Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1996, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 23. MARS 1996
Útlönd
Óttinn við kúariðu breiðist út um allan héim:
Steikhús Lundúna
nánast mannlaus
stuttar fréttir
Neitar aö blóta
Fugl einn austur í Kína, sem
kann sextíu orð á þremur tungu-
í málum, neitar staðfastlega að
læra blótsyrði, sama hversu mikið
er reynt að kenna honum þau.
Hjálp af netinu
Lækni einum í New Jersey
tókst með hjálp Intemetsins að
finna sérhæfðan skurölækni til að
[ gera að hjartagalla lítillar per-
; úskrar stúlku.
Mandela við hesta-
heilsu
Nelson
Mandela, for-
seti Suður-
Afríku, er
ákaflega vel á
sig kominn
líkamlega af
77 ára göml-
um manni að
vera og hugur
hans er enn hnífskarpur, að því er
I suöurafríski landlæknirinn sagöi
1 í gær eftir að farið haföi verið yfir
niðurstöður umfangsmikillar
læknisrannsóknar sem forsetinn
gekkst undir.
IRA hafnar
írski lýðveldisherinn hafnaði
tillögum Breta úm kosningar á
Norður-írlandi sem eiga að vera
undanfari friðarviðræðna allra
flokka.
Berklar banvænir
Berklar eru orðnir helsta dán-
arorsök þeirra sem smitaöir em
af alnæmisveimnni og búist er
I við að .250 þúsund manns látist af
þeirra völdum í ár.
Norðmenn stáðfesta
Norska stjórnin tilkynnti í gær
að hún ætlaði að staðfesta hafrétt-
arsáttmála SÞ og breyta lögum
sínum til samræmis við hann.
Er Christopher heigull?
Rússneski
harðlínuþjóð-
ernissinninn
Vladimír
Zhírínovski
fordæmdi
Warren
Christopher,
utanríkisráð-
herra Banda-
ríkjanna, í gær og kallaði hann
heigul fyrir að bjóða sér ekki á
fund hans með rússneskum
stjórnmálaleiðtogum.
Bush vel fagnað
George Bush, fyrrum Banda-
ríkjaforseta, var vel fagnaö þegar
hann kom til Kúveits i gær enda
lita þarlendir á hann sem hetju.
Hringurinn þrengist
Sendiherra Bandaríkjanna hjá
SÞ segir að hringurinn sé farinn
aö þrengjast um tvo leiðtoga Bosn-
íu- Serba, þá Karadzic og Mladic,
sem hafa verið ákærðir fyrir
stríðsglæpi.
Reuter
Erlendar kauphallir:
Met slegið
í Frankfurt
Dow Jones hlutabréfavísitalan í
Wall Street náði sögulegu hámarki
síðastliðinn miðvikudag þegar hún
fór í 5669 stig. Eftir það hefur hún
lækkað lítillega, einkum eftir fréttir
af minni hagnaði stórra tæknifyrir-
tækja en reiknað var með. Þá var
sögulegt met einnig slegið í kaup-
höllinni Frankfurt en það gerðist á
fimmtudag. DAX-30 hlutabréfavísi-
talan fór þá i 2504 stig.
Að öðrum kauphöllum er það að
segja að hlutabréfaverö var víðast á
uppleiö á fimmtudag eftir nokkra
lækkun að undanfórnu.
Verð á bensíni og olíu á heims-
markaði hækkaði í vikunni. Ástæð-
an er einkum ófriðarástandið í Kína
og Taiwan. -Reuter
Óttinn við kúariðu fór eins og eld-
ur í sinu um heimsbyggðina í gær og
bættust að minnsta kosti þijú lönd
utan Evrópu í hóp þeirra ríkja Evr-
ópusambandsins sem hafa bannað
állan innflutning á bresku nauta-
kjöti.
Steikhús í Lundúnum voru að
mestu mannlaus í gær í kjölfar til-
kynningar vísindamanna fyrr í vik-
unni um að þeir hefðu fundið líkleg
tengsl milli kúariðu í bresku nauta-
kjöti og Greutzfeldt-Yakob veikinnar
sem leggst á heila manna og eyði-
leggur hann og er alltaf banvæn.
Tilraunir til að sefa ótta bæði
neytenda og ríkisstjóma báru engan
árangur. Þjóðveijar, ítalir, Finnar og
Grikkir voru meðal hinna fyrstu til
Elísabet Englandsdrottning lét
undan þrýstingi samtaka gyðinga í
Bretlandi og ætlar að heimsækja
stað einn í Varsjá, höfuðborg Pól-
lands, þaðan sem gyðingar voru
fluttir í dauðabúðir nasista í heims-
styrjöldinni siðari.
Drottning fer í opinbera heim-
sókn til Póllands í næstu viku og
höfðu breskir gyðingar lýst yfir óá-
nægju sinni með að hún skyldi ekki
að banna innflutning á bresku
nautakjöti.
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins, sem sagði á fimmtudag að
ákvörðun Frakka um að banna
breskt nautakjöt fyrirvarlaust væri
ólögleg, skipti um skoðun í gær og
sagði að Frökkum hefði ekki borið
skylda til þess að láta vita fyrir fram.
Sérfræðingar sögðu í gær að úti-
lokað væri að gera sér grein fyrir
efnahagslegum afleiðingum kúarið-
unnar þar til meira væri vitað um
umfang sjúkdómsins og hver opin-
ber viðbrögð breskra stjórnvalda
yrðu.
