Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1996, Síða 34
42 tónlist
LAUGARDAGUR 23. MARS 1996 1 IV
CSOtltLl
Topplag
Það tók Robert Miles ekki
nema tvær vikur að ná topplagi
íslenska listans sem er einstak-
ur árangur. í síðustu viku var
lagið Children hæsta nýja lagið,
í tólfta sæti, og er nú komið á
toppinn. Þessi frammistaða er
ekki oft leikin eftir.
Hástökkið
Hástökk vikunnar kemur í
hlut hins ferfalda Grammy-
Íverðlaunahafa, Alanis Moris-
sette. Lag hennar, You Learn,
sat í 23. sæti listans í síðustu
viku en er nú komið í það fjórða
og hefur aðeins verið tvær vik-
ur á listanum.
I
Hæsta nýja
| iagið
Þeir sem eiga hæsta nýja lag
íslenska listans að þessu sinni
eru ekki óvanir vinsældum á
popplistum víða um heim.
Breska súpersveitin Blur er í 10.
sæti listans með lagið
Charmless Man.
f
Bluetones í
bobba
Breska hljómsveitin The Blu-
etones, sem vakið hefur athygli
að undanfómu, varð á dögunum
fyrir því óláni að tapa öllum út-
búnaði sínum á einu bretti.
Þetta gerðist með þeim hætti aö
sveitin var stödd í Leeds við
kynningarstörf og ferðaðist um
í sendiferðabíl með allt sitt haf-
urtask. Bíllinn var skilinn eftir
fyrir utan hótelið sem hljóm-
sveitin gisti á og þar komu að
einhverjir óprúttnir menn,
hirtu bílinn og hefur hvorki sést
tangur né tetur af honum eða
græjunum síðan.
| Metallica
efst
á blaði
Therapy? er komin á kreik á
ný eftir nokkrar breytingar á
liðsskipan sveitarinnar.
Trommarinn Fyfe Ewing er
hættur og í hans stað hefur ver-
ið ráðinn Graham nokkur Hop-
kins sem áður barði húðir í
Ihljómsveitinni My Little Fun-
house. Auk hans bættist fyrrum
hljómborðsleikari Siouxie and
The Banshees, Martin
I McCarrick, í hópinn og er þvi
Therapy? orðin fjögurra manna
hljómsveit.
« ,
í boði á Bylgjunni á laugardag kl. 16.00
y Tiy *tVT"D i c O
" 2 JK U M, a 23.3, - Z\
Ss SlÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKUR Á USTANUM r 4 I 1 >p: m
O 12 2 CHILDREN ... 1. VIKA NR. 1... ROBERT MILES
2 1 1 5 PEACHES THE PRESIDENTS OF THE USA
3 2 2 4 I AEROPLANE RED HOT CHILI PEPPERS
£2. 23 2 YOU LEARN ... HÁSTÖKK VIKUNNAR ... J ALANIS MORISSETTE
5 5 8 8 | DON'T LOOK BACK IN ANGER OASIS
6 3 7 5 I WILL SURVIVE DIANA ROSS
G) 9 13 4 SLIGHT RETURN BLUETONES
8 7 9 3 | CALIFORNIA LOVE 2 PAC & DR. DRE
o> 10 10 5 IRONIC ALANIS MORISSETTE
...NÝTTÁUSTA... j
lGö)I 1 CHARMLESS MAN BLUR
11 11 19 3 RISE &SHINE CARDIGANS
12 4 4 10 ONE OF US JOAN OSBORNE
NÝTT 1 WEAK SKUNK ANANSIE
14 6 5 5 HOW DEEP IS YOUR LOVE TAKETHAT
15 13 16 3 ÉG GEF ÞÉR ALLT MITT LÍF STJÓRNIN
G5) 20 - 2 BIG ME FOO FIGHTERS
17 8 3 9 SPACEMAN BABYLON ZOO
18 14 15 5 OPEN ARMS MARIAH CAREY
19 19 18 10 TIME HOOTIE & THE BLOWFISH
(3) 24 26 4 IJUST WANT TO MAKE LOVE TO YOU ETTA JAMES
21 16 17 4 HYPERBALLAD BJÖRK
(3) 26 - 2 STREET SPIRIT RADIOHEAD
23 18 14 3 I WISH SKEE LO
<3> 25 28 4 JUNE AFTERNOON ROXETTE
25 28 - 2 FALLING INTO YOU CELINE DION
(3 NÝTT 1 THESE DAYS BON JOVI
27 33 39 3 LET YOUR SOUL BE YOUR PILOT STING
(3> 30 - 2 Ó UÚFA LÍF VINIR VORS OG BLÓMA
29 22 24 3 COUNT ON ME WHITNEY HOUSTON & CE CE WINANS
30 15 6 9 SICK AND TIRED CARDIGANS
31 31 33 4 ANYTHING 3T
32 17 12 5 TWIGGY TWIGGY PIZZICATO FIVE
[H NÝTT 1 GREAT BLONDINO STAKKA BO
