Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.1996, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1996
7
Fréttir
íslendingar settu hæðarmet í fallhlífarstökki í Flórída:
Stukku úr tuttugu og
tveggja þúsunda feta hæð
„Það eru einungis mjög hæfir fall-
hlífarstökkvarar sem ráðast í að
stökkva úr svona mikiili hæð. Strák-
amir eru án efa meðal hæfustu fall-
hlífarstökkvara á landinu í dag,“ seg-
ir Ingi Þór Þorgrímsson, formaður
Flugbjörgunarsveitar íslands. Fjórir
fallhlífarstökkvarar, þrír úr Flug-
björgunarsveitinni og einn úr Fallhlíf-
arklúbbi Reykjavíkur, settu hæðar-
met þegar þeir stukku úr King Air-
flugvél úr tuttugu og tvö þúsund feta
hæð í Flórída og létu sig falla í tvær
mínútur. Það er skráð mesta hæð sem
nokkrir íslenskir fallhlífarstökkvarar
hafa stokkið. Fallhlífarstökkvaramir
eru allir við æfmgar í Z-Hills í Flórída
en þar er stórt stökksvæði.
Fallhlífarstökkkapparnir heita
Snorri Hrafnkelsson, Pétur Kristjáns-
son, Konráð Skúlason og Matthías
Gislason og em þeir allir staddir á
nokkurra vikna námskeiði í fallhlífar-
stökki i Flórída. í Z-Hills eru eins kon-
ar æfmgabúðir fyrir fallhlífar-
stökkvara. Hópur íslendinga lagði leið
sína þangað og ætlar að dvelja þar í
nokkrar vikur.
„Strákarnir era í æfmgabúðunum á
eigin vegum en eru að æfa sig vegna
starfsins og eigin áhuga. Tveir strá-
kanna eru með kennararéttindi i fall-
hlífarstökki. Ég þakka þennan árang-
ur miklum áhuga, góðri þjálfun og
einbeitingu i því sem mennimir era
að gera. -em
Fjórir fallhlífarstökkvarar, þrír úr Flugbjörgunarsveitinni og einn úr Fallhlífarklúbbi Reykjavíkur, settu hæðarmet þeg-
ar þeir stukku úr King Air-flugvél úr tuttugu og tvö þúsund feta hæð í Flórída og létu sig falla í tvær mínútur. Það er
skráð mesta hæð sem nokkrir íslenskir fallhlífarstökkvarar hafa stokkið.
-iyrir nákuæma
ferðagarpa!
ATC-1100 m./ áttavita,
hæðarmæli, hitamæli o.fl.
16.900 .,
ALT-6200 m./ hæ
hitamæli o.fi.
11.900
Tilboð!
Vandaður
bakpoki
fylgir
hverju úri.
Heimilistæki hf
SÆTUNI 8 SIMI 569 1500
Flutningstíminn styttist
og þjónustunetið þéttist
þegar Landflutningar-Samskip verða hluti af
heildarkerfi sem er einstakt á sínu sviði á íslandi.
Einn staður fyrir allt...
Með Landflutningum-Samskip geta viðskiptavinir á
einfaldan og skjótan hátt sent vörur, físk, búslóðir og
pakka milli allra þéttbýlisstaða á landinu. Við sjáum um
flutningana, hvort sem viðskiptavinurinn þarf að senda
vörur til Þingeyrar, sækja fisk frá Húsavík eða flytja
búslóð til Reyðarfjarðar. Sumir gætu jafnvel þurft að
gera allt þrennt í einu! Viðskiptavinurinn þarf bara að
ákveða hvort hann vill láta flytja scndinguna með skipi
eða bíl.
Persónuleg þjónusta,
scrþjálfaó starfsfólk
Hlutverk okkar er að hjálpa viðskiptavininum og við
gleymum því aldrei að það sem við flytjum er eign
einhvers annars. Starfsfólk okkar er sérþjálfað og mikil
áhersla er lögð á persónulega þjónustu og rétta meðferð
vöru. Net þjónustumiðstöðva, sem hver hefur sitt eigið
þjónustusvæði þýðir að viðskiptavinir njóta þjónustu
starfsfólks scm þekkir aðstæður á hverjum stað.
Frá sendanda til viðtakanda - alla leið
Landflutningar-Samskip ciga samstarf við Sl aðila
víðsvegar um landið — Flutningamiðstöðvar Norður-
lands, Austurlands, Suðurlands og Vestmannaeyja og
þjónustustöðvar á öllum stærstu þéttbýlisstöðum.
Saman mynda þessar stöðvar heilsteypt flutningakcrfi
innanlands sem aftur tcngist flutningakerfi Samskipa
erlendis.
Ekki bara frá einum slað á annan...
Landflutningar-Samskip og Flutningamiðstöðvarnar
bjóða yiðskiptavinum sínum ckki aðeins skjóta og
einfalda þjónustu við flutninga og dreifingu. Við getum
aðstoðað við allt sém við kemur flutningum:
Tilboðsgerð vegna inn- og útflutnings, tollskýrslugerð,
ráðgjöf varðandi flutninga, vörugeymslur, kæli- og
frystigeymslur, löndunarþjónusta og skipaafgrciðsla —
allt þctta gctur verið hluti af þjónustu okkar. Við sjáum
svo líka um að sækja vörur eða pakka frá sendanda og
aka þeim til viðtakanda, sé þess óskað.
Landfjutningar
JJ SÁMSKÍP
Skútuvogi 8, Reykjavík. Sími: 568-5400, 569-8666. Fax: 568-5740.