Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1996, Side 12
erlend bóksjá
Metsölukiljur
| •••••••••#••#••
Bretland
Skáldsögur:
1. Kate Atklnson:
Behlnd the Scenes at the Museum.
2. Josteln Gaarder:
Sophle's World.
3. John Grlsham:
The Ralnmaker.
4. Irvlne Welsh:
Tralnspotting.
5. Irvlne Welsh:
Tralnspotting.
6. Anne Tyler:
Ladder of Years.
7. Davld Guterson:
Snow Falling on Cedars.
8. Chaterine Cookson:
A Ruthless Need.
Í9. Erlca James:
A Breath of Fresh Alr.
10. Irvlne Welsh:
The Acld House.
I
Rit almenns eðlis:
1. Wlll Hutton:
The State We're In.
2. Graham Hancock:
Flngerprlnts of the Gods.
3. Ngaire Genge:
The Unofficial X-files Companion.
4. Alan Bennett:
Writing Home.
5. Andy McNab:
Bravo Two Zero.
6. Brlan Lowry:
The Truth Is out there.
7. Janine Pourroy:
Behind the Scenes at ER.
8. Jung Chang:
Wild Swans.
9. Nelson Mandela:
Long Walk to Freedom.
10. Ranfurly:
To War with Whltaker.
(Byggt á The Sunday Times)
Danmörk
1. Jane Austen:
Fornuft og folelse.
2. Jung Chang:
Vllde svaner.
3. Lise Nðrgaard:
Kun en pige.
4. Nat Howthorne:
Den flammende bogstav.
5. Terry McMillan:
Ándened.
6. Llse Norgaard:
De sendte en dame.
7. Peter Heeg:
De máske egnede.
(Byggt á Polltiken Sendag)
vísindi________________
Hægir á
brennslu
Karlmenn á sjötugs- og áttræð-
isaldri geta ekki lagst á meltuna
eftir góða máltíð og ætlast til
þess að brenna jafn mörgum um-
framkaloríum og þeir gerðu á
sínum yngri árum.
Ný rannsókn á vegum banda-
j rískra stjómvalda sýnir að karl-
menn sem komnir eru á efri ár
eiga á hættu að bæta á sig einu
kílói af líkamsfitu á ári.
„Þeir verða að bæta það upp
j einhvern veginn, eins og með því
að fara út að ganga eftir stóra
máltíð," segir líffeðlisfræðingur-
inn Susan Roberts.
Roberts og félagar hennar
mældu efnaskipti í niu eldri körl-
| um og sjö mönnum á þrítugsaldri
áður en, á meðan og eftir aö þeir
innbyrtu 1000 umframkaloríur á
dag í þrjár vikur.
Tungumálunum
fækkar
j Málvísindamenn áætla að um
það bil sex þúsund tungumál séu
töluð í heiminum, eða um þrjátíu
sinni fleiri en löndin eru. Flest
mál eru töluð í Papúa Nýju-
Gíneu, eða 862.
Vísindamennirnir telja að
helmingur allra tungumálanna
muni hverfa á næstu 75 til eitt
hundrað árum. Þar á ofan munu
mörg þeirra sem þá lifa enn vera
! í útrýmingarhættu.
Umsjón
Guðlaugur Bergmundsson
LAUGARDAGUR 23. MARS 1996 TIV
Franskt vandræða-
barn og þjéðhetja
Marguerite Duras var 81 árs þegar hún lést.
Franska skáldkonan og kvik-
myndahöfundurinn Marguerite
Duras, sem lést nýverið á heimili
sínu í París, 81 árs að aldri, var í
senn umdeild og vinsæl í heima-
landi sínu.
Hún fór sjaldan troðnar slóðir,
lifði óhefðbundnu lifi sem ávann
henni fljótlega merkimiða sem
vandræðabarn franskra bók-
mennta en hlaut á gamals aldri
gífurlegar vinsældir og almenna
viðurkenningu fyrir L’Amant
(Elskhuginn), opinskáa skáld-
sögu um æskuástir sínar í Ví-
etnam. Fyrir það verk fékk hún
hin eftirsóttu Gouncourt bók-
menntaverðlaun árið 1984.
Erfið æskuár
Marguerite fæddist 4. apríl
árið 1914 í Gia Dinh í Víetnam
sem var frönsk nýlenda á þeim
tíma. Hún lýsti oft síðar yfir
ánægju með að hafa fæðst utan
Frakklands; það hefði sett mark sitt
á allan listamannsferilinn.
Hún missti föður sinn, sem var
stærðfræðikennari, aðeins fjögurra
ára að aldri. Mæðgurnar færðu sig
um set til Kambódíu, sem var líka
frönsk nýlenda, og keyptu þar jörð
sem eyðilagðist í gífurlegum flóð-
um. Þau kostuðu einnig móður
hennar lífið. Um þetta ritaði hún
áhrifamikla skáldsögu, Un Barrage
Contre le Pacifique.
