Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1996, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1996, Blaðsíða 13
13 DV LAUGARDAGUR 23. MARS 1996 „HOLLUR MORGUNVERÐUR BÆTIR EINBEITINGU, IÍTHALD OG IMYNDUNARAFL BARNA“ Rétt fœðuefni eru lykilatriði þess að viðhalda hreysti og heilbrigði, andlegu jafnvœgi og líkamlegum styrk. Eitt helsta fœðuefni líkamans er kalk og á meðan tennur og bein barna og unglinga eru að vaxa er kalkrík fœða afar nauðsynleg. í þeim efnum er morgunverðurinn sérstaklega mikil- vcegur. Hann gegnir mikilvœgu hhtíverld ídaglegu fœðumynstrifólks á öllum aldri og er að margra mati mikilvœgasta máltíð dagsins. Þetta á þó sérstaklega við um böm, enda hefur innihald morgunverðarins bein og ótvírœð áhrifá Uðan þeirra, úthald og velgengni í námL Samkvæmt nýlegri könnun Manneldisráðs fær sá hópur nemenda sem borðar morgun- verð sjaldan eða aldrei umtalsvert minna magn allra nauðsynlegra næringarefna á dag en hinn hópurinn sem yfirleitt borðar morgunverð. Barn sem borðar morgun- verð 5 sinnum í viku eða oftar fær að meðaltali 50% meira af bætiefnum í dag- legu fæði sínu en barn sem borðar morgunverð sjaldan eða aldrei. Aœtliií) meðalorkuþörf Ixtnitt l-lll ára Aldur Kkal/dag 1 -3 ára 1300 4-6 ára 1700 7-10 ára 1950 Morgunverðurinn ásamt nesti um miðjan morgun œtti að sjá baminu jyrir u.þ.b. jjórðungi af daglegri orkuþörf þess. Lifrin geymir varaforða líkamans af orku (glúkósa). Lifur barna er miklu minni en lifur fullorðinna en heilinn er hins vegar næstum jafn stór. Þetta misræmi veldur því að börn hafa lítið af aukanæringu fyrir heila og taugakerfi og þurfa því að borða oftar en fullorðnir. Misgóðir kostir: 1. Að sleppa morgunverðinum Enginn vill senda börnin sín af stað í amstur dagsins á fastandi maga. Þau hafa ekkert borðað í 10-12 klukkustundir. Ef þau eru úrill og eirðarlaus þegar þau leggja af stað má nærri geta hvort líðanin þatnar þegar í skólann er komið. 2. Að fá sér „skammgóðan vermi“ Lélegur morgunverður er betri en enginn. En próteinsnauður morgunverður sem inniheldur mikið af auðmeltum sykri er skammgóður vermir í bókstaflegum skiln- ingi. Hann veldur því að blóðsykurinn eykst hratt í fyrstu en minnkar aftur á skömmum tíma og er kominn undir eðlileg mörk aðeins 2-3 klukkustundum eftir að morgun- verðar er neytt. Blóðsykurmagn 3. Að borða staðgóðan morgunverð Hollur morgunverður tryggir að blóðsykurinn nær fljótlega eðlilegum styrk og heldur honum lengi. Auk þess fær barnið stóran hluta þeirra bætiefna sem það þarfnast á degi hverjum. Mœldu snerpuna! Til gamans er hér tilraun til þess að mœla viðbragðsjlýti. Félagi þinn heldur reglustiku á lofti þannig að hún vísar beint niður. Þú lœtur þumal og vísifingur bera við núllið á neðri enda stikunnar, án þess þó að snerta hana (fingurgómamir eiga að vera 1 smfrá stikunni). Hotfðu á hönd félaga þíns og vertu viðbúin(n) að grípa þegar stikunni er sleppt. Talan sem þú heldur um að tilraun lokinni segir til um viðbragðstíma þinn. Prófið snerpuna eftir staðgóðan morgunverð með mjólk og berið hana saman við snerpuna þegar þið komið svöng heim úr skólanum! Mjólkin bœtir námsárangur! Það gefur auga leið að svangt barn er ekki mjög móttækilegur nemandi. Þetta hefur verið staðfest með rannsóknum, þar sem borin eru saman börn sem fá staðgóðan morgunverð og börn sem borða engan eða innihaldslítinn morgunverð. „Morgunverðarbörnin(t hafa: • meiri vinnuhraða og úthald • betri einbeitingu og rökhugsun • auðugra ímyndunarafl Helstu heimildir: Laufey Steingrimsdóttir o.fl.: Hvað borðar íslensk œska? (Manneldisráð íslands, 1993). A. F. Meyers o.fl.: School breakfast programme and school performance, American Joumal of Disedses of Children, 143, 1989. E. Pollitt o.fl.: Fasting and cognitive functioning, Joumal ofPsychiatric Research, 17,1983. MJÓLK ER QÓÐ fSLENSKUR MJÓLKURIÐNAÐUR HVÍTA HÚSIÐ / SlA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.