Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1996, Side 20
20
LAUGARDAGUR 23. MARS 1996
Þá var
Nú þegar ísland hefur eignast
íþróttamenn í frjálsum íþróttum á
heimsmælikvarða, Jón Arnar
Magnússon tugþrautarmann og
Völu R. Flosadóttur, Evrópumeist-
ara í stangarstökki, er ekki úr vegi
að minnast aðeins þess tíma þegar
ísland átti fjölmennan hóp afreks-
manna í frjálsum íþróttum, sem
kepptu við góðan orðstír á mótum
víða um heim og unnu mikil afrek.
Á þessum gullaldartíma, sem
hófst 1946 og stóð yfir í góðan ára-
tug, fjölmenntu áhorfendur á frjáls-
íþróttamótin i þúsundatali. Þá var
Panasonic
Ferðatæki RX DS15
Ferðatæki með
geislaspilara, 40W
magnara, kassettutæki,
og útvarpi.
í frjálsum íþráttui
Haukur Clausen á Fríkirkjuveginum að nálgast markið í Tjarnarboðhlaupinu,
- vel á undan hlaupurum Ármanns og KR á lokasprettinum. Mikil fjöldi
áhorfenda fylgdist með hlaupinu allan hringinn kringum Tjörnina. Flestir þó
í iokin. Hlaupnir voru 10 sprettir, 100 og 200 metrar.
Sigurvegarar ÍR í Tjarnarboðhlaupinu 1946. Fremri röð frá vinstri Finnbjörn
fyrirliði, Þorsteinn, Hallur, Valtýr og Haukur. Efri röð Reynir, Magnús, Jóel,
Örn, Kjartan og Bergfors.
JAPIS
líka ýmislegt gert til þess að auka
áhugann; - árleg hlaup, Tjarnarboð-
hlaupið og Reykjavíkurboðhlaupið,
sem því miður eru löngu aflögð, og
þar vantaði ekki áhorfendur. Þá var
hlaupið í hléum knattspyrnuleikja
við miklar vinsældir. Undirritaður
fann nýlega gamlar myndir í fórum
slnum frá Tjamarboðhlaupinu, sem
teknar voru fyrir 50 árum. Þær
segja sína sögu um vinsældir
hlaupsins.
Ef við lítum á sigurvegara ÍR í
hlaupinu 1946 eru þar á meðal menn
sem mjög settu svip á frjálsíþróttir
þessara ára og við hæfi að minnast
helsta árangurs þeirra. Talið frá
vinstri fremri röð. Finnbjörn Þor-
valdsson, skrifstofustjóri Loftleiða,
fyrsti íslendingurinn sem komst í
úrslit í spretthlaupi á stórmóti, Evr-
ópumótinu í Osló 1946, og varð í 4.
sæti í úrslitum þar í langstökki.
Hann varð einnig Islandsmeistari i
handknattleik 1946. Setti fjölmörg
íslandsmet í spretthlaupum. Varð
Norðurlandameistari í 100 og 200 m.
1949. Var í úrslitum í 4x100 m boð-
hlaupi á EM 1950.
Þorsteinn Löve járnsmíðameist-
ari, fluttist tO Svíþjóðar. Setti ís-
landsmet í kringlukasti. Hallur Sím-
onarson blaðamaður. íslandsmeist-
ari og landsliðsmaður í bridge. Fyr-
irliði fyrsta Víkingsliðs sem varð ís-
landsmeistari í handbolta. Valtýr
Guðmundsson, sýslumaður á Eski-
firði, dáinn, sprettharður knatt-
spymumaður. íslandsmeistari með
Fram 1946 og 1947.
Haukur Clausen tannlæknir.
Norðurlandameistari í 200 m hlaupi
18 ára 1947. Komst í úrslit á EM1950
í 100 m. hlaupi og 4x100 m boð-
hlaupi. Setti fjölda íslandsmeta í
hlaupum frá 60 m upp í 400 m.
Efri röð. Reynir Sigurðsson for-
stjóri, snjall 400 m hlaupari sem
keppti á olympíuleikunum í Lund-
únum 1948. Magnús Baldvinsson,
úrsmíðameistari og kaupmaður.
Var í hópi bestu langstökkvara ís-
lands um árabil. Jóel Sigurðsson,
lögregluþjónn og verkstjóri. Bætti
pft íslandsmetið í spjótkasti og varð
íslandsmeistari í handknattleik
Í946.
Öm Clausen lögfræðingur sem á
árunum 1949 til 1952 var einn af
þremur bestu tugþrautarmönnum
heims. Varð í öðra sæti á EM 1950.
Margbætti íslandsmetin í fjölþraut-
um og grindahlaupum. Norður-
landameistari. Kjartan Jóhannsson,
forstjóri Asíufélagsins, og fyrsti ís-
lendingurinn sem þorði að hlaupa
hringhlaup ffá byrjun hlaupsins. ís-
landsmeistari og methafi á vega-
lengdum frá 400 upp í 1000 m. Þá
Bergfors þjálfari ÍR á þessum áram.
hsím
BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI
GIíÆNY-YSA,
139 kr.^ar/kg
Eigum 500 feg
af feartöflum á
35 fer. pr/feg
Glænýr
rauðmagi á
150 fer. pr/feg
I
••
FISKBUÐIN HOFÐABAKKA I
GULLINBRÚ • S: 587-5070
OPNUM KL. 8.00 • TÖKUM VISA OG EURO
ATH. TILBOÐ GILDIR AÐEINS MEÐAN BIRGÐIR ENDAST