Æskuár Marguerite voru því erf-
ið, en þau urðu henni að yrkisefni
með eftirminnilegum hætti síðar.
Átján ára að aldri hélt hún til
Parísar og þar átti hún heima til
dauðadags. Hún fór í háskóla,
stundaði nám í lögfræði, stærðfræði
og stjórnmálafræði en hóf síðan
störf hjá franska stjórnarráðinu
Umsjón
Elías Snæland Jénsson
árið 1935 og vann þar til 1941. Síðar
sætti hún mikilli gagnrýni fyrir að
hafa starfað sem ritari hjá hinni al-
ræmdu þýsku Gestapó-lögreglu, en
sjálf kvaðst hún m.a. hafa bjargað
lífi Francois Mitterrands á striðsár-
unum þegar hann var í andspyrnu-
hreyfingunni og í felum í París. Þau
urðu vinir og hún studdi hann
dyggilega í kosningabaráttunni
árið 1981 þegar liann var fyrst
kjörinn forseti Frakklands.
Hún gifti sig tvisvar. Fyrri eigin-
maður hennar, Robert Antelme,
lifði af vist í útrýmingarbúðum
nasista, en þeirri reynslu hans
hefur Marguerite lýst í skáldsög-
unni La Douleur (Sársaukinn).
Hún skildi við hann árið 1946 og
giftist síðar Dionys Mascolo og
átti með honum einn son, Jean.
Fjölhæfur listamaður
Marguerite Duras orti bækur og
kvikmyndir um óhefðbundið lif
sitt, hvort sem það voru ástir eða
ofdrykkja. Hún samdi handrit
fjölmargra kvikmynda, oft upp úr
eigin sögum, og átti samstarf við
marga kunna leikstjóra. Frægust
kvikmyndanna er tvímælalaust
Hiroshima mon amour, sem Ala-
in Resnais leikstýrði, en hún fór
sigurför á Cannes-hátíðina árið 1960
og telst til sígildra verka. Tony Ric-
hardson og Peter Brook hafa kvik-
myndað sögur eftir Marguerite sem
leikstýrði einnig sjálf nokkrum
kvikmyndum.
Skáldsögur hennar, eða textar
eins og hún kallaði þær gjarnan,
eru fjölmargar - þótt engin sé fræg-
ari en Elskhuginn. Hún hélt áfram
að skrifa þrátt fyrir háan aldur; síð-
asta skáldsaga hennar kom út í des-
ember síðastliðnum. Sjálft nafnið,
C’est tout, gefur til kynna að sú bók
sé hugsuð af hennar hálfu sem eðli-
leg lok á löngum, sérstæðum rithöf-
undarferli.
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. John Grisham:
The Ralnmaker.
2. Danielle Steel:
The Gift.
3. David Guterson:
Snow Falllng on Cedars.
14. LaVyrle Spencer:
Home Song.
5. V.C. Andrews:
Tarnished Gold.
6. Michael Palmer:
Sllent Treatment.
7. Lilian Jackson Braun.
The Cat Who Biew the Whlstle.
8. Stanley Pottinger:
The Fourth Procedure.
9. Robin Cook:
Acceptable Risk.
10. Sandra Brown:
Tempest in Eden.
11. Terry McMillan:
Waiting to Exhale.
12. Julie Garwood:
For the Roses.
| 13. Barbara Delinsky:
Together Alone.
14. Jane Austen:
Sense and Sensibility.
15. John le Carré:
Our Game.
Rit almenns eðlis:
II. Helen Prejean:
Dead Man Walking.
2. Mary Pipher:
Reviving Ophella.
3. Richard Preston:
The Hot Zone.
4. Butler, Gregory & Ray:
America’s Dumbest Criminals.
5. M. Scott Peck:
The Road Less'Traveled.
6. B.J. Eadle & C. Taylor:
ÍEmbraced by the Light.
7. Nicholas Negroponte:
Being Dlgital.
8. Thomas Mooré:
Care of the Soul.
9. Paul Reiser:
Copplehood.
10. Clarlssa Pinkola Estés:
Women Who Run with the Wolves.
11. Dorls Kearns Goodwin:
No Ordlnary Tlme.
12. Brian Lowry:
The Truth is out there.
13. Tim Allen:
Don't Stand to Close
To a Naked Man.
14. Maya Angelou:
I Know Why the Caged Blrd Sings.
15. Robert Fulghum:
From Beginning to End.
I
(Byggt á New York Times Book Review)
Halastjörnurnar frá
árdögum sólkerfisins
Islendingar eiga þess kost næstu
dagana að sjá halastjörnuna
Hyakutake ferðast yfir himininn og
ekki er talið útilokað að hún muni
gefa frá sér skærara ljós en tunglið
sjálft þegar hún verður hvað skær-
ust. Halastjarna
þessi er kennd
við japanskan
áhugamann um
stjarnvísindi sem
uppgötvaði hana í
janúar síðastliðn-
um.
