Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1995, Qupperneq 58
74
fmæli
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995
Kolbeinn Pálsson
Kolbeinn Hermann Pálsson, full-
trúi hjá íþróttabandalagi Reykja-
víkur, Seylugranda 1, Reykjavík,
verður fimmtugur á morgun.
Starfsferill
Kolbeinn fæddist í Reykjavík.
Hann tók verslunarpróffrá VÍ1964,
stundaði nám við Iðnskólann í
Reykjavík, er hárskeri frá 1968 og
sótti námskeiö fyrir félagsráðgjafa
og æskulýðsleiðtoga í Bandaríkj-
unum.
Kolbeinn var gjaldkeri hjá Eim-
skip 1963-65, Hárskeri á Rakara-
stofu Sigurðar Ólafssonar 1965-71,
forstöðumaður Tónabæjar 1971-73,
aðstoðarframkvæmdastjóri Æsku-
lýðsráðs Reykjavíkur 1973-76,
skrifstofustjóri hjá Flugleiðum hf.
1976-81, sölustjóri innanlandsflugs
1981, fulltrúi sölustjóra millilanda-
flugs 1981-83 og sölustjóri milli-
landaflugs 1981-86, framkvæmda-
stjóri Ferðaskrifstofunnar Terru
1986-87 og er fulltrúi hjá íþrótta-
bandalagi Reykjavíkur frá 1987.
Kolbeinn sat í stjórn Heimdallar
1966-67, var formaður Hárgreiðslu-
og hárskeranema 1968-69 og Hár-
greiðslu- og hárskerasveina
1969-70, formaður körfuknattleiks-
deildar KR1969-71, varaborgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins 1982-86,
formaður Æskulýðsráðs 1982-86, í
íþróttaráði 1982-86, í vinnuskóla-
nefnd 1982-86, í íþrótta- og tóm-
stundaráði 1986-90, formaöur Blá-
fjallanefndar 1986-94, formaður
stjórnar Reykjanesfólkvangs
1986—94, formaður Körfuknatt-
leikssambands íslands frá 1988 og
í framkvæmdastjórn Ólympíu-
nefndar íslands frá 1988.
Kolbeinn er margfaldur íslands-,
bikar- og Reykjavíkurmeistari í
körfuknattleik frá árunum 1962-78,
lék fimmtíu og fimm landsleiki í
körfuknattleik 1965-86, var kosinn
íþróttamaður ársins 1966 og sæmd-
ur gullmerki ÍSÍ1991.
Fjölskylda
Kona Kolbeins er Guðrún Jó-
hannsdóttir, f. 9.12.1952, deildar-
stjóri á söluskrifstofu Flugleiða við
Laugaveginn. Hún er dóttir Vil-
borgar Kristjánsdóttur, f. 29.3.1930,
deildarfulltrúa, og Jóhanns Gísla-
sonar, f. 1.5.1925, d. 9.5.1968, flug-
rekstrarstjóra.
Dóttir þeirra er Kolbrún Heiða,
f.21.2.1991.
Stjúpsynir Kolbeins er u Atli
Freyr Einarsson, f. 17.8.1975, nemi,
og Hjalti Már Einarsson, f. 29.9.
1978, nemi.
Fyrri kona Kolbeins er Bryndís
Stefánsdóttir, f. 12.2.1946, fóstra.
Börn Kolbeins og Bryndísar eru
Páll Hermann, f. 17.4.1964, við-
skiptafræðirigur og íþrótta- og
æskulýðsfulltrúi á Sauðárkróki,
kvæntur Þórunni Pétursdóttur og
eiga þau tvær dætur; Sigríður, f.
25.4.1966, framkvæmdastjóri hjá
Subway, búsett í Reykjavík, gift
Skúla Sigfússyni og eiga þau eina
dóttur; Þórður Hermann, nemi, f.
5.1.1969, deildarstjóri DHL, búsett-
ur í Reykjavík, kvæntur Lovisu
Sigurðardóttur og eiga þau eina
dóttur.
Systkini Kolbeins eru Brynjar, f.
10.6.1936, kaupmaður á Sauðár-
króki; Vigdís, f. 24.5.1948, flug-
freyja í Reykjavík; Sigurbjörg, f.
14.7.1957,innanhússhönnuðurí
Bretlandi.
