Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1996, Side 56
Alla laugardaga
Vertu viðbúin(n) |
vinningi!
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
m550 5555
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 23. MARS 1996
Friðrik Sophusson:
Tekur að
sér kynn-
" ingu á hót-
eli í Túnis
„Fyrr í þessum mánuði átti ég
þess kost að búa á Nahrawess hóteli
i Hammamet í Túnis. Þetta er frá-
bært hótel með öllu því sem hugur-
inn girnist og ég get sérstaklega
mælt með því. Ástæða þess að ég
sendi meðfylgjandi upplýsingabæk-
ling er sú að ég kynntist lítils hátt-
ar eiganda hótelsins, Habib
Bouslama . . . “
Þannig hefst bréf sem Friðrik
Sophusson íjármálaráðherra hefur
skrifað til nokkurra ferðaskrifstofa
v>"’'"hér á landi. Með bréfinu fylgir
bæklingur frá fyrrnefndu hóteli.
Einkabílstjóri ráðherrans var látinn
keyra út bréfið og bæklingana.
Fjármálaráðherra var sem kunn-
ugt er í tveggja vikna fríi á sólar-
strönd Túnis á dögunum. Það frí
stóð þegar frumvörpin tvö sem
hann hefur lagt fram um réttindi og
skyldur ríkisstarfsmanna og lífeyr-
ismál þeirra voru sem mest til um-
ræðu.
í bréfi sínu til ferðaskrifstofanna
v>__.segir fjármálaráðherra þennan hót-
elvin sinn vera áhugasaman um
aukin viðskipti og að íslenskar
ferðaskrifstofur gætu fengið sérkjör
í beinum viðræðum við hóteliö.
„Ég sagði Habib Bouslama að mér
væri heiður að því að segja íslensk-
um ferðaskrifstofum frá aðbúnaðin-
um á þessu mjög svo ágæta hóteli,
ef það mætti verða til þess að íslend-
ingar fengju að kynnast dvöl þar á
þeim kjörum sem bjóðast þegar um
sérsamninga er aö ræða.“
Þannig lýkur bréfi fjármálaráð-
herra og hann skrifar undir það. í
haus bréfsefnisins stendur: Friðrik
Sophusson fjármálaráðherra. -S.dór
Flexello
Vagn- og húsgagnahjól
Bmhéii
Suðurlandsbraut 10. S. 568 6499
-Hut
Sími 533 2000
Ókeypis heimsending
L O K I
Björguðu með snarræði ungri konu frá drukknun í Grafarvogi:
Æðri máttarvöld ætluðu
okkur að bjarga konunni
- segir Þórhallur Gestsson vörubílstjóri, annar björgunarmannanna
„Ég trúi ekki á tilviljanir. Æðri
máttarvöld ætluðu okur að bjarga
konunni," segir Þórhallur Gests-
son, vörubílstjóri hjá verktakafyr-
irtækinu Dalverki, en hann bjarg-
aði í gær ásamt Rúnari Sveinssyni
gröfumanni ungri konu frá
drukknun í Grafarvogi.
Þeir voru að vinna við uppfyll-
ingu á svæði Björgunar við voginn
laust fyrir kiukkan tvö í gær þeg-
ar Þórhallur sá eitthvað koma
fljótandi út úr voginum. Útfail var
og straumur harður.
„Ég hélt fyrst að þetta væri eitt-
hvert rusl. Svo datt mér í hug að
það væri selur en þá áttaði ég mig
á að þetta var mannvera á floti og
hélt fyrst að það væri barn,“ segir
Þórhallur.
Hann var úti á tanga við voginn
og gröfumaðurinn Rúnar einnig.
Þeir stukku því í hasti út úr tækj-
um sínum og Rúnar óð út í sjóinn
á eftir konunni.
„Sjórinn var kominn upp undir
hendur þegar ég náði í hana.
Sennilega hef ég farið aðeins á flot
en náði að krafla mig að landi og
fá fótfestu," segir Rúnar.
Saman komu þeir konunni á land
og Þórhallur hringdi í neyðarlínuna
- 112 - og bað um sjúkrabíl. Hann
sagðist í samtali við DV þakka fyrir
að þetta nýja númer var komið í
notkun því ella hefði hann ekki
munað nokkuð neyðamúmer.
Konan var mjög máttfarin og
köld og gat ekki talað þegar henni
var bjargað. Hún var flutt á
Sjúkrahús Reykjavíkur og er þar á
batavegi. Ekki liggur fyrir hvar
hún féll í voginn en hún var búin
að vera nokkum tíma í sjónum
þegar Þcrhallur sá hana.
„Við getum sagt að tilviljun hafi
ráðið að við vorum að vinna þarna
einmitt á þessum tíma. Við vorum
rétt að hætta. Konuna hefði líka
getað rekið út úr voginum að
norðanverðu og þá hefðum við alls
ekki séð hana. Þetta eru kannski
tilviljanir en ég trúi ekki á slíkt.
Þarna voru æðri máttarvöld að
verki,“ sagði Þórhallur. -GK
Þórhallur Gestsson sá konuna á floti í sjónum yst í Grafarvoginum. Hann og félagi hans, Rúnar Sveinsson,
björguðu konunni úr sjónum en hún var þá orðin mjög máttfarin og köld. DV-mynd ÞÖK
Anna Mjöll syngur fyrir íslands hönd:
Sjúbídú í Evróvision
Lag íslands, Sjúbídú eftir Önnu
Mjöll Ólafsdóttur og Ólaf Gauk,
mun taka þátt í lokakeppni Evró-
vision í Ósló 18. maí. Á miðvikudag
og fimmtudag fór fram forkeppni 29
landa þar sem dómnefnd í hverju
landi valdi tiu bestu lögin með
sömu aðferðum og gert er í loka-
keppninni. Úr niðurstöðum allra
dómnefndanna eru valin 22 lög til
þátttöku og eru það því sjö lög sem
ekki komast áfram. Ekki er vitað
hvar í röðinni íslenska lagið lenti.
„Anna Mjöll kemur til landsins á
mánudag og upptökulið frá Noregi
kemur einnig í næstu viku til þess
að taka upp myndir sem sýndar
verða keppniskvöldið frá hverju
landi,“ segir Sigrún Sigurðardóttir,
ritari dagskrárstjóra.
-em
Tekinn á
tíunda degi
Ungur ökumaður var tekinn fyrir
að aka á ríflega 120 kílómetra hraða
inn í þéttbýlið á Hauganesi við
Eyjafjörð í gær. Var hann á tíunda
degi á ökuferli sínum þegar bensín-
fóturinn var orðinn svo þungur.
Málið fer fyrir dómara og á ökuþór-
inn á hættu að missa réttindi sín.
-GK
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Hægviðri um allt land
Á sunudag verður fremur hæg, norðvestlæg átt með éljum við norðurströndina en bjart veður sunnanlands. Frost um mest allt land.
Á mánudag má búast við hægri, breytilegri átt og sennilega björtu veðri um mest allt land.
Allvíða verður frostlaust yfir daginn en þriggja til níu stiga frost yfir nóttina.
Veðrið í dag er á bls. 61