Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.1996, Qupperneq 36
K
N G A
L
m
til mikSls vinfí^
Mánudagur
1.4/96
@Q(7)@
(Í4) (3) (3)
KIN
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháö dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1996
Alvarlegt brot biskups:
Ekki eitt sér
ástæða til
afsagnar
biskups
- segir Úlfar Guðmundsson
„Það getur ýmislegt komið fyrir
hjá fólki og ég veit ekki hvort þetta
brot eitt sér er ástæða til afsagnar
biskups. Það er hins vegar mikið
áhyggjuefni ef prestastéttin ætlar að
klofna í tvær fylkingar," sagði Úlfar
Guðmundsson, prestur á Eyrar-
bakka og formaður siðanefndar
Prestafélags íslands, við DV í morg-
un.
Siðanefndin hefur komist að
þeirri niðurstöðu að Ólafur Skúla-
son biskup hafl brotið siðareglur
Prestafélagsins þegar hann sendi út
vottfest bréf um að Sigrún Pálína
Ingvarsdóttir hefði verið á fundi
með séra Edóka Kristinssyni. Brotið
telst alvarlegt. Biskupi hefur verið
kynnt þessi niðurstaða en hann er
nú staddur i Rotterdam.
Biskup gerðist einnig brotlegur
með ummælum sínum í tímaritinu
Séð og heyrt um Stefaníu Þorgríms-
dóttur. Hann þykir hins vegar ekki
hafa brotið siðareglur í umtöluðu
sjónvarpsviðtali um ásakanir um
kynferðislega áreitni á hendur hon-
um.
Stjórn Prestafélagsins hefur
ákveðið að fresta umfjöllun um mál
biskups fram yfir páska. Þann 15.
apríl er einnig boðaður almennur
fundur i Prestafélaginu og er gert
ráð fyrir að biskupsmálin verði
rædd þar. Allir prestar eiga rétt tO
setu á fundinum.
Siðanefndin hefur einnig komist
að þeirri niðurstöðu að séra Flóki
Kristinsson hafi brotið siðareglurn-
ar þegar hann sagðist hafa rætt önn-
ur mál en ásakanirnar á hendur
biskupi á fundi með Sigrúnu
Pálínu. Þetta þykir ámælisvert.
„Við höfum afgreitt frá okkur öll
þau mál sem spunnust í framhaldi
-af því að biskupsmálið komst í há-
mæli. Ég á nú eki von á nýjum tíð-
indum fram yfir páska,“ sagði Úlfar
Guðmundsson. -GK
Úthafskarfi og síld:
Enginn kvóti
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
hætt við að úthluta kvóta á skip í
úthafskarfaveiðum og síldveiðum í
Sildarsmugunni. Kvóti íslendinga á
úthafskarfaveiðunum er 45 þúsund
lestir og mega íslensku togararnir
veiða frjálst þar til því heildarafla-
marki er náð.
Af síld mega íslensku skipin
veiða 244 þúsund lestir. Það er sá
kvóti sem íslendingar hafa skammt-
að sér. Síldveiðarnar hefjast í maí.
-S.dór
Kanadamenn áhyggjufullir vegna hugsanlegrar ofveiði á rækju við Nýfundnaland:
Trúum ekki að
þetta geti gerst
- segir talsmaður kanadíska sjávarútvegsráðuneytisins um sóknina á Flæmska hattinn
„Við hér eigum bágt með að
trúa að það verði 200 togarar á
Flæmska hattinum í sumar. Það
hljóta allir skynsamir menn að sjá
að svo umfangsmiklar veiðar geta
ekki borgað sig. Þetta leiðir ekki
til annars en ofveiði og hruns í
rækjustofninum og hvar standa
menn þá? Hver er gróðinn? Okkar
fyrstu viöbrögð eru því að neita að
trúa að þetta geti gerst,“ sagði
Mick McLaughlin, blaðafulltrúi
kanadíska sjávarútvegsráðuneyt-
isins, í samtali við DV í gær.
