Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.1996, Page 30
34
ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1996
Afmæli
Kári Steinsson
Kári Steinsson, fyrrv. vinnu-
vélastjóri, Hólavegi 23, Sauðár-
króki, er sjötíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Kári fæddist að Neðri-Ási í
Hjaltadal í Skagafirði, ólst þar
upp við öll almenn landbúnaðar-
störf og átti þar heima til fullorð-
insára. Hann stundaði nám við
Héraðsskólann á Laugarvatni
1939-41 og við íþróttaskóla Bjöms
Jakobssonar á Laugarvatni
1941^42.
Kári stundaði farand-íþrótta-
kennslu víðs vegar um land um
nokkurra ára skeið, starfaði við
vinnuvélar, einkum við skurð-
gröft, um þrjátíu ára skeið, jafn-
framt ýmsum öðrum almennum
störfum og var starfsmaður við
Sundlaug Sauðárkróks um tólf
ára skeið. Hann hefur átt heima á
Sauðárkróki frá 1952.
Kári hefur sungið með
kirkjukómum á Sauðárkróki í
fjömtíu ár og hefur verið formað-
ur hans í tíu ár. Þá hefur hann
setið í stjómum Verkamannafé-
lagsins Fram, Félags eldri borgara
og Félags hjartasjúklinga á Norð-
urlandi vestra.
Fjölskylda
Kári kvæntist 29.12. 1951 Dag-
mar Valgerði Kristjánsdóttur, f.
15.2.1931, starfsmanni við Sund-
laug Sauðárkróks. Hún er dóttir
Kristjáns Sigfússonar og Jónu
Guðnýjar Franzdóttur en þau
bjuggu á Róðhóli í Sléttuhlíð.
Böm Kára og Dagmarar eru
Valgeir Steinn, f. 1.8. 1951, raf-
magnstæknifræðingur og fram-
haldsskólakennari á Sauðárkróki,
kvæntur Guðbjörgu S. Pálmadótt-
ur og eiga þau fjögur börn; Krist-
ján Már, f. 4.8. 1952, verslunar-
maður og vélstjóri i Reykjavík, og
á hann tvö börn; Steinn, f. 22.10.
1954, garðyrkjumeistari í Reykja-
vik, kvæntiu: Kristínu Arnardótt-
ur og á hann þrjú börn, auk þess
sem Kristín á tvö börn; Soffia, f.
12.2. 1956, tannfræðingur í Reykja-
vík, en maður hennar er Haf-
steinn Guðmundsson og á hann
eitt bam; Jóna Guðný, f. 14.8.
1963, rekstrarhagfræðingur og
verkefnastjóri hjá Útflutningsráði,
búsett í Reykjavík en maður
hennar er Gunnar Á. Bjarnason
og eiga þau eitt barn.
Systkini Kára: Bergþóra, f. 7.2.
1912, nú látin, húsmóðir í Reykja-
vík; Anna Sigríður, f. 26.11.1913,
nú látin, húsmóðir í Garði; Soffia,
f. 26.11. 1913, húsmóðir í Reykja-
vík; Helga, f. 13.2.1916, húsmóðir
í Garði; Svanhildur, f. 17.10.1918,
skólastjóri á Neðri-Ási í Skaga-
firði; Björn, f. 2.4.1921, nú látinn,
verkamaður í Innri-Njarðvík.
Foreldrar Kára voru Steinn
Stefánsson, f. 30.11. 1882, d. 9.5.
1954, bóndi í Neðra-Ási í Hjalta-
dal, og Soffia Jónsdóttir, f. 10.9.
1887, d. 13.2. 1969, húsfreyja.
Ætt
Steinn var sonur Stefáns, b. á
Efra-Ási, Ásgrímssonar, b. á
Gautastöðum í Stíflu, Steinssonar,
b. á Heiði í Sléttuhlíð, Jónssonar.
