferð til aö bæta
ímynd borgarinnar en ófáum þykir
auglýsingastofan sem samdi ein-
kennisorð herferðarinnar vera held-
ur klaufsk og seinheppin. Þau
hljóma svona: „Gloucester, easy to
get to, hard to leave“, sem þýðir að
auðvelt sé að komast til Gloucester
en erfitt að komast þaðan.
Reuter/NTB
Fred og Rosemary West þóttu makalaust par sem sameinaðist í sjúklegum áhuga á kynlífi. Lögregla fer nú ofan í
saumana á örlögum níu ungra kvenna sem hurfu sporlaust á áttunda áratugnum og vitað er að höfðu viðkomu eða
bjuggu um tíma á heimili West-hjónanna. Þær gætu bæst á afrekaskrá West-hjónanna. Símamyndir Reuter
ir einn vetur. Furðulegt þykir að
enginn virtist sjá ástæðu til að láta
viðeigandi yfirvöld vita.
Nágrannarnir höfðu oftsinnis
heyrt Fred gorta af pyntingarklefa í
kjallara hússins að Cromwellstræti.
Þau hjón misþyrmdu börnunum í
augsýn nágrannanna en annars vin-
samlegt viðmót í garð þeirra villti
þeim sýn.
í kjölfar dómsins yfir Rosemary
hefur komið í ljós að Fred heimsótti
eitt sinn myndbandaleigu í
Gloucester og bauð eiganda hennar
myndbönd sem hann sagðist hafa
gert sjálfur af alvörumorðum. Eig-
andinn neitaði að eiga viðskipti við
Fred og lét lögregluna strax vita, En
ekkert gerðist.
Lögregla, skólayfirvöld, heil-
brigðiskerfið og nágrannarnir
bjuggu allir yfir vitneskju sem nægt
hefði til aðgerða og sem hefðu getað
forðað fjölda kvenna frá ömurlegum
dauðdaga. En aUir lágu á vitneskju
sinni og morðhjónin fengu óáreitt
útrás fyrir ofbeldisfuUa kynóra sína.
Það var ekki fyrr en lögreglan í
Gloucester fór aö rannsaka hvarf
elstu dóttur West-hjónanna, He-
ather, að málið komst á skrið og
uppgröfturinn að Cromwellstræti
hófst. Fyrrnefndar stofnanir í
Gloucester sæta nú rannsókn svo
komast megi að því hvað fór úr-
skeiðis í samskiptum þeirra.
Þána vænar fúlgur
Eftir dóminn yfir Rosemary hefur
birst fjöldi viðtala við fórnarlömb og
kunningja West-hjónanna sem lýsa
því hvemig þeir sluppu frá HryU-
ingshúsinu og hvernig var að um-
gangast morðhjónin. Bresk dagblöð
hafa greitt fúlgur fyrir slík viðtöl,
aUt að 10 miUjónir króna. Ýmis höft
voru reyndar á birtingu viðtala við
vitni og fleiri sem tengdust málinu
meðan réttarhöldin stóðu yfir en nú
er orðið frjálst.
Stúlkan sem slapp liíandi frá árás
hjónanna 1973 og félagsráðgjafi sem
Ágreiningur er um örlög Cromwellstrætis 25 í Gloucester eða Hryllingshúss-
ins. Verður gert bílastæði á lóðinni, garður til minningar um fórnarlömbin
eða opnað hryllingssafn í húsinu.
áhyggjur af þeim.
Á árunum 1972-1992 vora börn
West-hjónanna 31 sinni lögð inn á
sjúkrahús tU meðferðar, meðal ann-
ars vegna meiðsla á bijóstum, lek-
anda og barnungar dætur þeirra
vegna utanlegsfósturs. Sonur þeirra,
Stephen, kom oftsinnis blár og mar-
inn í skólann og i kladda einnar
dótturinnar voru skráðar 60 fjarvist-
erlent fréttaljós
Mörgum spurningum er enn ósvarað í máli Freds og Rosemary West:
Lögregla kannar örlög
níu horfinna kvenna
- „kerfið" lát morðhjánin óáreitt þrátt fyrir síendurteknar uppákomur