Foreldrar Kolbeins: Páll Sigurðs-
son, f. 4.1.1918, hárskerameistari í
Reykjavík, og k.h., Kristbjörg Her-
mannsdóttir, f. 17.9.1923, d. 18.11.
1970, húsmóðir.
Ætt
Páll er sonur Sigurðar, rakara í
Eimskipafélagshúsinu, Ólafssonar,
smiðs í Reykjavík, Jónssonar, b.
að Vestur-Leirárgörðum, Halldórs-
sonar. Móðir Sigurðar var Ásgerð-
ur Sigurðardóttir, b. á Stóru-Fells-
öxl, Asgrímssonar.
Móðir Páls rakara var Halldóra,
Kolbeinn Hermann Pálsson.
systir Bergþórs, fóður Páls, fyrrv.
veðurstofustjóra, fóður Bergþórs
óperusöngvara. Halldóra var dóttir
Jóns, b. í Fljótstungu, Pálssonar,
og Guðrúnar Pétursdóttur frá Ána-
naustum, systur Valgerðar, móður
Áka Jakobssonar alþm.
Kristbjörg var systir Bjargar,
móður Hemma Gunn. Móðir Krist-
bjargar var Sigríður Þorsteinsdótt-
ir, útvegsb. á Meiðastöðum, Gísla-
sonar, b. á Augastöðum, Jakobs-
sonar, Bloom á Búrfelli, Snorra-
sonar, ættföður Húscifellsættarinn-
ar, Björnssonar. Móðir Sigríðar var
Kristín Þorláksdóttir, b. á Hofi á
Kjalarnesi, Jónssonar.
Kolbeinn og Guðrún eru í útlönd-
um.
Til hamingju með afmælið 25. nóvember
Álafossvegi 16, Mosfellsbæ. Ásgeir Kristinsson, Stórasvæði 4, Grýtubakkahreppi.
95 ára
Guðrún Jónsdóttir, Bjarnastöðum, Sveinsstaöahreppi.
50 ára
75 ára Halldóra Guðjónsdóttir, Heydalsá II, Kirkjubólshreppi.
Magnea Dóra Magnúsdóttir, Grandavegi 47, Reykjavík. Sigurður Alexandersson, Krókahrauni 4, Hafnarfirði. Halldóra Helgadóttir, Freyjugötu 5, Sauðárkróki. EinarÓIafsson, Hverafold30, Reykjavík. Sigurður Þórðarson, Sundstræti 24, ísafiröi.
70 ára
40ára
Sæunn Guðjónsdóttir,
fráBolungarvík. Fjarðarseli 18, Reykjavík. Sæunn tekur á móti gestum á heimili sinu í dag milli kl. 16.00 og 19.00. Jónina Kristjánsdóttir, Fossheiði 48, Selfossi. Svanfríður Halla Grímsdóttir, Miðbraut 7, Hrísey. Kristín Hlín Gestsdóttir, Aðalstræti 8, Akureyri. Ingvar Sigurjón Þorvaldsson, Hrismóum3, Garðabæ. Sigurbergur Olsen,
60 ára Dynjanda, Hornafjarðarbæ. Thor Ólafur Hallgrímsson, Kleppsvegi 134, Reykjavík. Sigurlaug Guðmundsdóttir, Búöasíðu 7, Akureyri. Aðalsteinn Aðalsteinsson, Mánabraut 4, Hornaíjarðarbæ.
Halla Aðalsteinsdóttir, Kolsholti 1, Villingaholtshreppi. HaUa eraðheiman. Hildur Karlsdóttir, Ásvallagötu 71, Reykjavík. Franz Stavarsson,
Þórður Halldórsson
frá Dagverðará
Þórður Halldórsson frá Dagverð-
ará, refaskytta, listmálari og rithöf-
undur, Byggðavegi 125, Akureyri,
er níræður í dag.
Starfsferill
Þórður fæddist í Bjarnarfosskoti
í Staðarsveit á Snæfellsnesi og ólst
þar upp og á Trööum. Hann hlaut
átta vikna skólavist í farskóla og
staðgóða undirstööumenntun
heima fyrir en hann tók próf á vor-
in fram til fermingaraldurs.
Þórður var bóndi í Staðarsveit og
síðar á Dagveröará í Breiðuvíkur-
hreppi. Hann stundaði sjómennsku
um áratugaskeið, fyrst á togurum
tuttugu og átta vertíðir, en hann fór
sína fyrstu sjóferð í Halaveðrinu
1925, og var síðan trillukarl um
árabil frá Arnarstapa og Hellnum.