Móðir Ásgríms var Herdís Einars-
dóttir, prests á Knappsstöðum, í
Stíflu Grímssonar. Móðir Stefáns
var Guðrún Kjartansdóttir, b. á
Stóru- Brekku í Fljótum, Stefáns-
sona Margrét Jónsdóttir, b. á
Hraunum í Fljótum,, Erlendsson-
ar.
Móðir Steins var Helga Jóns-
dóttir, b. á Gautastöðum, Guð-
mundssonar, b. í Lundi í Stíflu,
Einarssonar, b. á Stóru-Brekku I
Fljótum, Jónssonar. Móðir Jóns
var Helga Þórarinsdóttir, b. í
Lambanesi Guðmundssonar, og
Þórunnar Björnsdótturr. Móðir
Helgu í Efra-Ási var Guðrún Jóns-
dóttir, b. á Brúnastöðum í Fljót-
um, Jónssonar, b. á Löngumýri,
Rafnssonar. Móðir Guðrúnar var
Guðrún Einarsdóttir.
Kári Steinsson.
Soffia var dóttir Jóns, b. á
Neðra- Ási í Hjaltadal, Zóphonías-
sonar, b. á Bakka í Svarfaðardal,
Jónssonar. Móðir Jóns var Soffia
Björnsdóttir. Móðir Soffiu Jóns-
dóttur var SvanhUdur Björnsdótt-
ir, b. í Syðra-Garðshomi í Svarf-
aðardal, Jónssonar. Móðir Svan-
hildar var Jóhanna Þórarinsdótt-
ir.
Kári er að heiman á afmælis-
daginn.
Alda Ármanna Sveinsdóttir
Alda Ármanna Sveinsdóttir,
myndlistarmaður og myndlistar-
kennari, Skógarási 2, Reykjavík,
er sextug í dag.
Starfsferill
Alda fæddist á Norðfirði og ólst
þar upp. Hún lauk gagnfræðaprófi
frá Alþýðuskólanum á Eiðum,
stundaði nám við Myndlistaskóla
Reykjavikur 1955, lauk stúdents-
prófi frá MH 1984, stundaði nám
við Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands frá 1983 og lauk kennara-
prófi í myndlist fyrir grunn- og
framhaldsskóla, stundaði fram-
haldsnám í olíumálun við Mynd-
listaskóla Reykjavíkur 1990-91,
stundaði starfsleikninám kennara
við KHÍ 1987-89 og hefur sótt
ýmis námskeið í myndlist á Norð-
urlöndunum á vegum Félags
myndlistarkennara.
Alda starfaði við myndlist fatl-
aðra bama á Skálatúni 1972-73 og
setti þá upp sýningar í tengslum
við starfið, starfaði við geðdeild
bama við Dalbraut, stundaði
kennslu við Bústaðaskóla 1987-95,
sem er sérskóli fyrir börn með
hegðunar- og námsvanda, var sér-
kennari og myndlistarkennari við
sérdeild einhverfra barna við
Langholtsskóla 1995-96 og stundar
myndlistarkennslu við Bústaða-
Tíl hamingju
með afmælið
2. apríl
85 ára
Gestur Loftsson,
Hlíf I, Torfnesi, ísafiröi.
80 ára
Guðmunda Jónsdóttir,
Furagerði 1, Reykjavík.
Guðjón Jónsson,
Aðalgötu 5, Keflavík.
75 ára
Sesselja Óskarsdóttir,
Suöurgötu 50, Akranesi.
Hulda Agnarsdóttir,
Kirkjuteigi 7, Keflavík.
Ingi Ú. Magnússon,
Einimel 26, Reykjavík.
Ingveldur Stefánsdóttir,
Móaflöt 45, Garðabæ.
Agnes O. Steffensen,
Hæðargarði 7C, Reykjavík.
Margrét Ámadóttir,
Skeiðarvogi 39, Reykjavík.