34 34 34 3 GIVE ME A LITTLE MORE TIME GABRIELLE
35 29 25 4 REALLOVE - THE BEATLES
I13 NÝTT 1 HÆTTULEGT S.S.SÓL
37 21 11 10 1979 SMASHING PUMPKINS
ds> N Ý T T 1 HELLO SPACEBOY DAVID BOWIE & PET SHOP BOYS
(39) N Ý T T 1 SEX ON THE STREET PIZZAMAN
dö> N Ý TT 1 DARLING PRETTY MARK KNOPFLER
Sitt er hvað
gæfa og
■■■ ■■ ■■ ■
gjorvileiki
Ekki er víst að rapparinn 2Pac
Shakur fái að njóta þess ríkidæm-
is sem hann safnar meö eindæma
plötusölu um þessar mundir.
Rapparinn hefur verið iðinn við
að komast upp á kant við lögin og
alls hefur hann verið handtekinn
sex sinnum á síðastliðnum þrem-
ur árum. Nú síðast var hann
handtekinn fyrir ólöglegan
vopnaburð ogfyrirþaðgætihann
fengið allt að þriggja ára fangelsi.
Sárabætur
Glastonbury
Glastonbury tónleikahátíðin
verður ekki haldin þetta árið eins
og við sögðum frá um daginn,
mörgum til mikillar hrellingar.
En fátt er svo með öllu illt... því
nú hafa skipuleggjendur Glaston-
hátíðanna fengið leyfi til að halda
sárabótahátíð í Winchester
Hampshire. Sú veisla verður í lok
júni en þar komast þó mun færri
að en á Glastonbury eða rétt um
50 þúsund manns.
fréttír
Þriðja plata Stone Tempíe
Pilots er nú loks væntanleg í
verslanir en útgáfa hefur dregist
vegna eiturlyfjavandamála
söngvarans Scott Weilands . . .
Snoop Doggy Dogg er langt kom-
inn með að taka upp nýja plötu
sem mun bera nafnið The Dogg-
father og koma út í sumar . . .
Liðsmenn Dinosaur Jr. eru að
gera sig klára til aö hefja upptök-
ur á nýrri plötu en enn er allt
óljóst með útgáfutíma . . . Hins
vegar er forsprakki Dinosaur Jr.,
J. Masics, búinn að hljóðrita sóló-
plötu sem tekin var upp á tónleik-
um víðsvegar og kemur sú plata
á markaðinn í maí. . . Ný plata
með Johnny heitnum Thunders
er væntanleg á markað í næsta
mánuði en Johnny var þekktast-
ur sem einn af liðsmönnum New
York Dolis á árum áður. Hann
átti alla tíð í hörmulegu basli með
eiturlyfjaneyslu og hún reið hon-
um loks að fullu fyrir réttum
fimm árum. Töluvert fannst af
upptökum með honum sem nú
hafa verið snurfusaðar og eru
klárar til útgáfu ...
-SþS-
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Islenskilistinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar, DV og Coca-Co/a á Islandi. Listinn er niðurstaða skoðanakönnunarsem er framkvæmd af markaðsdeild DVihverri viku.
Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára aföllu landinu. Jafnframt er tekið mið afspilun þeirra á íslenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist
á hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 14.00 'á sunnudögum i sumar. Listinn er birtur, að hluta, i textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski
listinn tekurþátt i vali "World Chart" sem framleiddur er af Radio Express i Los Angeles. Einnig hefur hann áhrifá Evrópulistann sem birtur er í tónlistarblaðinu Music
& Media sem er rekið af bandariska tónlistarblaðinu Billboard.
Yfirumsjón meö skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla:,Dódó - Handrit: Sigurður Helgi
Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og ívar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman
og Jóhann Garðar Ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel Ólafsson
nssmmmxammnsm