Þá hefur hann verið mjólkurbíl-
stjóri, sigmaður, deildarstjóri hjá
Kaupfélagi Stykkishólms, verka-
maður og fleira.
Þórður hefur lent í ótrúlegustu
mannraunum og svaðilfórum um
dagana, svo sem m.a. má lesa um
í bókum hans og Lofts Guðmunds-
sonar, Mannleg náttúra undir
Jökli, útg. 1973, og Náttúran er söm
við sig undir Jökli, útg. 1974. Þá er
hann, ásamt Haraldi Inga Haralds-
syni, höfundur að bókinni Setið á
svalþúfu - handbók fyrir veiði-
þjófa, útg. 1989. Hann er einnig
höfundur ljóðabókanna Er allt sem
sýnist?, útg. 1954, og Ennþá dugar
rímaö stefið, útg. 1991.
Þórður hefur verið aíkastamikill
listmálari í hartnær íjörutíu ár og
heldur um þessar mundir þrett-
ándu einkasýningu sína í Menning-
arstofnun Bandaríkjanna að
Laugavegi 26, Reykjavík.
Fjölskylda
Systir Þórðar var Helga Halldórs-
dóttir, f. 18.6.1903, d. 1991, hús-
freyja að Dagveröará.
Uppeldissystur hans: Lilja Gunn-
laugsdóttir og Guðbjörg Eyvinds-
dóttir.
Foreldrar Þórðar voru Halldór
Jónsson, f. 2.12.1870, d. 13.9.1948,
bóndi að Tröðum og Dagverðará,
og Ingiríður Bjarnadóttir, f. 13.9.
1863, d. 6.1.1963, húsfreyja.
Ætt
Halldór var sonur Jóns, lengst af
b. á Kálfárvcllum í Staðarsveit
Þórður Halldórsson.
Jónssonar sem var Norðlendingur
af ætt Grundar-Helgu í Eyjafirði.
Ingiríður var dóttir Bjarna, b. í
Núpstúni, Loftssonar, b. í Minni-
Mástungu og Austurhlíð, Eiríks-
sonar, ættfööur Reykjaættarinnar
Vigfússonar. Móðir Lofts var Guö-
rún Kolbeinsdóttir, prests og
skálds á Gilsbakka, Þorsteinsson-
ar. Móðir Bjarna var Guðrún
Bjarnadóttir, b. í Árbæ, Hjálmholti
og Túni, Stefánssonar, og Margrét-
ar Eiríksdóttur.
Móðir Ingiríðar var Helga Ketils-
dóttir, b. a Snæfoksstöðum og í
Vaðnesi, Þorgeirssonar, og Ingiríð-
ar Einarsdóttur.
Þórður verður með afmælisfagn-
að í sjálfstæðishúsinu Hamraborg
1, Kópavogi, í kvöld frá kl. 20.00.
Andlát
Elín Guðiónsdóttir
Elín Guðjónsdóttir, Breiðumörk 17,
Hveragerði, lést 20.11. sl. Hún verð-
ur jarðsungin frá Hveragerðis-
kirkju í dag kl. 14.00.
Starfsferill
Elín fæddist á Eyrarbakka 9.5.
1898 og ólst þar upp hjá móður
sinni. Þær fluttu til Reykjavíkur
1923 og stundaði Elín einkum heim-
ilis- og verslunarstörf. Fyrstu hjú-
skaparárin bjuggu Elín og maður
hennar á Norðfirði en íluttu árið
1936 í Hveragerði þar sem þau áttu
heima til 1987. Þau fluttu þá á dval-
arheimilið Hrafnistu í Reykjavík
þar sem Elín dvaldi síðustu æviár-
in.
Elín var fyrsti formaður Kvenfé-
lags Hveragerðis og gegndi því
starfi í rúm tuttugu ár. Hún var í
byggingarnefnd Hveragerðiskirkju
og sat í hreppsnefnd 1969-70. Þá var
hún í mörg ár umboðsmaður happ-
drætta Háskólans, DAS og SÍBS.
Fjölskylda
Elín giftist 1.12.1931 Stefáni J.
Guðmundssyni, f. 26.101899, d.