Jóna Jónsdóttir,
Hrísholti 24, Selfossi.
50 ára
Már Hallgeirsson,
Neðstaleiti 9, Reykjavík.
Geirrún Tómasdóttir,
Bröttugötu 9, Vestmannaeyjum.
Rögnvaldur Andrésson,
Jóraseli 2, Reykjavik.
Haukur Atli Sigurðsson,
Vinnslustöðinni,
Vestmannaeyjum.
Stefán Svararsson,
Boðagranda 14, Reykjavík.
70 ára
Gíslína Sumarliðadóttir,
Víðivöllum 11, Selfossi.
Guðbergur Sigursteinsson,
Smáratúni, Vatnsleysuströnd.
40 ára
60 ára
Þór Vigfússon,
Straumum, Öifushreppi.
Grétar Amþórsson,
Engjavegi 49, Selfossi.
Herdís Kristmundsdóttir,
Hraunbæ 102D, Reykjavík.
Guðrún Guðmundsdóttir,
Ásvallagötu 7, Reykjavik.
Árni Hallgrfmsson,
Drápuhlíð 44, Reykjavík.
skóla frá 1996.
Alda hefur unnið mikið að list-
sköpun fatlaðra. Hún safnaði
verkum fatlaðra og setti upp sýn-
inguna Úr hugarheimi í Lista-
safni ASÍ 1990, setti upp sýningu
á verkum fatlaðra í Reykjavík
1991, setti upp sýningu í Háskóla-
bíói á vegum Landssamtaka fatl-
aðra 1994, safhaði verkum fatiaðra
til sýningarhalds erlendis, t.d. í
Færeyjum 1991 og í Mencap í
London 1992. Hún vann við mynd-
listarkennslu í Iðjubergi, vemduð-
um vinnustað í Reykjavík, 1995 og
hefur haldið fjölda námskeiða í
ýmsum þáttum myndlistar.
Alda tók þátt í samsýningum
með Myndlistafélagi Neskaupstað-
ar á áranum 1966-72 en hefur frá
1985 tekið þátt í níu samsýningum
hér á landi og í Skandinavíu. Þá
hefur hún haldið sautján einka-
sýningar frá 1982.
Fjölskylda
Eiginmaður Öldu var Elías
Kristjánsson, f. 14.3. 1934, nú lát-
inn, áhaldavörður. Hann var son-
ur Kristjáns Jóhannssonar, og
Margrétar Elíasdóttur.
Börn Öldu og Elíasar era
Sveinn Ómar Elíasson, f. 27.5.
1955, rafvirki í Neskaupstað; Jón
Júlíus Elíasson, f. 20.12. 1957,
garðyrkjumeistari í Reykjavík,
kvæntur Kristínu Þóru Harðar-
dóttur, heimspekinema og ylrækt-
arfræðingi, og eiga þau tvö börn;
Margrét Elíasdóttir, f. 7.7. 1961,
leikskólakennari í Reykjavík, gift
Ólafi Sigtryggsyni dreifingarstjóra
og á hún þijú böm; Sigurður Þór
Elíasson, f. 26.7. 1964, búsettur í
Reykjavík.
Systkini Öldu: Þorbergur, smið-
ur í Neskaupstað; Þórður, smiður
í Neskaupstað; Árni Guðgeir, bú-
settur í Reykjavík; Ólafur, smiður
í Reykjavík; Guðrún, húsmóðir og
læknaritari í Kópavogi; Ingólfur
Steinar, geðlæknir í Reykjavík;
Auður, læknaritari, búsett í Mos-
fellsbæ; Ingunn, starfsmaður við
Sjúkrahúsið á Norðfirði.
Alda Armanna Sveinsdóttir.
Foreldrar Öldu; Sveinn Áma-
son, f. 29.6. 1889, útvegsb. á Barðs-
nesi á Norðfirði, og k.h., Sigríður
Þórðardóttir, f. 14.11. 1899, hús-
freyja.