Talsmaður breska Verkamanna-
flokksins sagðist skilja hvers vegna
svo mörg lönd gripu til aðgerða gegn
ætla að heimsækja dauðabúðirnar í
Auschwitz-Birkenau, þar sem rúm-
lega ein milljón manna, mest gyð-
ingar, létu lífið.
„Gyðingar um heim allan hefðu
mjög kunnað að meta að drottning
minntist hinna hræðilegu atburða í
Auschwitz og á öðrum stöðum
tengdum helforinni á áþreifanlegan
hátt,“ sagði í yfirlýsingu sem sam-
tök breskra gyðinga sendu frá sér.
bresku nautakjöti.
„I stað þess að tala um að franska
stjómin grípi til ólöglegra aðgerða
ætti Douglas Hogg landbúnaðarráð-
herra að skilja að hún vildi bara
hafa vaðið fyrir neðan sig,“ sagði
Gavin Strang, talsmaður Verka-
mannaílokksins.
Stærsta neytendafélag Bretlands
ráðlagði fólki að hætta að neyta
nautakjöts ef það vildi vera alveg
visst um að smitast ekki af Creutz-
feldt-Yakob veikinni. Læknar hjá Al-
þjóða heilbrigðismálastofnuninni
sögðu aftur á móti að ekki væru
neinar beinharðar sannanir fyrir
tenglum milli kúariðu og C-J. Engin
hætta væri á að fá sjúkdóminn af því
að borða nautasteikur. Reuter
Þegar hafði verið ákveðið að Fil-
ippus drottningarmaður mundi
heimsækja gamla gyðingahverfið í
Krakow á miðvikudag og hitta að
máli fulltrúa fámenns gyðingasam-
félags borgarinnar sem varð þar eft-
ir í kjölfar helfararinnar.
Drottning mun heimsækja fleiri
staði sem tengjast styrjöldinni, m.a.
mun hún skoða minnismerki um
uppreisnina í Varsjá 1944. Reuter
Persson lofar
baráttu gegn
atvinnuleysinu
Göran Pers-
son, nýbakað-
ur forsætis-
| ráðherra Sví-
þjóðar, skip-
aði marga ný-
liða í ríkis-
1 stjórn sína í
gær og lofaði
| því að á næstu
tveimur árum yrði áherslan lögð á
Íbaráttuna gegn atvinnuleysi, fyrir
bættum efnahag og á Evrópumál-
in.
„Það er því kominn tími til aö
gefa nýju fólki tækifæri til aö taka
við og það er fólkið mitt,“ sagði
Persson á fundi raeð fréttamönn-
um.
Hann skipaði Erik Asbrink í
embætti fjármálaráðherra en sá
| þykir harður í horn að taka í að-
haldsmálum.
Kanadískir sel-
veiðimenn
komnir á fullt
Kanadískir selveiðimenn eru
byrjaðir árlega veiði sína á ísnum
| undan austurströnd Kanada og
Igera sér vonir um að drepa fleiri
seli en nokkru sinni síðan
snemma á níunda áratugnum.
Undanfarinn mánuð hafa þeir
þegar grandaö tuttugu þúsund sel-
um en kvótinn er 250 þúsund dýr.
Umhverfisvemdarsinnar vonast
til að selfóngurum takist ekki að
veiða upp í kvótann. Þaö hefur
? ekki tekist á síðustu árum.
í fyrra tókst aðeins að veiða 65
þúsund seli af 186 þúsund sela
kvóta. Bæði voru skilyrði til veiða
fremur léleg og verð lágt þannig að
ekki var eftir miklu að slægjast.
Byssubófar
myrða ellefu í
Zúlúlandi
Vopnaðir menn myrtu ellefu
manns, þar af eitt komabarn, í
pólitískri árás í héraði
' Zúlúmanna í Suður-Afríku, að-
* eins nokkrum klukkustundum
5 eftir að Nelson Mandela forseti
| var þar á ferð.
Lögregla sagði að barnið hefði
látist eftir að móðir þess var skot-
in til bana af sjö byssumönnum
sem vora vopnaöir haglabyssum,
? árásarrifflum og skammbyssum.
á Sex konur til viðbótar og þrír
menn féllu í skothríðinni. Flestir
I vora skotnir af stuttu færi.
Að sögn lögreglu vora allir hin-
ir myrtu stuðningsmenn Afríska
þjóðarráðsins, flokks Mandelas,
sem hefur eldað grátt silfur við
foringja Zúlúmanna.
Forseti Taívans
kokhraustur
fyrir kosning-
arnar
Taívanbúar
ganga að kjör-
■ borðinu í dag
til að velja sér
forseta í
fyrsta sinn í
í beinum kosn-
ingum og því
er spáð að nú-
verandi for-
seti, Lee Teng-hui, muni sigra
keppinauta sína meö yfirburðum.
Lee var enda kokhraustur í
| gær og hæddist að flugskeytatil-
| raunum Kínverja og heræfingum
þeirra undan Taívanströndum
siðustu daga og vikur en þeim var
[ ætlað að hræða eyjarskeggja frá
draumum sfnum um sjálfstæði.
Bandaríkin era með mikinn
flötastyrk skammt frá Taívan til
að sýna þeim stuðning sinn. Taí-
vanforseti gat ekki leynt ánægju
sinni með þá skipan. Reuter
Kona pantar sér kjöt hjá slátrara í Köln í Þýskalandl en á skiltinu segir að allt nautakjöt verslunarinnar komi frá þýsk-
um bændum. Þjóðverjar eru meðal þeirra þjóða sem hafa bannað innflutning á bresku nautakjöti í kjölfar frétta um
kúariðu. Símamynd Reuter
Elísabet Englandsdrottning lætur
undan þrýstingi breskra gyðinga