Önnur hala-
stjama og enn þá
bjartari verður
sennilega næst
sólu þann 1. apríl
á næsta ári. Hún
heitir Hale- Bopp
og hefur vakið at-
hygli evrópskra
stjamvísinda-
manna sem hafa
skrifað um hana
grein í vísindaritið Nature.
Vísindamennirnir segja að hala-
stjarnan, sem spáð er að verði sú
skærasta sem sést hefur frá jörðu á
þessari öld, eigi ljóma sinn að
þakka kolmónoxíði. Halastjarnan er
ekki enn byrjuð að brenna öðrum
gastegundum og því eru líkur á að
hún muni skína sífellt skærar eftir
því sem hún nálgast sólina meir.
Það sem veldur því að halastjarna
sendir frá sér ljós er að sólarljósið
endurkastast af efnisögnum sem
rjúka upp af yfirborði hennar,
venjulega ís, en Hale-Bopp er enn of
langt frá sólu til að ísinn á henni
nái að gufa upp.
Jacques Crovisier og félagar hans
við stjörnuathugunarstöðina í Meu-
grein sinni í Nature að þeir hafi
greint kolmónoxíð á Hale-Bopp og
leiða getum að því að ljómi hennar
stafi af því. Þeir segja enn fremur að
fleiri gastegundir muni hugsanlega
rjúka upp af halastjörnunni þegar
hún nálgast sólina og því kunni svo
að fara að hún verði enn bjartari.
Bandaríski stjörnufræðingurinn
Harold Weaver segir að þetta séu
góðar fréttir fyrir áhugasama hala-
stjömuskoðendur.
„Ég tel góðar líkur á því að Hale-
Bopp muni sóla okkur upp úr skón-
um á næsta ári. Það er ótrúlegt að
við skulum fá tvær björtustu hala-
stjörnur aldarinnar á einu ári,“ seg-
ir Weaver.
Halastjörnur eru klumpar út ís,
grjóti og ryki og talið er að þær séu
leifar frá því í
árdaga sólkerf-
isins. Þær
hverfa stöðugt
en ný hala-
stjarna hefur
ekki komið
fram frá því sól-
kerfið fæddist
fyrir um það bil
4,5 milljörðum
ára. Sporbaugar
þeirra eru mjög
frábrugðnir því
sem gerist hjá
plánetunum og
vísindamenn
geta ekki alltaf
spáð fyrir um
hvenær þær
muni birtast né hvernig þær komi
til með að líta út. Nærtæk dæmi eru
halastjarnan Kohutek sem spáð var
að mundi lýsa upp næturhimininn
á áttunda áratugnum en svo varð þó
ekki. Þá olli halastjarna Halleys
líka töluverðum vonbrigðum árið
1985.
Halastjörnur hafa náð miklum
vinsældum meðal þeirra sem nota
Internetið reglulega og þar má finna
fjölda síðna með upplýsingum um
vegferð þeirra um himingeiminn.
Depurðin er
í genunum
Hópur skoskra vísindamanna
I hefur uppgötvað fyrstu sannanir
e þess sem menn hefur lengi grun-
að, sem sé það að erfðir eigi sinn
j þátt í depurð.
Vísindamennirnir komust að
því að tilbrigði við gen, sem
þekkt er undir nafninu SERT,
var miklu algengara meðal fólks
sem þjáðist af þunglyndi. SERT
hefur lengi legið undir grun um
! að eiga þátt í að valda depurð en
niðurstöður skosku rannsóknar-
innar, sem birtist í breska
læknablaðinu Lancet eru fyrsta
áreiðanlega vísbendingin þar
! um.
Fiskur hefur
vinninginn
Maðurinn hefur fyrirhitt ofjarl
; sinn í afrískri fisktegimd sem
heitir því skemmtilega nafni fíls-
nefið. I ljós hefur komið að fisk-
j ur þessi notar meira súrefni en
! maðurinn til að knýja heila sinn
j áfram.
Fiskurinn lifir í ám og vötnum
í vestur- og miðhluta Afríku og
! hann er rúmlega 25 sentímetra
; langur. Heili hans er óvenju stór
; hlutfallslega, eða 3,1 prósent af
; líkamsþyngd hans, en heili
! mannsins er 2,3 prósent af lík-
! amsþyngdinni.
Heili mannsins notar 20 pró-
sent af súrefni því sem líkaminn
fær en hjá umræddum fiski er
súrefnisnotkun heilans 60 pró-
sent af heildarorkuþörf líkama
hans, að því er sænski vísinda-
maðurinn Göran NUsson hefur
uppgötvað.
don, rétt fyrir utan París, segja í