Hera Guðjónsdóttir
Hera Guöjónsdóttir, húsmóðir
og verslunarmaður, Hringbraut
74, Hafnarfirði, er sjötug í dag.
Starfsferill
Hera fæddist í Hafnarfirði og
hefur átt þar heima alla tið. Hún
lauk gagnfræðaprófi frá Flens-
borgarskólanum í Hafnarfirði.
Hún hefur stundað verslunar-
störf sl. fimmtíu og fimm ár, síð-
ustu sextán árin hjá Verslun Ein-
ars Þorgilssonar í Hafnarfirði.
Hera hefur starfað mikið í
slysavamadeildinni Hraunprýði í
Hafnarfirði og setið í stjórn deild-
arinnar í nokkur ár. Þá hefur hún
setið í varastjórn Verslunar-
mannafélags Hafnarfjarðar.
Fjölskylda
Hera giftist 2.4.. 1949 Helga S.
Guðmundssyni, f. 16.10. 1928,
tryggingafulltrúa. Hann er sonur
Guðmundar Jóhannessonar sjó-
manns og Helgu Helgadóttur
verkakonu sem bæði eru látin.
Börn Heru og Helga era Elfar
Helgason, f. 8.2.1948, starfsmaður
hjá ísal, búsettur í Hafnarfirði,
kvæntur Rósu Þórðardóttur og
eru börn þeirra Hera, Þórður og
Helgi en dóttir Elfars frá því áður
er Berglind, hennar maður er
Geir Sigurðsson og eru synir
þeirra Ágúst Guðni og Geir Aron;
Helga Helgadóttir, f. 12.6. 1952,
■ húsmóðir í Hafnarfirði, gift Rún-
ari H. Sigdórssyni, starfsmanni
hjá ísal, og eru börn þeirra Hel-
ena og Helga Rut en böm Rúnars
og fósturbörn Helgu eru Guðrún
Dagmar, gift Gísla Jónssyni og
era böm þeirra Hrefna og Jón
Rúnar, Sigdór, kvæntur Erlu
Kristínu Birgisdóttur og eru böm
þeirra Indiana og Amar Jóel, og
Þórunn, gift Kristni Valgeirssyni
og eru börn þeirra Sveinn Ágúst,
Daníel Andri og Sigdór Yngvi.
Systkini Heru: Ásgrímur Guð-
jónsson, nú látinn, sjómaður í
Hafnarfirði; Steinunn Guðjóns-
dóttir, húsmóðir i Reykjavík, gift
Böðvari Eggertssyni; Ingibjörg
Guðjónsdóttir, húsmóðir í Hafnar-
firði, var gift Sigurbirni Elíassyni
sem er látinn; Hulda Guðjónsdótt-
ir, húsmóðir í Hafnarfirði, gift
Hauki Sveinssyni; Guðrún Guð-
jónsdóttir, nú látin, húsmóðir í
Hafnarfirði, gift Oddi Ingvarssyni;
Elsa Guðjónsdóttir, bankastarfs-
maður í Hafnarfirði, var gift Guð-
mundi Óskari Frímannssyni sem
er látinn; Haukur Guðjónsson, raf-
Hera Guðjónsdóttir.
virki í Ósló, kvæntur Lailu Guð-
jónsdóttur; Óskar Guðjónsson, vél-
stjóri i Kópavogi, kvæntur Krist-
ínu Jónsdóttur.
Foreldrar Heru voru Guðjón
Benediktsson, f. 26.11. 1890, d. 5.2.
1988, vélstjóri í Hafnarfirði, og
k.h., Elínborg Jónsdóttir, f. 3.1.
1891, d. 22.2. 1968, húsmóðir.
Hera tekur á móti ættingjum og
vinum í íþróttahúsinu við Strand-
götu (Álfafelli) í kvöld eftir kl.
20.00.