29.10.1988, byggingameistaraog
bæjarfulltrúa í Neskaupstað. For-
eldrar hans voru Guðmundur Stef-
ánsson, verkamaður í Neskaup-
stað, og k.h., Valgerður Árnadóttir
húsmóðir.
Elín og Stefán eignuöust fimm
syni og eina dóttur sem lést á fyrsta
ári. Synir þeirra eru Árni Geir, f.
3.11.1932, lektor við KHÍ, kvæntur
Aðalbjörgu Árnadóttur hjúkrunar-
fræðingi og eru börn þeirra Gerður
Aagot læknir, Elín Huld, söngkona
og kennaranemi, Kristín Sif hjúkr-
unarfræðingur og Stefán Baldur,
nemi í bókmenntafræði; Unnar, f.
20.4.1934, viöskiptafræðingur og
ritstjóri í Reykjavík, kvæntur Mar-
íu Ólafsdóttur prófarkalesara og
eru börn þeirra Kristján Már
fréttamaður, Stefán Orn, viðskipta-
fræðingur og framkvæmdastjóri,
og Elín Björk, veðurfræðingur og
framhaldsskólakennari; Guð- -
mundur, f. 5.10.1937, hljóðfæra-
smíðameistari í Reykjavík, en kona
hans er Erla K. Valdimarsdóttir
sjúkraliði og er dóttir þeirra Sigríð-
ur nemi, en sonur Guðmundar og
Fanneyjar Þórðardóttur er Ragnar
Daníel vélfræðingur; Guöjón Ingvi,
f. 3.3.1939, verkfræðingurogfram-
kvæmdastjóri í Borgarnesi, kvænt-
ur Guðrúnu Broddadóttur hjúkr-
unarforstjóra og eru börn þeirra
Elín, starfsmaður Seðlabankans,
Þorbjörn læknir og Stefán Broddi,
nemi í stjórnmálafræði; Atli Þor-
steinn, f. 11.12.1942, tæknifræðing-
uríReykjavík.
Systkini Elínar voru Jóhanna
Sigríður, f. 30.11.1890, d. 7.4.1987,
húsmóðir í Reykjavík; Guðmund-
ur, f. 17.3.1892, d. 4.1.1970, líkkistu-
smiöur í Reykjavík; Kristrún, f.
18.6.1894, d. 14.6.1976, húsmóðirí
Reykjavík.
Foreldrar Elínar voru Guöjón
Þorsteinsson, f. 27.7.1865, d. 19.8.
1898, verkamaður, og k.h., Ingunn
Guðmundsdóttir, f. 20.6.1857, d. 1.2.
1940, húsmóðir.
Ætt
Fööurbróðir Elínar var Markús,
afi Harðar Ágústssonar, fornhúsa-
fræðings og listmálara, og langafi
Markúsar Arnar Antonssonar,
fyrrv. borgarstjóra.
Guðjón var sonur Þorsteins, b. í
Gröf í Hrunamannahreppi, Jóns-
sonar, af Kópsvatnsættinni. Móðir
Guðjóns var Guðrún, systir Ingi-
bjargar, langömmu Eðvarðs Sig-
urðssonar alþm. Guðrún var dóttir
Jóns, b. í Galtafelli, Björnssonar,
b. í Vorsabæ, Högnasonar. Móðir
Jóns var Bryngerður Knútsdóttir,
systir Sigríðar, ömmu Tómasar
Guömundssonar skáids. Móðir
Guðrúnar var Guðrún, systir
Ragnhildar, langömmu Toríhildar,
langömmu Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra.
Elín Guðjónsdóttir.
Ingunn var dóttir Guðmundar,
járnsmiðs í Eimu á Eyrarbakka,
Þorsteinssonar, smiðs í Brúna-
vallakoti á Skeiðum, Jörundsson-
ar, b. á Laug í Biskupstungum, 111-
ugasonar, Skálholtssmiðs á
Drumboddsstöðum, Jónssonar.
Móðir Guðmundar var Ingveldur
Hafliðadóttir, systir Margrétar,
langömmu Sigríðar, móður Vigdís-
arforseta.
Móðir Ingunnar var Þórunn Þor-
valdsdóttir, b. í Króki í Grafningi,
Ingjaldssonar og Þórunnar Þor-
leifsdóttur, ættfóður NesjavaUa-
ættarinnar, Guðmundssonar.