Nú eru 33 togarar við veiðar á
Flæmska hattinum, þar af 11 frá
íslandi. Nú bendir margt tU að
rækjuveiðar þar stóraukist í ár frá
því sem verið hefur. Snorri
Snorrason, skipsfjóri á Dalborgu
EA, sagði við DV í gær að búast
mætti við að 40 íslenskir togarar
yrðu þar í sumar. Fullyrt er að allt
að 200 skipa alþjóðlegur floti geti
haldið tU veiða á Flæmska hatt-
inum í vor. Áður munu flest hafa
verið 70 skip við veiðar á Hattin-
um.
McLaughlin lagði einnig áheslu
á að ef veiðar yrðu auknar að
miklum mun á Flæmska hattinum
myndi það óhjákvæmUega leiða tU
verðfaUs á rækjunni. Þannig væri
helst von um að markaðurinn
verndaði rækjuna úr þvi að tU-
raunir tU að koma stjórn á veið-
arnar báru ekki árangur.
„íslendingar mótmæltu því fyr-
irkomulagi veiðistjórnunar sem
lagt var til á fundi NEAFC í fyrra.
Veiðamar eru því frjálsar og það
er alvarlegt mál ef gengið verður
of nærri stofninum. Kanadísk yfir-
völd munu hins vegar bíða átekta
og sjá hvað gerist," sagði McLaug-
hlin.
Aðspurður hvort stjórn hans liti
svo á að íslendingar bæru ábyrgð
á ofveiði á Flæmska hattinum
sagðist McLaughlin ekki ætla að
setjast í dómarasæti. „Það veröur
að spyrja íslensk stjómvöld hvort
þau telja sig bera ábyrgðina,“
sagði hann.
-GK
Hér á myndinni er áhöfnin á Þórshamri GK að taka nótina í land eftir einhverja gjöfulustu loðnuvertíð sem sögur fara
af hér á landi. Það var ekki bara að veðrið léki við loðnusjómenn, þannig að gæftir voru með eindæmum góðar, held-
ur var mikil loðna á réttum tíma. Þess vegna gekk loðnufrysting betur en nokkru sinni fyrr en í henni liggja mestu
verðmætin á loðnuvertíðinni. DV-mynd Þorsteinn Gunnarsson
ÞORSHAMAR
GRINDAVIK
Sunday Times:
Bein Krists
fundin?
Líklegt er talið að bein Krists séu
fundin í vöruhúsi í Jerúsalem skv.
frétt í The Sunday Times sl. sunnu-
dag, 31. mars. Greint er frá því í for-
síðufrétt blaðsins að nokkrar kistur
hafi fundist í grafhýsi í Jerúsalem
fyrir 16 árum. Þær vöktu litla at-
hygli þar til nýlega er þáttagerðar-
menn BBC voru þar á ferð. Þcir
réðu í áletranir á kistunum en auk
kistu sem á var letrað Jesús, sonur
Jósefs, fundust fimm aðrar kistur. Á
eina þeirra var letrað María, aðra
Jósef, á þá þriðju María með grísku
letri, en í henni eru talin vera bein
Maríu Magdalenu. Á fjórðu kist-
unni er áletrunin Matthías og á þá
fimmtu er letrað Júdas, sonur Jesú.
Fornleifafræðingar hafa uppi efa-
semdir um fundinn og eru helstu
rök þeirra þau að þetta hafi verið al-
gengustu nöfnin á 1. öld en talið er
að kisturnar séu frá þeim tíma.
Tveir menn alvar-
lega slasaðir
Tveir menn slösuðust alvarlega
þegar mjólkurbíll fór út af veginum
niður af Oddsskarði og inn í kaup-
staðinn á Eskifirði í morgun. Að
sögn lögreglu virðist sem ökumað-
urinn hafi misst stjórn á bílnum.
Nota varð klippur til að ná mönnun-
um úr flaki bílsins. Þeir voru með
meðvitund en mikið slasaðir. -GK
FÁUM VID PÁSKAFRÍ
FRÁ PRESTUNUM?
Veðrið á morgun:
Gola eða
kaldi
Á morgun verður norðau-
stangola eða kaldi. Skýjað en
úrkomulítið sunnanlands og
hiti 1 til 5 stig en éljagangur og
vægt frost annars staðar.
Veðrið í dag
er á bls. 36
T*
V.
3°/^ ^
.
v
V
V-í
■
.
V
r7
!WgB|p|
verð kr.
1.325.000.-
Bílheimar ehf.
m ni o #
Sœvarhöfba 2a Sími: 525 90001